Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 26.06.1995, Blaðsíða 8
FRETTIR Sturla með kvittunina. Hann segir að lögfræðistofan hafi leitað allra ráða til að hækka kröfuna sem mest. Sjómaður í klóiiuiukkara „Ég segi gjarnan um þetta mál að þar hafi ein fjöður orðið að fimmtíu hænum,“ sagði Sturla Már Jónsson, 35 ára sjómaður sem gerir út sex tonna bát, Láru GK- 36 frá Pat- r e k s f i r ð i. Sturla átti að greiða skipa- gjöld vegna ársins 1993 á Ólafsvík en höfuðstóll skuldarinnar var 4.783 krónur. Það sem Sturla þurfti hins vegar að borga var 55.501 króna, en krafan var komin til innheimtu hjá lögfræðistofu hér í Reykjavík. „Ég hef verið að vinna mig út úr greiðsluerfiðleikum en auðvitað er ekkert gaman að þurfa að greiða svona.“ Sturla telur að lögfræði- stofan hafi farið dýrustu og erfiðustu leiðina til að innheimta kröfuna. Þar sem um hafi verið að ræða skipagjöld sem njóti sjóveðréttar og gangi fyr- ir öllum sjóveðkröfum hefði átt að vera nægilegt að senda eitt bréf. „Mér finnst subbulegt að fara allan hringinn. Ég tel að eðlilegur kostnaður við innheimtuna hefði átt að vera 16 þúsund krónur en ekki 55 þúsund," sagði Sturla, sem gerir bát sinn út frá Patreksfirði í sumar og vonast til að geta aflað upp í lögfræðikostnað.B Svona leit krafan nl: Dtykjivili, 2WB/IS95. Sturli Wr Jtnuun OUftvíburkiupntáJur, Skifu|Jöld 4 niudungirtðlu t unddu tkipi. Hofudltðll Drðttirvutir til 24 Hðltkottniður FjtminWiðni Kottntiur vtgnt fjðr UppboðtWiðni Kostntiur vtgnt uppb Vutir tf koitniði 4.7U.W 1.644,10 11.206,W 2.820, W 8.242.N 2.820. W 21.129, W 2.040, W 55.501,00 -IJI.N < -55.371, W r.ýSjjrffeiafi Ætlar að fliia nvian boraall „Ég ætla að halda ótrauður áfram og finna borpall svo ég geti haldið áfram með mínar áætlanir,“ segir Jóhannes Einars- son, en hann hugðist eignast hinn umdeilda borpall Brent Spar og stofna á honum meðal annars veitingastað og spilavíti. Hann segir að Shell hafi í upphafi tekið vel í að afhenda honum pallinn og yfirvöld hér heima ekki verið því afhuga. Hins vegar hafi hann fengið skeyti fyrir skömmu þar sem Shell dró veru- lega í land frá því sem hann hafði áður heyrt frá þeim. „Ég er hissa á Shell að taka ekki þessu tilboði því það hefði sparað þeim mikið eins og sést best á öllu neikvæða umtalinu sem varð vegna þessa borpalls úti,“ segir Jóhannes. Hann segir að til dæmis hafi Norðmenn greinilega séð akk í að fá pallinn til sín til þess að rífa hann í sundur og honum finnst að íslendingar hefðu átt að sýna sömu fyrirhyggju til að skapa fjölda manns atvinnu.B 'VlœffSífe;# vMp'MSm Jóhannes Einarsson. Hissa á Shell að taka ekki tilboðinu. Teiknar verndarengla meö hjálp að handan Ragnheiður Óiafsdóttir, teiknimiðill og árulesari: „Störf mín miðast við að hjálpa einstaklingum í lífi þsirra. Ég er einungis miili- stykki ieiðbeinenda minna að handan og gegnum mig vinna þeir.“ • „Teíknimiölun er afar sjaldgæf hér á landi og reyndar er ég eini starfandi miðillinn hérlendis í dag sem teiknar látna ástvini og verndarengla viðkomandi á gegnum mig að handan, — ég Þetta eru orð Ragnheiðar Ól- afsdóttur, árulesara og teikni- miðils, í samtali við Póstinn. Ragnheiður hefur starfað sem miðill í fjölda ára hérlendis jafn- framt því að hafa sótt fjölda námskeiða og fyririestra erlend- is um miðilsstörf af þessu tagi. „Oftlega þekkir fólk teikningarn- ar og ber kennsl á látna ættingja og ástvini undir eins, sem í raun gleður mig afar mikið og er mik- il viðurkenning minna starfa. Þetta er ekki neitt sem ég kann að gera, og myndlistarmenntuð er ég ekki, en gegnum árin hef ég leitað mér vitneskju um þetta á námskeiðum og leitað þekk- ingar erlendis frá. Um það leyti sem ég hóf störf sem miðill, fyrir átta eða níu árum, var enginn ís- lenskur miðill reiðubúinn að I leiðbeina mér í raun og veru blað. Pegar það gerist er teiknað er ekki sjálf að verki.“ C „Ég lít á mig sem ráðgjafa fremur en miðil.“ varðandi árur og liti sem ég sá kringum manneskjur. Þess kyns miðlun var ekki þekkt í þá daga hérlendis og var ekki rædd. Hvers vegna svo var get ég ekki sagt til um. Þessum málefnum hefur fleygt mikið fram hérlend- is og eru meðhöndluð á allt ann- an máta í dag en fyrir tíu árum.“ STJÓRNMÁLIN VIKU FYRIR SKYGGNIHÆFILEIKUNUM Ragnheiður á að baki tuttugu ára stjórnmálaferil í bæjarmálum og starfaði meðal annars mikið við sveitarstjórnarmálefni. Hún starfaði á vegum Sjálfstæðis- flokksins á sínum tíma en klauf sig úr flokknum þegár Borgara- flokkurinn var stofnaður af Albert heitnum Guðmundssyni og sat sem varaþingmaður fyrir Borg- araflokkinn. „Félagsmál hafa alla tíð verið mér afar hugleikin og ég er mikil félajjsvera, en þegar ég lagði stjórnmálin til hliðar og tók að starfa sem miðill héldu margir að nú væri ég búin að tapa vit- inu. Ég fylgdi þó aðeins sannfær- ingu minni og í raun þeirri köllun minni að hjálpa öðrum. Reynsla mín af stjórnmálum hefur hjálp- að mér mikið til að skilgreina ým- is vandamál fólks sem tii mín leitar. Til mín kemur fólk í sjálfs- morðshugleiðingum, fóik sem hefur staðið í hjónaskilnaði, ein- staklingar með íangvarandi veik- indi að baki og svo einnig fólk sem hefur ekki fundið sína réttu leið í lífinu og leitar hæfileika sinna.“ TÍLVIST ARUNNAR VISINDALEGA SONNUÐ „Vinna mín er fyrst og fremst andlegt ráðgjafarstarf þar sem ég leiðbeini einstaklingum sem hafa lent í tilfinningalegum, and- legum og jafnvel líkamlegum erf- iðleikum. Að lesa áru einstak- lings er fjölbreyttur starfi og reyndar býr áran yfir einum tvö þúsund litbrigðum. í dag er til- vist árunnar vísindalega sönnuð en mikil opnun hefur átt sér stað í andlegum málum í heim- inum undanfarin ár, næmi hefur aukist meðal almennings af sömu sökum og í raun telst þetta allt annað en óeðlilegt í dag. Oft kemur fram við árulest- ur hvar einstaklingurinn á að virkja eðlisþætti sína, hvar hæfi- leikar hans liggja, og af þeim sökum tengi ég vinnu mína við ráðgjafarstarf. Ég hef þá trú að almættið leggi aldrei meira á herðar okkar en við ráðum við og eftir þeim lögmálum vinn __________________________I

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.