Helgarpósturinn - 30.04.1997, Síða 15

Helgarpósturinn - 30.04.1997, Síða 15
IVUÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997 15 stæðinga sinna undir sig og snúa þeim síðan til föðurhúsanna. Þetta hefur ennfremur verið kall- að „langsótt og langdregin“ útgáfa af „skjaldbak- an vinnur hérann í kapphlaupi", sem aftur á móti er vinsæl tilvitnun meðal einræðisherra ríkja sem vilja telja þegnum sínum trú um að þjóðskipulag sé að þróast í átt að lýðræði. Þjóð- sagan af héranum og skjaldbökunni mun þó ekki komin frá júðskum karlrembusvínum, heldur kynvilltum erfingja keisaradæmis sem las yfir sig af formálanum að 1001 nótt. En aftur að poppstjörnunni! Það var ekki fyrr en ég tók til við að snæða hamborgara og franskar á Svörtu pönnunni (við Tryggva- götu/við hliðina á Bæjarins bestu) að niður í huga mér laust pælingu sem síðan varð kveikjan að þessum pistli. Það var svo að hamborgarinn var óvenjugóður. Eiginlega sérlegt yndi þeirra sem hann snæddu. (Ég er með mjög lítinn maga.) Það var tíðrætt hvað hamborgararnir voru góðir. Og sem umræðan um gæði ham- borgaranna tók að þreytast fóru menn að velta fyrir sér hver væri ástæðan fyrir þessari um- skiptingu. Það kom fljótlega upp úr kafinu að það hlyti að hafa eitthvað að gera með heim- sókn poppstjörnunnar hingað til lands. (Það má geta þess að umrædd poppstjarna býr úti í hin- um stóra heimi og kemur sjaldan til heimalands síns — þá oftast þegar hún er mjög hátt uppi og á það til að fleygja sér niður — íklædd fallhlíf). Pissumystískir aðilar þessa hamborgaraáts tengdu; 1) aukin gæði hamborgaranna 2) veru poppstjörnunnar hér á landi, 3) aukinn hagvöxt (eins og síðar kom fram í stefnuræðu forsætis- ráðherra íslands) 4) og hallalaust frumvarp um fjárlagahalla við yfirborðslegheit íslendinga. Sumsé: Kenning þess eðlis að íslendingar hagi sér vel og setji upp sléttfellisgrímur — alla daga sem mektarpersónur sækja land þeirra heim. Sama kenning skýrir það að íslendingar skuli allt í einu taka upp á því að kjósa sér kommúnískan forseta, akkúrat þegar útsendarar Kínastjórnar eru hér á landi að vísítera heilsugæslustöðvar. Annar hélt því fram að ástæðan væri framagirni og annað ekki. Kenning um að allir fslendingar eigi sér draum um að konfrontera poppstjörn- una og við slíkt tækifæri heilla hana upp úr skónum og komast í efstu tröppu hennar vina- stiga. Með þeim afleiðingum að fá mynd af sér daglega í blöðunum auk áhuga á heimslegum basis um hvað leynist yst og innst með viðkom- andi lukkunnar pamfíl. Fyrrnefndur Annar bætti því við að ekki væri endilega um extróvertískan hégóma að ræða, heldur einfaldlega peningaleg- an og þá oft extróvertískan. Hamborgarastaður sem sér á eftir poppstjörnunni mettri og glaðri fær ágætis búst á samkeppnislegum grundvelli og gæti jafnvel auglýst þann kostarétt sem við- komandi hún hefði valið sér og fengið. Við þetta má svo bæta að heimildamenn hafa tjáð mér að veitingamaðurinn Hlölli hafi á umræddum föstu- degi afgreitt sína hlöllabáta með tvöföldum skammti af osti. Sumsé helmingi meiri osti en aðra daga. Það var þá sem ég gerði mér grein fyrir því að úti skein sól, blindir sáu, hundar nefndra blindra eltu ekki ketti — og kettir migu hvorki utan í ljósastaura né buxnaskálmar blindra. Strætisvagnar fóru sínar áætluðu leiðir á áætl- uðum tíma og stundum jafnvel réttum. í vagnin- um stóðu gamlar konur upp fyrir nba-ensku- mælandi ungstrákum í pokabuxum, óléttar kon- ur bókstaflega svifu um í loftinu og engum var ami af múnískum trúboðum sem ráku áróður fyrir þriggja ára helgarnámskeiðum í dýflissu safnaðarins í Vestur-Kóreu. Tilvist útvarps- stöðvarinnar Bylgjunnar sem síbyljandi hátal- arafóðurs var með öllu hljóðlaus. Við þetta má síðan bæta að ritstjórar Tímarits Máls og menn- leikur? vel í þessari sýningu. Eins er um flestar aðrar lausnir Guðjóns Pedersen leikstjóra. Þær ganga vel upp og drífa ieikinn áfram, nema hvað eftir- málinn mætti koma þéttar á sýninguna þótt áhorfendur ráði þar í raun miklu. Lýsing Guð- mundar Ægis er fagmannlega unnin og heldur utan um sýninguna bæði í tíma og rúmi en sviðs- myndin finnst mér stela um of frá málverkinu, sem að ósekju hefði mátt vera enn stærra. Þessi hvíti flötur málverksins er það mikilvægur í miðju verksins og það er í raun út frá honum — eða kannski er það hann sjálfur sem varpar til okkar þeirri áleitnu spurningu sem hin síðari ár hefur verið viðfangsefni margra listfræðinga; hver er í raun höfundur listaverksins? Er það sá sem málar, skrifar eða semur eða er það sá sem horfir, les eða hlustar? Fyrir hverjum er þessi hvíti flötur sannleikurinn og samtímis, af hverju er hann í annarra augum aðeins ómerkilegt prump? Hvar verður listin til? í huga okkar sjálfra, hvers og eins, eða hægt og bítandi í sam- eiginlegri hugmynd okkar. í viðteknum venjum ákvörðuðum af þeim sem vita betur? Á listin kannski heima á hárfínum mörkum regiu og óreiðu? „Það var þá sem klónid leit við og ég sá að svo var ekki. Sumsé: Klónið var ekkert klón. Þetta var poppstjarnan sjálf! Ég varð máttlaus í hnján- um. Ef framhjá tveggja mínutna blindu og hjartastöðvun er litið kenndi ég annars einskis meins. Fyrir sýndarminni mínu liðu ótal fyrirætl- anir um að vinna hjarta og Co-Production-stimpil stjörnunnar á umslag ætlaðrar geislaplötu minn- ar — sem og staðföst fullvissa um að ég þyrfti að skora ækídó-buið fylgifólk hennar á hólm ef ég ætlaði eitthvað við hjarta og Co-Production- stimpil stjörnunnar að eiga." ingar og Bjarts og Frú Emilíu fengu þrálátt kvef og enn þrálátari hósta. Þá rann upp fyrir mér ljós. Lundarfar landans fer eftir segulpólslegri staðsetningu poppstjörn- unnar. Framtíð þjóðarinnar ræðst af því hversu hraðlega hrundið verður í lög frumvarpi um skatthelgi þeirra sem græða peninga. Ihalds- menn hafa haft rétt fyrir sér frá upphafi. Það á ekki að bíta í hendur ríkra ættingja, hvað þá að svæfa kött af persnesku kyni. Svo ekki sé talað um að gera það að einstökum viðburði að mað- ur fái hlöllabát með tvöföldum skammti af osti. Hvursu langt er þangað til Ingibjörg Pálmadótt- ir gerir sér grein fyrir því að það sem hrjáir sjúk- linga hennar er ekkert annað en fjarvera popp- stjörnunnar? Hvursu langt er þar til Davíð Oddsson gerir sér grein fyrir því að hann er yfir- máta hávaxinn karlmaður, standi hann við hlið poppstjörnunnar? Hvursu langt er þangað til Páll Pétursson kemst að því að landflótti íslend- inga er bara fylgikvilli landfræðilegrar fáfræði? BRÆÐUR; DENMARK STREET ER EKKI í KAUP- MANNAHÖFN! og nyjurigar Póstur og sími hefur einnig stóraukið þjónustu sína. Þar má nefna Smáskilaboð, SMS, en það er ný þjónusta sem gerir GSM notendum kleift að senda smáskilaboð í aðra GSM síma. Hver sending kostar kr. 20 og ársfjórðungslega er greitt kr. 470 fyrir þjónustuna; þá býðst einnig Símtai bíður og Hópsímtöl sem eru án fasts afnotagjalds. Gagnaflutningur og Faxflutningur er nýjung í GSM kerfinu þar sem farsíminn er notaður sem n.k. mótald fyrir tölvu, til hvers konar tölvutenginga eða til að taka við og senda fax. NMT-notendur geta með NMT-dúett verið með tvo síma á sama innhringinúmerinu*. Til að kynna sér þessar og fleiri nýjungar betur er fólki bent á að hringja í 800 6330, sem er gjaldfrítt símanúmer Farsímadeildar Pósts og síma. • Sérstöku símanúmeri er úthlutað 1 hhbhm fyrirDúettsímann. I M|l|| W*%*M*ÆÍ Stórfelld Lækkua á stofagjöld farsíma ... 57% LÆKKUN á stofngjaldi að NMT-kerfinu, nú kr. 4. 980 - áðurkr. 11.691 43% LÆKKUN á stofngjaldi að GSM-kerfinu nú kr. 2.490 - áður kr. 4.358 6330

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.