Helgarpósturinn - 30.04.1997, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL1997
23
Ekki
missa a
••••••
••••••
i
i
i
(
(
(
ENGINN ADGANGSEYRIR -21 ÁRS ALDIIRSTAKMARK
landi. Frá Austurrlki koma Be-
ate Ratmayr og Franz nokkur
Suezz.
Tildrög sýningarinnar eru þau
aö GR Lúðvíksson var viö nám I
Hollandi á árunum 1992-'95 og
kynntist þá ýmsum evrópskum
myndlistarmönnum. Þá kviknaöi
hugmyndin aö samsýningu uppi
á íslandi og nú hefur hugmynd-
inni verið hrundiö í framkvæmd.
Mörg óvenjuleg verk verða á
sýningunni. Til að mynda veröur
dekkað borö, svo glæsilegt að
hver einasta kóngafjölskylda í
gjörvöllum heiminum myndi
setjast fagnandi niður til snæð-
ings. Sérvöldum hópi verður
boðið í veislu til að snæða við
þetta fína borð. Veislugestir
verða hins ekki meðlimir neinn-
ar kóngafjölskyldu - nema þá
fjarskyldir. Meiningin er aö gefa
svangara fólki, útigangsmönn-
um, dýrindis máltíð viö fagur-
skreytt borðiö.
Norsk list
í Listasafninu í Kópavogi verður
opnuð athyglisverð sýning á
laugardaginn. Þar verða sýnd
málverk og teikningar eftir
þekkta norska listakonu, Önnu
Evu Bergmann (1909-1987).
Hún haslaði sér völl á alþjóða-
vettvangi á sjötta áratugnum
með málverkum sem höfðu
abstrakt yfirbragð þótt kveikjan
væri í raun norskt landslag.
Anna Eva bjó og starfaöi víða
um Evrópu með eiginmanni sín-
um, hinum nafntogaða þýska
málara Hans Hartung. Þar hélt
hún margar merkar sýningar og
var listrænt sjálfstæði hennar
óumdeilt, enda höfðu verk
hennar mikla sérstöðu á upp-
gangstímum abstraktlistarinnar.
Sýningin verður opnuð klukkan
16.00 laugardaginn 3. maí og
lýkur 8. júní. Opið alla daga
nema mánudaga frá 12.00-
18.00.
Jamaíkastemmn-
ing á Gauknum
Veitingastaðurinn Gaukur á
Stöng hefur staðið sig með ein-
stakri prýði hvað viðvíkur lifandi
tónlistarflutningi og þessi vika
er svo sannarlega engin undan-
tekning. í kvöld, miðvikudags-
kvöld, spila hinir bráðhressu
Irsk-vestmanneysku piltarí
hljómsveitinni Papar af alkunnri
spilagleði. Á fimmtudaginn verð-
ur mikil Jamaíkastemmning
með hljómsveitinni Reggae on
Ice. Það má teljast næsta ör-
uggt að þeir nái upp góðri, suö-
rænni stemmningu og fái fólk
til dansa uppi á borðum. Að
auki veröur víst hægt að kaupa
Ijúffengan bjór frá Jamaíka á
spottprís.
Á föstudag og laugardag
skemmtir hljómsveitin Skíta-
mórall, sem svo sannarlega
ber ekki nafn með rentu þvl
þetta er með eindæmum
glaðlegt band. Þeir piltar
eru að taka upp nýja plötu
og hyggjast taka upp nokk-
ur „live“ lög á Gauknum. Á
sunnudags- og mánudags-
kvöld spilar síðan hin kraft-
mikla hljómsveit Dúndur-
fréttir lög fyrir Pink Floyd-
og Led Zeppe/í'n-aðdáend-
ur.
Forfrömuð
hljómsveit
spilar
Akureyringar ættu aö drifa
sig I Sjallann á laugardags-
kvöld því þá spilar þar
hljómsveitin Todmobile.
Þetta verður einn af síð-
ustu dansleikjum hljóm-
sveitarinnar úti á landi I
bili því sveitarmeölimir
hafa forframast mjög og
taka brátt til starfa I ís-
lensku óperunni við sýn-
inguna Evítu. Ballið I Sjall
anum hefst á miönætti.
Undir hamrin-
um
Byggðasafn Hafnarfjaröar
opnar 1. maí nýjan sýning-
arsal á Strandgötu 50.
Fyrsta sýningin sem safn-
ið býður upp á heitir „Und-
ir hamrinum. Af lífi hafn-
firskrar alþýðu" og er til
heiðurs gengnum kynslóö-
um Hafnfiröinga sem ekki
bjuggu við jafnglæstan
kost og þeir sem fjöröinn
byggja I dag. Margar
skemmtilegar myndir sem
ekki hafa birst áður eru á
sýningunni. Sýningin verö-
ur opin alla daga frá 13-
17 og stendur fram á
haust.
Karlar krunka
Þetta er yfirskrift ráðstefnu um
málefni karla sem haldin verður
I Borgarleikhúsinu á föstudag-
inn, 2. mal. Það er Sólstöðu-
hópurinn ásamt karlanefnd jafn-
réttisráðs sem stendur að ráð-
stefnunni. Ráðstefnan hefst
klukkan níu og stendur allan
daginn. Fjölmargir forvitnilegir
fyrirlestrar verða haldnir, t.d.
ætlar Ámi Sigfússon að færa
rök fyrir því hvers vegna fýrir-
tækin ættu að styðja við fööur-
hlutverkið, Hafsteinn Karlsson
veltir fyrir sér hvort skólinn sé
fyrir stráka, Karl Steinar Vals-
son afbrotafræðingur fjallar um
ofbeldishneigð karla, Bragi
Skúlason um karla og kynlíf,
Svavar Gestsson talar um
hvernig nýju aldamótamennirnir
verði og Steingrímur Her-
mannsson flytur fyrirlestur sem
kallast „framtlðarsýn". Þessi
upptalning er einungis brota-
brot af umræðuefnum ráðstefn-
unnar og það má Ijóst vera að
þér er athyglisvert krunk á ferð.
í bland við fyrirlestra flytja Egill
Ólafsson og tríó Bjöms Thor-
oddsen tónlist. Seinni hluta
ráðstefnunnar verða slðan opn-
ar umræður. Spennandi verður'
að sjá hvort karlar bregöast
eins vel við og konur á konu-
daginn forðum daga og taki sér
frí frá vinnu til að mæta. At-
vinnurekendur hljóta að sýna
starfsmönnum velvilja og hvetja
þá til að mæta! Rétt er að geta
þess að konur eru einnig vel-
komnar á ráðstefnuna.
Ódauðleg fegurð
Er heiti á Ijósmyndaverki eftir
Önnu Líndal og lýsir verkið við-
urkenndri aðferð til að ná fram
„náttúrulegri" fegurð á vestræn-
an mælikvarða! „Fegurðar-
ímyndin snýst kannski ekkert
um konur heldur sýnir hún okk-
ur vestrænt gildismat sem er
knúið áfram af gróðavon hins
síðkapítallska neyslusamfélags
fegrunariðnaðarins," segir
Anna. Hún segir sýninguna ekki
heföbundna Ijósmyndasýningu
heldur noti hún Ijósmyndina
sem miðil. Sjálf er hún módelið
og þvl megi kannski líkja þessu
við gjörning. Anna pantaði sér
tíma hjá ótal snyrtifræðingum
og fór I gegnum hið hefðbundna
fegrunarferli vestrænnar konu.
„Það var með ólíkindum hvað
það var erfitt að fá tíma á stofu
en það tókst. Myndirnar sýna
síðan ferlið frá a-ö eða allt frá
því þegar ég er I húðhreinsun
og þar til ég er orðin uppstríluö
og „vestrænt falleg" I ballkjól."
Anna stundaði nám I Myndlista-
og handlðaskóla ísiands og
lauk framhaldsnámi frá Slade
School of Rne Art I London
1990. Þetta er sjöunda einka-
sýning Önnu. Sýningin, sem ber
heitið „Hluti úr llfi", veröur opn-
uð fimmtudaginn 1. mal I Gall-
erí Ingólfsstræti 8.
ekki2.she
Boðið til veislu
Nýlistasafnið opnar nýstár-
lega sýningu á laugardaginn,
3. maí. Sýningunni hefur ver-
ið valið útlenskt nafn, „Perc-
eption". Raunar eru lista-
mennirnir flestir erlendir og
eftir þvl sem aðstandendur
sýningarinnar fullyröa eru
þetta vel þekktir listamenn
og því ætti að vera fengur að
þessari sýningu. Einn lista-
mannanna er þó íslenskur
en hefur tekið upp á að hafa
eftirnafnið sem aðalnafn
sitt. Þetta er GR Lúðvíks-
son. Hinir listamennirnir
heita Arie Berkulin, Theo
Kuypers, Wiilem Jakobs,
Kees Verschuren og Ellen
Jezz og eru þau frá Hol-
BJÓRKIA
Hverjir
HELD MIG MEST A HEIMASLOÐUM
„Ég er nú faktískt ekki búinn að plana
neitt sérstakt I sumarfríinu mínu,“ segir
Friðrik Ólafsson, stórmeistari í skák. „Eg
er nú bara búinn að leggja á ráðin með
smáinnanlandsferðir, en þær eru nú ekki
ígildi sumarfrís. Ég fer eina til Vestfjarða og
önnur er I Eyjafjörð, báðar frekar stuttar
ferðir. Þær fer ég I júní og ágúst. Ég hef ekk-
ert planlagt að fara utan I frí og býst við að
ég haldi mig mest á heimaslóðum, enda er
það ekkert síðra.“
HRINGLA I GARÐINUM
„Það er nú mest lítið,“ segir Ágúst Atla-
son Ríómaður. „Ætli maður fari ekki bara
upp í bústað. Annars skiptir maður sumar-
fríinu I einhverja hluta og suma notar mað-
ur til að hringla hér I kring, jafnvel I garðin-
um ef nennan leyfir."
i/m
FORUM VENJULEGA UTAN
„Það er ekki
ákveðið enn hvert
ég fer,“ segir
Svanhildur Jakobsdóttir söngkona.
„Annars á ég hellingssumarfrí inni, einn
og hálfan mánuð eða svo. Venjulega för-
um við eitthvað út og trúlega gerum við
það núna einnig.“
Uppáhaldsstaðurinn erlendis?
„Þeir eru nokkuð margir. Okkur finnst
bara spennandi að koma á sem flesta
staði og prófa sem flest. Ég býst nú við
því að fara troðnar slóðir I þetta sinn.
Ætli við förum ekki til Bandaríkjanna."
GENG Á LÓNSÖRÆFI
„Ég tek mjög lítið frí, því það er mikið að
gera,“ segir Finnur Ingólfsson iðnaðar- og
viðskiptaráðherra. „Það sem ég mun gera I
fríinu er að ég fer I gönguferð á Lónsöræfin
og síðan mun ég ferðast eitthvað innan-
lands.“
Ferðu ekkert utan?
„Við höfum gert það fjölskyldan, en ég
ætla ekki að gera það þetta árið. Maður fær
nóg af þessum utanlandsferðum I vinn-
unni.“
T
og list
Hin
gullfallega, vinsæla
íslensk-indverska
prinsessa Leoncie,
nýkomin frá
Kanada með
ný sjóðheit
lög og frábært
", er reiðubúin
að skemmta um allt
ís/and, ífélagsheimilum,
skemmtistöðum og
klúbbum.
Veljum íslenskt!
Hafið samband við
Leoncie,
sími 554 2878
Gleðilegt sumar!