Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 12
12 \ FlMIVnUDAGUR 18. JANUAR1995 lremba Hættulegar ævintýraferðir einhleypra Sumarleyfisferöir á erlenda grund eru íslendingum tamar og á hverju ári flykkjast heilu ættirnartil sól- arlanda en unga fólkið fer gjarnan í lestarferö um Evrópu. Feröaskrifstofur á íslandi hafa hins vegar í takmörkuöum mæli boðið upp á ævintýraferöir og lítið er um svokallaöar markhópaferöir— nema ef vera skyldi fyrir eldri borgara. Erlendar feröaskrif- stofur eru til dæmis duglegar aö bjóöa upp á sér- hannaðar ferðir fyrir einhleypa. Meö tilliti til nýj- ungagirni landans getur ekki liöiö á löngu þar til einhleypum íslendingum verður boðið upp á feröir viö sitt hæfi. Fjölskyldumaðurinn Eiríkur Bergmann Einarsson kynnti sér máliö og gróf upp nokkra þá staöi þar sem betra er aö vera einn á ferö — og hafa vasana úttroöna af seðlum eöa krítarkortum... Auðvitað elskarðu konuna þína og það getur vissulega verið yndislegt að fara í sumar- frí saman — vikurölt í ástar- bríma um hina dásamlegu Barcelonu; septembersigling um síki Feneyja; að ganga hönd í hönd um sendnar strendur karabískrar eyju og láta sólina leika við ykkur bæði... Rómantísk menningar- ferð til Parísar með hefð- bundnu miðnæturrölti um lat- ínuhverfið getur og verið ævin- týri líkust. En heimurinn er stór og sumir staðir eru þess eðlis að hyggilegast er að vera þar einn á ferð. í raun eru til þau svæði þar sem nærvera elskunnar þinnar getur verið allt frá því að vera pirrandi og óhentug yfir í alvarlega hættu fyrir geðheilsuna. Áður en þú tekur fljótfærnislegar ákvarð- anir um að hafa þína heittelsk- uðu með — og lendir í þrasi um hver eigi að pakka hár- þurrkunni, lyfjaskápnum og strauja skyrtur og nærföt — ættirðu að hugsa þig tvisvar um. Einkum á það við ef þú ætlar að sækja einhvern af eft- irtöldum stöðum heim. (At- hugist: Helgarpösturinn tekur enga ábyrgð á velferð þeirra lesenda sinna sem það gera.) BALATON-VATN í UNGVERJALANDI Ungverjar hafa alvarlega þurft að endurskipuleggja markaðssetningu þessa fagra stöðuvatns, sem áður var vin- sæll sumarleyfisstaður fjöl- skyldunnar, eftir nýfengið frelsi landsins og aukið frjáls- ræði og frjálslyndi. Nú hefur vatnið fengið það orð á sig að vera staður stundarrómantík- ur. Þar sigla „ástarbátar", uppi á landi bíða „kynlífskastalar" og kvöldinu er svo eytt í að fylgjast með nöktum gó-gó- dönsurum sýna listir sínar og fagna nýfengnu frelsi frá Kremlverjum. í samanburði við Ungverja ertu svo fjárhags- legur jafnoki Donalds Trump og heimasæturnar gætu vel litið á krítarkortið þitt sem stórfenglegt aðdráttarafi. GAMBÍA Þrátt fyrir þá staðreynd að í Gambíu ríkir almenn fátækt er landið mjög vinsælt meðal evr- ópskra farfugla. Um leið og þú stígur fæti á Fajara-strönd verður konan þín kynferðislegt skotmark og gríðarlegt að- dráttarafl fyrir gambíska strandgígólóa, sem ferðast þar um í torfum og reyna með öll- um brögðum að komast yfir vestrænt kvenfólk. Sérstaklega er hætta á ferð ef konan þín er ljóshærð. Landið er bókstaf- lega stútfullt af tuttugu-og- eitt- hvað ára svörtum, sætum strákum sem reyna linnulaust að sýna frúnni hvað afrískir elskhugar hafa framyfir kyn- bræður sína bleiknefjana. Jafn- vel þó að hún láti ekki undan stöðugri kynferðislegri athygli verður hún fullörugg um að- dráttarafl sitt og notar það gegn þér — þú endar sem tuð- andi, afbrýðisamur karlaum- ingi. Að fara með konuna til Gambíu jafngildir því að gefa út kynferðislegt veiðileyfi á hana og andlegu jafnvægi þínu er verulega ógnað. PALM-EYJA VIÐ GRENADA Liggjandi á Palm-eyju milli Vincent og Grenada verðurðu eins og Eraest Hemingway í Gamla manninum og hafinu. Þú eyðir öllum deginum í að veiða stórhættulega fiska. Kvöldið fer í að drekka jafnhættulegt romm. Þangað skaltu fara með góðum vini og treysta vina- böndin þannig að þau slitni aldrei. Þar er með öllu til- gangslaust að hafa konuna með í för. Nálægð hennar verð- ur aðeins taugastrekkjandi og dreifir athyglinni frá tilgangi lífsins — sem þar er að finna í nægu magni sértu karlkyns. Ef hún er með á henni eftir að leiðast svo mikið að hún lætur þig ekki í friði þar til þú ferð að líta á hana sem leiðindabögg sem gerir ekki annað en flækj- ast fyrir. Þá er betur heima set- ið en af stað farið. Fyrir kon- una. SALAH í ÓMAN Kvenþjóð Óman er öll sveip- uð dulum frá toppi til táar og vernduð af stórum hópi bræðra, feðra og frænda, sem ganga um með manndrápstil- burðum — engu líkara en þeir séu tilbúnir að ráðast með al- væpni að öllum þeim sem hafa í frammi tilburði til að stíga í vænginn við meyjarnar. Ef þú heldur að af þeim sökum sé hyggilegast að taka konuna með — til að eyða öllum mis- skilningi sem gæti komið upp milli þín og Oman-manna — skaltu hugsa þig aftur um. Kon- an verður um leið skotmark gjörvallrar ómönsku karlþjóð- arinnar, sem virðist á mörkum brjálsemi. Menn munu reyna að leigja hana — jafnvel kaupa. Þeir munu stara stíft á hana með hendur djúpt í vösum, um leið og þeir eru í hörkusam- ræðum við félaga sinn (á máli sem þú skilur ekki bofs í) um hvað þeir vildu gjarnan gera við hana. Að lokum ertu kom- inn á brún taugaáfalls,— ef þú hreinlega fellur ekki fram af. RIO DE JANEIRO I BRASILIU Ef konan þín hefur ekki útlit Cindy Crawford, kynlífsþekk- ingu og -reynslu Madonnu og sakleysi Marilyn Monroe þá er fullkomin tímaeyðsla að taka hana með til Ríó. Brasilíubúar eru frægastir fyrir knatt- spyrnu-, dans- og bólfimi. Þetta kemur ekki á óvart, því hver meðal-Brasilíubúi eyðir allri ævinni í að öðlast full- komnun í þessu þrennu. Ef elskan er með í för mun það aðeins leiða til að þú fyllist efa um hvað það var eiginlega sem þú sást við þennan föla, stirða, þunglynda og kynkalda ein- stakling sem þú kallar konuna þína og flækist bara fyrir þér við útsýnisskoðun á frjálslega klæddu og æsandi kvenfólkinu sem ber fyrir augun. Hún mun reyndar einnig, ef að líkum læt- ur, fá augastað á einhverju ít- urvöxnu, latnesku íþróttatröll- inu, sem kæruleysislega Samba-dansandi um strönd- ON“. Þegar ferðamanna- straumurinn fór aftur að flæða yfir Víetnam var rykið dustað af matseðlum pútnahúsanna og réttur dagsins boðinn að nýju. Vung Tau er í raun svip- aður staður og sódómusetrið Pattaya á Tælandi, bara mun frumstæðari. Þróunin þar er svo skammt á veg komin að ólíklegt er að þú komir til baka með eitthvað lífshættulegt í farteskinu. Þar ert þú líka — ennþá — tiltölulega laus við ástralskt bakpokalið og jap- anska bissnessmenn sem ferð- ast um í torfum og ganga á þig með linsuna á undan — sem sagt: engin túristaumhverfis- mengun þar. Þú verður hins vegar að flýta þér, því hægt er að veðja lífinu upp á að þetta pakk mun yfirfylla landið innan tíðar. Einfaldar en pottþéttar nautnir: Fiskveiðar við Grenada, spilavíti í Las Vegas, fjallaklifur í Nepal, útrás á Kúbu, strandlíf í Ríó — en ekki í Óman. ina blikkar til hennar um leið og hann strýkur gullskreyttri hendi gegnum svart, sítt hárið. Fljótlega færir hann sig upp á skaftið og sýnir henni hversu sveigjanlegar mjaðmahreyfing- ar hann hefur. Þar sem þú get- ur ekki með nokkru móti nálg- ast hreyfingarnar mun þér fljótlega líða sjálfum eins og þú lýstir konunni þinni áðan. VUN TAU í VÍETNAM Velkomin aftur „MISS SAIG- HIMALAYA-FJÖLLIN I NEPAL Það er í raun ekkert athuga- vert við að ganga, klífa fjöll eða hvað svo sem menn sækjast eftir í útivistarbrölti. En láttú þér þá bara ekki koma til hug- ar að taka konuna með. Eftir vikueinangrun frá heitu vatni, hártækjum og -tólum og förð- unarspeglum með réttri lýs- ingu mun hún líta út eins og eitthvað sem kötturinn ældi. Sama útlitslýsing á reyndar við um þig að þessum tíma lokn- um og hvenær hefur kona dáðst að karlmanni sem ekki hefur þrifið sig í vikutíma? Þú getur verið nógu hugljúfur og tillitssamur til að standa á sama — þrátt fyrir allt elskarðu hana vegna þeirrar innri manneskju sem hún hef- ur að geyma — en þetta ástand mun hafa djúp áhrif á sálarlíf hennar á meðan þér líður bara stöðugt betur í faðmi Móður náttúru og verður skítugri og skítugri með degi hverjum. I lok vikunnar mun hún hata þig og fyrirlíta svo heitt að engin mælitæki fá það numið. Hún svalar hefndarþorsta sínum með því að dragast aftur úr, kvarta stöðugt og spyrja í sí- fellu: „Hvað er langt eftir?“ HAVANAÁKÚBU „Á Kúbu er að finna hrein- ustu, glæsilegustu, best menntuðu og heilbrigðustu gleðikonur sem um getur,“ hélt einn viðskiptamógúllinn fram þegar hann kom þaðan fyrir stuttu. „Þær eru að auki þær ódýrustu í heimi,“ bætti hann við. Kúbverskar konur hafa notið 30 ára ókeypis kommún- ískrar heilsugæslu og mennt- unar. Þarlendar greiðakonur líta í raun út eins og þær ættu frekar að sveiflast um á tísku- sýningarpöllum Parísar eða Mílanó. Þessar himnesku suð- ur-amerísku konur eru falleg- ar, háar og yfirleitt viðræðan- legar, enda flestar langskóla- gengnar — með próf í kjarneðl- isfræði, sögu, heimspeki, lækn- ingum og hagfræði, svo eitt- hvað sé nefnt. Engum meðal- háskólaborgara ætti því að leiðast — ef hann kemst yfir minnimáttarkenndina. Þrátt fyrir að Kúba sé full af banda- rískum, spænskum og ítölsk- um viðskiptajöfrum er enn pláss fyrir þig, en „eiginkona í farángrinum" er ekki heilla- vænleg ákvörðun. Góða ferð. LAS VEGAS Vegas er í raun strákaborg Bandaríkjanna. Þar gildir að vera nógu andskoti töff og illi- Iegur í útliti. Þetta er staður hörkutóla sem aldrei sýna svipbrigði, jafnvel þótt þeir. tapi milljónum í spilavítum borgarinnar — „look cool or die!“ Þótt ótrúlegt megi virðast skilja fæstar kærustur tilgang- inn með því að tapa aleigunni í spilavíti. Ef þú sérð í draumsýn konuna þína klædda sam- kvæmissilkikjól með háa svarta kvöldhanska, þar sem hún stendur fyrir aftan stólinn þinn við spilaborðið í Vegas og leggur svimandi háar upphæð- ir undir, hallar sér fram og hvíslar í kynæsandi tón happatölunni í eyra þér smók- ingklæddum, þá skaltu VAKNA!!! af draumnum. í raun- veruleikanum mun henni leið- ast óstjórnlega og hún reynir ekki að leyna því. Þú munt þar af leiðandi missa alla þá lífs- nauðsynlegu einbeitingu og ró- semi sem fjárhættuspil krefst. Hún mun ekki hvísla heldur segja þér svo hátt að allir heyri hversu miklum peningum þú hefur tapað hingað til og að þú sért að verða búinn með heim- ildina á krítarkortinu þínu. Hún mun minna þig á alla ógreiddu reikningana sem þú skuldar og að nær væri að borga tannlækniskostnaðinn fyrir börnin ykkar en að eyða öllu í fjárhættuspil. Að lokum mun hún hóta að skilja við þig og strunsa svo út úr spilavít- inu með formælingum og hurðaskellum. Allir í salnum munu horfa á þig og þú vildir helst að þú gætir horfið niður í jörðina af skömm og niðurlæg- ingu. MYKONOSÁ GRIKKLANDI Ferð til Mykonos er aðeins fyrir sæta stráka. Þessi gríska undraveröld er stærsti leik- völlur samkynhneigðra í Evr- ópu. Ef þú tekur konuna með verður hugsanlega litið á þig sem gagnkynhneigðan ferða- mann í útsýnisferð um ný- lendu samkynhneigðra, en það er nú ekki mjög vinsælt. Enn líklegra er þó að þú verðir álit- inn dapurt dæmi um skápa- drottningu sem á vonlausan hátt þykist hafa sína eigin Pa- melu Anderson eða álíka kvenveru uppi í bóli hjá sér á kvöldin. Þar sem ansi margir hommar fyrirlíta skápahomma er þetta ekki vænleg staða. Konan þín mun hins vegar strtix á fyrsta kvöldi eignast sex homma sem vini og eyða því sem eftir er vikunnar í góðu yfirlæti þeirra, veinandi af hlátri og dansandi fram á morgun. í þau fáu skipti sem hún man eftir að þú ert líka á staðnum mun hún staldra við í stutta stund og spyrja: „Er ekki allt í lagi elskan?" Byggt á FHM

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.