Alþýðublaðið - 22.03.1972, Page 9
SKURINN VCRI SÆTUR
EN MECINÁHERZLtN ER
SAMT LðtU Á MÍÍNCHEN
Kemst Island i lokakeppni
Olympiuleikanna i Munchen?
betta er spurning númer eitt sem
islenzkir iþróttaunnendur velta
fyrir sér þessa dagana. Og spurn-
ing númer tvö er sú, hvort íslend-
ingar vinni undankeppnina á
Spáni. Það er ekki fjarlægur
draumur, en ú* þvi fæst skorið i
kvöld, þegar islenzka liðið mætir
landsliði Búlgariu. Leikurinn
hefst klukkan 20 að islenzkum
tima, i San Sebastian á Spáni.
A undan leik tslendinga og
Búlgara i kvöld, mætast Noregur
og Austurriki. Ef Noregur vinnur
sinn leik, sem telja má öruggt, og
okkar menn sigra Búlgariu,
verða báðar þjóðirnar efstar og
jafnar með 5 stig. Markahlutfall
ræður hvort liöið verður sigur-
vegari i milliriðlinum, en það lið
sem sigrar, leikur um efsta sæti i
undankeppninni við sigurveg-
arana úr hinum riðlinum, mjög
liklega Rússa.
Markahlutfall tslendinga fyrir
leikina i kvöld er 39:33, en marka-
hlutfall Norðmanna er 31:25. Eins
og sjá má eru hlutföllin mjög jöfn,
og ef okkar liði gengur vel i kvöld,
en Norðmönnum illa, eigum við
stóra möguleika á þvi að komast i
baráttuna um efsta sætið, en
úslitaleikurinn fer fram i Madrid
á Spáni n.k. laugardag.
En að sjálfsögðu verður ekki
lögð á það megináherzla að kom-
ast i úrslitin, heldur að verða i
einu af 4 efstu sætunum, en þau
Ryggja sæti i lokakeppninni i
Munchen i sumar. Tap fyrir
Búlgariu i kvöld þýddi aftur á
móti að við yrðum i þriðja sæti i
riðlinum, og fengjum leik um 5
sætið i Munchen, að öllum likind-
um gegn Spáni. Það yrði erfið
raun.
Norðmenn leggja einnig á það
megináherzlu að komast til
Framhald á bls. 2
að fá 12 rétta um næstu helgi,
getur þvi vænst þess, að fá
drjúgan skilding i aðra hönd.
Þá hef ég þessi orð ekki fleiri
að sinni og sný mér beint að
spánni:
I. CHELSEA-WEST HAM 1
Það hefur oft verið mjótt á
munum á leikjum þessara ná-
granna liða á undanförnum ár-
um á Stamford Bridge, velli
Chelsea. Nú er Chelsea i 10. sæti
með 34 stig, en West Ham i 12.
sæti með 29 stig. Mér finnst all-
ar likur vera til þess, að Chelsea
vinni þennan leik, enda hefur
Hdan
West Ham náð slökum árangri á
útivelli, aðeins unnið 2 leiki og
gert 4 jafntefli. Spá min er þvi
heimasigur.
2. EVERTON-WOLVES 2
Úlfarnir unnu Everton á
Goodison Park i fyrra, og nú eru
þeir mun liklegri til sigurs.
Úlfarnir eru nú i 5ta sæti með 40
stig, en Everton er aðeins i 15.
sæti með 28 stig og þokkalegan
árangur á heimavelli. Og það er
meö tilliti til heimavallarins,
sem gæti hugsast að Everton
næði öðru stiginu, þótt ég spái
hinsvegar útisigri að þessi sinni.
3. LEEDS-ARSENAL 1
Þetta verður án efa sá leikur-
inn á þessum seöli, sem hvað
6. NEWCASTLE-MAN. CITY X
Þetta er einn erfiðasti leikur-
inn á þessum seðli og breytir
þar engu um þótt Man. City
tróni i efsta sæti i deildinni um
þessar mundir og Newcastle sé i
11. sæti og hafi tapað á útivelli 0-
5 fyrir Liverpool um s.l. helgi.
Man. City hefur ekki sótt mörg
stig á St. James Park á undan-
förnum árum, enda er New-
castle gott heimalið. Jafntefli
finnst mér liklegustu úrslitin að
þessu sinni.
7. NOTT. FOR.-COVENTRY 1
Nott. For., sem nú er liklega
búið að missa alla von um að
halda sæti sinu i 1. deild mætir
Coventry á City Ground. Þetta
ereinn af mörgum erfiðum leik-
jum á þessu seðli, þvi Coventry
hefur aðeins unnið einn leik á
útivelli i vetur og gert 5 jafn-
tefli. Væri ekki bezt að gripa til
tenings i sambandi við þennan
leik - eða taka áhættuna og spá
sömu úrslitum og i fyrra -
heimasigri?
8. SOUTHAMTON-
LIVERPOOL X
Enn einn erfiður leikur.
Southamton hefur sýnt mjög
misjafna leiki i vetur og fengið á
sig flest mörk allra liða i deild-
inni. Enginn efast um, að
Liverpool, er með beztu liðum
Alan Clarke Leeds á
þarna skalla í stöng í
leiknum viö Tottenham
um síðustu helgi.
deildarinnar, en nær oft slökum
árangri á útivelli og þeim hefur
ekki gengið vel gegn
Southamton á The Dell á undan-
förnum árum. Með þau sannindi
i huga set ég X við þennan leik.
9. STOKE-DERBY X
Þá fáum við rétt einn leikinn,
þar sem úrslit eru torráðin i
meira lagi. Stoke hefur unnið
Derby tvö s.l. ár á Victoria
Ground með 1-0 og er þvi spurn-
ingin hvað gerist nú? Hér eru
allir möguleikar fyrir hendi og
allir jafn liklegir, en þegar svo
er vill maður freistast til að spá
jafntefli og það er einmitt það,
sem ég geri að þessu sinni.
10. TOTTENH AM-SHEFF.
ÚTD. 1
Ég þarf ekki að taka það
fram, að hér er enn einn snúinn
leikur viðureignar. Tottenham
tapaði siðasta deildarleik á
vitaspyrnu á siðustu min. leiks-
ins og tapaði aftur i Bikarnum
um sl. helgi. Sheff.Utd. fer án
efa að ná sér upp þegar vellirnir
Framhald af bls. 2.
LEIKUR DAGSINS
VERUUR ÁN EFA
LEEDS-ARSENAL
Liðin i 1. deild hafa leikið
nokkuð mismarga leiki og þvi
ekki alveg hægt að átta sig á
stöðu þeirra, sem skyldi, en
Man. City hefur þar forystu með
49 stig eftir 34 leiki. Derby er i 2.
sæti með 44 stig eftir 32 leiki og
Leeds i 3ja sæti meö 43 stig eftir
31 leik. A botninum, sem fyrr er
Nott. For. sem hefur hlotið 17
sitg eftir 34 leiki og Hudders-
field með 20 stig eftir 32 leiki.
Liklegt má telja aö þessara liða
biði það hlutskipti að falla i 2.
deild i ár.
Um úrslitin s.l. helgi er
það aö segja, að úrslit nokkurra
leikja urðu á annan veg, en al-
mennt var reiknað með, en á
siöasta seðli voru Bikarleikir,
auk leikja i 1.- og 2. deild.
Fyrst komum við að jafntefli
Ipswich og Southamton, en þau
úrsVit sá aöeins spámaður
nmans fyrir. Þá var það annað
jafntefli, sem kom nokkuð á
óvart, en það var milli Sheff.
Utd. og Everton.
Þá virðist sigur Luton yfir
Burnley hafa komiö spámönn-
um á óvart og þá ekki siður sig-
ur Portsmouth yfir efsta liðinu
Norwich, en báðir þessir siðast
nefndu leikir voru i 2. deild.
Það voru spámenn ensku
blaðanna Sunday Telegraph og
Times, sem stóðu sig bezt með 9
rétta. Þá komu Visir, Timinn,
People og Mirror með 7 rétta.
Viö Alþýöublaðsmenn höfnuð-
um i félagsskap með hinu virta
blaði Observer, News of the
World og Morgunblaðir.u meö 6
rétta, en þá kom Þjóðviljinn
einn á báti með 5 rétta og Sun-
day Express rak lestina að
þessu sinni með 4 rétta.
Næsti getraunaseðill, sem er
nr. 12 er erfiður i meira lagi.
Það er varla að hægt sé að
benda þar á öruggan leik. Sá
eða sú, sem veröur svo heppinn
mesta athygli vekur, enda eig-
ast hér við tvö af beztu liðum
Englands i dag. Leeds er nú i 3ja
sæti með 43 stig, en hefur leikið
færri leiki en Man. City og
Derby, sem eru i efstu sætun-
um. Arsenal er i 8. sæti með 37
stig eftir 31. leik, eða jafnmarga
leiki og Leeds. Arsenal hefur
ekki unnið Leeds á Elland Road
til margra ára og á ég ekki von á
öðru en að Leeds haldi upptekn-
um hætti og vinni þennan leik.
4. LEICESTER-IPSWICH 1
A Filbert Street eigast við
áþekk lið á laugardaginn, þar
sem heimaliðið er i 16. sæti með
27 stig, en Ipswich litlu ofar með
29 stig. Hér gæti þvi orðið um
jafnan leik að ræða, en ég veðja
á Leicester og spái heimasigri.
5. MAN. UTD-CRYSTAL PAL. 1
Það virðist svo sem Crystal
Pal. hafi góð tök á Man. Utd. á
Old. Trafford, þvi i fyrra vann
C.P. leikinn þar 0-1 og árið áður
var jafntefli. En þar sem nú
virðist heldur vera farið að rofa
til hjá Man. Utd. eftir erfiðleik-
ana á undanförnum vikum og
Crystal Pal. er aftarlega á list-
anum að þessu sinni, á ég ekki
von á öðru, en að Man. Utd.
vinni þennan leik og spái þvi
heimasigri.
9 LIÐ ERU EFTIR I HRADMOTINU
Hraðmót HKRR hélt áfram á
mánudagskvöld, og eru nú aðeins
eftir 9 lið i keppninni. Þrjú lið
fengu sitt annað tap á mánudags-
kvöldið, og eru þar með úr
leik. Eru þetta Fylkir, Breiðablik
og KR.
Næsta sunnud. verður mótinu
haldið áfram, og fara þá fram
eftirtaldir leikir.
Valur-Þróttur,
IR-Haukar,
Vikingur-Grótta,
FH-Fram,
Armann situr fyrir i þessari um-
ferð, en i henni falla út i það
minnsta tvö lið, og möguleiki á
þvi að þriðja liðið falli einnig.
Ahorfendur voru afar fáir i
Laugardalshöllinni á mánudag-
inn, milli 25 og 30, enda var sama
kvöld lýsing frá San Sebastian i
útvarpinu, frá leik Islendinga og
Austurrikismanna. En þeir
áhorfendur sem voru til staðar,
urðu vitni að ágætum leikjum,
betri leikjum i það heila en fyrsta
leikkvöldið.
Fyrsti leikurinn var milli Fram
og Armanns, og var staðan eftir
venjulegan leiktima 5:5. Var þá
framlengt, og enn var jafnt. Þá
voru tekin 5 vitaköst á lið, og
skoraði hvort lið úr 4 köstum og
staðan var þvi orðin 9:9, og enn
ein vitakastskeppni þurfti að fara
fram. Tók nú hvort lið 3 viti,
skoraði úr tveim en Armann ekki
úr neinu, og lokastaðan varð þvi
11:9 Fram i vil.
Næst léku Þróttur og Haukar,
og vann Þróttur mjög verðskuld-
aö 9:5. Sömuleiðis var 11:5 sigur
1R yfir Fylki sanngjarn.
Næst léku Valur og FH, og
sigraði Valur 10:9 eftir mjög
skemmtilega og tvisýna viður-
eign. Grótta vann Breiðablik 10:4,
og i siðasta leik kvöldsins sigraði
Vikingur KR 10:9, og voru KR-
ingar þar með úr leik. Einar
Magnússon var i miklu stuði i
Vikingsliðinu, og gerði hann
megnið af mörkunum.
Miðvikudagur 22. marz 1972
Q