Helgarpósturinn - 30.04.1997, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997
tAtW
á Islandi,
bandarískt kaldastrídsu
IjöldasiáHsmorð á Nike-
Einn af ritstjórum breska
vikuritsins Economist,
Frances Caimcross, var á ís-
landi í byrjun mánaðarins og
þess sjást merki í síðasta tölu-
blaði þar sem annars vegar er
frétt um fiskveiðistjórnunar-
kerfið og hins vegar um ís-
lensku handritin sem Danir
skiluðu íslendingum. í seinni
fréttinni voru orðréttar tilvitn-
anir hafðar eftir Elíasi Snæ-
land Jónssyni, aðstoðarrit-
stjóra DV, og Stefáni Karlssyni
á Árnastofnun, en aðeins í und-
antekningartilfellum er bein
ræða höfð eftir heimildamönn-
um Economist.
Economist tekur Morgun-
ö/aðslínuna í kvótaumræðunni
og vill að gjald komi fyrir kvót-
ann. Tímaritið bendir á að
ókeypis úthlutun á rétti til olíu-
vinnslu, námugraftar eða fisk-
veiða leiði gjarnan til offjár-
festingar. Eins og menn muna
var kvótakerfið upphaflega
stutt þeim rökum að það ætti
að draga úr offjárfestingum.
Hvernig má þetta vera?
Án efa gerði kvótakerfið út-
gerðum kleift að nýta fjárfest-
ingar sínar betur. Á meðan
sókn var ótakmörkuð stóðu
þær útgerðir best að vígi sem
áttu stærstu og öflugustu skip-
in er gátu tekið mestan afla á
sem skemmstum tíma. Nýting
fjárfestinga var ekki sem skyldi
í slíku kapphlaupi. Eftir að
kvóti var settur á var hægt að
skipuleggja sóknina og taka afl-
ann á hagkvæmastan hátt.
Skynsamar útgerðir eins og
Síldarvinnslan í Neskaupstað
fjárfestu fremur í kvóta en í
nýjum fiskiskipum. Framselj-
anlegur kvóti var lykillinn að
hagræðingunni. En hagræðing
í sjávarútvegi skilar ekki ár-
vissum vexti. Eftir að jafnvægi
hefur verið náð á milli sóknar-
getu flotans og afraksturs mið-
anna dregur stórlega úr þeirri
hagræðingu sem kvótakerfið
getur skilað. Þá skapast þau
skilyrði sem Economist nefndi.
Á meðan kvótanum er úthlut-
að ókeypis verður óeðlilega
mikið fjármagn bundið í sjáv-
arútvegi af þeirri einföldu
Páll Vilhjálmsson
ástæðu að arðurinn er mestur
þar.
ísiensku hlutabréfasjóðirnir
sýna svo góða afkomu að
áhugi erlendra fjárfesta fer
vaxandi. Ástæðan? Jú, hluta-
bréfasjóðirnir fjárfesta í út-
gerðarfélögum sem fá ókeypis
hráefni og búa jafnframt við
verndaðar aðstæður; kvóta-
kerfið sér tii þess að aðgangur-
inn að hráefninu er takmarkað-
ur við þær útgerðir sem fyrir
eru. Engin furða þó að hækkun
hlutabréfavísitölunnar sé
meiri á íslandi en víðast hvar
annars staðar á Vesturlönd-
um. Hlutabréfaviðskipti eru
áþekk hér og í siðmenntuðum
löndum en umgengnin við
náttúruauðlindirnar eins og
hjá barbörum.
Áður en Economist er
kvaddur ber að geta þess að
blaðið styður ekki Tony Blair
og Verkamannaflokkinn í
bresku þingkosningunum á
morgun. Frances Cairncross
taldi líklegt þegar hún var
hérna á dögunum að Bill Em-
mott aðalritstjóri, sem fer einn
með ákvörðunina um það
hvaða stjórnmálaflokk blaðið
styður, myndi gefa Blair at-
kvæði sitt en svo fór ekki. Ec-
onomist styður John Major og
íhaldsflokkinn en þó með hálf-
um hug, eins og kemur fram í
leiðaranum. Og miðað við
skoðanakannanir þarf íhalds-
flokkurinn meira en hálfvolgar
stuðningsyfirlýsingar til að
hajda völdum eftir 1. maí.
Á meðan Bretar eru að velja
sér framtíð velta Bandaríkja-
menn fortíðinni fyrir sér, í það
minnsta þeir sem skrifa rit-
dóma í New Republic og Nati-
on. Ný ævisaga Whittakers
Chamber eftir Sam Tannen-
haus fær ólíka dóma í vikurit-
unum tveim.
Chambers var kommúnisti á
fjórða áratugnum en aðalvitni
þingnefndar sem ungur þing-
maður stýrði á fimmta ára-
tugnum gegn Alger Hiss, sem
var ásakaður um njósnir fyrir
Sovétríkin. Ungi þingmaðurinn
var Richard Nixon, sem vakti
þjóðarathygli í hlutverki
kommúnistaveiðara og varð
forseti Bandaríkjanna 1968. Án
Hiss-málsins hefði MacCarthy-
tímabilið í Bandaríkjunum ekki
verið eins langvinnt og þrúg-
andi og raun varð á.
Hiss var dæmdur sekur fyrir
njósnir og Chambers hetja
hægrimanna
skúrkur í augum vinstrimanna,
sem voru sannfærðir um sak-
leysi Hiss allt þar til Berlínar-
múrinn féll og skjöl í ungversk-
um og sovéskum skjalasöfnum
sýndu fram á að yfirgnæfandi
líkur voru fyrir sekt hans.
New Republic er fyrrvernadi
vinstrarit en varð fremur
hægrisinnað í forsetatíð Ron-
alds Reagan og finnst fátt
skemmtilegra en að vera á
öndverðum meiði við Nation,
sem gamla vinstrielítan á Aust-
urströndinni heldur úti. Tony
Judt skrifar ritdóm um bók
Tannenbaums í New Republic
og nuddar Nation upp úr því
að trúa enn á sakleysi Hiss.
Judt er sannfærandi þegar
hann rekur þau málsatvik sem
sakfella Hiss. Samlíkingin sem
hann dregur á milli Chambers
og Hiss er lítið meistarastykki.
Ytri ásýnd gaf til kynna að þeir
væru gagnólíkir. Chambers var
feitur og illa hirtur, gekk í
krumpuðum fötum og tann-
garðurinn var eins og brennt
indjánaþorp, á meðan Hiss var
holdi klædd ímynd hins hóg-
væra og fágaða súperembætt-
ismanns.
í Nation ritdæmir Elinor
Langer ævisögu Chambers.
Hún gerir mikið úr vafanum
sem enn leikur um sekt Hiss og
ósannsögli og ótrúverðugleika
Chambers er til skila haldið.
Langer, sem skrifar á undan
Judt í New Republic, virðist þó
sammála honum um eitt. Sam-
spilið á milli Chambers og Hiss
geymir ráðgátuna um tildrög
þess að þeir hölluðust að
kommúnisma en fóru svo hvor
sína leiðina án þess að slíta
böndin sem að lokum urðu
lykkja um háls beggja.
Chambers og Hiss dóu í
óeiginlegum skilningi á fimmta
áratugnum þótt þeir lifðu leng-
ur, Chambers lést smáður og
vinafár árið 1961 en Hiss
haustið li..—.-*...- -
1996 í hárri | JjOVt* AlTlCTlCaU
elli. I nwCw*"1-*
Sjálfs- l
morð I ,
bandaríska 1 anMk
safnaðarins I
„Himnahlið- I
ið“ var bók- 1
staflegt eins l :
og kemur I H
fram í umfjöll- 1
un U.S. News I
and World Re- I P
port. Undir l.ilil -
forystu safn- L
aðarleiðtogans Marshalls
Applewhite sviptu 39 manns
sig lífi með blöndu af eiturlyfj-
um, alkóhóli og köfnun. Trúar-
setningar Applewhites voru
hrærigrautur kristni, dul-
hyggju, nýaldarspeki og geim-
verupælinga. í tuttugu ár hafði
hann byggt upp lítinn söfnuð
Economist tekur Morg-
unblaðslínuna í skrifum
um kvótakerfið...
New Republic og Nati-
on takast á um Hiss-
málið...
og U.S. News segir frá fjöldasjátfsmorði safnaðarins Himnahliðið.
sem fylgdi honum á enda. I
hópnum var tiltölulega venju-
legt fólk, til dæmis Yvonne
McCurdy-HilI, 39 ára fimm
barna móðir, og Jacqueline
Leonard, 72 ára amma frá Io-
wa. Eftirlifendur velta fyrir sér
skýringum á því hvers vegna
skynsamt fólk gerir óskynsam-
lega hluti.
Lítið atriði í frásögn U.S.
News situr eftir. Safnaðarfólkið
sem stytti sér aldur var allt
skóað splunkunýjum Nike-
íþróttaskóm og með fullpakk-
aða ferðatösku.
BALDURSB
Symposium senda 19. maí frá sér nýtt smá-
skífulag til að fylgja eftir topp 30-hittinu
„Farewell to twilight". Það verður þriðji singull
bandsins og heitir „The answer why I hate
you“. Infectious Records gefa út. Vinna við
frumburðarplötuna hófst nýlega, en hún kemur
þó ekki út fyrr en í fyrsta lagi næsta vor. Bassa-
leikarinn Wotjek semur lög með Tanitu Tikar-
am fyrir næstu plötu hennar, hljómsveitin er
núna í Bandaríkjunum á tónleikaför. Fyrsta út-
gáfan þar verður EP-skífa hjá Red Ant-útgáf-
unni, innihald m.a. „Drink the sunshine“, „Dis-
appear“ og „Xanthein". Á tímabilinu 20. maí-11.
júní kemur sveitin fram á tuttugu tónleikum,
t.d. í Leicester 20., Reading 24., Newcastle 27.,
Leeds 30., Nottingham 2„ Norwich 5., Liverpool
10. og Birmingham 11.
Stúdíó 2 hjá Abbey Road í London ómaði ný-
lega allt af strengjum, frönskum hornum og
Echo & the Bunnymen. Það er á leiðinni
„comeback“-efni frá þessum „íslandsvinum"
sem gerðu meira en að leika hér á tónleikum,
því þeir notuðu Gullfoss í klakaböndum til
myndskreytingar á einni plötunni sinni. Það er
talað um nýja stóra breiðskífu í haust frá Ian
McCulloch og félögum og óstaðfest loforð um
smáskífu í sumar.
Fluke fer sína fyrstu tónleikaferð um langt
skeið í næsta mánuði og nýtt smáskífulag,
„Absurd“, kemur út hjá Virgin 5. maí. Breiðskíf-
an „Risotto“ er líkleg út í lok júní. Jon Fugler
segir innihaldið af ýmsum toga, singullinn sé
t.d. afsprengi harðasta tónleikalags sem þeir
flytji. Ónnur lög fljóti frekar og meira sé instru-
mental en á síðustu tveimur plötum. Flest lag-
anna hafi enn sem komið er engan titil, þeir
gætu allt eins nefnt þau 1-12. Vinnuheiti al-
búmsins hafa verið nokkur, t.d. „Amp“, „Set
mons“ og „Image". Hluti túrsins: Norwich 21.
ars vegar lag af „Barafundle“ og hins vegar
„Young girls“, sem ekki verður á breiðskífunni.
U2 eru að hugleiða útgáfu á harðri hljóð-
blöndun af „Mofo“ af „Pop“-plötunni. Það
verður í samstarfi við Underworld. Bono og
Karl Hyde mæltu sér mót fyrr í þessum mánuði
og hafa hafið verkefnið í hljóðveri í Dublin. Lag-
ið verður gefið út undir U2/Underworld. Um er
að ræða næstum nýtt lag í endurvinnslunni. U2
hefur nú selt 1,5 milljónir miða á tónleika í N-
Ameríku, heildartekjur um 70 milljónir punda.
3Colours Red sendu frá sér smáskífulagið
„Sixty mile smile“ í febrúar hjá Creation. í
kaupbæti fylgdu þrjú lög tekin upp á tónleikum,
„Aniseed“, „This is my Hollywood" og „Nerve
gas“. Söngvarinn Pete Vuckovic býr í London.
Ábreiðulagið sem hann langar mest til að
spreyta sig á er „Cinnamon girl“ eftir Neil
Young. Fyrstu plöturnar sem hann eignaðist
voru tvö fyrstu Police-albúmin, en fyrstu tón-
leikarnir sem hann
sótti voru með For-
eigner árið 1984 (í
fylgd föður síns,
sem var mikill aðdá-
andi). Nýr singull,
„Pure“, af frumburð-
aralbúmi (útg. 14.4.)
3 Colours Red kom í
verslanir sl. mánu-
dag, 28. apríl.
Mansun gefa út
nýja EP-plötu
hjá Parlaphone 28.
apríl. Aðallagið er
„Taxloss" af nýlegri
toppplötu þeirra,
„Attack of the grey
maí, Sheffield 23., Man-
chester 26., Liverpool 28.,
Newcastle 31., Bristol 2. júní og London 6.
RZA úr Wu-tan Clan hefur á eigin vegum gert
plötusamning við Gee Street-útgáfuna. Hann
var áður á samningi hjá þeim sem hluti af
Grave-diggaz árið 1993. RZA mun gera sól-
óplötu áður en árið er liðið, núna er hann hins
vegar að ljúka við næstu breiðskífu Grafaranna,
sem væntanleg er í júní.
Orb, Sonic Youth, Brian Eno, Secret Knowl-
edge og A Guy called Gerald eru á meðal
þeirra sem vinna að útgáfu „Sacrilege - The Can
Remix Album“. Hér er á ferð tvöföld geislaplata
sem Mute/Spoon gefa út 5. maí.
Innihaldið er eins og nafnið vísar til
hljóðblandaðar útgáfur af þekktustu
lögum þýsku hljómsveitarinnar
Can, sem starfaði á sjötta og sjö-
unda áratugnum.
Supematurals gáfu út hjá
Food/Parlaphone 14. apríl eftir-
fara singulsins „Day before yester-
day’s“. Nafn nýja lagsins er „Smile".
Bakhliðarlög eru þrjú en frumburð-
urinn kemur út snemma í maí, „It
doesn’t matter any more“. Bandið
hefur verið forréttur eða upphitun-
arsveit fyrir grúppur eins og Gene
og Boo Radleys, en eru nú aðalrétt-
urinn á tónleikaferð sem hófst 5.
apríl og stendur til 31. maí. Yfir tuttugu borgir
eru sóttar heim, t.d. Leicester 10. maí, Liver-
pool 15., Bristol 19., London 23. og Leeds 28.
Ice Cube sendi nýlega frá sér nýja smáskífu,
„The world is mine“, Jive gefur út. Þetta Iag er
notað í kvikmyndinni „Dangerous Ground”. Ice
leikur sömuleiðis í þessari kvikmynd og mót-
leikari hans er hin bráðmyndarlega Elizabeth
Hurley.
Subcircus fylgja eftir velheppnuðum tónleik-
um í Skotlandi með skipulagðri sextán borga
ferð. Næsti viðkomustaður er Leeds 2. maí,
Newcastle 4., Liverpool 7., Stoke 8., Bristol 12.
og London 15. Önnur smáskífa bandsins, „You
love you“, kom út 14. apríl en átti reyndar upp-
haflega að vera á ferðinni í mars. Þriðji singull-
inn kemur í lok maí.
Gorky’s Zygotic Mynci virðast hafa uppgötv-
að nýtt yfirnáttúrulegt fyrirbæri. John, gít-
arleikari bandsins, var á rúntinum og varð
skyndilega var við
smápeningaregn af
himnum ofan. Söngv-
arinn, Euros Childs,
sagði að eina skýring-
in sem þeim hefði
dottið í hug væri að
myntin hefði komið
úr flugvél. Joe
McNally, ritstjóri
Forteau times sem
fjallar um yfirskilvit-
lega hluti, þekkir eng-
in fyrri dæmi um
smápeningaregn. Aft-
ur á móti kann hann
ófá dæmi um fiska-,
bankareikninga-,
pítsu-, perlu- og froskaregn. Hljómsveitin Gor-
ky’s Zygotic Mynci hefur samið lag um atvikið,
„Cursed, coined and crucified". Það er á nýút-
kominni plötu sveitarinnar, „Barafundle”, sem
fær einkunnina 8 hjá NME. Nýjasta smáskífan,
„Diamond Dew“, kom út hjá Fontana í mars,
næsti singull verður síðan tvöföld A-hlið. Ann-
.'é