Alþýðublaðið - 20.06.1972, Side 9
Iþróttir 2
I ÞETTA SKIPTI ÆTUR
ERLENDUR AD TAKA
VID FORSETADIKARNUM
Eins og undanfarin ár, vann
Erlendur Valdimarsson bezta af-
rek þjóðhátiðarmótsins i frjálsum
iþróttum 17. júni. Hann varpaði
kringlunni 58,84 metra, sem er
hans langbezti árangur i sumar,
Er allt útlit á þvi að Erlendur
fari vel yfir 60 metrana,þegar nær
dregur Olympiuleikunum og hann
kemst i toppform.
Fyrir afrek sitt hlýtur Erlendur
forsetabikarinn i ár, og er von-
andi að afhending bikarsins drag-
ist ekki úr hömlu eins og i fyrra,
en þá neitaði Erlendur að taka við
bikarnum eins og frægt varð á
sinum tima.
Arangur varð mjög þokkalegur
i mörgum greinum 17. júni-
mótsins að þessu sinni, en óhag-
stætt veður fyrri dag mótsins
hafði slæm áhrif á keppendur. 1
karlagreinufn vakti kringlu-
kastið athygli eins og áður segir,
þvi auk Erlendar náði Hreinn
Halldórsson HSS mjög athyglis-
verðum árangri kastaði 48,08
metra.
Hreinn stóð sig einnig með
miklum ágætum i kúluvarpinu,
varpaði kúlunni 17,05 metra. Þar
sigraði hins vegar Guðmundur
Hermannsson, varpaði 17,62
metra, eða tæpum þrem metrum
lengra en þegar hann tók fyrst
þátt i 17. júni mótinu i Reykjavik í
fyrsta sinn, árið 1952, fyrir réttum
20 árum. Þá stóð Guðmundur á
hálfþritugu, og með réttu hefði
hann þá átt að standa á hátindi
ferils sins, en náði honum ekki
fyrren tæpum 20 árum seinna, ef
hann hefur þá náð honum enn-
bá?
Friðrik Þór óskarsson 1R náði
ágætum árangri i stökkunum,
7,02 metra i langstökki og 14,95
metra i þristökki. Bjarni Stefáns-
son sigraði örugglega i sprett-
hlaupunum, en mikill vindur dró
úr árangri.
Að vanda setti kvenfólkið svip
sinn á mótið, enda er kvenfólkið
okkar i miklum uppgangi þessa
dagana. Eitt Islandsmet var sett.
Lára Sveinsdóttir hljóp 100 metra
grindahlaup á 15,0 sekúndum,
sem er hálfri sekúndu betra en
fyrra metið. Metið fæst varla
viðurkennt, þvi meðvindur var of
mikill. Kristin Björnsdóttir
UMSK var einnig undir gamla
metinu, hljóp á 15,1 sek.
1 kvennagreinum vakti 14 ára
yngismær úr Olfljóti i Skaftafells-
sýsu mesta athygli. Hún heitir
Guðrún Ingólfsdóttir, og i kúlu-
varpinu sigraði hún með miklum
glæsibrag kastaði 11,03 metra,
sem er aðeins einum sentimetra
lakara en Islandsmet Oddrúnar
Guðmundsdóttur úr Skagafirði,
en það met er orðið 12ára gamalt.
Vafalaust liður ekki á löngu, unz
það met heyrir sögunni til.
Eins og áður segir eyðilagði
veðrið keppnina fyrri daginn, til
dæmis tókst Láru Sveinsdóttur
ekki að ná Olympíulágmarkinu i
hástökki, eins og hún hafði ætlað
sér að reyna.
-SS.
NOG AF MORKUNUM
I GÓÐUM LEIK
Leikur iBK og ÍBV i Keflavik á
sunnudaginn var hinn skemmti-
legasti, og gefa hin mörgu mörk
það greinilega til kynna. Greini-
legt er að Vestmannaeyingar
hafa tekið miklum stakkaskipt-
um, frá i fyrra, er allt spil miklu
jákvæðara og meiri hraði i leik
þeirra. Og svo virðist vera búið að
laga sóknarleikinn þannig, að
leikið er meira upp kantana og
siðan snöggir stuguboltar fyrir og
var greinilegt að Kefivikingar
áttu ekki von á þessu og brugðust
bakverðir þeirra og reyndar
Guðni og Einar lika illilega stund-
um i leiknum.
En ef við litum á minnisbókina,
sést að Eyjamenn sóttu stift strax
i upphafi, og á 4. minútu brýzt As-
geir Sigurvinsson, bezti maðurinn
á vellinum upp vinstri kantinn og
gefur fyrir markið. Þar var örn
Óskarsson fyrir, og skallaði
glæsilega i markið 1:0.
A 14. minútu á Steinar Jóhanns-
son miöherji fast skot á mark
Eyjamanna. Páll Pálmason
markvörðurfékk ekki haldið bolt-
anum, og Hörður Ragnarsson
fylgdi vel og jafnaði 1:1. Stuttu
siðar er Asgeir frir á markteig
Keflvikinga, en klúðraði tækifær-
inu á óskiljanlegan hátt.
Á 27. minútu fær Tómas Páls-
son knöttinn fram miðjuna. Hann
MYNDIRNAR
A tvidálka myndinni sést Frið-
rik Þór óskarsson i þristökki, en
eindálka myndin er af Guðrúnu
Ingólfsdóttur. Hér til hliðar er svo
mynd úr landsleik Þjóðverja og
Sovétmanna, Gunter Netjer er
þarna umkringdur sovézkum
landsliðsmönnum.
lék siðan á báða landsliðsmið-
verðina Guðna og Einar, og skor-
aði siðan með óverjandi skoti frá
vitateig. Stórglæsilegt mark.
Þannig var staðan i hálfleik, 2:1
fyrir Vestmannaeyjar.
Keflvikingar hófu seinni hálf-
leikinn með miklum hraða og
strax á 2. minútu átti Steinar
hörkuskot sem Páll varði vel. En
á 5. minútu eru Eyjamenn komnir
inn i vitateig Keflvikinga, þegar
Einar Gunnarsson nær boltanum
og brunar fram og leikur á tvo
eða þrjá Vestmannaeyinga áður
en honum er brugðið illilega.
Mjög góður dómari þessa leiks,
Rafn Hjaltalin, dæmir auka-
spyrnu um 25 metra frá marki
Vestmannaeyinga. Guðni tók
spyrnuna, og renndi boltanum á
Steinar Jóhannsson sem skaut
viðstöðulausu þrumuskoti af 20
metra færi i markhornið efst og
Páll hafði ekki minnstu tök á að
verja. Þá var staðan aftur jöfn,
2:2.
Á 16. minútu skallar örn
Óskarsson að marki ÍBK, en
Ástráður bjargaði á linu. Á 30.
minútu skorar Asgeir Sigurvins-
son þriðja mark IBV eftir herfileg
mistök hjá Keflvikingum. Tveim
minútum siðar er Jón Ólafur
kominn upp kantinn og gefur fyrir
háan bolta sem Guðni skallar að
marki. Páll ver, en missir knött-
inn og enn fylgir Hörður Ragn-
arsson eftir og skorar aftur á
sama hátt og áður 3:3.
Þessi úrslit mega teljast sann-
gjörn eftir gangi leiksins, þó tel
ég að Eyjamenn hafi sýnt
skemmtilegri knattspyrnu, en
vörnin er ef til vill nokkuð þung
hjá þeim. Keflvikingar náðu
aldrei nógu miklum tökum á
miðjunni, þar sem tengiliðir IBV
voru yfirleitt miklu fljótari á bolt-
ann.
Beztu menn Vestmannaeyinga
voru Ásgeir Sigurvinsson,
Tómas, Orn Óskarsson, og
Þórður Hallgrimsson var góður i
vörninni. Hjá IBK er helzt að
nefna Hörð Ragnarsson , Steinar
og Astráð Gunnarsson.
-HH
BEZTIR
Hvað gerir Gerd Muller? Þessari spurningu vörpuðum við
fram hér á siðunni á laugardaginn, og núna liggur svarið ljóst
fyrir. Muller gerði tvö af þrem inörkum Þjóðverja I leiknum
gcgn Sovétmönnum, og þar mcð tryggðu Þjóðvcrjarnir sér
sigur i landsiiðakeppni Evrópu með sérstökum glæsibrag.
Leikur Þjóðverja og Sovétmanna fór fram I Brussel á sunnu-
daginn, og voru yfirburðir Þjóðverjanna algerir cins og
markatalan 3:0 ber glöggt með sér. Muller skoraði fyrsta
markið á 27. minútu, Wimmer bætti öðru við á 5. minútu
seinni hálflciks og á II. minútu, sama hálfieiks bætti Muller
enn við marki. Hann hefur nú gert 51 mark i 42 landsleikjum
fyrir Þjóðverja, þar af 5 mörk i tveim leikjum gegn Sovét-
mönnum á sluttum tima.
Lið Þjóðverja er tvimælalaust sterkasta lið Evrópu um
þessar mundir, og spurningin er bara hvort liöið er ekki
sterkara cn hcimsmeistarar Brasiliu. úr því heföi fengizt
skorið/ef Þjóðverjar hefðu tekið þátt i Litlu heimsmeistara-
keppninni,sem nú stendur yfir i Brasiliu, en þeir afþökkuðu i
þeirri kcppni.
-SS.
©
Laugardagur 17. júni 1972