Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 32

Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 32
NOTAÐIR « DÆMI UM GREIÐSLUR af vaxtalausu láni Verð bíls 800.000 kr. Útborgun 200.000 kr. ________Eftirst. 26.313 kr, á mánuði í 24 mánuði Allur lántökukostnaður innifalinn 21. Mfalan®l lán til 24 mánaða að upphæð allt að 600 þús. kr. Ríflegan sliicaaf@rátt liyisai NOTAÐIR BlLAR SUÐURLANDSBRAUT12 SÍMI: 568 1200 beint 581 4060 Opið laugardag kl. 10-17 og sunnudag kl 13-17, virka daga til kl. 19. tuoN Talaðu við okkur um BÍLARÉTTINGAR HELGARPOSTURINN Þegar þú eignast góðan, notaðan bíl frá okkur, getur þú valið annað tveggja: Talið er líklegt að Steingrímur Her- mannsson seðlabankastjóri láti verða af því að bjóða sig fram við forsetakosning- arnar. Sagt er að helstu stuðningsmenn Steingríms séu þegar búnir að ákveða slag- orð til að beita í kosningabaráttunni, Stein- grími til framdráttar. Slagorð framboðsins á að vera svohljóðandi: „Búið öldruðum áhyggjulaust ævikvöld“... Aþriðjudaginn síðasta var dómtekin kæra rússneska handboltamarkvarðarins Alexanders Rivine á hendur handknattleiksdeild Víkings. Rivine lék með Víkingum á árunum 1992-1993, en upp kom mikil þræta milli hans og forráðamanna félagsins. Rússinn telur sig hafa verið snuð- aðan af félaginu og ekki fengið greitt samkvæmt samningi sem hann gerði við það. Forráðamenn Víkings, sem varð nær gjaldþrota eftir að knattspyrnudeildin vann íslands- meistárátitilinn um árið, telja sig hins vegar ekki eiga neitt óuppgert við Rivine. Klögumálin ganga því á víxl í dómsal Héraðsdóms Reykjavíkur; hver eigi að greiða hverjum hvað og fyrir hvað skuli greitt í áhugamannadeildinni í handknattleik á íslandi... Eins og lesa má í Helgarpóstinum þessa vikuna er þegar tekið að sækja hart að nýkjörnum formanninum Margréti Frí- mannsdóttur i'nnan Aiþýðubandalagsins. Samsæriskenningasmiðum stjórnmálalífs- ins þykir óvenjusnemma vaðið í nýjan for- mann af eigin flokksmönnum og hafa af því tilefni á orði, að nú eigi í eitt skipti fyrir öll „að ganga frá Möggu — og gera það strax“, eins og einn heimildamaður blaðsins orðaði það. Athygli vekur að sam- kvæmt heimildum Helgarpóstsins stendur sami hópur að aðförinni að Margréti og reynir nú allt hvað af tekur að koma Ólafi Ragnari Grímssyni í umræðuna sem vænleg- um forsetakandídat. Meðlimi hulduhers þessa þorði aftur á móti ekki nokkur maður að nafngreina í samtölum við blaðið. Hvort Ólafur Ragnar er sjálfur með í ráðum um að knésetja Margréti er óvíst, en hann er í öllu falli þekktur arkitekt að ýmsum aðgerðum innan pólitíska litrófsins og hefur ekki komið henni til varnar svo tekið hafi verið eftir. Hvað sem því líður studdi hann Margréti leynt og ljóst í formannsslagnum og þessi meinti snarsnúningur því hálf- óvæntur — en enginn er jú annars bróðir í leik, síst af öllu í stjórnmálum... Margra ára baráttu konu einnar til að fá dæmt ógilt fjár- nám sem Róbert Árni Hreiðarsson, lögmaður Kredit- korta, gerði í eignum hennar lauk á dögunum í Héraðs- dómi Reykjavíkur með sigri konunnar. Forsaga málsins er sú að eiginmaður konunnar var úrskurðaður gjaldþrota fyrir átta eða níu árum og skuldaði þá Kreditkortum um sex hundruð þúsund krónur. Lögmaður Kreditkorta tók þá fjárnám í ýmsum innanstokksmunum hjónanna. Konan vildi ekki una fjárnáminu og fór í mál við Kreditkort. Málið hefur þvælst fram og til baka í réttarkerfinu og meðal ann- ars haft viðdvöl í Hæstarétti. Það var svo loks fyrir fáein- um dögum að Héraðsdómur ógilti fjárnámið á þeim for- sendum að um væri að ræða ýmist persónulegar eigur konunnar eða hluti sem nauðsynlegir væru til heimilis- halds. Lögmaður konunnar var Sveinn Andri Sveinsson... Tómas A. Tómasson, staðarhaldari á Hard Rock Café og Hótel Borg, hyggst færa út kvíarnar á næstunni og opna risa- stórt kaffihús við Austurvöll eða nánar til- tekið þar sem Gallerí Borg var áður til húsa, en þá byggingu nældi Tommi sér í fyrir skemmstu. Samkvæmt upplýsingum síðasta Viðskiptablaðs mun eiginkona hans, alnafna heilbrigðisráðherrans Ingi- bjargar Pálmadóttur, hafa yfirumsjón með innréttingum staðarins sem fullbúinn á að rúma níutíu manns í sæti. Á efri hæðum hússins er síðan áætlað að innrétta ein nítján hótelherbergi til viðbótar við þau sem fyrir eru á Hótel Borg. Ljóst er að Café París, hinum megin við Pósthússtrætið, fær stóraukna samkeppni þégar kaffi- húsið verður opnað og væntanlega verða til dæmis hinir gömlu fastagestir Hressó, sem allir voru búnir að flytja sig yfir á París, í megnustu vandræðum með að gera upp á milli staðanna tveggja. Ekki mun vera komið á hreint hver nafngift þessa nýja afkvæmis Tomma verður, en með tilliti til útþenslustefnu hans í veitingageiranum ætlar Helgar- pósturinn að leyfa sér að stinga upp á „Hard Business Café“... Fréttaskotið —552-1900 HELCARPÓSTURINN Helgarpósturinn er fluttur nýja heimilisf angiö er Borgartún 27

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.