Helgarpósturinn - 24.07.1995, Page 9

Helgarpósturinn - 24.07.1995, Page 9
UTLOND Gestgjafar Davíðs Oddssonar í Namibíu uppvísir að stórfelldri misnotkun á fé frá hjálparstofnunum Þróunarhjálph nan í eigin vasa Ríkisstjórn Namibíu, sem Dav- íð Oddsson lofaði hvað mest eftir heimsókn sína þangað á dögun- um, kom sér hjá því nýlega að svara óþægilegum spurningum stjórnarandstöðunnar í landinu um meðferð stjórnarinnar á fé frá hjálparstofnunum með því að senda þingmenn í ótímabært frí. Þingmenn Swapo, frelsihreyf- ingarinnar sem hlaut yfir sjötíu prósent atkvæða í kosningunum i lok síðasta árs, sögðu ástæð- una fyrir þessu nauðungarhléi á störfum þingsins þá að undir- búningur lagasetningar væri alltof stutt á veg kominn. Stað- reyndin er hins vegar sú, að með þessum aðgerðum vilja Swapo- menn koma í veg fyrir umræður á þinginu um hið svo- kallaða „borholuhneyksli" sem teygir anga sína víða á meðal forystumanna flokksins. í niður- stöðum opinberrar rannsóknar, sem lengi hefur verið haldið leyndum, kemur fram að ráð- herrar og háttsettir embættis- menn stjórnarinnar, ásamt ýms- um flokksbroddum öðrum í röð- um Swapo, hafi gróflega misnot- að fé, sem borist hefur til lands- ins frá hjálparstofnunum, í eigin þágu. Þykir fuilsannað að þeir hafi notað stóran hluta þeirra fjárframlaga, sem ætluð voru til að standa straum af baráttunni við tjón af völdum þurrka í land- inu, til að bora eftir vatni á sín- um eigin landareignum. Þetta hefur þó ekki aftrað Sam Nujoma, forseta Namibíu og gestgjafa Davíðs Oddssonar, frá því að fara fram á 180 milljóna auka- framlag frá hjálparstofnunum heimsins til „áframhaldandi bar- áttu“ gegn afleiðingum þurrk- anna í landinu.B Skipulegar lauðganir ögreglunnar í tilefni þess að Alþjóðabank- inn heldur ráðstefnu í Kenýa hafa mannréttindasamtökin Am- nesty Intemational birt upplýs- ingar um mannréttindabrot f landinu, meðal annars til að ýta á eftir því að fjárhagsaðstoð verði tengd mannréttindamál- um. Er lögreglan í Kenýa sökuð um að beita pyntingum til að knýja fram játningar auk þess sem öryggislögreglan er sökuð um að standa fyrir skipulegum nauðgunum. Þessar nauðganir fái aldrei neina rannsókn. Yfirvöld í Kenýa hafa ekki svarað ásökunum Amnesty nú, en forseti landsins, Daniel Arap Moi, hefur gagnrýnt samtökin fyrir það sem hann kallar til- hæfulausar ásakanir. Sem við- brögð við gagnrýni Amnesty hef- ur hann hins vegar boðist til að setja á stofn sérstaka mannrétt- indanefnd í Kenýa.B Anthony Hopkins er niðurbrotinn eftir að Stanley hvarf. Köttur Hopkins þagnaður Kvikmyndaleikarinn góðkunni Anthony Hopkins er nú niðurbrot- inn maður eftir að kötturinn hans, Stanley, hvarf á dögunum. Stanley hvarf fyrir nokkru frá heimili sínu í Suður-Kensington í London og hefur ekkert til hans spurst síðan. Hopkins reyndi hvað hann gat til að hafa uppi á ástkærum vini sínum, hengdi meira að segja upp píaköt, en þau voru tekin niður fyrir skömmu þar sem ekki hafði neitt heyrst frá Stanley.B Hanks er enn á uppleið. 7 Þrátt fyrir að nóg sé af vandamálunum S mynd Toms Hanks um Apollo 13 þá eru engin vandamál við aðsóknina að mynd- inni. Myndin er nú búin að eiga aðsóknarmet fjór- ar vikur í röð og tók inn ríflega 12 milljónir doil- ara í síðustu viku. Það er því ljóst að myndin ætlar að komast í hóp aðsókn- armestu mynda. Ung- lingamyndin Clueless er í öðru sæti með 10,5 millj- ónir í tekjur.B Mvndasmiðir stoppuðu við ÞEGAR llRSUUVARAÐHUGA AÐ BARMI SÍNUM. blöðin sögðu gjarnan í fyrir- sögnum: Gerðu eitthvað, Dave! Auðvitað gerði Dave ekkert ann- að en að missa embættið til repúbiikanans Rudolphs Giuliani, sem virðist hafa gert eitthvað. fiÍFURLEG FJQLGUN L0GREGLUÞJ0NA Sérfræðingar eru reyndar ekki á eitt sáttir um hverju sé að þakka. Sumir segja að tíðarand- inn hafi breyst, fíkniefnin séu ekki eins erfið og áður og samfé- lagið í heild hafi brugðist við. Síðast en þó ekki síst þakka menn árangurinn mikilli fjölgun í lögregluliðinu, en nú eru rúm- lega 38 þúsund lögregluþjónar á launaskrá hjá borginni en voru Bratton 26jDÚsund árið 1990. Aherslum hefur einnig verið I breytt mikið og hinir 76 lög- ■ reglustjórar umdæmanna gerðir I ábyrgari fyrir ástandinu í sínu I hverfi. Hætt er að mæla árangur ■ í því hversu margir eru hand- | teknir heldur því hvernig mönn- um gengur að halda glæpum fyr- I ir utan sitt svæði. Er tekið sem dæmi að þegar I lögreglustjórinn í Suður-Bronx I komst að því að skotbardögum ■ hafði fjölgað um 15 prósent þá | setti hann upp vegatálmanir og - réðst á öll kunn víghreiður. Að I lokum gáfust glæpamennirnir B upp þar sem þeir gátu ekki sinnt I neinum „störfum" og brugðust ■ við með því að hafa sig hæga.l^j ■iMiMiianiBd ULU SPRENGIR UTAN AF SÉR Það fór illa fyrir kyn- bombunni síungu Ursulu Andress fyrir skömmu þegar hlýri á kjól henn- argafsig á veitingastað í Róm. Vegna viðbragðs- flýtis stjörnunnar sviss- nesku, sem er nú 59 ára, tókst henni að forða því að barmurinn flœddi yf- ir veislugesti, en ítalirn- ir sáu þó sitt og voru víst ósparir á þjórfé.M VlNSÆLDIRNAR HRYNJA AF Chirac Þó að franski forsetinn, Jacques Chirac, sé ákveð- inn í að halda kjarn- orkutilraunaáœtlun Frakka til streitu kostar það hann mikið í vin- sceldum. Þetta kom í Ijós þegar eitt helsta skoð- anakannanafyrirtœki Frakka birti niðurstöður sínar á sunnudag. Chir- ac hafði misst tiltrú 10 prósenta kjósenda. Fyrir skömmu voru 54 prósent aðspurðra ánœgð með hann en nú aðeins 44 prósent.M Stefnir í 'nrátt fyrir að innihalda 'nhver glœsilegustu (og dýrustu) átakaatriði sem sést hafa á hvíta tjaldinu fékk dýrasta myndallra tíma, „Wat- erworld“, heldurmis- jafna dóma þegar hún var frumsýnd um helg- la. Myndin kostaði 175 lilljónir dollara í fram- leiðslu og er fram- leiðslusagan flestum /issulega er enn mikið af morðum framið í New York- borg en segja má að möguleik- arnir á að lifa af heimsókn þang- að hafi aukist. Já, New York-bú- um hefur tekist það sem margir töldu ómögulegt; nefnilega að vinda ofan af þróuninni og gera borgina öruggari en hún áður var. Þótt enn megi lesa fréttir af brjáluðum mönnum sem drepa fjölskyldur sínar þá eru þau 585 morð, sem framin voru fyrri- hluta ársins, ljúfar tölur fyrir morðtölfræðinga borgarinnar. Þetta er nefnilega 31 prósents lækkun frá árinu 1994 og þeim, sem drepnir eru með skotvopn- um, hefur fækkað um 41 pró- sent. Og ekki aðeins það, heldur er New York komin niður í 21. sæti í glæpatíðni, en á þeim lista eru 25 fjölmennustu borgir Bandaríkjanna. Árið 1993 var borgin í 18. sæti. Það sem meira er; breytingin er tilkomin vegna þess að ástandið í New York hefur batnað en ekki að það hafi hallað undan fæti annars stað- ar. Það er ljóst að borgin hefur tekið sig stórkostlega á síðan hið óhugnanlega met var sett árið 1990, en þá voru 2.245 manneskjur myrtar í borginni. Var það að stórum hluta kennt við mikið krakkæði sem þá reið yfir borgina. Það var ekki rólegt ár fyrir þáverandi borgarstjóra, David Dinkins, en hispurslausu Er New York að takast hið ómögulega í baráttu við glæpi? __Á

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.