Alþýðublaðið - 20.06.1972, Blaðsíða 2
•• r
SJOISLYSADEILD UR
ÞREM ÁREKSTRUM
Sjö manns voru flutt á slysa-
deild Borgarspitalans eftir þrjú
umferðarslys, sem urðu um helg-
ina. Enginn mun þó hafa meiðzt
alvarlega.
Aðfaranótt þjóðhátiðardagsins
valt bifreið á Hringbraut við
Melatorg.
Lenti hún að lokinni flugferð-
inni á ljósastaur og skemmdist
mikið. ökumaður var fluttur á
slysadeildina, en mun þó hafa
sloppið vel. Orsökin hefur að lik-
indum verið of hraður og gáleys-
islegur akstur.
Skömmu fyrir hádegi á þjóð-
hátiðardag ók fólksbifreið upp á
gangstétt á Skeiðavogi og hlutu
ökumaður og farþegi talsverð
meiðsl i andliti.
Og um tvö leytið á sunnudag
varð svo mjög harður árekstur
syngið með
HF. BRJÓSTSYKURSGERÐIN NÓI
milli tveggja bifreiða á móts við
Geitháls.
Volkswagen-bil, sem var á
austurleið var ekið inn aö
veitingaskálanum við Geitháls
þvert i veg fyrir Volvo-bil, sem
kom úr öfurgri átt.
Skullu bilarnir saman af miklu
afli og þurfti að flytja fernt úr bil-
unum á slysadeildina. Meiðslin
voru þó ekki alvarlegs eðlis.
Síldin
TIU
MILLIONIR
KOMNAR
íslenzku sildveiðibátarnir i
Norðursjó hafa nú veitt sild að
verömæti nærri 10 milljónir is-
lenzkra króna. t heild nemur
veiöin 573 lestum af sild frá þvi að
bátarnir byrjuðu á ný veiðar á
þessum slóðum og fram til 17.
júni.
Alls hafa niu bátar fengið afla,
en mun fleiri bátar eru þó byrjað-
ir veiðarnar.
Súlan EA fór fyrst allra báta i
Norðursjóinn, og hafði hún landað
i fjögur skipti áður en annar is-
lenzkur bátur komst á blað.
Súlan hefur þvi nokkurt forskot
Iram yfir aðra báta, er með sam-
tals 205,6 lestir af sild, sem hún
hefur selt fyrir nær fjórar og
hálfa milljón. Telst það dágott
verðmæti á ekki lengri tima en
rúmum 10 dögum.
Verðið á sildinni hefur verið
misjafnt, hæst fyrst en siðan hef-
ur það farið lækkandi. Beztri sölu
náði Súlan 8. júni, er hún fékk
34,45 krónur fyrir hvert kiló af
sildinni.
17. júni seldu nokkur skip afla
sinn, og varð nýtingin þá verri en
áður, og stór hluti aflans fór i
bræðslu. Fór verðið þá allt niður i
3,75 krónur fyrir kilóið.
„BRÓÐIR
MINN
OG ÉG"
Þessi börn eru i hópi þeirra,
sem slepptu laugardagsbíltúrn-
um i lok fórnarvikunnar, sem
æskulýðsstarf kirkjunnar efndi
til i marz sl., en settust niður
með foreldrum sinum til að hug-
leiða efnið „bróðir minn og ég”.
Niðurstöður hugleiðinganna
átti siðan að festa á blað i
myndaformi.
Á myndinni eru verðlauna-
hafar og þau, sem hlutu viður-
kenningu fyrir myndir sinar, en
myndirnar þeirra eru i baksýn.
Frá vinstri eru Valgarður
Júiiusson, 7 ára, Ragnheiður
Sigurðardóttir, 9 ára, Sara
Jónsdóttir, 8 ára, Hildur Jóna
Gunnarsdóttir, 10 ára, Jóhanna
S. Sigurðardóttir, 13 ára. Önnu
Iiarðardóttur, 8 ára vantar á
myndina.
UTANLANDSFERÐIR VIÐ ALLRA HÆFI
LONDON
frá kr. 14.102,-
Bemt þotuflug báðar leiðir, brottför
vikulega. Inmfalið: gisting og morg-
unverður á fyrsta flokks hóteli. öll
herbergi með baði og sjónvarpi. Ferð-
ir milli hótels og flugvallar og ýmis-
legt fleira. Þetta verða vinsælar ferðir
til milljónaborgarinnar. Leikhús og
skemmtanalif það viðfrægasta i ver-
óldinm. en vöruhúsin hættulega
freistandi.
KAUPMANNA-
HÖFN
frá kr. 12.950,-
Brottför i hverri viku. Inmfahð: beint
þotuflug báðar leiðir. gisting og tvær
máltiðir á dag. Eigin skrifstofa Sunnu
i Kaupmannahöfn með islenzku
starfsfólki. Hægt að velja um dvöl á
morgum hótelum og fá ódýrar fram
haldsíerðir til flestra Evrópulanda
með Tiæreborg og Sterlmg Airwavs.
Nú komast loksms allir ódýrt til Kaup j
mannahafnar. Allra leiðir liggja til I
hinnar glaðværu og skemmtilegu
borgar 'við sundið.
YMSAR FERÐIR
COSTA DEL SOL
MALLORCA
frá kr. 12.500,-
Beint þotuflug báðar leiðir, eða með
viðkomu i London Brottför hálfs
mánaðarlega til 15. júní og i hverri
viku eftir það. Frjálst val um dvöl i
ibúðum i Palma og i baðstrandabæi-
unum (Trianon og Granada) eða hin
um vinsælu hótelum Antillas Barba
dos, Playa de Palma, Melia Magaluf
og fl. Eigin skrifstofa Sunnu i Palma
með islenzku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Mallorka er fjölsóttasta
sólskinsparadis Evrópu.
Fjölskylduafsláttur
frá kr. 12.500,-
Brottför hálfsmánaðarlega. og i
hverri viku eftir 27 júli. Beint þotu
flug báðar leiðir, eða með viðdvol i
London. Sunna hefir samnmg um
gistirými á sftirsóttum hótelum i
Torremolinos (Alay og Las Palomas)
og ibúðum, luxusibúðunum Playa-
mar i Torremolinos og Soficobygg-
ingunum Perlas og fl. i Fuengirola og
Torremolinos. Islenzkir fararstjórar
Sunnu á Costa del Sol hafa skrifstofu
aðstöðu i Torremolinos, þar sem
alltaf er auðvelt að ná til þeirra. Costa
del Sol er næst fjölsóttasta sólskins-
paradis Evrópu og Sunna getur boðið
upp á beztu hótel og ibúðir á hag-
væmum kjörum.
Norðurlandaferð 15 dagar. brottfor
29. júni.
Kaupmannahofn. Oslo. Þelamork og
Sviþjóð.
Kaupmannahöfn - Rinarlond
15 dagar, brottför 6. júli og 3. ágúst.
Ekið um Þýzkaland til Rinarlanda.
Kaupmannahöfn - Róm - Sorrento
21 dagur, brottför 13. júli.
Vika i Kaupmannahöfn vika i
Sorrento.og viku i Rómarborg.
Paris - Rinarlönd - Sviss
16 dagar, brottför 20. ágúst.
Landið helga - Egyptaland - Libanon
20 dagar, brottför 7. október.
Kynnið ykkur verð og gæði Sunnu-
ferðanna með áætlunarflugi eða hinu
ótrúlega ódýra leiguflugi. SUNNA
gerir öllum kleift að ferðast.
Sunna er alþjóðleg IATA
ferðáskrifstofa
FERflASKRIFSTOFAN
BANKASTRIETI7 ^1640012070
Fylgizt með ferðaauglýsingum Sunnu í Tímaniim á sunnudögum, Vísi á mánudögum
og Alþýðublaðinu og Þjóðviljanum á þriðjudögum og takið þátt í lesendagetraun í lok
mánaðarins, þar sem vinningar eru ókeypis utanlandsferð.
(D
Þriðjudagur 20. júni 1972