Helgarpósturinn - 22.02.1996, Side 25
FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR1996
25
Gunnlaugur M.
Sigmundsson, alþing-
ismaður og
forstjóri Kögunar
„Best klæddi maðurinn
pólitíkinni í dag; hef-
ur yfirbragð alþjóð-
legs bissnessmanns
eins og sæmir manni
í alþjóðaviðskipt-
um.“
„í ljósgráum jakka-
fötum og lekker. Þar
sem hann er svo nýr
á þingi vita enn fáir
af honum, en ég býst
við að hann eigi eftir
að hafa mikil áhrif.“
Sigurður Gísli Pálmason, forstjóri Hagkaups
„Hefur skapað sér sérstakan fatastíl, sem er fremur
listamannslegur en þó í anda forstjóra stórveldis.
Þar nýtur hann dyggs stuðnings eiginkonu sinnar,
klæðskerans Guðmundu Heienu Þórisdóttur, sem
er með best klæddu konum á landinu. En þótt hann
sé kominn með sinn stíl er hann enn djarfur og
þannig tískufyrirmynd margra í viðskiptalífinu.“
„Þótt Sigurður sjáist ekki mikið í fjölmiðlum er hann
mjög áberandi í stórri viðskiptamannakreðsu sem
hann hefur gífurleg áhrif á, ekki síst með sérstökum
fatastíl sínum til margra ára.“
Agnar Gunnar Agnarsson, eigandi Stóra bróður
„Hann bjó til Dickies-tískuna á krakkana, eða amerísku vinnufatatískuna."
„Er aðaltrendsetter drengja á aldrinum 10 til 15 ára sem vilja ekki sjá ann-
að en fatnað úr Stóra bróður. Líkt og með ungar stelpur kostar það nú
orðið grát og gnístran tanna fái drengirnir ekki allir að vera eins.“
Guðmundur Karl Friðjónsson fatafrík
„Djarfur frumkvöðull og hefur alltaf verið
og verður sjálfsagt áfram ““
„Afgerandi frumlegastur ungra íslenkia
karlmanna. Hefur úthugsaðan en samt af-
slappaðan stíl. Er frumkvöðull, ekki í
krafti frægðar, heldur manneskja sem all-
ir taka eftir þegar hann gengur upp cg
niður Laugaveginn “
Medal alitsgjafa voru:
Anna Bentína Hermansen,
Heiðar Jónsson, Björg Inga-
dóttir, Sigrún Guðný Markús-
dóttir, Hrafnhildur í Spútnik,
Ingibjörg Óskarsdóttir, Sævar
Karl Ólason og ýmsir minni
spámenn í tískubransanum.
Fríðrík Sophusson fjármálaráðherra
„Er sá maður í íslenskri pólitík sem varð fyrst rétt
klæddur við öll tækifæri.“
„Friðrik hefur verið tískufyrirmynd undanfarin ár.
Hann hefur, býst ég við, innbyggða náðargáfu viðvíkj-
andi því hvernig á að klæða sig.“
„Hefur haft mikil áhrif með stíl sínum, sérstaklega á
aðra stjórnmálamenn."
Heiðar Jónsson snyrtir
„Er straumvaldur að því leyti að hann hefur
verið sterkasti boðberi betri
undirfatamenningar á íslandi.“
„Hefur lyft konubrjóstum upp um marga
sentimetra á seinni árum.“
Halldór Bjarnason, fyrrverandi
tilvonandi formaður Dagsbrúnar
„Er tískufyrirmynd fyrir það eitt að hafa ekki hlotið
kosningu sem formaður Dagsbrúnar vegna þess
hversu vel hann var klæddur!“
„Best klæddi verkalýðsforkólfurinn og brýtur, eins og
Guðrún Þorbergsdóttir á sínum tíma, upp „mussu-
tískuna".
Margeir Ingólfsson, DJ
„Blandar fötum mjög skemmtilega saman. Er jafnflottur í jakkafötum
og sem skoppari."
„Sem vinsæll DJ með breiða línu hefur hann auðvitað mikil áhrif.“
UNGIR OG UPPRENNANDI
Bubbi Morthens
trúbador
„Mér hefur alltaf
fundist Bubbi vera
trendsetter fyrir
vissan hóp af
fólki."
„Bubbi hefur náð
að láta íslenska
karlmanninn
slappa af.“
KARLMENNET
Ungu strákarnir sem eru að verða sneggri en stúlkurnar.
Hagaskóli. Krakkarnir í Hagaskóla hafa löngum lagt línuna fyrir alla hina.
Starkaður Örn Arnarsson, bissnessmaður og barþjónn
— „Mjög efnilegur straumvaldur. Hann fer ekki út með ruslið án þess að vera vel til hafður. í senn
klassískur og ofsalega töff og það er augljóst að hann iætur ekki bjóða sér hvað sem er.“
„Það er allt á sínum stað. Hann hlýtur að spá í það kvöldið áður í hvað hann ætlar að fara.“
Heba Hallgrímsdóttir, innkaupastjóri í Kjallaranum
„Alltaf á undan en samt á jörðinni. Kvenkynsútgáfan af Starkaði."
Aðrir sem nefndir voru: Svava Johansen: „Hún stjórnar auðvitað unglingatískunni en er ekki
endilega sú ferskasta." Friðrik Weisshappel: „Gerði barþjónsstarfið eftirsóknarvert í augum ungra
fallegra karlmanna.“ Dýrleif Ýr Örlygsdóttir: „Var mjög áberandi tískufyrirmynd og á sjálfsagt eft-
ir að verða það aftur." Jón Sæmundur Björnholt: „Heldur alltaf sínu.“ Hjónin Hjálmar W. Hannes-
son og Anna Birgis, sendiherrahjón í Kína. „Ef Hjálmar og frú settust í forsetastól værum við búin
að eignast alþjóðlegan trendsetter; Anna Birgis er einhver glæsilegasta kona heims.“ Hljómsveit-
in Botnleðja: „Bjartasta vonin, enda tónlistarstraumvaldar.“ Árni Þór Sævarsson, eigandi Flauels
um tíma: „Hefur lengi skarað fram úr. Er efni í straumvald eins og faðir hans forðum, Sævar í
Karnabæ.“
tiáttborðið
THF
RONDŒS5
WELED
BY M.SCOTT PECK, M.D
Autxx of The Offerpnt Drum
The Road Less Traveled
Aster
aðskilnaður
Lífið er erfitt. Það eru mikil
sannindi, einhver mestu
sannindi sem um getur.
Á þessum orðum Búdda,
þar sem vitnað er í „Fjóra göf-
uga sannleika“, hefst metsölu-
bókin The Road Less Traveled,
sem mætti þýða sem Fáfarna
veginn, eftir bandaríska sál-
fræðinginn M. Scott Peck. Bók
þessi hefur í flestum löndum
vesturheims prýtt helstu met-
sölulista undanfarin tíu ár, allt
frá því hún kom fyrst út. Á
undanförnum tveimur til
þremur árum hefur hún svo
náð töluverðum vinsældum á
íslandi, en eftir því sem HP
kemst næst hafa vinsældir
hennar vaxið í beinu sam-
hengi við aukna hjónaskilnaði
í hverju landi um sig.
Þótt upphafsorðin kunni að
benda til trúarlegra þanka er
bókin fjarri því að falla í þá
gryfju, heldur fjallar Peck að
stórum hluta um þá blekkingu
sem ástin og lífið almennt er.
Meðal annars heldur höfund-
ur því fram, og rökstyður
ágætlega, að ást sé ekki tilfinn-
ing heldur sé ást aðskilnaður;
það sé ekki fyrr en par fái rými
hvort í sínu lagi sem það gerir
sér fyrst almennilega grein
fyrir hvort ástin er til staðar.
Þá ræðst Peck á goðsagnir
eins og rómantíska ást og rök-
styður líka með ágætum að
ást byggist númer eitt á sjálfs-
aga.
Stóri misskilningurinn að
ást sé tilfinning, segir Scott, er
fólginn í því að menn rugla í sí-
fellu saman ást og hrifningu.
Ruglingurinn sé skiljanlegur
þar sem ferlið er svipað, en
munurinn á ást og hrifningu
sé að sama skapi mikill. Hrifn-
ing sé jafnt bundin við lifandi
hluti sem dauða. Þannig getur
manneskja hrifist af demönt-
um eða listaverkum og jafnvel
talið sig fá ást á þeim og líka á
manneskju, án þess að nokkur
andleg dýpt sé þar í.
í bókinni, sem sálfræðingur-
inn Scott byggir á áralangri
vinnu sinni með skjólstæð-
inga, hefur hann fundið út að
ást sé fyrst og fremst vilji;
sönn ást sé því ekki tilfinning
vegna hrifningar heldur skuld-
binding; ígrunduð ákvörðun.
Fleira sem gerð eru ágæt
skil í bókinni tengist þroska-
ferli mannsins, sjálfsaga, trú
og ýmsum dyggðum, svo sem
mætti heilsunnar.
Ólíkt sápuvandamálalausn-
arritum á borð við Karlar eru
frá mars og konur frá venus,
sem var mest selda jólabókin í
ár, er The Road Less Traveled,
þrátt fyrir ýmsa ameríska kyn-
lega kvisti, skrifuð fyrir nokk-
uð kröfuhart fólk. Þarna er
heldur engin sápa á ferð held-
ur skemmtilega útfærðar af-
hjúpanir á gömlum bleikum
skýjahnoðrum.
-GK