Helgarpósturinn - 24.07.1995, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Eiturlyf í enska
boltanum
Þótt dæmi um eiturlyfja-
neyslu leikmanna í fótbolta
finnist um allan heim hefur
það ekki verið landlægt
vandamál í enska boltanum.
Svo virðist þó sem áhrifa
„Kókaínbræðra“, eins og
Bjarni Felixson nefnir þá Mar-
adona og Caniggia, gæti víða.
Frá því Pau! Merson játaði á
sig eiturlyfjaneyslu í vetur
hafa engar fréttir borist af
vímuefnaneyslu Englendinga.
Nú bregður svo við að sautján
ára táningur í liði Tranmere,
Jamie Hughes, hefur verið
dæmdur í tveggja ára keppn-
isbann fyrir neyslu á amfet-
amíni.H
Akraborgartorfæran
1
Gisli sigrar enn
—
» ?C ,, Éi
r
Gísli G. Jónsson sigraði í Akra-
borgartorfærunni um helgina, en
það var þriðja keppnin til ís-
landsmeistaratitils. Keppendur á
sérútbúnum götubílum voru
fyrstir ræstir í þrautirnar en sjö
mættu til keppni. Baráttan stóð
á milli Siguröar á Lukkutröliinu,
Gunnars á Rapparanum og nýlið-
ans Kristjáns Hreinssonar á Stjána
bláa. Voru þeir nánast jafnir fram
að fimmtu þraut þegar Sigurður
tók við sér, hristi hina af sér og
vann með 1.760 stigum. Gunnar
varð annar með 1.550 stig og
Kristján sá þriðji.
Keppendur í sérútbúna flokkn-
um voru tólf. Gunnar skipstjóri Eg-
ilsson missti sjálfskiptinguna í
annarri þraut og var úr leik og
missti af möguleikum á titli. Bar-
áttan um titilinn stendur á milli
Gísla og Haraldar Péturssonar, en
hann hafði forystu fyrstu þrjár
þrautirnar. Gísli komst þó fram
úr í lokin og sigraði með 1.920
stigum. Einar Gunnlaugsson á Nor-
dekk-drekanum varð annar með
1.750 stig og Haraldur þriðji með
1.720 stig.H
Gísli G. Jónsson í flugi á Kókómjólkinni
unni. Hann er likiegur til að verja titilinn
í Akraborgartorfær-
, M\Tid/Einar Steinsson
C Arangur
Skagamanna
frá ‘92.
16 1
12 3
Eftir 9 umferðir
ótrúlega sterk og fáir sleppa þar
í gegn. Miðjan hefur sömuleiðis
verið feikisterk, og lið sem hafa
herforingja eins og Sigga Jóns
þurfa litlu að kvíða. Það er helst
að heyra á Skagamönnum að
sóknin hafi ekki verið alveg nógu
sannfærandi, en ef tvíburarnir
Arnar og Bjarki byrja að spila
með liðinu er líklegt að sóknar-
leikurinn hressist. Annars er
gagnrýni á sóknarleik liðsins
kannski út úr korti; þeir hafa
ásamt ÍBV skorað flest mörk það
sem af er móti, alls nítján stykki.
Gagnrýnin er líklega til komin
vegna þess að menn eru svo
ótrúlega góðu vanir þegar Skag-
inn er annars vegar.
lÉlMAMENN FRAM í
FINGURG0MA
Áfram um heimamennina. Það
er engu líkara en Skagaliðið sé
að leika landsleiki þegar það
spilar; það leggja sig alltaf allir
100 prósent fram. Nokkuð sem
þekkist ekki alls staðar annars
staðar, þar sem aðkeyptir leik-
menn spila kannski ekki alveg
með öllu hjartanu. Á Skaganum
spila menn fyrir klúbbinn, sem
gerir vel við sína leikmenn. Þá
verður að minnast á skynsamleg
leikmannakaup. Líklegast gerði
Guðjón Þórdarson eina mestu
uppgötvun í íslenskum fótbolta
þegar hann veðjaði á Ólaf Adólfs-
son. Guðjón fékk hann til liðs við
Skagann frá Tindastóli og ÓIi
segist sjálfur ekki hafa verið fót-
boltamaður fyrr en hann kom á
Skagann. Eins og alþjóð veit hef-
ur Oli vaxið sem leikmaður með
hverju ári (í óeiginlegri merk-
ingu, hann er nú engin smá-
smíð!) og er nú lykilmaður í
landsliðinu. Útlendingarnir sem
liðið hefur fengið til sín hafa allir
staðið fyrir sínu og almenn
C Markaskorun
Skagamanna
1992-1995
skorað fengið ásig
92 40 19
‘93 62 16
‘94 35 11
‘95 19 3*
Eftir 9 umferöir
k
ánægja verið með þá. Þótt mikil
ásókn sé í leikmenn félagsins
virðist ekkert innlent félag geta
keppt við Skagann. Fjárhags-
staða félagsins er slík að þeir eru
búnir að festa flesta Ieikmenn
sína með álitlegum samningum.
Jafnvel gylliboð KR-inga freista
ekki, — menn vilja frekar spila
fyrir sitt félag. Reyndar eru þeir
svo framsýnir að þeir vilja helst
ekki missa leikmenn frá sér
vegna þess að þeir vilja ekki
standa uppi berrassaðir ef til
meiðsla kemur. Skagamenn eru
fyrir löngu farnir að huga að Evr-
ópukeppni, hafa reyndar náð
bestum árangri íslenskra félags-
liða í þeirri keppni, og vonast til
að geta þar notað Arnar og
Bjarka.
SKALLAGRÍMUR VARALIÐ ÍA
Skallagrímur er nú með lið í
annarri deild eftir nokkuð langa
dvöl í neðri deildum. Segja kunn-
ugir að nálægðin við Skagann
hjálpi þar til. Nýverið gekk Sig-
urður Sigursteinsson til liðs við
Skallagrím, en fyrir voru Skaga-
mennirnir Haraldur Hinriksson,
Valdimar Sigurðsson og fleiri.
Valdimar hefur verið marka-
hæsti maður Skallagríms mörg
undanfarin ár og Haraldur spilar
vel með Borgnesingum. Það er
engum blöðum um það að fletta
að Skallagrímur nýtur góðs af ná-
lægðinni við Skagann.
„EINFALDLEGA T0PPKLÚBBUR“
Það er vandi að setja saman
knattspyrnulið, það þarf að vera
vel spilandi og baráttuglatt, eða
eins og einhver „stúkusérfræð-
ingurinn" sagði: „Það þarf að
skora fullt af mörkum og helst
ekki fá neitt á sig.“ Á Skaganum
er allt til alls. Aðstaðan er góð á
íslenskan mælikvarða,
eins ferkílómetra æfinga-
svæði og sandurinn tryggja
góða æfingaaðstöðu. Þá er
IA áreiðanlega best rekni
klúbburinn á landinu,
Gunnar Sigurðsson og fé-
lagar í stjórn knatt-
spyrnudeildarinnar
vita alveg hvernig
halda á um taumana
á rekstri knatt-
spyrnudeildar.
Nokkuð sem mörg
lið mættu taka sér
til fyrirmyndar.
Margir halda því
fram að leikirnir
gegn Feyenoord
hafi gefið af sér
svimandi upphæðir
og lagt grunninn að
sterkri fjárhags-
stöðu. Það er ekki
alls kostar rétt; hvað
sem öllum upphæð-
um líður er ljóst að
þeir fjármunir, sem
inn komu, voru líklega
klink miðað við það
sem kom í kassann við
sölu á tvíburunum,
Þórði Guðjónssyni og
fleirum. Það má því
segja að gott ung-
iingastarf og kostnað-
urinn við það hafi
margborgað sig.
Skagamenn hafa hins
vegar ekki keypt leik-
menn, nema erlenda, í
dágóðan tíma. Metn-
aður og dugnaður
Skagamanna virðist
engum takmörkunum
háður; komi nýr leik-
maður í Skagaliðið er
hann enginn eftirbátur
þess sem hvílir. Nægir
að nefna í þessu sam-
bandi að Stefán Þórðar-
son, kröftugi senterinn
þeirra, kom í liðið
vegna meiðsla og hef-
ur skorað þrjú mörk
í síðustu tveimur
leikjum.
Það er sama
hvernig á málið er
litið: ÍA hefur alls
staðar algera yf-
irburði og auð-
vitað eru það
fyrst og fremst
frábærir leik-
menn sem
gera Skagalið-
ið að því stór-
veldi sem
það er.H
Fyrirliðinn Óli Þórðar með „dolluna" eft-
ir að Skagamenn tryggðu sár sigur á ís-
landsmótinu í tyrra. Líklega á Óli eftir að
hampa honum þessum aftur í ár. í bak-
sýn má sjá annan lykilmann í velgengni
Skagamanna, Gunnar Sigurðsson, for-
mann deildarinnar.
SK0ÐENDUR
ÁRSREIKNINGA
FH SKRIFUÐU
UNDIR MEÐ
Vegna skorts á upplýs-
ingum um greiðslur og
vinnu, sem fram koma í
uppgjöri vallarráðs til
aðalstjórnar, treystu
endurskoðendur FH sér
ekki til að skrifa undir
ársreikninga nema með
fyrirvara. Á aðalfundi
FH kom fram að fjár-
hagsstaða félagsins er
slœm en fer þó batn-
andi. Heildarskuldir fé-
lagsins árið 1994 voru
50 milljónir króna,
þremur milljónum minni
en árið áður. Segja má
að FH-ingar séu á réttri
leið í fjármálum, þótt
hœgt fariM
John Daly fagnar eftir að
HAFA PÚTTAÐ STUTT Á 12.
H0LU í SÍÐUSTU UMFERÐ 0PNA
BRESKA MEISTARAMÓTSINS.
Daly sigraði
MÓTINU
Bandaríski kylfingurinn
John Daly vann opna
breska meistaramótið í
gœr eftir fjögurra holu
bráðabana við ítalann
Constantino Rocca. Þeir
félagar luku báðir
keppni á 282 höggum og
þurftu því að spila
bráðabana. Þar vann
Dale með 15 höggum
gegn 19 höggum
RoccaM
<1