Alþýðublaðið - 07.03.1975, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 07.03.1975, Blaðsíða 6
Sir William Stephenson, einhver stórbrotnasti afreksmaður af íslenskum ættum, sem uppi hefur verið H. Montgomery Hyde í þýðingu Hersteins Pálssonar DULARFULLI 4 KANADAMAÐURINN Um þessar mundir var hann orðinn furðuslyngur í hnefaleikum, og snemma árs 1918 keppti hann fyrir flugherirm á hnefaleikamóti hermanna í Amiens, og varð heimsmeistari áhugamanna í léttivigt. Vegna þess hve hann var skjóthöggur í hnefaleikum, var hann kallaður „hríðskotabyssan44. Hetjudáðin, sem varð til þess, að Frakklandsforseti sæmdi hann hinu mikla heiðursmerki, hafði því miður einnig í för með sér, að hann lenti í höndum Þjóðverja. Síðdegis 28. júlí 1918 ákvað Stephenson, sem þá var orðinn sveitarforingi, að fara einn í eftirlitsför, þar sem venjulegar njósna- ferðir höfðu verið látnar niður falla vegna hvassviðris. Gegnum skýjarof sá hann skyndilega, að frönsk tvísessa, njósnaflugvél, varð fyrir árás siö Fokkervéla. Stephenson steypti flugvél sinni hiklaust niður í gegnum skýin, réðst á foringja fjandmannasveitarinnar og skaut vél hans niður brennandi. Síðan var háður ógurlegur ,,hundaslagur“, og leitaði Stephen- son þá oft skjóls í skýjum með ágætum árangri og skaut niður aðra Fokkervél, en sú þriðja hrapaði til jarðar stjómlaus. Hinar flugvél- arnar sáu sitt óvænna og flýðu. Til þess að tryggja, að njósnarinn í frönsku flugvélinni bæri kennsl á merki flugvélar hans, flaug Stephen- son samhliða henni. Njósnarinn sá vélina aðeins út undan sér og hélt til allrar óhamingju, að þar væri Þjóðverji á ferð og sendi flugvél Stephen- sons kúlnahríð með þeim árangri, að hreyfillinn stöðvaðist, en sjálfur særðist Stephenson á fæti. Steplienson tókst að lenda rétt fyrir framan víglínu Þjóðverja, skreið úr laskaðri vélinni og reyndi að komast til skotgrafa Breta þrátt fyrir fótarsárið. Þá hæfði vélbyssuskytta fjandmannanna hann öðru sinni í sama fót, og var hann þá alveg óvígur. Fjandmennimir slógu þegar hring um hann og tók hann til fanga. Hann var síðan sendur til fangabúðanna í Holzminden við Weserfljót nærri Branswick. Þar hitti hann vin sinn Tommv Drew-Brook, sem hafði verið tekinn til fanga um svipað levti. Þeir einir, sem geymdir hafa verið bak við gaddavír, geta gert sér grein fyrir því, hversu dæmalaust daufleg vist stríðsfanga getur verið. ógæfusamir fangarnir í Holzminden voru engin undantekning, og þeir höfðu fátt fyrir stafni annað en ýmsa leiki og að bmgga ráð til að komast undan. Einn leikjanna í Holzminden, sem skýrir sig raunvemlega sjálfur, var kallaður „að leika á Húnana“; hann var fólginn í að leika á fangaverð- ina, venjulega með því að komast yfir einhverja þýzka gripi. „Ef menn vom nógu slyngir til að næla í eitthvað, jafnvel þótt ekki væri nema kartöflu,“ sagði Drew-Brook síðar, „varð það mönnum að umræðuefni og þótti afrek að minnsta kosti einn dag!“ Fangabúðastjórinn var Niemeyer höfuðsmaður, sem var furðu líkur keisaranum í hátt. Þegar Stephenson tókst um síðir að strjúka frá Holz- minden í október 1918, eða fáeinum vikum fyrir vopnahléð, og komst þá aftur til sveitar sinnar í Frakklandi, hafði hann á brott með sér ljós- mvnd af fangabúðaforingjanum, náði henni úr skrifstofu hans, fvrir nef- inu á varðmönnunum og hafði hana með sér á flóttanum. Hann segir, að þetta hafi verið fyrirlitningarvottur á fangavörðunum að skilnaði. Hann á þessa mynd enn. Þegar herimir voru sendir heim, sá William Stephenson, sem var þá liðlega tvítugur, að útvarp og jafnvel sjónvarp mundi leggja undir sig löndin, og hann var staðráðinn í að beita hugviti sínu á þessu arð- vænlega sviði. Hann var um tíma í Winnipeg, þar sem fjölskylda hans bjó enn, en hvorki í Kanada né sunnan landamæranna, í Bandaríkjun* um, fann hann tækifærin, sem hann leitaði, á kjörsviði sínu, útvarpinu, þótt það breiddist mjög ört út. Bandaríkjamenn vora að sjálfsögðu fram- kvöðlar að útvarpi í stóram stíl, og það var í landi þeirra, sem hið nýja þjónustutæki hlaut nafn sitt. Brátt var mikill fjöldi stöðva, mismunandi sterkra, tekinn til starfa, en aragrúi útvarpssmiðja spratt upp og settu þær á markaðinn bæði fullgerð viðtæki, til að fullnægja mismunandi þörfum hinna ýmsu stöðva, svo og hluti þá, sem nauðsynlegir voru til að setja viðtæki saman á heimili hlustenda. Handahófskennd stofnun og starfræksla stöðva orsakaði meðal annars veralegar traflanir á þeim stöð- um, þar sem margar stöðvar vora, en svo vora stór svæði, þar sem ekkert heyrðist til stöðva. 1 Kanada fóra menn að vísu að dæini Bandaríkjanna, en á miklu minni mælikvarða og tóku meira tillit til vandræða sem urðu af völdum truflana. Sérstaklega þótti það óvenjulegt fyrirbæri, hvemig stjómin í Manitoba hagaði starfrækslu stöðvarinnar í Winnipeg, og vakti þetta athygli Stephensóns, ekki sízt af því, að Bretar fóru brátt að dæmi Manitobamanna. Síðla árs 1922 var brezka útvarpsfélagið, British Broadcasting Com- pany, stofnað í London af helztu framleiðendum og seljendum útvarps- viðtækja í landinu, og snemma á næsta ári fékk þetta nýja fyrirtæki einkaleyfi aðalpóstmeistara Breta til útvarpsreksturs í landinu. Félagið hvorki framleiddi, seldi né mælti með viðtækjum, og það fékk tekjur sínar, eins og stöðin í Winnipeg, af hluta afnotagjalds, sem ríkisstjórnin ákvað. Brezki viðtækjaiðnaðurinn, sem þá var í bemsku, hafði samt augljósan hag af því, að þessi nýlunda bæri árangur; það var raunar til að tryggja góðan markað fyrir framleiðsluvörur þeirra, að helztu fyrir- tækin höfðu upphaflega stofnað BBC. Auglýsingastjóri eins þessara fyrir- tækja var ungur Kanadamaður, sem Stephenson þekkti, William Glad- stone Murray, hugrakkur orastuflugmaður í stríðinu eins og liann sjálf- ur og fyrrverandi flugmálaritari Daily Express, blaðs Kanadamannsins Beaverbrooks lávarðs. Gladstone Murray varð fyrsti útbreiðslumálastjóri BBC — og hann var góður vinur Stephensons. Stephenson afréð að fara aftur til London og var aðaltilgangurinn að athuga vaxandi möguleika á viðtækjaframleiðslu og rannsóknir, sem sköpuðust af þessari þróun. Hann ætlaði aðeins að fara snögga ferð, en var lengstum um kyrrt í Englandi næstu 19 ár og hafði þar heimili sitt, meðan sérkennileg snilligáfa hans á sviði uppfinninga og kaupsýslu gerði hann að milljónara. 3. Það, sem helzt vakti athygli Stephensons í sambandi við útvarps- rekstur, þegar hann kom til Englands 1921, voru tiltölulega seinlát við- brögð almennings gagnvart kostum þess. Þar var fyrst og fremst þörf fyrir fullkomið úrval viðtækja til almenningsnota við vægu verði, og hann afréð nú að setjast að í Englandi og fullnægja þessari þörf. Með nokkr- um höfuðstóli, sem honum hafði tekizt að afla, keypti hann hlut í tveim fyrirtækjum, General Radio-hlutafélaginu og Cox-Cavendish-raftækja- hlutafélaginu, en bæði fengust við framleiðslu og sölu viðtækja og ann- arra raftækja, þar á meðal röntgentækja. Á furðu skömmum tíma höfðu hin ódýru og vinsælu viðtæki, sem General Radio framleiddi, komizt á þiisundir heimila um Bretland gervallt. Stephenson beindi nú athygli sinni að lausn einkar mikilvægs vandamáls í útvarpstækni, nefnilega þráðlausri sendingu mynda, bæði kyrra og kvikra. Undanfarin 30 ár hafði verið hægt að senda mynd þráð- ITL ALÞÝÐUBLAÐSINS P.O. BOX 320 REYKJAVÍK Undirritaður óskar eftir að gerast áskrifandi að Alþýðublaðinu. Nafn: Ileimili:..... KLIPPIÐ ÚT OG SENDIÐ © Föstudagur 7. marz 1975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.