Helgarpósturinn - 30.04.1997, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997
9
wm
Með hækkandi sól
hvarf Dagsljósið. Þótt
klukkan tifi og Ellefta
stundin renni upp alla
miðvikudaga birtast
þeir Árni og Ingó ekki á
skjánum. Fólk veinar Ó
enn sem fyrr en ung-
mennaþátturinn Ó-ið
sést ekki meir. Hemmi
sagði bara bless og haf-
ið það gott og fór og
Spaugstofumenn kæta
ekki lengur lund lands-
manna. Það er komið
sumar!
Vertíðinni lokið
Strax og Dagsljóssamstrinu
lauk var Svanhildur Konráðs-
dóttir, ritstjóri þáttanna, þotin
upp í sveit til foreldra sinna í
stutta afslöppunar- og hvíldar-
ferð ásamt syni sínum. Sonur
Svanhildar kom í símann og
tjáði blaðamanni að hann væri
tveggja ára og það væri mjög
gaman í sveit-
inni, svo
hleypti hann
móður sinni
að. „Hvað ég
ætla að gera í
fríinu?" spyr
Svanhildur
undrandi. „Til
að byrja með
ætla ég bara að
hvíla mig og
sinna fjölskyld-
unni, sem ég
hef hugsanlega
vanrækt eitt-
hvað í vetur,“
segir Svanhild-
ur. „Vinnutím-
inn hefur verið
ansi stífur og
því gott að fá
smáhvíld. í
raun má helst
líkja þessari
vinnu við ver-
tíð og nú er
henni lokið og hefst ekki að
nýju fyrr en í haust. Að vísu
kem ég nú vafalítið til með að
taka að mér einhver verkefni í
millitíðinni. En hvernig ég
haga afslöppun og orkusöfnun
í sumar er enn allsendis óráð-
ið. Ef til vill bregðum við okk-
ur til Englands eða jafnvel til
einhverra hlýrri landa. Annars
er ég varla farin að átta mig á
því að ég sé komin í frí.“
En á eftir sumrinu kemur
haust, dagsljósið dvínar, sjón-
varps- Dagsljós hefst að nýju
og Svanhildur birtist aftur inni
í stofu hjá okkur. „Þó að vissu-
lega sé maður þreyttur eftir
„vertíðina" er það vel þess
virði, því þetta er fjölbreytt og
spennandi starf. Það er gaman
að geta haldið áfram þar sem
frá var horfið og reyna að
sjálfsögðu að gera betur.“
Barneignir og Bosnía
Logi Bergmann Eiðsson á
von á kraftaverki, hvorki
meira né minna, því kona hans
er að fara að eiga barn —
núna! Þetta er einstaklega góð
tímasetning hjá þeim; Dagsljós
komið í frí og Logi líka. „Að
minnsta kosti í bili,“ segir Logi
undarlega dræmt og því ljóst
að fríið hans er eitthvað mál-
um blandið. „Ég er nú búinn
að lofa að hjálpa til á íþrótta-
deildinni í maí, því þar verður
allt á haus á næstunni. Síðan
ætla ég að fara til Bosníu í
mánaðartíma í sumar til að
vinna að heimildamynd þar.
um tíma með fjölskyldunni og
lifa sæmilega heilbrigðu lífi.“
Ó-ið er þagnað
Ásdís Olsen, ritstjóri Ó-sins,
kveður stjórnendur þáttarins,
þau Selmu, Markús og sjálfa
sig, ekki bara komin í frí held-
ur hreinlega hætt og búin.
„Við erum búin að vera að
vinna við þessa þætti í tvö ár
og það er einfaldlega nóg.
Núna er ég semsagt komin í frí
og þá er bara að taka út allar
flensurnar sem maður hefur
ekki getað leyft sér að fá í vet-
ur,“ segir Ásdís hlæjandi og
langt í frá veiklulega. „Annars
er ég bara að ná áttum núna,
því það er heilmikið spennu-
fall að þessu skuli bara allt í
einu vera lokið. Auðvitað
fylgja því einhverjar áhyggjur,
því nú er ég tekjulaus þar sem
ég starfa sem verktaki. Samt
sem áður tel ég það forréttindi
fá að vinna við það sem ég
á. Það er líka ágætt
að fá svona góðar pásur inn á
milli." Ásdís segist búast við
að fara að vinna að einhverj-
um öðrum þáttum næsta vet-
ur, hvað það verður er þó enn
á huldu en koma tímar, koma
ráð. Hún kveður þau skötuhjú
Selmu og Markús aftur á móti
ætla að söðla um og væntan-
lega fara í nám næsta vetur.
„Markús stefnir á útlönd, lík-
lega í sjónvarpsnám, og Selma
er að fara að leika stórt hlut-
verk uppi í Borgarleikhúsi og
síðan ætlar hún að taka ein-
hverja kúrsa í HÍ.“
Ásdís Olsen
hyggst byrja
sumarfríiö á því
aö taka út allar
flensur vetrarins.
Karl Ágúst ætlar að sinna leikrita
skáldinu í sjálfum sér í sumar.
lega fá fjölskyldur þeirra að
njóta kímnigáfu piltanna. öm
Ámason segir þá félaga raun-
ar alls ekki komna í frí strax
því allir séu þeir, fyrir utan
Karl Ágúst, að leika á fjölum
Þjóðleikhússins. „Ég er líka
enn með Afa uppi á Stöð 2.
Einnig er ég að leika í þáttum
eða þáttaseríum sem verða
sýndir næsta vetur og kallast
Sunnudagsleikhúsið. Nú svo á
ég eiginkonu og þrjú börn sem
þarf að sinna. Veturinn hefur
verið ansi annasamur en börn-
in þekkja mig enn í sjón því
þau sjá mig alltaf reglulega í
sjónvarpinu. Þannig að ég er
núna að koma út úr skjánum.“
Karl Ágúst Úlfsson segist
ætla að byrja á að safna kröft-
um. Þegar það hafi tekist ætli
hann að taka sig hátíðlega um
stund og setjast við skriftir.
„Ég er með hálfkarað handrit
ofan í skúffu sem mig langar til
að koma á lappirnar. Svo ætla
ég að reyna að eyða sem mest-
Sumar
si ónvarps
„Það getur vel verið að ég taki
að mér fararstjórn í 3-4 vikur
en svo langar mig að eiga frí.
Ég er að skrifa svolítið og það
gefst þá kannski tími til að
sinna því betur.“ Þrátt fyrir að
blaðamaður væli um að fá
meira að vita um þessar skrift-
ir harðneitar Hemmi að segja
meira en „það verður bara að
koma í ljós í fyllingu tímans".
Koma út úr skjánum
Spaugstofumenn eru komnir
í spaugfrí, að minnsta kosti fá
sjónvarpsáhorfendur ekki að
njóta spaugsins en væntan-
Svo fer nú sumarfríið í að
flytja og því fylgir auðvitað
heilmikið stúss og vesen."
Logi er mikill golfáhugamað-
ur og vonast til að geta eytt
einhverjum tíma í að skeiða
um golfvelli og slá kúlur í sum-
ar. Hann kveðst ekki vera
neinn golfmeistari en aftur á
móti finnist sér golf afar
skemmtilegt og það sé fyrir
öllu. Ekki verður þó golfáhugi
Loga áhyggjulaus með öllu því
hann mun lýsa golfmótum fyr-
ir sjónvarpið. „Það er nú bara
skemmtilegt að blanda saman
vinnu og áhugamáli. Mér
finnst reyndar skemmtilegt að
hafa dálítið mikið að gera.“ Frí-
ið hans Loga er kannski ná-
kvæmlega eins og hann vill
sjálfur hafa það!
Logi mun halda uppteknum
hætti og birtast inni í stofu hjá
okkur næsta vetur en ekki
mun hann lengur skína skært í
Dagsljósi heldur snúa til starfa
á fréttastofunni. „Þetta hefur
verið skemmtilegur vetur, en
vissulega er maður dálítið
þreyttur eftir þessa törn. Við
höfum í raun verið undir-
I raun má helst
líkja þessari
vinnu viö vertíö
og nú er henni
lokiö í bili, segir
Svanhildur Kon-
ráösdóttir, rit-
stjóri
verið í því sama. Það er svo
margt annað sem mig langar
til að gera, t.d. kitlar útvarpið
alltaf. Ef ég á að vera sam-
kvæmur sjálfum mér þá finnst
mér það meira spennandi mið-
ill en sjónvarp. í útvarpi er svo
miklu auðveldara að fanga nú-
ið og það heillar mig. Annars
er ég með hausinn stútfullan
af hugmyndum sem mig lang-
ar að koma í framkvæmd. Það
er því gott að vera kominn í frí
svo ég hafi tíma til að velta
mönnuð og því gat
þetta stundum
verið ansi lýjandi,
en fjölbreytt og
skemmtilegt," seg-
ir hinn athafna-
sami Logi.
Vill fanga núið
Hemmi er kom-
inn í frí. Hann seg-
ist jafnvel vera
kominn í langt frí.
Blaðamaður hváir
og spyr titrandi
röddu: „Ertu að
meina að þú ætlir
ekki að halda
áfram með þáttinn
næsta vetur?“ „Ef
satt skal segja þá
efa ég það. Eg er
bogmaður og get
því ekki endalaust
svolítið betur fyr-
ir mér.“ Sjónvarps-
áhorfendur verða ef-
laust ekki ánægðir ef
Hermann heldur því til
streitu að hætta með
þáttinn sinn, en þetta
er frjálst land og hann
verður víst að fá að
ráða þessu sjálfur. En
Hemmi er ekki búinn
að yfirgefa sjónvarps-
miðilinn enn, því hann
situr nú sveittur og
klippir og sníður til
þætti sem hann tók á
liðnu ári í Tælandi og
verða sýndir í sumar-
byrjun hjá sjónvarp-
inu. Þegar vinnu við
þættina lýkur segist
Hemmi helst vera að
hugsa um að slappa af
og hafa það huggulegt
eftir annasaman vetur.
Hemmi Gunn segist í vafa um hvort
hann heldur áfram meö sjónvarps-
þáttinn sinn næsta vetur.
Loga Bergmann þykir gaman að hafa mikið að
gera.
Bornin min
þekkja mig
enn í sjón,
segir Örn
Árnason
fagnandi.