Alþýðublaðið - 17.09.1975, Blaðsíða 2
Húseign til sölu
Þingholtsstræti 6
Kauptilboð óskast i húseign prentsmiðj-
unnar Gutenberg, ásamt tilheyrandi
eignalóð.
Húsið verður til sýnis þeim, er þess óska,
fimmtudaginn 18. september og föstudag-
inn 19. september kl. 2-4 e.h. og verða til-
boðseyðublöð afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu
vorri fyrir kl. 11:00 f.h., föstudaginn 26.
september n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARXÚNI 7 SÍMI 26844
Prestskosning
fer fram n.k. sunnudag 21. september i
Melaskóla fyrir kjósendur i Nessókn og i
Mýrarhúsaskóla fyrir kjósendur i Sel-
tjarnarnessókn.
Kjörinn verður prestur til Nesprestakalls.
Kjörfundir hef jast kl. 10 árd. og standa til
kl. 22 s.d. á báðum stöðum.
Umsækjendur um prestakallið eru: séra
Guðmundur Óskar Ólafsson og séra örn
Friðriksson.
19. september 1975.
Sóknarnefndirnar.
Gjaldendur -
Mosfellshreppi
Lögtök til tryggingar greiðslu gjaldfall-
inna en ógreiddra útsvara, aðstöðugjalda
og kirkjugarðsgjalda, verða gerð að 8 dög-
um liðnum frá birtingu auglýsingar þess-
arar, hafi skil ekki verið gerð fyrir þann
tima.
Sveitarstjori.
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR
Hjúkrunarkonur
óskast að Heilsuverndarstöð Reykjavikur.
Upplýsingar veitir forstöðukona i sima
22400.
Frá Akraborg
Vegna mikillar eftirspurnar er ákveðið að
fjölga ferðum næsta mánuð. Verður áætl-
un skipsins þann tima sem hér segir: Frá
Akranesi kl. 8.30, 11.30, 14.30 og 17.30.
Frá Reykjavik kl. 10.00, 13.00, 16.00 og
19.00.
Afgreiðslan Geymið auglýsinguna.
Nokkrir verkamenn óskast
ÍSTAK
inni, sími 81935
Hafnarfjörður
Verkamenn óskast. — Upplýsingar gefur
verkstjóri, simi 51335.
Rafveita Hafnarfjarðar
Kaupfélagsstjóri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Súg-
firðinga er laust til umsóknar nú þegar.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og starfsreynslu sendist
Ólafi Þórðarsyni, Súgandafirði eða Gunn-
ari Grimssyni, Sambandshúsinu, Reykja-
vik fyrir 30. sept. n.k.
Stjórn Kaupfélags Súgfirðinga.
Styrkir til háskóla-
náms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóöa fram handa fslendingi til
háskólanáms i Japan námsáriö 1976-77 en til greina kemur
að styrktímabil verði framlengt til mars 1978. Ætlast er til
að styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða sé kominn nokkuð
áleiðis i háskólanámi. Þar sem kennsla viö japanska
háskóla fer fram á japönsku er til bess ætlast að styrkþegi
leggi stund á japanska tungu um amk. sex mánaða skeið.
Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. Styrkfjár-
hæðin er 111.000,- yen á mánuði og styrkþegi er undan-
þeginn skólagjöldum. Auk þess fær styrkþegi 25.000,- yen
við upphaf styrktimabilsins og allt að 44.000,- yen til kaupa
á námsgögnum. Þá er og veittur ferðastyrkur.
Umsóknir um styrk þennan, ásamt staðfestum afritum
prófskirteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykja-
vik, fyrir 11. október n.k. — Sérstök umsóknareyðublöð
fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
10. september 1975.
Byggingahappdrætti
Færeyska sjómanna-
heimilisins í Reykjavík
Dregiö hefur veriö I byggingarhappdrætti færeyskra sjó-
manna. Eftirtalin númer hlutu vinninga:
Vinningsnúmer 19765 Toyota bifreiö.
” 31744 ferö til Færeyja.
” 22038
” 11297
” 5506
Nánari upplýsingar gefur Jacob Jóhannsson i sima 38247.
Byggingarnefndin vill þakka öllum þeim fjölmörgu, sóm
stutt hafa starfsemina meö kaupum á happdrættismiöum.
Byggingarnefnd færevska kristilega sjómannaheimilis-
Á beinni línu OPNA
mætir skilningi, má hins vegar
vænta árangurs á þessu sviði.
A hvaöa rás senda radíóamatör-
ar?
Þessi spurning barst radióama-
torunum, sem sendu frá Stór-
nöfha, frá labb-rabb manni og
mun spyrjandinn visthafa fengið
heldur óbliðar viðtökur. Labb-
rabb og ak-rabb notendur sem
hafa nokkrar fastar tiðni-rásir til
afnota, eru ekki radióamatörar,
ekki frekar en útvarps- eða sim-
notendur.
Gervitungl radióamatöra
Margar milljónaþjóðir hafa
varla látið sig dreyma um að
eignast eigið gervitungl. Radió-
amatörar fengu hins vegar ný-
lega á loft sitt sjöunda gervitungl.
Tvð þeirra eru nú á braut,
AMSAT-OSCAR 6 og 7. OSCAR 7
er flóknasti og um leið fullkomn-
asti fjarskiptahnöttur, sem radió-
amatörarhafa smiðað. Hann var
smiðaður i samvinnu radióama-
töra frá Astraliu, Bandarikjun-
um, Kanada og Vestur-Þýska-
landi, og var skotið á loft hinn 15.
nóvember 1974. Er hann há-
punktur fjögurra ára erfiðis al-
þjóðlegs félags radióamatöra,
sem nefnist AMSAT eða Radio
Amateur Satellite Corporation.
Margir þeirra, er stóðu að smið-
inni, vinna i geimferðaiðnaðinum
og settu gervitunglið saman á
kvöldum og um helgar. Banda-
riska geimferðastofnunin, NASA
féllst á að koma tunglinu á braut
sem „aukafarþega”, rétt eins og
flugfél. veitir aukafarþega góð
kjör gegn þvi að hann biði eftir
lausu sæti. „Aðalfarþeginn”, sem
greiddi fargjaldið i þetta sinn var
ITOS-G, hið fjórða i röðinni mjög
fullkominna veðurgervitungla.
Annar „aukafarþegi”, sem flaug
með i þetta sinn var INTASAT A,
fyrsta gervitungl Spánverja.
Gagnstætt öðrum fjarskipta-
gervitunglum, eru OSCAR gervi-
tunglin hönnuð þannig að unnt er
að hafa samband um þau með til-
tölulega einföldum og ódýrum,
hreyfanlegum tækjum. Stöðvarn-
ar má staðsetja í bilum, smábát-
um, flugvélum eða i heimahús-
um, og flytja þangað sem nauð-
syn krefur, ef neyð ber að hönd-
um.
Eitt mikilvægt verkefni fyrir
g'ervitunglin er hin ráðgerða
notkun þeirra við kennslu i skól-
um, til að unglingar geti kynnst
geimvisindum af eigin raun.
Meö ódýrum viðtækjum geta
nemendurnir tekið á móti merkj-
um, sem berast gegnum gervi-
tunglið frá stöðvum i allt að 8000
kilómetra fjarlægð, þeir geta
einnig náð merkjum, sem lýsa á-
standinu inni i gervitunglinu.
Merkin geta verið viðfangsefni
nemenda á öllum skólastigum og
sýnikennsla i hinum ýmsu grein-
um geimvisinda t.d. að þvi er
varðar brautafræði, útbreiðslu
radióbylgna og geimeðlisfræði.
Nemendur við Hamrahliðarskóla
I Reykjavik hafa undir hand-
leiðslu radióamatöra smiðað við-
tæki til þessara hluta.
Auk notkunar við kennslu er
AMSAT-OSCAR 7 hannaður með
neyðarfjarskipti i huga, og hann
má nota til að koma skilaboðum
milli radióamatöra viðsvegar um
heim. Dr. Perry I. Klein, forseti
AMSAT, segir að 2400 radióama-
törstöðvar i 87 þjóðlöndum hafi
notað fyrirrennara OSCAR 7, þ.e.
OSCAR 6 siðan honum var skotið
á loft, fyrir tæpum þremur árum.
Meðal notenda eru 180 stöðvar i
A-Evrópu, þ.á m. 40 i Tékkó-
slóvakíu og 55 i U.S.S.R. Þrjár is-
lenskar stöðvar hafa haft sam-
bönd um OSCAR 6. Þær eru
TF3EA, stöð Einars heitins Páls-
sonar, TF3SF, stöð Sigurðar
Finnbogasonar, og loks TF3IRA,
félagsstöð Islenskra radióama-
töra.
Samkvæmt Jan A. King við
Goddard geimflugsstöðina i
U.S.A., mundi gervitungl með
sömu eiginleika og OSCAR 7
kosta nálægt 2 milljónum Banda-
rikjadala, ef smiðin væri keypt.
OSCAR 7 var að mestu smiðaður i
sjálfboðavinnu, en kostaði um
60.000 dali i útlögðum peningum.
Fé til smiðinnar fékkst frá fram-
lögum ýmissa einstaklinga og
stofnana, auk félagsgjalda i AM-
SAT, en l.R.A. er þar félagi.
Rauðhetta
Iðnaðarmannahúsinu, Hall-
veigarstig 1. Otsalan er byrj-
uð, allt nýjar og góðar vörur.
Mikið úrval sængurgjafa.
Fallegur fatnaður á litlu börn-
in. Notið þetta einstæða tæki-
færi. Hjá okkur fáið þið góðar
vörur með miklum afslætti.
Rauðhetta
Iðnaðarmannahúsinu.
Alþýöublaöiö
Miövikudagur 17. september 1975.