Alþýðublaðið - 07.03.1975, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 07.03.1975, Qupperneq 4
Markmið og leiðarlok „bað hefur alltaf verið minn draumur, að vera ekki háð öðr- um á efri árum”, sagði öldruð ekkja, sem ég ræddi við um daginn. „Eitt, sem við hjónin töldum grundvallaratriði, til þess að ná þvi marki, var að eignast þak yfir höfuðið. Þetta var nú ekki alveg baráttulaust á• fyrri árum, þegar hvorki var hægt að fá efni til þess að koma upp húskofa, nema með óskap- legri fyrirhöfn, þótt peningar væru i boði, eða neinn verulegur möguleiki til að kria út lán, hvað sem við lá. bað er vist óþarfi að lýsa þvi með mörgum orðum, hvernig við lögðum saman nótt og dag við að hrófa húskofanum upp. En þegar við fluttum i eigið hús, þó hvorki væri hátt til lofts eða vitt til veggja i þvi, fannst okkur við hafa unnið heilaheimsstyrj- öld. Ekki var nú þægindunum fyrir að fara, borið saman við það, sem nú er, en þetta var nú okkar hús og okkar heimili og það var hið eina sem skipti máli. Arin liðu, og smám saman greiddist okkar hagur dálitið. Drengirnir okkar tveir tánuðust upp og okkur fannst að lifið færi að brosa við. Það voru þung á- föll, þegar sjórinn tók annan og hinn dó skömmu siðar af öðrum slysförum. En annað eins má vist margur hafa. Við áttum þó enn hvort annað. Við lifðum enn i sama gamla draumnum, að reyna að leggja ofurlitið upp til elliáranna. Það varð aldrei stór upphæð, en samt fannst okkur hverri krónu betur varið, sem hægt var að spara og geyma, heldur en að hlaða upp einhverju glingri kringum okkur. Maðurinn minn blessaður sagði oft við mig „Ég hugga mig við það, að þó að ég fari á undan, þá verður þú ekki alveg á flæðiskeri stödd. Við eigum þó húskofann og þetta smáræði i sparisjóðnum, og svo koma ellilaunin til með að hjálpa.” Þegar hann svo féll frá fyrir nærri fjórum árum, var það þungt högg. En timinn breiðir smátt og smátt yfir sárin og þegar allt kom til alls, var margs góðs að minnast. Fram að þessu hefur heilsan verið sæmileg, þó að kraftarnir séu að dvina með hverju ári, og ég sé ekki lengur hlutgeng til að vinna neitt nema smádútl, sem gefur ekki neitt sem heitir i aðra hönd, en styttir þó dagana. Og nú ætlaði ég að gripa til vara- sjóðsins, sem við treystum allt- af á. Ég ætlaði að selja húskof- ann, þó sárt væri og erfitt og reyna að fá mér verustað i ein- hverri kompu við mitt hæfi og minar þarfir og getu. En þá rak ég mig á alvarlegan og ótrúlegan þröskuld. Mér var sagt, að húsi væri hreinlega ekki söluhæft. Það væri svo óvand- lega byggt, að það væri litils, sem einskis virði. Það væri þá helzt til niðurrifs. Það er rétt, að húsið er byggt af vanefnum. Hvernig hefði annað átt að vera? Það þarf mikla kyndingu og auðvitað hrörnar það fljótt, sem ekki er hægt að halda við. Ég sat þess vegna kyr. Seinasti mánaðarreikningur fyrir oliu var rúmlega sextánþúsund krónur, bara til að hafa ylinn, sem ekki má minni vera. Elli- launin og oliustyrkurinn eru um 24 þúsund á mánuði. Það er heldur ekki fyrirhafnarlaust að nálgast þetta, sizt fyrir þá, sem eru ekki lengur léttir upp á fót- inn, eins og ég er nú orðin. Nú gengur óðum á minn litla sjóð. Hann hefur ekki orðið drýgri við alla þessa dýrtið og gengisfell- ingar. Þegar hann er búinn, veit ég ekki, hvað við tekur. Einhverntima las ég það, að i sumum löndum væri fólk tekið af án dóms og laga. Mig hefur alltaf hryllt við svoleiðis hátta- lagi. En ég er stundum farin að spyrja sjálfa mig. Er ekki hér verið að taka okkur, gamlá fólkið, smátt og smátt af lifi án dóms og laga? Liklega eru þó þeir til, sem eiga enn bágara. En það er mér ekki nein hugg- un.” Þannig fórust gömlu ekkjunni orð. Eflaust nálgast hún sin æfi- lok, vegna aldurs. En eru það makleg verkalaun að þurfa að koðna niður i örbirgð og af- skiptaleysi eftir áratuga strit i samfélagi okkar? Hvaða svör vilja ráðamenn gefa við slikri spurningu? ðmakleg verkalaun FLOKKSSTARFIÐ _____________■ -'ú"__ AKURNESINGAR: Viðtalstími bæjarfulltrúa Bæjarfulltrúar Alþýðuflokksins, þeir Guðmundur Vésteinsson og Rikharður Jónsson, verða með viðtalstima fyrir al- menning i félagsheimilinu RÖST n.k. mánudagskvöld 10. mars frá kl. 9—11 e.h. Ingólfs-Café Gömludansarnir í kvöld kl. 9 Hijómsveit Garðars Jóhannessonar. SÖngvari Björn Þorgeirsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Simi 12826. VIPPU - BltSKURSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270 sm Aðrar stærðir. smlíaðar eftir beiðni. GLUGGASMIÐJAN Síðumúla 12 - Sími 38220 S. Helgason hf. STEINIÐJA Einholti 4 Slmar 26677 og 14254 ARÐUR í STAÐ 0SAMVINNUBANKINN YÐSLU FULLTRÚARÁÐ ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG ANNA í REYKJAVÍK Hádegisverðar fundur verður haldinn i Iðnó uppi, laugardaginn 8. mars og hefst kl. 12 á hádegi. Guðmundur Magnússon varaborgarfulltrúi, talar um borgarmál. Fjölmennið! Stjórnin. ÚTBOÐ Tilboö óskast i 250 stööumæla fyrir Uniferöardeild Reykjavikurborgar. ÍJtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 2. apríl 1975 kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frfkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Skrifstofustarf Vegna forfalla er óskað eftir að ráða konu eða karl til skrifstofustarfa i 4 mánuði (mai — september) við bókhald (númer- ingar og vélfærsla). Umsækjendur komi tilviðtals i skrifstofuna kl. 10-12 næstu daga. Vita- og hafnarmálaskrifstofan Seljavegi 32. Otför móður okkar, Ragnhildar Stefánsdóttur, Kirkjuvegi 1, Keflavik, fer fram frá Keflavikurkirkju, laugardaginn 8. mars kl. 3 s.d. Börnin. Útför föður okkar og tengdaföður Jóns Guðjónssonar, fer fram frá Keflavikurkirkju, laugardaginn 8. mars, kl. 13.30. Hilmar Jónsson, Sigurður Jónsson, Elisabet Jensdóttir, Fjóla Guðlcifsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför Guðnýjar M. Petersen, Bergstaðastræti 38. Börn, tengdabörn og barnabörn. o Föstudagur 7. marz 1975

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.