Alþýðublaðið - 22.03.1972, Qupperneq 10
ENGAR
W
VEUBR
★ Þetta er engin fórn.
★ Við sitjum og kýium
vömb meðan milljónirnar
svelta.
★ Gefa af eigingirni.
★ Mega ekki taka svelt-
andi barn í fóstur.
KIRKJAN hefur nú gengiö
fram fyrir skjöldu aö safna fé
handa þeim sem bágstaddir eru
um allan heim. Litiö munar um
okkar hlut, en safnast þegar
saman kemur. Hún kallar þetta
fórnarviku og biður menn að
fórna. En þetta sem menn eru
beðnir að fórna eru hreint ekki
neinar fórnir. Það er verið að
gefa stórt nafn þvi sem ekkert
er. Ég mundi skammast min
fyrir að kalla það fórn ef ég
neitaði mér um mat einn dag á
ári til þess að sá fengi máltiö
sem kannski á ekki kost á að éta
sig saddan nema einu sinni á
ári.
SÖFNUN vegna hungurs úti i
heimi hér uppá tslandi kemur
mér stundum afskaplega
afkáralega fyrir sjónir þótt ég
fagni ef menn vilja eitthvað láta
af hendi rakna og einhver tekur
sér fyrir hendur að safna.
Sennilega vita þeir sem fyrir
þessu standa ekkert hvað
hungur er, hafa ekki séð það,
hafa ekki séð fólk deyja
umhirðulaust úr holdsveiki eða
úr hörgulsjúkdómum. Sá sem
það hefur séð kallar það ekki
fórn þótt hann fasti einn dag á
ári, hann bókstaflega missir
lystina, og ef hann ekki gerir
þaö, þá er hann tilfinningalaus
maður.
VIÐ SKULUM bara segja það
eins og það er að við kýlum hér
vömb alla daga meðan
milljónirnar svelta. Þaö er það
sem við gerum, og virðumst
ekki taka nærri okkur. Þegar
eitthvað á að gera fyrir okkur
þá fögnum við þvi að heimurinn
er orðinn litill og náungi manns
getur verið i ööru landi. Fólk er
flutt slasað frá Grænlandi til
tslands og frá Islandi til
Englands. Okkur munar ekki
um að sækja lækni langar leiðir.
EN VIÐ kreistum aftur augun
þegar tuttugu milljónir holds-
veikra æpa af kvölum og hun-
druð milljóna barna i heiminum
biðja um brauð en fá ekki. Þess
vegna má hjálparstofnun kirkj-
unnar vera miklu grimmari og
aðgangsharðari en hún er. Hún
ætti að rifa upp glyrnurnar á
fólki og ekki horfa i þótt hún
sjálfyrði til aö mynda að fórna
einhverju af vinsældum sinum
meðal þeirra sem ekki vilja sja.
ÉG DREG ekki i efa einlægni
islenzkra forráðamanna
þessarar starfsemi. En ég hef
séð hvernig hjálparstarfsemi er
rekin við þann endann á starf-
seminni þar sem þeir eru sem
eiga að njóta hjálparinnar.
Heimurinn er fullur af hjálpar-
stofnunum sem sumar vinna
gott starf. Ég held alltaf mest
uppá Rauða krossinn, enda er
hann einna óeigingjarnastur.
Sannleikurinn er nefnilega sá,
að margar þessar stofnanir eru
fullar af eigingirni. Hugsið
ykkur: Að gefa af eigingirni! Er
nokkuð til ógeðslegra?
KAÞÓLSKA kirkjan i
heiminum er mikið stórveldi.
Hún hefur sina hjálparstofnun
sem kallast Caritas. En sjálf
gerir Kaþólska kirkjan t.d.
góðverk með skilyrðum útá
Indlandi. Og manni dettur i
hug, þótt það sé afskaplega ljót
hugsun, að Caritas eigi að gera
kaþólsku kirkjuna vinsæla i
landinu, rétt eins og hjálp frá
Bandarikjunum á að gera þá
vinsæla og sams konar starf-
semi af hálfu Rússa vinna þeim
vini.
ÉG SEGI þetta vegna þess að
á Indlandi hafa aðilar innan
kaþólsku kirkjunnar selt ungar,
munaðarlausar stúlkur i
klaustur i Evrópu og er lagst
eindregið gegn þvi meðal þeirra
kaþólikka sem vinna fyrir
heill barna þar I landi, aö fólk
fái að taka sveltandi barn I
fóstur þótt grátbeðið sé nema
þvi aðeins aö tilvonandi kjör-
foreldrar séu kaþólskir sjálfir.
Og jafnvel ekki fyrir þvi:
Kaþólska kirkjan þarf nunnur.
FIS
Illt er að eiga
sverð sitt i
annarra
sliðrum.
tslenzkur málsháttur.
Skákþing Islands 7972
Keppni i landsliðsflokki hefst i Útgarði,
Glæsibæ kl. 20.00 i kvöld. Keppni i öðrum
flokkum hefst laugardaginn 25. marz kl.
12.30. Innritun i Útgarði til kl. 12.15 sama
dag.
SKÁKSAMBAND ÍSLANDS
I dag er miðvikudagurinn 22.
marz, 82. dagur ársins 1972.
Ardegisflæði i Reykjavik kl. 11.52,
slðdegisháflæði kl. 24.37. Sólar-
upprás kl. 07.20, sólarlag kl. 19.48.
LÆKNAR
Læknastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema læknastofan
að Klapparstig 25, sem er opin
milli 9-12 simar 11680 og 11360.
Við vitjanabeiðnum er tekið hjá
kvöld og helgidagavakt, simi
21230.
Læknavakt i Hafnarfirði og
Garðahreppi: Upplýsingar i lög-
regluvarðstofunni i sima 50181 og
slökkvistöðinni i sima 51100, hefst
hvern virkan dag kl. 17 og stendur
til kl. 8 að morgni. Um helgar frá
13 á laugardegi til kl. 8 á mánu-
dagsmorgni. Simi 21230.
Sjúkrabifreiðar fyrir Reykja-
vík og Kópavog eru í sima 11100.
Mænusóttarbólusetning fyrir
fullorðna fer fram i Heilsuvernd-
arstöö Reykjavlkur, á mánudög-
um kl. 17-19. Gengið inn frá
Barónsstlg yfir brúna.
Almennar upplýsingar um
læknabjónustuna i borginni eru
gefnar i simsvara læknafélags
Reykjavikur, simi 18888.
SKAKIN
Svart: Akureyri: Atli
Benediktsson og Bragi Pálmason.
ABCDEFGH
oo
co
to
co
C4
Það æxlaðist þannig að þau
stóöu sitt i hvorum simaklef-
anum. Og John Wells kom auga
á liana. Hann vildi þá strax
óður og uppvægur giftast henni,
— en sagan varð lengri. Það tók
hann nefnilega þrjú heil ár að
sannfæra leikkonuna Ninu West
um að væri alvara. En það
tókst, og hér eru þau, nýgift.
ABCDEFGH
Hvltt: Reykjavik: Hilmar
Viggósson og Jón Víglundsson.
2. leikur Akureyringa Rb8—c6
Útvarp
MIÐVIKUDAGUR
7.00 MorgunútvarpFréttir kl.
11.00. Föstuhugleiðing: Séra
Björn O. Björnsson flytur.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.15 Þáttur um heilbrigðismál.
Eggert Steinþórsson læknir talar
um réttindi og skyldur fólks i
sjúkrasamlögum.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Slðdegissagan „Draumur-
inn um ástina” eftir Hugrúnu
höfundur les (8).
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 Miðdegistónleikar: Islenzk
tónlist.
16.15 Veðurfregnir. Andrarimur
FÉLAGSLÍF
A—A SAMTÖKIN.
Viðtalstimi alla virka daga kl.
18.00 til 19.00 i sima 1-63-73.
hinar nýju. Sveinbjörn Bein-
teinsson kveður þriðju rimu
rimnaflokks eftir Hannes
Bjarnason og Gísla Konráðs-
son.
16.35 Lög leikin á knéfiðlu.
17.00 Fréttir.
17.10 Tónlistarsaga. Atli Heimir
Sveinsson tónskáld sér um þátt-
inn.
17.40 Litli barnatiminn. Anna
skúladóttir og Valborg
Böðvarsdóttir sjá um timann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Daglegt mál. Sverrir
Tómasson cand. mag. flytur
þáttinn.
19.35 ABC. Asdis Skúladóttir sér
um þátt úr daglega lifinu.
20.00 Stundarbil. Freyr Þórarins-
Skipaútgerð ríkisins. Esja er á
Austfjarðahöfnum á suðurleið.
Hekla fór frá Reykjavik i fyrra-
kvöld, austur um land i hringferð
Herjólfur fer i dag til Vestmanna-
eyja. Baldur fór i gærkvöldi til
Snæfells- og Breiðafjarðarhafna.
son kynnir hljómsveitina Roll-
ing Stones.
20.30 „Virkisvetur” eftir Björn
Th. Björnsson. Þriðji hluti
endurfluttur. Steindór Hjör-
leifsson stjórnar leikflutningi á
samtalsköflum sögunnar.
21.35 Lögréttusamþykktin árið
1253. Þriðja erindi Jóns
Gislasonar póstfulltrúa.
Gunnar Stefánsson les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (44).
22.25 Kvöldsagan „Astmögur
Iðunnar” eftir Sverri Krist-
jánsson, Jóna Sigurjónsdóttir
les (13).
22.45 Djassþáttur i umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
miðvikudagur
18.00 Siggi. Þyðandi Kristrún
Þórðardóttir. Þulur Anna
Kristin Arngrimsdóttir.
18.10 Teiknimynd.
18.15 Ævintýri i noröurskógum.
25. þáttur. Dularfulla askjan.
Þýðandi Kristrún Þóröardóttir.
18.40 Slim John. Enskukennsla i
sjónvarpi. 17. þáttur endur-
tekinn.
20.00 Fréttir
2025 Heimur hafsins. Italskur
fræðslumyndaflokkur. 10.
þáttur. 1 leit að fjársjóöum.
Þýðandi og þulur öskar
Ingimarsson.
21.20 Inn I skuggann. (La proie
pour l’ombre). Frönsk biómynd
frá árinu 1961. Leikstjóri
Alexandre Asruc. Aðal-
hlutverk: Annie Girardot,
Christian Marquard og Daniel
Gelin. Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir. Myndin greinir frá
framgjarnri konu, sem þykir
eiginmaðurinn veita sér ónógan
stuðning. Hún yfirgefur hann
þvi, og tekur saman við annan,
sem hún telur munu verða sér
meir til framdráttar.
22.55 Dagskrárlok.
©
Miövikudagur 22. marz 1972