Alþýðublaðið - 20.06.1972, Síða 1
alþýðu
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNi 1972 — 53. ARG. 133. TBl
SPASSKÍKEM
UR A MORGUN
OGNÚ
NÁLGAST
STÓRA
STUNDIN!
Sá dagur nálgast nú óðum að
heimsmeistaraeinvigið i skák
hefjist hér i Reykjavik. A morgun
kemur hingað til lands Boris
Spasski, heimsmeistarinn
sjálfur, en áskorandinn, Robert
Fischer, kemur næstkomandi
sunnudag.
Spasski kemur með þotu Flug-
félags Islands og i för með
honum verða fjórir aðstoðar-
menn.
Aðgöngumiðasalan er hafin á
einstakar umferðir einvigisins,
og er þegar langt komið með að
selja miða á fyrstu umferðina.
í fyrstu umferðinni verða
stimpluð i pósthúsi Laugardals-
hallarinnar fyrstadagsumslögj
með frimerki þvi sem gefið verð-
ur út i sambandi við einvigið.
Undirbúningur gengur mjög vel
að sögn Guðmundar G. Þórarins-
sonar forseta Skáksambandsins.
Smiði skákborðsins á að ljúka um
næstu helgi, og önnur fram-
kvæmdaatriði eru vel á veg
komin. Kvikmyndatökumenn
þeir sem mynda eiga einvigið á
vegum Fox fyrirtækisins voru hér
um helgina til þess að kanna allar
aðstæður, og hafa þeir ráðið Gisla
Gestsson kvikmyndatökumann
sér til aðstoðar.
Myndatökur verða ekki leyfðar
á meðan einvigið stendur yfir,
nema með serstökum vélum sem
Fox fyrirtækið ræður yfir.
Hann var kuldalegur I Reykjavik á þjóðarhátiðardaginn—en hann
varð þvi heitari með kvöldinu! Við segjum frá þessum makalausa
þjóðhátiðardegi á 3. siðu og baksiðu.
VAKTI AÐ
MINNSTA
KOSTI HEIMS-
ATHYGLI
— Ég hef góðar vonir um, að
þetta hafi áhrif, það vekur að
minnsta kosti aiheimsathygli,
sagði Björn Guðmundsson, for-
maður Félags islenzkra flug-
manna, i gærkvöldi er Alþýðu-
biaðið hafði samband við hann
vegna ailsherjarverkfalls flug-
manna.
Að sögn Sigurðar Magnús-
sonar, blaðafulltrúa Loftieiða,
raskast áætlanir félagsins ekk-
ert við verkfallið, fyrsta vélin
átti að fara til Skandinaviu
klukkan átta i morgun, en síðan
koma vélarnar, sem stöðvuðust
i Luxemburg.
— Við teljum að til séu ýmsar
aðrar leiðir til að leysa þessi
mál, sagði Sigurður, en það
hljóta allir aö viðurkenna, að
krafa flugmanna um meðferð á
flugvélaræningjum sé byggð á
skynsemi.
Björn Guðmundsson sagðist
harma það, að flugfélögin
skyldu hafa lýst verkfalliö ólög-
legt, og sagði það sina skoðun,
að veröi aðgerðirnar til að ýta
undir, aö eitthvað verði gert I
málinu, snerti það fiugfélögin
ekki siður en flugmenn.
ÞÁER
KOMID
Þór Magnússon þjóðminja-
vörður ætti að vera ánægður
þessa dagana, þar eð tvo hval-
reka hcfur rekiö á fjörur Þjóð-
minjasafnsins með stuttu milli-
bili.
Fyrir skömmu fundust fornar
húsarústirá Mýrdalssandi, eins
og skýrt hcfur verið frá i frétt-
um, og i fyrrakvöld kom til
landsins vikingasverð, sem er
talið vera frá 10. öld en fannst i
llrafnkelsdal i Norður-Múla-
sýslu. um siðustu aldamót.
Þetta er að visu ekki elzta
sverðið i eigu safnsins, en hið
bezt varðveitta. Nú hangir það i
skáp á Þjóðminjasafninu meðal
annarra gamalla sverða , sem
öll eru meira og minna ryð-
brunnin og i molum.
— Það virðist annaðhvort
sem þetta sverð sé úr betra stáli
cn önnur, eða geymsluskilyrði
séu betri i Hrafnkelsdal en
annarsstaöar, sagði þjóðminja-
vörður i viðtali viö Alþýðublaðiö
i gær.
Um fundaratvik sagði Þór, að
litið sé vitað annað, en að Ernst
nokkur apótekari á Seyðisfiröi
hafi keypt það af finnandanum
fyrir 12 krónur. Það barst siðan
til Danmerkur en var gefið þaö-
an óskari öðrum Sviakonungi.
Seinna lenti það á fornminja-
safninu i Stokkhólmi, og þar
scm þetta er taiinn mjög merki-
lcgur hlutur meðal islcnzkra
fornminja, braut safnið þá rcglu
að láta aldrei frá sér hluti, sem
eru einu sinni komnir þar inn.
Ilaunar var sverðið ekki
„gefið" heldur „afhent” til
ævarandi varðveizlu”, og það
þurfti leyfi rikisstjórnarinnar
sænsku til.
i leiðinni spurðum viö Þór
frétta úr fornleifahciminum
ÞJOÐMINJA-
SAFNIÐ BUIÐ
AÐ TAKA VIÐ
SVERÐINU
IÍR HRAFN-
KELSDAL
hvað væri framundan i þeim
cfnum i suntar.
Svaraði hann þvf til, að
áherzla yrði lögð á rannsóknir á
húsarústunum á Mýrdalssandi,-
cn hætta sé á, að komi Kötlu-
hlaup eyðist þær.
Þá nefndi hann, rannsóknir á
landnámi Ingólfs við Aðalstræti,
scm sænskir fornleifafræðingar
annast. Þjóðminjasafniö tekur
ekki bcinan þátt i þeim en
fylgist hins vegar náið með allri
framvindu mála. Sænsku
hjónin, sem við sögðum frá I
blaöinu fyrir helgi, komu á
sunnudaginn til landsins og
hefja rannsóknirnar i vikunni.
Kngar framkvæmdir sagði
Þór vera fyrirhugaöar á Þing-
völlum á næstunni, búðarrúst-
unum þar sé engin hætta búin.
cngin hætta búin.
HANDRITIÐ SEM FANNST
í MÍTRI BISKUPS 3
„VIÐUNANDI” LAND-
HELGISLAUSN SKIL-
YRDI, SEGIR EBE
„Stefna Efnahagsbanda
lagsins varöandi tsland er
breytt”, segir i ntb-frétt frá
Brussel. „Upphaflega setti
bandalagið þau skilyrði fyrir
hugsanlegum viðskiptasamningi
milli Efnahagsbandalagsins og
tslands, að tslendingar færðu
ekki út fiskveiðilögsögu sina úr 12
milum. Nú segir samninganefnd
Efnahagsbandalagsins hins
vegar, að skilyrði fyrir slikum
samningi sé, að „viðunandi”
samningar takist milli hags-
munaaðila ilandhelgismálinu. 'f
t fréttinni segir, að deilan um
fiskveiöilandhelgina umhverfis
tsland hafi haft alvarleg áhrif á
samningaviðræður tslendinga og
Efnahagsbandalagsins og að lik-
legtsé talið, að tslendingar undir-
skrifi ekki slikan samning um
leið og Sviþjóð, Finnland, Sviss,
Austurríki og Portúgal, sem
einnig hafa sótt um að gera við-
skiptasamning við Efnahags-
bandalagið.
I fréttinni er ennfremur frá þvi
skýrt, að Þórhallur Asgeirsson,
ráðuneytisstjóri i viðskiptaráðu-
neytinu hafi sagt á fundi með
samninganefnd Efnahagsbanda-
lagsins i gær, að islenzka rikis-
stjórnin gæti ekki sætt sig við, að
sett væru skilyrði fyrir þvi, hvers
konar kjörum tslendingar kæm-
ust að í samningum við banda-
lagið.
Hann hélt þvi ákveðið fram, að
landhelgismálið snerti á engan
hátt þessar viðræður, enda væri
samninganefnd tslands ekki
komin til Brussel til þess að ræða
um það mál.
Þórhallur Asgeirsson skýrði á
fundinum i gær frá þvi, að nú
stæðu yfir viðræður milli tslend-
inga og Vestur-þjóðverja og
Breta hins vegar um landhelgis-
málið. —
NEI KEMUR
LÍKA
Það er ekki bara Fischer og
félagar hans, sem hafa sagt
NEI, NEI og aftur NEI i sam-
bandi við framkvæmd einvigi-
sins.
Með Spassky koma þrir ein-
vigisvottar. Tveir stór-
meistarar, þeir Gellcr og
Krogius, og svo alþjóölegur
meistari, sem heitir NEI.