Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 31

Helgarpósturinn - 18.01.1996, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR1S. JANÚAR 1996 K.. 31 V Karlmennskupróf Helgarpóstsins tæki vikunnar Judge Dredd og Siv Friðleifs á „Zodia“ Ólíkt öðrum alþjóðlegum bíla- sýningum er Tókýó-sýningin með sérstakt og vel afmarkað svæði tileinkað þarlendum mótorhjólaiðnaði (sem virðist reyndar í bráðri tilvistar- kreppu ef eitthvað er að marka það sem sýnt var núna í haust). Tæki vikunnar er flagg- hjól Honda-risans sem nefnist Zodia og státar af tvöfaldri 1,5 lítra V-vél (tvöfaldri?). Zodia lítur helst út fyrir að vera far- artæki einhvers sem komst lífs af úr Judge Dredd-katastróf- unni og er einkennilegt sam- bland af fortíðar- og framtíðar- sýn, þar sem það minnir óneit- anlega á gömlu góðu „chopper“-ana. Það væri ekki amalegt að krúsa á þessu trylli- tæki niður Laugaveginn og Bankastrætið á góðviðrisdegi, beygja til vinstri út Lækjargöt- una og síðan inn í Pósthús- stræti, framhjá Café París og beibunum ómissandi á gang- stéttinni. Það er jafnframt aug- ljóst mál að ekki aðeins myndu beibin snarsnúa sér í sætunum til að dást að stykkinu og öku- manni þess heldur myndu Sniglarnir (sem gert hafa kaffi- húsið að félagsmiðstöð sinni) líka stökkva upp til handa og fóta og hálfskammast sín fyrir „druslurnar", sem eftir fram- hjáreið Zodia teljast þar með lýta Austurvöllinn. Ingólfstorg og Alþingishúsið væru „möst- stopp“ fyrir Zodia-manninn, því þetta er örugglega hjólið sem þingmennin Ami John- sen og Siv Friðleifsdóttir ættu að fjárfesta í fyrir næstu kosn- ingar. Og gamli mótorhjóla- kappinn Matthías Bjarnason væri náttúrlega fullsæmdur af einu slíku — hann og Sylvester | líkamstjáníng Í4ð skekja sig við barinn Það er ekki þrautalaust að finna réttu stellingarnar til að setja sig í þegar maður lendir í þeirri óhæfu að finna ekki sæti á þéttskipaðri krá: Hinrik Frið- leifsson málari mætti þannig eitt sinn á veitingahúsið „22“ undir miðnætti til að skella í sig Tuborgkollu eða tveimur í góðra vina fastakúnnahópi, en fann hvergi sæti og stóð því vandræðalega upp við barinn. Fljótlega kom upp að barnum svírabreitt svaðamenni, tók sér fasta stöðu við hlið Hinriks og pantaði tvöfaldan brennivín í vatni. Hinrik tók fljótlega eftir því að sjóarinn steig ölduna allsvakalega og ruggaði í margra gráðu horn, frá hægri til vinstri. Auðvitað hlaut að fara svo að Hinriki leiddist þessi fleygiferð á heljarmenn- inu og hann hvæsti loks á hann: „Hvað er eiginlega að þér maður, geturðu ekki staðið kyrr í eina sekúndu?" — „Nei, því miður,“ útskýrði hinn góð- látlegum bassarómi: „Eg hef verið stýrimaður hjá Samherja í hartnær tíu ár og hreyfing hafsins hefur einhvern veginn smitað út frá sér og ég er með ölduganginn í blóðinu." Hinriki þótti þetta að vonum af- spyrnuslæm afsökun fyrir hamaganginum og hreytti út úr sér á móti: „Hvurslags aum- ingjans fyrirsláttur er þetta? Ég hef feðrað fjórtán börn,“ og hér tók Hinrik að skaka mjöðmunum harðneskjulega fram og aftur, „og ekki læt ég svona eins og vitleysingur!" Er íhaldsmaöurinn Gísli Marteinn Baldursson meiri karlmaöur en allaballinn Flosi Eiríksson? Karlmennska og almennur stráksskapur hafa átt verulega undir högg að sækja á of- anverðri tuttugustu öld með frjálsurn ást- um, mjúka manninum, kvenréttindabaráttu og öðru slíku ekkisens bulli. Það er vita- skuld ekki nema von að menn týni eðlis- lægu karlmennskusjálfínu í öllu því flóði ókynlægrar hugsunar sem nú tröllríður vestrænum heimi, illu heilli. Eiríkur Berg- mann Einarsson kemur í þessari viku karl- mennskunni til varnar og leggur fyrir karl- kyns lesendur úthugsað próf eitt feiknamik- ið að vöxtum svo menn fái sannreynt karl- mennsku sína. Tilraunadýrin tvö sem etja kappi að þessu sinni — öðrum lesendum til viðmiðunar — eru (allaballinn, spurninga- keppnagúrúinn og smiðurinn) Flosi Eiríks- son og (einn af æðstuprestum stuttbuxna- deildar íhaldsins og stúdentapólitíkusinn) Gísli Marteinn Baldursson. Stuttbuxnadeildin 1. Hefur þú einhvern tímann notiö ásta á fjöllum? 2. Er salat bara eitthvaö fyrir stelpur? 3. Geturöu skutlað vindlingi úr mittishæð upp í munn? 4. Hefuröu átt viö íþróttameiösli aö striöa? 5. Hefurðu leikið hættuspil á mótorhjóli? 6. Mundirðu stinga þér út í straumharða á til aö bjarga hundi? 7. Færöu „kikk" út úr því að skjóta fugla? 8. Geturðu boröað hrá egg? 9. Hefuröu haft stærri mann undirí glímu? 10. Áttu það til aö missa minnið tímabundið vegna stífr- ar áfengisneyslu? 11. Mundirðu ryöjast inn í brennandi hús til að bjarga miðunum þínum á bikarúrslitaleikinn? 12. Hverjum vildirðu helst eyða nótt meö: Magnúsi Scheving, Svavari Gestssyni eða Páli Óskari Hjálmtýs- syni? 13. Hefur hetjuskapur þinn einhvern tímann komið í veg fyrir slys? 14. Geturðu smíðað bókaskáp einsamall? 15. Ertu svo sigldur aö geta kallað einhverja barþjóna gælunafni? 16. Ertu myndarlega vaxinn niöur? GMB: Nei, en þaö helgast aðeins af því að ég er svo lít- ið uppi á fjöllum. Ef ég væri þar tíöari gestur hefði ég ör- ugglega notið þar ásta. (0) GMB: Nei, þaö er nú líka fyrir karlmenn en salatmáltíð eingöngu er hins vegar aðeins fyrir stelpur. (1/2) GMB: Já, þaö get ég mjög auðveldlega þrátt fyrir að ég reyki ekki. Ég leik þær listir iðulega I fjölmenni og þaö virkar alltaf. (1) GMB: Já, ég hef lent I þessum klassísku; tognað I baki og slitið krossbönd í hné. í innanhússknattspyrnu lenti ég einu sinni I samstuði og hnéskélin fór eitthvað á flakk. (1) GMB: Nei, en ég hef hins vegar leikið mikiö hættuspil á fjórhjóli og drap þá næstum sjálfan.mig og félaga minn. Það var bakkgír á fjórhjólinu og ég sat á fremri böggla- beranum og keyrði þannig á tleygiferð afturábak, þannig aö beygjuhjólin voru í raun aftan á. Hjólið valt slöan og skoppaði yfir okkur félagana. (1/2) GMB: Já, það mundi ég gera, þar sem ég er sundmaður góður. Mér líkar þar aö auki mjög vel við hunda, enda á ég einn sjálfur. (1) GMB: Nei, ég hef aldrei nokkurn tímann skotið úr riffli, hvorki á fugla né aöra. (0) GMB: Já, þaö get ég. Mér finnst þau þó ekkert sérstak- lega góð. Hins vegar geta þau bjargað ýmsu — svona heilsufarslega — daginn eftir miklar skemmtanir. Þá eru áhrifin af þeim góð. Tilgangurinn helgar I raun þetta meðal. (1) GMB: Já, ég hef haft þá marga undir I glímu. Skemmst er að minnast rimmu sem ég lenti I á árshátíð stjórn- málafræðinema við samnemanda minn, sem var örugg- lega vel á þriðja metra, enda er ég mjög lipur og snögg- ur. (1) GMB: Já, ég get nú ekki neitað því. Oft skemmast mynd- ir kvöldsins áður I heilanum, enda er framköllunarvökv- inn þá oft I sterkara lagi. (1) GMB: Já, ef viö gefum okkur aö þaö sé uppselt á leikinn þá mundi ég gera það. Þó mundi ég ekki hætta lífi mínu, en færi eins langt og ég mögulega gæti. (1/2) GMB: Ef ég eyddi nótt með einhverjum karlmanni þá yröi það Elvis. Ég sef ekki hjá öðrum karlmönnum. Elvis er sá eini sem ég mundi ekki sparka út úr rúminu hjá mér. (0) GMB: Já, ég vann viö það aö vera hetja þegar ég starf- aði sem sundlaugarvörður, svokallað „bay watch". Þá þurfti ég iðulega aö hlaupa niður úr turninum og stökkva alklæddur út I laug til að bjarga fólki sem ekki gat bjarg- að sér sjálft og var á góðri leiö með að sökkva. (1) GMB: Já. Ég get og hef smlöað bókaskáp einn með þvl aö kaupa þar til gerö efni tilsniðin og setja þau svo sam- an hjálparlaust. Það er vandkvæðalaust. (0) GMB: Já, en þá aöeins þá sem ég hef þekkt áður en þeir urðu barþjónar. Ég hef ekki kynnst neinum þeirra þaö vel I starfi. (1/2) GMB: Já, þaö er ég mjög. Aö minnsta kosti eins og I góöu meðalári hjá íslendingi. (1) kmguna FE: Já, ég hef gert það. Það var þó frekar „prívat", þann- ig aö ég ætla ekkert að segja þér frá þvl. Nema þá að þaö var helvíti gott en frekar kalt. (1) FE: Nei, þaö er til ýmissa hluta nytsamlegt, enda neyti ég þess sjálfur. (1/2) FE: Nei, það get ég ekki. Enda reyki ég ekki. (0) FE: Nei. Ég stunda ekki íþróttir síöan ég keppti I band- Imóti I menntaskóla. (0) FE: Já. Ég hef stokkiö fram af nökkrum tröppum sem aft- ari maður á mótorhjóli, sem er mun meira spennandi en aö vera sá fremri. Ef maður lendir mjög aftarlega þá er maður ekki lengur á mótorhjólinu. (1) FE: Nei, ekki til aö bjarga hundi flestir betur syndir en menn. (0) enda eru hundar FE: Ég hef nú aldrei prófaö það, en ég skaut leirdúfur um helgina og fékk rosa „kikk" úr úr því. Ég hef enn ekki prófaö að skjóta á neitt lifandi. (1/2) FE: Já, en mér finnst þau ekki góð. Þetta var nú gert þegar maður fór I fýlseggjatlnslu hér I den... Ég hef þó ekki prófað þetta fræga þynnkumeðal. (1) FE: Já ég hef gert þaö. Það geröi ég með hælkrók aftan vinstra. (11/2) FE: Nei, það er einn af mlnum stærstu göllum að muna allt sem ég segi og geri á fyllerium. (0) FE: Ég hef aldrei átt miöa á bikarúrslitaleik þannig aö sú staöan er mér ókunn. (0) FE: Páli Óskari. Af þessum þremur væri það mesta upp- lifunin. (1) FE: Nei, ég get ekki sagt það. (0) FE: Já, það get ég auðveldlega. Það hjálpar til að ég er smiður. Ég hef smlðað allar bókahillur mínar sjálfur. (1) FE: Nei, ég er of kurteis til þess. Hins vegar hef ég kynnst þeim nokkrum I starfi slnu. (1/2) FS: Ég hef nú ekki lagt mig eftir einhverjum sérstökum samanburði, en ekki fengið neinar kvartanir. (1/2) Úrslit: Gísli Marteinn marði sigur í þessari tvísýnu viðureign við Flosa. Úrslitin urðu 10-8 1/2, Gísla Marteini í vil. (Að sjálfsögðu sóru keppendur fyrirfram og sárt við lögðu, að þeir mundu svara spurningum sannleikanum fyllilega sam- kvæmt og Helgarpósturinn sér enga ástæðu til að draga i efa að svo hafi verið...)

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.