Alþýðublaðið - 16.04.1975, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 16.04.1975, Blaðsíða 2
STJÓRNMÁL Utanferð Einars Einar Ágústsson, utanrikis- ráðherra, er kominn heim úr Bjarmalandsför sinni. Þegar þetta er ritað hefur litið frétst af árangrinum. t stuttu sjón- varpsviðtali kom fátt fram og þrátt fyrir Itrekaðar tilraunir blaðanna til þess að ná tali af utanrikisráðherranum hefur það enn ekki tekist. Þvi er það, aö Alþýöublaöið hefur enn ekki fengið svar viö þeirri spurningu hvort Einar hafi rætt mál þeirra Ashkenazy- feðga við sovéska ráðamenn og hver árangurinn hafi orðið — hafi máliö þá veriö nefnt. Eitt og annað I sambandi við þessa utanför ráðherrans hlýtur þó að vekja nokkra at- hygli og undrun. Til dæmis leiöaraskrif Morgunblaðsins um sambúö islendinga og Sovétmanna, sem beinlínis voru birt I tilefni af heimsókn Einars Agústssonar austur fyrir tjald. Skrif Morgun- blaðsins voru þannig, að ekki verður hjá þvi komist að á- lytka, að Bjarmalandsför Ein- ars og erindi hans austur hafi verið I mikilli óþökk þeirra manna sem Morgunblaöinu ráða. Var ágreiningur i stjórninni? Nú er þvi svo varið, eins og menn vita, að þótt Morgun- blaðið megi teljast málgagn Sjálfstæöisflokksins er það miklu fremur málgagn ein- stakra áhrifamanna innan þess flokks. Helstur þeirra er Geir Hallgrimsson, forsætis- ráöherra. Tæpast er þaö trúlegt, aö Morgunblaðið hafi skrifað leiöara eins og þá, sem það birti beinlinis I tilefni af Sovét- för Einars Agústssonar ef Geir Hallgrimsson, forsætis- ráðherra, hefur ekki vitað af þeim skrifum og a.m.k. fátt haft við þau að athuga. t beinu framhaldi af þvi er eölilegt að spurt sé, hvort einhver ágrein- ingur kunni að hafa veriö i rikisstjórninni um utanför Einars, erindi hans eða fram- komu. Þeim mun betur, sem menn þekkja til starfshátta Morgunblaðsins, þeim mun frekar hlýtur sú spurning að vakna. Það er a.m.k. mjög óvana- legt, að málgagn rikisstjórn- ar, eins og Morgunblaðið er, ráðist með slíkum hætti að ráðherra I þeirri rikisstjórn þegar sá ráðherra virðist vera að reka erindi viðkomandi rikisstjórnar — nema þá, aö eitthvaö sé ekki eins og þaö ætti að vera. t máli þessu ligg- ur þvi einhver fiskur undir steini þvi vart hefði málgagn Geirs Hallgrimssonar, for- sætisráðherra, ráðist með slikum hætti að utanrikisráð- herra hans gersamlega að til- efnislausu og i óþökk þess stjórn m álaforingja Sjálf- stæðisflokksins, sem mest itök hefir á Morgunblaðinu. —SB Af viðburðum vikunnar á innlendum vettvangi Ráðstefna um árangursríkar leiðir og stefnumið í dóms- og glæpamálum Dagana 24.-26. mars, siðast- liðinn, var haldin i Strasbourg ráðstefna á vegum Evrópuráðs- ins, um stefnu i glæpa- og refsi- málum. Káðstefnuna sóttu em- bættismenn frá 18 meölimarikj- um ráðsins, auk áheyrnarfull- trúa frá tveimur löndum utan þess og frá ýmsum stofnunum sem um þessi mál fjalla. Af islands hálfu sóttu ráöstefnuna þeir Halldór Þorbjörnsson, yfir- sakadómari, og Hjalti Sófanias- son, fulltrúi I dómsmála- ráðuneytinu. Yfirlýstur tilgangur ráðstefn- unnar var þriþættur að endur- skoða ýmsa stefnu virkandi þætti i hindrun og viðurlögum refsiveröra afbrota, innan ramma félagslegra viöbragða nútimans við hættulegri og óleyfilegri hegðunj að kanna aðferðir til þess að auka trú al- mennings á dómkerfi i glæpa- málum; og að grundvalla skipulag, ramma og sam- hæfingu á markmiðum og að- feröum, á þjóðlegum og alþjóð- legum vettvangi. Ráðstefnu þessari var ekki ætlaö að ræða kenningar, eða heimspekilegar hliðar þessara mála, heldur að leita ráða og leiða sem gefið gætu árangur i náinni framtið. Þeim sem ráð stefnuna sátu, til stuðnings og viðmiðunar, voru fyrirfram ákvarðaðir þrir umræðupunkt- ar, sem grundvöllur ráðstefn- unnar. Þeir voru: hlutverk refsilöggjafar I þjóðfélagslegu tilliti; dómkerfi I glæpmálum; og þróun viðurlaga. Ráöstefnan sendi ekki frá sér neina ályktun, þar sem henni var aöeins ætlað hlutverk sem umræðugrundvöllur, en á henni voru kynnt þau mál og þættir refsimála I hinum ýmsu lönd- um, sem hæst ber á góma I dag, svo og rannsóknir og nýjungar I refsimálum og meðferð af- brotamanna. Mannlífið dafnar vel á Hofsósi Það hefur verið hér prýðisjöfn vinna, jafnvel höfum við stund- um þurft að sækja fólk upp um sveitir,” sagði Pétur Jóhanns- son á Hofsósi. „Útgerðarfélag Skagfirðinga á og gerir út þrjá skuttogara og hingað kemur um þriðjungur af afla þeirra til vinnslu, hitt er unnið á Sauðár- króki. Togararnir landa að jafn- aði hálfsmánaðarlega hver með þriggja til fimm daga bili, þann- ig að vinnan verður jöfn. Vinna var hér stopul áður, en i október 1973 kom skuttogarinn Skafti og var útgerð hans sameinuð út- gerð tveggja skuttogara, sem voru á Sauðárkróki með þessari aflaskiptingu. Siðan hefur vinna verið góð og menn haft ágætar tekjur. Togararnir lönduðu á siðastliðnu ári 5769 lestum af fiski. Þetta hefur hleypt grósku i mannlifið. Hér er nýbyggður skóli, sameiginlegur fyrir þrjá hreppa og hér hafa verið byggð ný hús og ein sex eru i byggingu núna. Og sannleikurinn er sá, að meira er að frétta úr Skagafirði, en kemur fram i fjölmiðlum al- mennt.” Feröum útlendinga hingað fer fjölgandi Samkvæmt skýrslu útlend- ingaeftirlitsins hefur orðið nokkur aukning á ferðum manna hingað til lands, miöað við timann frá siðustu áramót- um og jafnlengd þess tima á siðasta ári. Aukningin er 1881. 1 siðastliðnum mánuði komu hingað alls 5624, þar af 2354 ts- lendingar. Af útíendingum voru Bandarikjamenn flestir eða 1369, 469 Danir litu upp á landið, 225 Bretar, 230 V-Þjóðverjar, 210Norðmenn og 164 Sviar. Frá Spáni komu 136. „Tilgangslaust samn- ingaþóf manuöum saman” Um leið og félagsfundur verkalýðsfélagsis Baldur-s á tsafirði samþykkti bráða- birgðasamkomulag samninga- nefndar ASl og vinnuveitenda, var svohljóðandi ályktun einnig samþykkt: „Fundurinn átelur harðlega þau vinnubrögð, sem viö hafa verið höfö i samningagerðum undanfarin ár, þar sem félögum Alþýðusambandsins hefur verið haldiö i tilgangslitlu og oft til- gangslausu samninga- og við- ræðuþófi mánuðum saman eftir að samningar verkafólks hafa verið úr gildi fallnir og liðnir venjulegir uppsagnafrestir. Telur fundurinn að verkalýðs- hreyfingin verði að standa vel saman, til. þess að samtökunum verði ekki i framtiðinni sýnt slikt virðingarleysi, sem rikis vald og'samtök atvinnurekenda hafa leyft sér með þessum frá- leitu vinnubrögðum.” „Bætir aðeins brot af kjaraskerðingunni” Trésmiðafélag Reykjavikur samþykkti á 100 manna fundi þann 4. april með öllum þorra atkvæða gegn 9 samkomulag vinnuveitenda og niu manna nefndar ASl frá 26. f.m. Jafnframt var gerð svofelld ályktun: „Það samkomulag, sem niu manna nefnd ASl undirritaði meö fyrirvara 26. f.m. bætir ekki nema brot af þeirri kjara- skeröingu, sem orðið hefur meðan á samningaviðræðum hefur staðiö og á þeim tima, sem samkomulaginu er ætlað að gilda, en bætir að engu þá miklu skerðingu, sem áður var orðin. Samkomulagiö er þvi algjört bráðabirgðasamkomulag, sem i engu má skoðast sem jafngildi varanlegra samninga, enda gerir sjálft samkomulagið ráð fyrir áframhaldi samningavið- ræðna. Það er þvi ljóst, sem verða má, að framundan er hörð kjarabarátta. Fundurinn heitir á meðlimi Trésmiðafélagsins og alla verkalýðshreyfinguna að vinna ötullega að undirbúningi þeirrar baráttu og hervæðast til átaka gegn þeirri fjandsamlegu kjaraskerðingarpólitik, sem at- vinnurekendur og rikisvald beita gegn verkalýðshreyfing- unni.” Kosið í nefndir og ráð: Þing- menn samtakanna kusu kommalista 1 sl. viku var kosið i nokkrar stjórnir, nefndir og ráð i Sam- einuðu Alþingi. Kjörnir voru endurskoðendur reikninga Bún- aðarbanka Islands, endurskoð- endur reikninga Útvegsbanka Islands, endurskoðendur reikn- inga Landsbanka íslands, 8 menn og varamenn þeirra i landsdóm, fimm menn i orku- ráð, þrir fulltrúar rikisins og jafnmargir varamenn i stjórn Kisiliðjunnar, fimm menn i stjórn Aðstoðar Islands við þró- unarrikin, sjö menn og jafn- margir varamenn i stjórn Við- lagasjóðs, tveir endurskoðendur reikninga sjóða i vörslu Fram- kvæmdastofnunar rikisins svo og framkvæmdastjóri Söfnun- arsjóðs Islands i stað Bjarna Guðmundssonar, fv. blaðafull- trúa, sem er látinn. Sjálfkjörið var i allar þessar stöður, nema i stjórn Kfsiliðj- unnar og i stjórn stofnunarinnar Aðstoð Islands við Þróunarrik- in. Var m.a. sjálfkjörið i stjórn Viðlagasjóðs. Aðalstjórnarmað- ur tilnefndur af Alþýðuflokkn- um þar er Tómas Þorvaldsson og varamaður hans Helgi Þórð- arson. 1 kosningum á þremur fulltrú- um rikisins og jafnmargra varamanna i stjórn Kisiliðjunn- ar komu fram tveir listar og var stungið upp á einum fleiri, en kjósa átti. Kosningu náði Pétur Pétursson, fyrrv. alþingismað- ur, af A-lista, en Stefán Jónsson af B-lista féll. Varamaður Pét- urs er Guðmundur Hákonarson frá Húsavik. Þá var stungið upp á fleirum, en kjósa átti i stjórn stofnunar- innar Aðstoð Islands við þróun- arlöndin. Kosningar fóru þann- ig, að kosningu hlutu af A-lista Ölafur Björnsson, prófessor, Jón Kjartansson, forstjóri, Gunnar Schram og Pétur Einarsson, kennari og af B-lista Ólafur R. Einarsson, kennari. Örlygur Geirsson af C-lista náði ekki kosningu, en hann var fyrir i stjórn stofnunarinnar. Þing- menn SFV greiddu atkvæði með lista Alþýðubandalagsins. SÁ FORNIFJANDI FÆRISTNÆR Mánudaginn 14. april 1975 fór TF-SÝR, flugvél Landhelgisgæsl- unnar I iskönnunarflug fyrir vest- ur og norðurlandi. Athugað var svæðið frá 26 v að 16 V. Viö athugun kom i ljós að megin isröndin (7/10—9/10) var um það bil: 65 sjóm. frá Deild 50 sjóm. frá Horni 65 sjóm. frá Grimsey 85 sjóm. frá Melrakkasléttu. Fyrii sunnan megin-isröndina voru dreifðir jakar og isspangir frá 5—25 sjómilur. NÝI SIMINN OKKAR ER •1 | Hafnartjaröar Apótek Áfgreiðslutími: % Virka daga vkl. 9-18.30 f Laugardaga kl. 10-12.30. Helgidaga kl. 11-12 gj Eftir lokun: % Upplýsingasími 51600. % 1 1 i v % u WREVF\LL Sími 8-55-22. Opið allan sólarhringinn ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA Í KR0N Dunn í CUEflBAE /ími 84300 m ■3* & & Miðvikudagur 16. apríl 1975

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.