Helgarpósturinn - 24.07.1995, Qupperneq 5

Helgarpósturinn - 24.07.1995, Qupperneq 5
IMMNUJÐWGUJR1 FRETTIR » ................"""" .......... „Það endaði með því að við buðum þeim hjá Félagsmála- stofnun að sofa í bílnum hjá okkur,“ sögðu þau Anton Passeró og Kristín Hjaltadóttir, sem hafa verið heimilislaus um langt skeið. Þau komu í viðtal hér í Póstin- um í apríl, en þá höfðu þau Petra í herberginu í Brautarholti. Hent út af eigin heimili Örorku- bæturnar horfnar „Það var ekki um annað að ræða en fara hérna niður í Braut- arholt, úr því sem komið var,“ segir Petra Stefánsdóttir. Póstur- inn skýrði frá því á fimmtudag að Petra og eiginmaður hennar, Haukur Baldursson, hefðu verið flæmd með ofbeldi af heimili sínu í Mörkinni 8. „Búslóðinni var bara hent hérna fyrir utan og þurftum við að bera allt upp á þriðju hæð, en maðurinn minn er öryrki og veikur í baki. Frá- gangurinn á búslóðinni var svo viðbjóðslegur að mann klígjaði við; sorpi og matarleifum hent saman við aðra muni og snyrti- vörum stungið á kaf í júgur- smyrslisdós. Að auki hvarf hluti af lífeyri Hauks,“ segir Petra. „Það virðist vanta um fjörutíu þúsund krónur upp á,“ segir Haukur. „Síðan vantar meðal annars gamla baðvigt sem ég erfði eftir ömmu og vandaður göngustafur, sem Haukur fékk frá föður sínum, var brotinn,“ segir Petra. „Annars vil ég taka fram að þetta er nú ekki alveg eins slæmt hérna í Brautarholt- inu og við sögðum um daginn, þótt þetta sé náttúrulega bara neyðarúrræði," segir Petra, en þau búa í aðeins einu herbergi í Brautarholti 22. Augljóslega mátti sjá að búslóð þeirra, sem pakkað var af Viðari Guðjohnsen, fyrrverandi leigusala hjónanna, og hans mönnum, hafði lítil virð- ing verið sýnd, heldur öllu hent í pappakassa eins og af tilviljun. Kristín og Anton hafa fundið sér griðastað við Umferðarmið- stöðina. neyðst til að dveljast í Lödubif- reið um tíma. Engin breyting hefur orðið á aðstæðum þeirra og hafa þau nú verið á hrakhól- um í níu mánuði samfellt. Þetta ástand hefur tekið sinn toll. Kristín segist hafa lent á Borgarspítalanum vegna sýk- inga sem hún segir að megi ^ TO i ■ ■ & tv rekja til heimilisástands hennar og óhjákvæmilegs óþrifnaðar sem því fylgir. „Það er eins og félagsmálayfir- völd vilji ekkert gera í málum okkar,“ segja þau Kristín og An- ton, en þau eru orðin úrkula vonar um að fá aðstoð. Undanfarið hafa þau brugðið á það ráð að tjalda þar sem færi gefst en oftast er þar tjaldað til einnar nætur, þar sem þau fá ekki að vera í friði með tjaldið. Síðustu nætur hafa þau dvalið við Umferðármiðstöðina, þar sem þau segjast fá frið, en oft sé erfitt að sofa í bílnum vegna ut- anaðkomandi ágangs.H l ois.ila á flestöllum bensinstöðvum Skeljungs ut u landsbyggðinni, Hljomalind, Tynda hlekknum, I ovis huðinni i Reykjavik og Akuroyri, I roefall laugavegi 20 h, Musik fv myndir i Mjodd og Japis, Biauiaiholti og Ki inglunni. Valur Magnússon fékk all- AR HAMINGJUÓSKIRNAR. Valur fékk ÓSKIRNAR Sem kunnugt er hefur mikil ágreiningur risið út af tengslum Vals Magnússonar veitinga- manns við veitingastað- inn Óðal. Dómstólar hafa hafnað því að setja lögbann á staðinn vegna skilyrða sem Valur und- irritaði við söluna á Kaffí Reykjavík, þar sem Valur reki í raun ekki staðinn heldur sonur hans. Það var í Ijósi þess mjög athyglisvert að fylgjast með Val við opn- un staðarins, en hann gerði lítið annað en taka við hamingjuóskum gesta.M Undanfarið hefur Davíð SCHEVING AÐSTOÐAÐ HVER- GERÐINGA. Davíð aftur í BISSNESS Eftir að Sólkonungurinn Davíð Scheving Thorsteins- son missti Sól hf. hefur hann unnið fyrir sér við ráðgjafarstörf, en vera má að breyting verðiþar á núna. Hann stendur nú að stofnun fyrirtœk- isins Pólstjörnunnar hf., sem hefur heimili og varnarþing á heimili Davíðs á Arnarnesi. Til- gangur félagsins er inn- flutningur, heildsala og smásala svo og ráðgjaf- arstörf. Stjórnarformað- ur er skráð Stefanía Svala Borg en Davíð er fram- kvœmdastjóri og pró- kúruhafí.M mn

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.