Helgarpósturinn - 24.07.1995, Blaðsíða 4
FRETTIR
jF$,
Póstinum fyrir réttum
þremur vikum var skýrt frá
því að Rannsóknarlögregla
ríkisins hefði lokið við að
rannsaka mál Júlíusar Norðda-
hl, sem banaði Sigurgeiri Sig-
urðssyni, fyrrverandi fóstur-
föður sínum, í maí með akst-
urslagi sínu. Einungis átti þá
eftir að senda málið til ríkis-
saksóknara þar sem gefa átti
út ákæru ef ástæða þætti til.
Þær upplýsingar fengust hjá
saksóknara sl. fimmtudag að
málið hefði borist þangað þá
um morguninn. Það liðu því
a.m.k. þrjár vikur frá því
rannsókn málsins var lokið
þar til það barst ákæruvald-
inu.
Júlíus hefur nú verið svipt-
ur ökuréttindum, en Pósturinn
sagði frá því fyrir hálfum
mánuði að hann æki enn um
á bílnum sem hann ók á Sig-
urgeir. Systir Sigurgeirs líkti
því við að afhenda einhverj-
um sem hefði skotið mann
Geysilega gleðilegt hvernig
biskup hefur söðlað u
Sigurgeir Sigurðsson. Oratíma
hefur tekið að senda mál
banamanns hans frá RLR til
saksóknara.
byssuna aftur. Tveimur dög-
um eftir að fréttin birtist var
Júlíus sviptur ökuréttind-
um.l
„Mér finnst geysilega gleðilegt
hvernig biskup hefur söðlað
um; frá því að vera neikvæður
gagnvart þeirri þjónustu sem
Benny Hinn veitir yfir í að sýna
áhuga og jákvæðni gagnvart
þjónustu hans.
í ljósi atburða vona ég að
brátt megi merkja ákveðnar
stefnubreytingar hjá kirkjunni
og að íslenska kirkjan fari loks
að hrista af sér doðann sem ein-
kennt hefur starf hennar undan-
farið ár.
Það eru nýir tímar að renna
upp á íslandi, og ég staðhæfi að
Hvað segir Gunnar Þorsteinsson predikari um við-
brögð biskups við komu Bennys Hinn til íslands?
þjónusta, eins og sú sem Benny
Hinn veitir, sé engin tískubóla.
Síður en svo. Þetta er komið til
að vera.“B
Sextán tonna
UXANN
Jason Chadderton vill
ÓLMUR KVÆNAST BjÖRK.
Björk fær
BÓNORÐ
t nýjasta tölublaði
bandaríska tímaritsins
Details er að finna bón-
orð til Bjarkar Guð-
mundsdóttur. Um er að
rœða aðsent bréffrá Ja-
son nokkrum Chadder-
ton, sem býr íAustin í
Texas. Hann lýsiryfír
mikilli ánœgju með við-
tal í blaðinu tyrir
. nokkru þar sem Björk
fjallaði opinskátt um
kynlífsitt. Björk hefur'
reyndar sagt í öðrum
viðtölum að ekki hafi al-
veg verið rétt eftir henni
haft í þessu viðtaíi. Engu
■ að síður lýsir Jason yfír
mikiíli ánœgju með um-
mcefi Bjarkar og biður
hana að staldra við í
Austin þegar hún eigi
leið þar framhjá og gift-
Bryndís Einarsdóttir ætlar að giftast norskri konu í lok mánaðarins
I
Samkvœmt ónefndum
heimildum er von á sex-
tán tonna bryndreka
anno ‘54 á UXA-hátíðina
um verslunarmannahelg-
ina. Einhverjir framtaks-
samir einstaklingar hafa
komið fimm þúsund
watta söngkerfi fyrir í
afturenda þessa óvenju-
þunga forngrips, og mun
það framleiða gtfurlegan
hávaða efrétt er að mál-
um staðið. Ekki er vitað
hverjir standa á bak við
hingaðkomu þessa há-
vœra bryntrölls, en þó
hefur kvisast út að það
séu engir aðrir en með-
limir einhverrar frœg-
ustu hljómsveitar síðari
ára. UXA-menn verjast
allra frétta, en geta þó
ekki neitað að þarna sé
um að rœða hina gagn-
merku danssveit. Ástœð-
an fyrir því að UXA-menn
treysta sér ekki tit að
staðfesta þessar sögu-
sagnir er að þeirra sögn
sú, að jafnvel þótt þeir
viti með vissu að bryn-
drekinn er sextán tonn
að þyngd hafa þeir ekki
enn fengið uppgefna
lengd hans, en afhenni
mun fara tvennum sög-
umM
II
j • „ViðTmgsuðum sem svo: Af hverju ekki að notfæra sér þenn-
I an möguleika þegar hann er fyrir hendi?“ segir Bryndís Einars-
Idóttir, íslensk kona búsett í Osló, en hún ætlar að ganga í hjóna-
band með ástkonu sinni, Vigdísi Raste, í næstu viku. „Þetta er
| mikilvægt upp áíélagsleg réttindi og gagnvart fjölskyldunni þýð-
| ir það að sambandið sé manni mikils virði og jafnframt yfirlýsing
I um að maður ætli að rækta það.“
IÞrítugasta apríl 1993 náðu
samkynhneigðir í Noregi þeim
Iáfanga í réttindabaráttu sinni að
mega ganga í hjónaband og þær
fyrstu til að notfæra sér það
voru tvær rosknar konur, Wenc-
he Lowzow, fyrrverandi þing-
maður sem játaði samkyn-
hn'eigð sína í norska þinginu, og
IKim Frile, sem var einn af stofn-
endurh norsku samtakanna á
Ifimmta áratugnum ög ötull þar-
áttumaður fyrir réttindum sam-
kynhneigðra allar götur síðan.
I„Það er orðið algengt í Osló að
samkynhneigðir láti pússa sig
Isaman, en það eru þó að stærst-
um hluta karlmenn,“ segir Bryn-
Idís. „Við Vigdís ætlum að gifta
okkur í þinghúsinu, þetta verður
einföld borgaraleg vígsla en við
I ætlum að klæðast þjóðbúning-
■ um til að gefa þessu hátíðlegan
I blæ. Síðan höldum við litla
veislu fyrir fjölskyldu og vini,“
segir hún og bætir við að þær
ætli að bjóða upp á hangikjöt.
Ekki hákarl og brennivín?
„Nei, hangikjöt og brennivín.
Maður hefur ekki efni á að missa
þessa fáu vini sem maður á.“
NOTALEGT AÐ FÁ FRIÐ
„Ég kynntist Vigdísi fyrir tólf
árum þegar' ég flutti til Oslóar,
en þá stóð ég í ástarsambandi
við konu í norska kvennafót-
boltalandsliðinu. Þaðeru breytt-
ir tímar á íslandi og krakkar sem
eru að uppgötva kýnhneigð sína
í dag éru afslappaðri gagnvart
þessum hlutum. Þegar ég bjó
heima var ég sífellt meðvituð
um hvað ég væri sýnileg, enda
er þjóðfélagið lítið og allir vissu
allt um alla. Að búa í stórborg er
öðruvísi og það var mjög nota-
legt að fá að vera í friði.
íMbI
■lim
r ; r
\ í f
C „Egerfrekar
tvístígandi í
þessari umræðu
um börn og
samkynhneigða
oghefekki
myndað mér
neina ákveðna
skoðun, en það
I* er þó alveg Ijóst
að börn hafa
ekki nema gott
af því að alast
upp með tveim-
ur konum.“
i
Við Vigdís höfum verið saman
í fimm ár og tókum þessa
ákvörðun ekki alls fyrir löngu.
Það var kominn tími til að ein-
hver úr fjölskyldunni gifti sig. Ég
á átta systkini og við eruni
óvenjuleg að því leyti að systk-
ini mín hafa sett starfsframann
ofar fjölskyldulífinu og ekkert
þeirra hefur enn gengið í hjóna-
band. Mér finnst svolítið sniðugt
að ég skuli verða fyrst til þess.“
ÞEGAR ÉG VERÐSTÓR
Bryndís er 37 ára að aidri og
er að læra til kokks, en Vigdís er
árinu ýngri. „Ég ætla að verða
kokkur þegar ég verð stór,“ seg-
ir hún hlæjandi, en aðspurð um
hvort þær langi til að taka að sér
eða eiga barií svarar hún því
neitandi. „Ég er frekar tvístíg-
andi í þessari umræðu um börn
og samkynhneigða og hef ekki
myndað mér neina ákveðna
skoðun, en það er þó alveg ljóst
að börn hafa ekki nema gott af
því að alast upp með tveimur
konum. Ég hef hugsað þessi mál
pg kpmist að þeirri iiiðurstöðu
að ég eigi nóg með sjálfa mig.“
Bryndís segir að þær séu fé-
lagar í samtökunum en ekki virk-
' ar í starfi samkynhneigðra. „Við
erum frekar heimakærar og um-
göngumst samkynhneigða ekki
öðrum fremur. Þáð er ákveðinn
tími í Iífinu sem maður þarf
þennan stuðning og stöðuga
umgengni, en í dag finnst mér
samkynhneigðin orðin aukaat-
riði.“
Að lokum segir Bryndís að
þær hafi ekki ákveðið hvernig
þær eyði hveitibrauðsdögunum
en þær séu báðar í fríi og nokk-
uð ljóst að dögunum þeim verði'
vel varið.B