Helgarpósturinn - 24.07.1995, Blaðsíða 6
FRETTIR
Útgefandi
Ritstjóri
Aðstoöarritstjóri
Framkvæmdastjóri
Auglýsingastjóri
Miðill hf.
Gunnar Smári Egilsson
Sigurður Már Jónsson
Kristinn Albertsson
Kristinn Karlsson
Setning og umbrot: Morgunpósturinn Filmuvinnsla og prentun: Oddi hf.
Verð í lausasölu kr. 99.-
SKOÐANIR BLAÐSINS
Prinsipplaus
utanrikisstefna
■ ■ Undanfarið höfum við íslendingar gengið í gegn-
um þarfa og tímabæra umræðu um mannréttindi og
baráttu fyrir þeim um allan heim. Um leið höfum við
fengið tækifæri til að úttala okkur um afstöðu okkar til
ríkja sem brjóta mannréttindi. Sú umræða hófst eftir að
léleg ensk heimildamynd var sýnd hér í ríkissjónvarpinu
um mannréttindabrot í Kína. Viðbrögð flestra virðast
vera á þá lund að mannréttindi séu afstæð og taka verði
mið af ólíkri menningu þegar mannréttindi eru annars
vegar. Kínverjar eru því taldir hafa ljarvistarsönnun í því
máli og um leið flestar þjóðir. Skilaboðin virðast vera
þau að varla taki því að ræða um mannréttindamál.
Hneyksli í Namibíu
■ ■ Davíð Oddsson forsætisráðherra var í Namibíu
nýlega og fór vel á með honum og gestgjöfum hans. Fer
lítið fyrir því að Davíð hafi verið mjög uppnæmur yfir
ástandinu þar, en í nýlegri frétt úr Spiegel, sem birtist í
blaðinu í dag, var stjórnin um lfkt leyti búin að senda
stjórnarandstöðuna heim þannig að þingræðið var í
upplausn. Voru þetta eftirköst „borholuhneykslisins“,
þar sem forsetinn og fylgisveinar hans lágu undir grun
um að hafa stolið fjármunum sem verja átti til þróunar-
aðstoðar. Það er því ljóst að það er nokkurn veginn sama
hvert litið er; við hnjótum alls staðar um gróf brot gagn-
vart mannréttindum og lýðræði. Það fer því að verða
tímabært fyrir íslensk stjórnvöld að móta stefnu um við-
brögð við slíkum uppákomum. Við getum að minnsta
kosti ekki stungið höfðinu í sandinn og umgengist þess
konar stjórnvöld eins og ekkert sé.
Aukum réttindi
samkynhneigðra
■ ■ I blaðinu í dag er frétt af íslenskri konu sem er að
ganga í hjónaband í Noregi. Þar er réttindabarátta sam-
kynhneigðra komin það langt að hjónaband er leyft með
öilum réttindum sem því eru samfara. Hér heima er hins
vegar kyrrstaða í þessum málum. Það var nefnd starf-
andi sem lagði til að samkynhneigðir mættu stofna til
sambúðar og fengju margvíslegan rétt. Nefndin vildi
hins vegar eklci ganga alla leið og veita samkynhneigðum
rétt til jafns við aðra og hlaut þess vegna ekki samþykki
samtaka samkynhneigðra. Síðan hefur málið legið í salti.
Ráð væri að hefja starfið aftur og horfa til þess hver rétt-
indi samkynhneigðra í nágrannalöndunum eru og sníða
reglurnar eftir því.
Siðferði í viðskiptum
■ ■ Undanfarið hafa verið mikil blaðaskrif um sið-
ferði í viðskiptum vegna sölu á Kaffi Reykjavík og eftir-
köst þess. Ljóst er að þeir sem seldu þar hafa teygt sig
nokkuð langt þótt tæplega verði sótt að þeim með lög-
um. Málið minnir hins vegar á að til að menn séu teknir
alvarlega í viðskiptum verður að viðhafa tiltekin siðalög-
mál. Umræða um siðferði í viðskiptum er eitt af því sem
gjarnan mætti vera háværara hér á landi.
Pósturínn
Vesturgötu 2, 101 Reykjavík,
sími 552-2211 fax 552-2311
Bein númer: Ritstjórn: 552-4666, símbréf: 552-2243 Tæknideild:
552-4777 Auglýsingadeild: 552-4888, símbréf: 552-2241 Dreifing:
552-4999 Fréttaskotið: 552-1900 Smáauglýsingar: 552-5577
Skrifstofa Morgunpóstsins er opin mánudaga til föstudaga frá 9:00
til 17:00 Dreifingar- og áskriftardeild er opin mánudaga og
fimmtudaga
frá 8:00 til 19:00, aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Auglýsingadeild er opin mánudaga og fimmtudaga frá 9:00 til 18:00,
aðra virka daga frá 9:00 til 17:00
Smáauglýsingadeildin er opin frá 9:00 til 21:00 virka daga, nema
miðvikudaga, til 18:00, 12:00 til 16 á laugardögum og milli 12:00 og
18:00 á sunnudögum.
Verður að varðveita flóru Islands
Hvað segir Þrándur Thoroddsen þýðandi
um baráttuna gegn lúpínunni?
ungis þar sem land er autt og Þannig tel ég að þeir hafi gert á engan veginn heima þar. Lú-
þarf á gróðri að halda til að rétt í Öskjuhlíðinni að gefa lúpín- pínan á ekkert erindi í Öskjuhlíð-
dafna og taka við sér. unni engin grið, þar sem blómið ina.“H
og ökuréttindalausum á stolnum, númerslausum
bíl fullum af þýfi
Bmiieog
Að morgni dagsins sem þau Sigurjón Pétursson og Sigríður
Hákonardóttir Waage, sem kölluð hafa verið hin íslensku
Bonnie og Clyde, voru handtekin í Grímsnesinu var lögreglan
beðin að hafa afskipti af þeim í húsdýragaröi í nágrenni Selfoss.
Þrátt fyrir að Sigríður væri þá augljóslega í „annarlegu ástandi",
eins og það er orðað; þrátt fyrir að Sigurjón væri ökuréttindalaus
og að bíll, sem þau voru á, væri stolinn, númerslaus og fullur af
þýfi fékk parið að fara frjálst ferða sinna.
„Ég verð að játa að ég er á báð-
um áttum, þar sem lúpínan hefur
látið gott af sér leiða þar sem
jurtin hefur hentað. Ekki er hins
vegar langt um liðið frá því ég las
greinargerð sem kona nokkur
hafði skrifað um framgang lúpín-
unnar á Nýja-Sjálandi, en þar
kom fram að blómið hafði lagt
undir sig stærri landsvæði en
því var í upphafi ætlað og fari
svo hérlendis fer mér ekki alls
kostar að lítast á blikuna.
Þrátt fyrir að lúpínan gleðji
augað er hún ansi frek. Við verð-
um að varðveita þá sérkennilegu
flóru sem skrýðir ísland og það
má fyrir alla muni ekki sá lúpín-
unni í gróinn jarðveg heldur ein-
Páll Skúlason og félagar í heim-
spekinni þurfa að velja sér lektor.
Slegist
um lektors-
stöðu í Há-
skólanum
Fyrir skömmu var auglýst
staða lektors í heimspeki við Há-
skóla íslands. Þegar staðan var
auglýst vakti nokkra athygli að
tekið var fram að umsækjendur
þyrftu að hafa lokið doktorsprófi
eða vera í þá mund að ljúka því.
Þykir mörgum spennandi að
sjá hver hlýtur stafið, en margir
efnilegir heimspekingar hafa lok-
ið doktorsprófi á seinni árum.
Má þar nefna Sigríði Þorgeirsdótt-
ur, Loga Gunnarsson, hálfbróður
Davíðs Oddssonar forsætisráð-
herra, og Kristján Kristjánsson,
svo fáeinir séu nefndir. Einnig
hefur Róbert Haraldsson getið sér
gott orð við kennslu í Háskólan-
um þótt ekki hafi hann doktors-
gráðu.B
Gífurlegar
grjótskriður í
Kaldbaksvík
Mikið grjóthrun var úr Kald-
bakshorni í gærdag. Að minnsta
minnsta kosti þrjár skriður féllu
á veginn sunnan við víkina og í
sjó fram. Fólk sem dvelur í sum-
arhúsi við víkina sunnanverða
forðaði sér á hlaupum og á bílum
þegar seinni skriðan féll, en fólk-
ið var að vinna að hreinsun veg-
arins eftir fyrstu skriðuna. Sam-
kvæmt upplýsingum Jóns Harðar
Elíassonar, verkstjóra hjá vega-
gerðinni í Hólmavík, í gærkvöldi
er stöðugt hrun úr hamrinum og
algjörlega óvíst hvenær óhætt er
að senda menn til að opna veg-
inn. Jón segir þó að það verði í
fyrsta lagi á morgun. Skriðan
mun vera töluvert umfangsmikil,
fleiri hundruð rúmmetrar, og í
henni stór björg. Kaldbakshorn
er 508 metra hátt og í því eru
miklar grjótskriður.
í vetur féll snjóflóð norðan-
megin í víkinni og olli stór-
skemmdum á nýuppgerðu sum-
arhúsi sem þar er.B
Á Þingborg í Hraungerðis-
hreppi var um nokkurra vikna
skeið í sumar rekinn húsdýra-
garður til reynslu. Sunnudaginn
níunda júlí lögðu þau Sigríður
og Sigurjón leið sína í þennan
garð og hleyptu þar úr búri
stálpuðum hrafnsungum. Ábú-
andinn, Sigurgeir Hilmar Frið-
þjófsson, skólastjóri Þingborg-
arskóla, hringdi á lögreglu, sem
kom á staðinn skömmu síðar.
„Það var um ellefuleytið á
sunnudagsmorgun að ég tek
eftir því að það er fólk í móan-
um hérna við bæinn,“ segir Sig-
urgeir. „Þetta var par og virtist
eiga í einhverjum átökum.
Skyndilega taka þau strikið í
húsdýragarðinn. Eg fer í stíg-
vélin og fer út til þeirra, býð
góðan daginn og segi að garð-
urinn sé ekki opnaður fyrr en
klukkan fjórtán en þau svara
mér engu og halda bara áfram
að jjrátta."
L0GREGLA K0LLUÐ TIL
„Ég sé nú strax að ekkert þýð-
ir fyrir mig að tjónka við þau því
þau eru bæði greinilega í ein-
hverju annarlegu ástandi en hún
þó sérstaklega, eins og undir
áhrifum lyfja,“ segir Sigurgeir.
„Ég afræð að hringja í lögregl-
una, sem er nú fremur óvanalegt
hér í sveit, og á meðan ég er að
því hleypir stúlkan hrafnsung-
unum út. Þeir vissu sem betur
fer ekkert hvað þeir áttu að gera
greyin og náði ég þeim fljótlega
þótt þeir væru svo gott sem
fleygir. Lögreglan kemur um
svipað leyti og ég náði fuglun-
um. Þá var maðurinn farinn upp
að hliði, þar sem bíllinn stóð, en
stúlkan var úti á túni og vildi
greinilega ekki fara til mannsins
af einhverjum ástæðum. Lög-
reglan gefur sig á tal við mann-