Helgarpósturinn - 30.04.1997, Síða 3
Hann leikur Sævar Ciesielski í heimildamyndinni um Guðmundar- og Geirfinnsmálið
□MISSANDI í
SUMARBÚSTAÐINN
Allir vilja geta notiö þess besta í mat og drykk, hvert sem leiðin liggur.
Pess vegns eru G-vörurnan ómissandi í sumanbústaðinn.
nmr
MJÓLKURSAMSALAN
mn--.............
mt
Heimildamyndin Aðför að
lögum hefur beint kastljós-
inu aftur að Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu. Greinilegt er
að mikil vinna hefur verið lögð í
gerð myndarinnar, en fjölmörg
atriði hennar voru sviðsett.
Nokkrir lærðir leikarar koma
fram í myndinni en mest mæðir
á óreyndum leikara, Hlyni
Sölva Jakobssyni, sem leikur
Sævar Marínó Ciesielski. Það
var hrein tilviljun að Hlynur tók
að sér hlutverkið. Hann segist
hafa verið að fara út með ruslið
þar sem hann vinnur, á veit-
ingastaðnum Horninu, þegar
Einar Magnús Magnússon,
einn aðstandenda myndarinn-
ar, tók eftir honum. Einari
Magnúsi fannst Hlynur sláandi
líkur Sævari og bauð honum
strax að leika hann í títtnefndri
heimildamynd. „Ég hafði nú
tekið mér ýmislegt fyrir hendur
um dagana — svo sem að búa
til tónlist fyrir bláar myndir í
Bandaríkjunum — og var því
ekki seinn að slá til. En ég gerði
mér satt að segja ekki grein fyr-
ir að mín biði talsverð þolraun
við upptökur á myndinni."
Sat í einangrun í átta
tíma
Margar tökur voru að sögn
Hlyns mjög erfiðar og þurftu
hann og nokkrir aðrir leikarar
að leggja talsvert á sig til að að-
lagast hlutverkum sínum. Til
dæmis samþykkti Hlynur að
láta loka sig inni í einangrunar-
klefa í Síðumúlafangelsinu í
nokkra tíma. „Ég hafði vart gef-
ið vilyrði mitt fyrir þessu uppá-
tæki - var að fá mér sígó í ró og
næði uppi í Síðumúla — þegar
tveir karlmenn í lögreglubún-
ingum gengu að mér. Ég gat
ekki stillt mig og skellti upp úr,
en þeim var dauðans alvara og
rifu mig á fætur og fleygðu mér
í bókstaflegri merkingu inn í
fangaklefann. Síðan var hurð-
inni læst og ég lá á gólfinu,
undrandi á öllu saman. Að-
stæður í klefanum voru ömur-
legar; hvorki ábreiða né koddi í
rúminu. Eftir fimm mínútur var
hurðinni hrundið upp og kodda
og ábreiðu kastað til mín. Sæv-
ar, sem aðrir sakborningar, var
á sínum tíma beittur andlegu
og líkamlegu harðræði af gróf-
ara taginu meðan yfirheyrslur
stóðu yfir. Ekki var ég beittur
líkamlegu ofbeldi, en við getum
sagt að ég hafi orðið fyrir and-
legu ofbeldi. Til dæmis var
haldið fyrir mér vöku með því
að berja á dyr og veggi. Ég festi
því varla blund þessa átta tíma
sem ég gisti klefann. Þessi raun
hafði þau áhrif á mig að ég lagð-
ist í rúmið í nokkra daga á eftir.
Það er því rétt hægt að ímynda
sér hvaða áhrif dvöl í einangr-
unarklefa hafði á sakborning-
ana í Guðmundar- og Geirfinns-
málinu. Þeir fengu ekki að hafa
samskipti við annað fólk, fengu
engin blöð eða bækur og gátu
ekki fylgst með útvarpi eða
sjónvarpi. Svona aðferðir eru
mannskemmandi og það er mér
óskiljanlegt hvernig löggæslu-
menn gátu tekið þátt í svona
aðgerðum. Svo skilst mér að
sumir af þeim mönnum sem
stóðu í þessum hrottaskap
starfi enn innan lögreglunnar.“
Hlynur segir að útitökurnar
hafi einnig verið leikurum erfið-
ar. „í Rauðhólum var taka þar
sem við áttum að dysja lík.
Kuldinn var mikill og okkur
gekk einstaklega erfiðlega að
grafa holu fyrir ímyndað líkið.
Kuldinn og vosbúðin gerðu það
að verkum að maður komst
ósjálfrátt í slæmt andlegt og lík-
amlegt ástand. Ég held að það
skili sér til áhorfandans.“
En gerð myndarinnar tók
ekki aðeins á leikarana. Að-
standendur hennar lentu líka í
mótstreymi. „Brottrekstur Sig-
ursteins af Stöð 2 síðastliðið
haust var reiðarslag fyrir alla
sem unnu að gerð myndarinnar
og framleiðsla hennar tafðist
nokkuð af þeim sökum. Upphaf-
lega var gert- ráð fyrir að sýna
myndina í RÚV í byrjun árs en
það er ekki fyrr en í þessum
mánuði sem hún kemur loks
fyrir sjónir áhorfenda."
Sævar var mikill kvenna-
maður
Margir hafa haft á orði
hversu líkur Hlynur sé Sævari á
yngri árum. Hlynur segir að svo
rammt kveði að þessum saman-
burði að fólk hafi gengið að sér
og látið í ljós álit sitt á Sævari
og meintum gjörðum hans.
„Fólk hefur sagt ýmislegt við
mig um Sævar, en það eina sem
ég get látið hafa eftir mér er að
hann hefur verið mikill kvenna-
maður. Það fer ekki á milli
mála. Ég er til dæmis að vinna í
hjáverkum sem plötusnúður á
skemmtistað í miðbænum og
þar kemur reglulega inn kona
sem var eitt sinn með Sævari.
Hún kemur stundum og spallar
við mig og talar þá iðulega um
gamla tíma með Sævari. Fólk
hefur greinilega ekki gleymt því
hvernig Sævar var. Það hefur
verið mér mikil lífsreynsla að
leika þannan mann. Ég hef enn
sem komið er ekki talað við
hann en ég geri ráð fyrir að
heimsækja hann á næstunni."
En hvað heldur Hlynur að
gerist í Guðmundar- og Geir-
finnsmálinu eftir sýningu þátt-
anna? Á hann von á að ný rann-
sókn fari fram á málinu í kjölfar
nýrra gagna sem hafa verið
dregin fram í dagsljósið eða
mun ríkisvaldið sitja á sér
áfram?
„Ég er handviss um að við
málinu verður hreyft. Mörgum
spurningum er enn ósvarað,
eins og þessi heimildamynd
gefur til kynna. Handritshöf-
undar myndarinnar, þeir Sigur-
steinn Másson og Kristján Guy
Burgess, hafa komið fram með
álitleg sönnunargögn sem gefa
til kynna að ekki er allt með
felldu í málinu,“ sagði Hlynur
Sölvi Jakobsson, sem ætlar ekki
að læra leiklist þrátt fyrir prýð-
isgóða takta á skjánum.
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997
Framsóknarmenn óska fallistanum Paddy Ashdown góðs gengis í þingkosningunum á Bretlandi á morgun, þó
með þeirrí undantekningu að Guðmundur Bjarnason styður Tony Blair.
Framsóknarmenn
taka Paddy fram
yfir Blair og Maior
KAFFIRJÖMI
Tilvalinn í kaffið og
þraelgóðun í súpun og
sósur. Sömuleiðis
vinsæll út á skynið og
grautinn.
G segir til um framleiðslu-
aðferðina sem einkennir
G-vörur. Pá er varan
snögghituð við hátt
hitastig. Með því móti
verður hún geymsluþolnari
og heldur jafnframt
ferskleika sínum og
næringargildi. G-vörur þarf
ekki að geyma í kæli.
G-MJÓLK
Góð mjólk sem aldrei
bregst - ísköld og
svalandi eftir kælingu
í næsta fjallalæk!
Og svo er G-mjólkin
líka frábær í alla
matargerð.
G-RJÓMI
Gerir góða ferð enn betri. Pú notar
hann eins og annan eðalrjóma. óþeyttan
út á berin, þeyttan með kökunni og
ísnum eða sem leynivopn í súpugerðinni.
ABretlandi er Frjálslyndi flokkurinn fylgisiýr og
áhrifalaus. Kosningarnar snúast um afstöðu al-
mennings til leiðtoga Ihaldsflokksins, Johns Major,
annars vegar og hins vegar Tonys Blair, foringja
Verkamannaflokksins. Paddy Ashdown er varla inni í
myndinni í kosningunum á morgun. Hann getur þó
huggað sig við að eiga hauka í horni á íslandi. Fram-
sóknarmenn sem HP talaði við studdu allir nema einn
Frjálslynda flokkinn eða „Líberala"
eins og þeir heita hjá Framsókn.
Þótt Framsóknarflokkurinn hafi
ekki orð á sér fyrir að vera alþjóða-
sinnaðastur íslenskra stjórnmála-
flokka er hann í alþjóðlegum sam-
tökum frjálslyndra flokka, þ.á m.
með Ashdown og félögum.
„Eftir að hafa hlustað á yfir-
heyrslur á leiðtogum flokkanna á
Bretlandi þá myndi ég kjósa Líber-
alana,“ segir Finnur Ingólfsson iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra.
Páll Pétursson var búinn að
gaumgæfa stöðuna á Bretlandi. „Ég
geri ráð fyrir að ég myndi frekast
kjósa Líberala. Það er helst að ég
líti á þá sem flokksbræður mína.
Hinir flokkarnir hafa nokkuð til síns
máls. Ég hef ákveðna samúð með
málflutningi
________________íhaldsins í Evr-
ópumálum þótt mér finnist arfur-
inn frá Thatcher ekki aðlaðandi.
Það er sumt ferskt í stefnu Verka-
mannaflokksins og hann hefur
færst meira í skynsemisátt en
hann var undir fyrri foringjum.“
Hjálmar Árnason svaraði stutt
og laggott: „Það eru mjög hreinar
línur. Framsóknarmenn eru á al-
þjóðavettvangi í samstarfi við
Líberala.
Umhverfis- og landbúnaðarráð-
herra, Guðmundur Bjamason, er
á skjön við forystu Framsóknar-
flokksins. „Miðað við að Blair seg-
ist vera kominn á miðjuna og tekur
upp aðferðir Clintons þá hlýt ég
að styðja hann frekar en íhaldið,"
segir Guðmundur og gefur Paddy
langt nef.
MIÐVIKUDAGUR 30. APRIL1997
h
Pólitískt mismæli Ingu Jónu
veldur uppnámi
í SjáLfetæðisflokknum
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
eru almennt undrandi á
þeim ummælum Ingu Jónu
Þórðardóttur borgarfulltrúa
að stefna á fyrsta sæti borgar-
stjórnarlistans fyrir næstu
kosningar. Hún er ekki talin
njóta nægilegs stuðnings inn-
an flokksins, hvorki meðal
stallsystra sinna í Sjálfstæðum
konum né annarra. Þá þykir
málið vandræðalegt fyrir eigin-
mann Ingu Jónu, Geir Haarde
alþingismann, sem hefur verið
vinur Árna Sigfússonar um
margra ára skeið. Á sama tíma
er staða Árna, sem tók við
fyrsta sæti á lista sjálfstæðis-
manna á erfiðum tíma, sterk.
Samkvæmt upplýsingum HP
innan Sjálfstæðisflokksins njh-
ur hann almenns stuðnings
meðal flokksmanna, einkum
ungra sjálfstæðismanna sem
vilja auka veg yngri manna inn-
an flokksins, en Arni er fyrrver-
andi formaður SUS. „Staða
Árna er sterk auk þess sem
hann hefur boðið tryggingafé-
lögunum birginn sem formað-
ur FÍB með lækkun á trygginga-
iðgjöldum. Á sama tíma minn-
ast borgarbúar aðeins R-list-
ans fyrir holræsaskattinn þeg-
ar þeir sturta niður úr klósett-
inu heima hjá sér,“ sagði kunn-
ur sjálfstæðismaður sem seg-
ist vinveittur Ingu Jónu.
Vafasöm tímasetning
Ekki er útséð um hvort stillt
verður upp á borgarstjórnar-
listann eins og fyrir árið 1990
eða boðað til opins prófkjörs
eins og árið 1994. Akvörðun
þess efnis verður ekki tekin
fyrr en í fyrsta lagi á hausti
komanda. Sjálfstæðisflokknum
hefur gengið vel síðustu mán-
uði í skoðanakönnunum og
Árni Sigfússon, sem tók við á
erfiðum tíma, hefur notið góðs
af. En hvað gengur Ingu Jónu
til að blása í herlúðra þegar
langt er til kosninga? Góður og
gegn sjálfstæðismaður sagði
að Inga Jóna hefði staðið sig
vel sem borgarfulltrúi en bætti
svo við að hún ætti það til að
vera svolítð fljótfær og hefði
hreinlega misst þetta út úr sér.
„Ef einhver hefur hug á að gefa
kost á sér í fyrsta sæti listans
lætur hann þess ekki getið í
apríl, þegar aldeilis óvíst er
hvenær og hvort prófkjör
verður. Þannig gera menn ekki
í stjórnmálum.“
Sjálfstæðisflokkurinn var
tíma að ná áttum eftir kosn-
ingaósigur sinn árið 1994 en
hefur komið vel út í skoðana-
könnunum að undanförnu. Því
er sú skoðun ríkjandi innan
flokksins að Inga Jóna hafi sett
flokkssystkini sín í vanda og
gefið R-listanum færi á flokkn-
um í borgarráði. Sjálfstæðis-
menn telja að slíkt geti veikt
stöðu flokksins innan borgar-
stjórnar og hrindi honum ein-
faldlega í prófkjör ef og áður
en það hefst. „Það á ekki að
blása í herlúðra ef ekki kemur
fram gagnrýni á forystumann-
inn. Það hefur ekki gerst í
þessu tilfelli, en svo má vel
vera að Inga Jóna hafi látið
þessi orð falla vegna eigin
metnaðar og vilji með þessu
knýja á um prófkjör til að fá úr
því skorið hvort það sé pláss
fyrir hana í forystusveit flokks-
ins. Árni Sigfússon er í mínum
huga sá eini sem getur leitt
flokkinn til sigurs í næstu
kosningum,“ sagði Jón Krist-
inn Snæhólm, fyrrverandi
varaformaður SUS.
Fleiri væntanlegir arftakar
Árna hafa verið nefndir til sög-
unnar, svo sem Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, borgarfulltrúi og
formaður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Hann er ekki tal-
inn eiga mikla möguleika og
ekki vera til þess fallinn að
styrkja ímynd flokksins innan
um Davíð, Þorstein og Friðrik.
Flokkurinn reyndi slíka upp-
setningu þegar Markús Om
Antonsson var í fyrsta sæti
listans, en hann dró sig
skömmu fyrir kosningar.
hlé
Útspil Ingu
Jónu er
vandræðalegt
fyrir Geir
Haarde
eiginmann
hennar sem er
vinur Árna
Sigfússonar til
margra ára.
. suik við stjómarsáttmálann“
Ráöherrar miöluöu málum eftir aö fulltrúar þeirra hnakkrifust í lífeyrissjóöanefnd-
inni. Ekki stjórnarmeirihluti fyrir samþykkt óbreytts frumvarps
Lífeyrissjóðsfrumvarp ríkis-
stjórnarinnar er í sjálf-
heldu á Alþingi. Þingmenn
stjórnarliðsins styðja ekki allir
frumvarpið í óbreyttri mynd
og fari það til atkvæðagreiðslu
yrði það samþykkt með at-
kvæðum stjórnarandstöðunn-
ar. Tekist er á um mikla hags-
muni og nefndin sem átti að
semja frumvarpið leystist upp
eftir átakafund þar sem Öm
Gústafsson, fulltrúi Framsókn-
arflokksins, sakaði Steingrím
Ara Arason, aðstoðarmann
fjármálaráðherra, um svik við
stjórnarsáttmálann.
Framsóknarflokkurinn vill
ganga hvað lengst í þá átt að
opna bönkum, verðbréfafyrir-
tækjum og líftryggingarfélög-
um aðgang að skyldusparnaði
launafólks í lífeyrissjóði. Göm-
ul fyrirtæki Samvinnuhreyfing-
arinnar, svo sem VÍS, eiga
hagsmuna að gæta auk þess
sem báðir fulltrúar Framsókn-
arflokksins, fyrrnefndur Örn
og Baldur P. Eriingsson, eru
komnir með leyfi frá Vátrygg-
ingaeftirlitinu til að miðla líf-
eyrissparnaðartryggingum, en
félagarnir reka saman Fjár-
vernd ehf. og voru áður starfs-
menn VÍS.
Innan Sjálfstæðisflokksins
eru skiptar skoðanir um breyt-
ingar á því fyrirkomulagi að tíu
prósent tekna launafólks renni
til sameignarsjóða. Verkalýðs-
armur flokksins og talsmenn
samtaka atvinnurekenda eru
Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra og Fríðrík Sophusson fjármálaráð-
herra funduðu um ágreining fulltrúa sinna í nefnd um lífeyrismál og
ákváðu að taka nefndina úr sambandi.
mótfallnir grundvallarbreyt-
ingu á lífeyrissjóðakerfinu.
Hagsmunaaðilar úr röðum
verðbréfafyrirtækja og banka-
kerfisins eru hins vegar mjög
áfram um að ákvæði um
skyldusparnað verði rýmkuð.
I stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnar Davíðs Oddssonar
segir að stefnt skuli að valfrelsi
og samkeppni milli lífeyris-
sjóða. Síðsumars 1995 skipaði
fjármálaráðherra nefnd um líf-
eyrismál undir formennsku
Steingríms Ara Arasonar, að-
stoðarmanns fjármálaráð-
herra. Nefndin fundaði reglu-
lega til að byrja með en haust-
ið 1996, þegar mynd var að
komast á frumvarp, hellti Örn
Gústafsson úr skálum reiði
sinnar yfir Steingrím Ara og
nefndarstarfið lamaðist. Frið-
rik Sophusson fjármálaráð-
herra og Finnur Ingólfsson
viðskiptaráðherra funduðu um
málið og niðurstaða þeirra
varð að Steingrímur Ari og Örn
skyldu semja frumvarp.
Sjónarmið þeirra sem vildu
opna lífeyrissjóðakerfið urðu
ofan á og fyrsta útgáfa frum-
varpsins gerði ráð fyrir að iðn-
gjald umfram 10 þúsund krón-
ur skyldi teljast viðbótariðn-
gjald og falla utan skyldutrygg-
ingar. Þannig yrði losað um líf-
eyrissparnað launafólks með
yfir 100 þúsund krónur í mán-
aðarlaun sem bankar og fjár-
málafyrirtæki gætu boðið í.
Verkalýðshreyfingin lagðist
gegn þessari útfærslu og hún
var dregin tilbaka í tengslum
við nýyfirstaðna kjarasamn-
inga.
Þegar frumvarpið var loks
lagt fyrir Alþingi var það í því
formi að allir eru skyldaðir til
að greiða 10 prósent af launum
sínum í sameignarsjóði. Mála-
miðlunin bitnaði á nokkrum
þúsundum manns sem greiða í
séreignarsjóði en verða í fram-
tíðinni að semja við sameign-
arsjóði ef frumvarpið verður
að lögum.
í þingliði stjórnarflokkanna
er megn andstaða við frum-
varpið. Sumir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, t.a.m. Árni
Mathiesen og Pétur H. Blön-
dal, telja ófært að skylda þá
sem núna greiða í séreignar-
sjóði til að stofna til lífeyris-
sparnaðar hjá sameignarsjóð-
unum.
Opinberar nefndir um Iífeyr-
ismál hafa jafnan starfað lengi
og aðeins gert óverulegar
breytingar í hvert sinn. Nefnd
fjármálaráðherra átti upphaf-
lega að fara fetið og leggja til
breytingar á lífeyriskerfinu í
áföngum. En vegna ákafa Fram-
sóknarflokksins að gera rót-
tækar breytingar á lífeyris-
sjóðakerfinu er allt útlit fyrir
að ekkert verði úr. Frumvarpið
nýtur ekki stuðnings meiri-
hluta stjórnarliðsins og ríkis-
stjórnin er ekki líkleg til að láta
stjórnarandstöðuna ráða úr-
slitum í jafn mikilvægu máli.
I
i
I
I
I
i
Sat í einangrun til að aðlagast hlutv