Alþýðublaðið - 01.10.1975, Blaðsíða 10
í HREINSKILNI SAGT
Hálfsannleikur?
Ráðandi flokkur i höfuðborginni hefur
nú stigið fram á sviðið, þótt ekki væri
fyrr en i öðrum þætti þess drama sem
kennt hefur verið við Ármannsfell.
Áhorfendur og áheyrendur biða þess að
horfa og hlýða á leikbrögðin. Meðan svo
standa sakir og áður en tjaldið verður
endanlega dregið frá, er vist ekki annað
þarfara að gera en lita i leikskrána.
Svo mikið sem um þetta „leikverk”
hefur verið skrifað og eflaust enn meira
skrafað, ætti að vera þarfleysa að
minna á annað en stærstu stiklurnar,
sem uppúr standa.
I upphafi verður hljóðbært um orða-
skipti á trúnaðarmannafundi flokksins,
milli ungs og eflaust örgerðs aðila, sem
hefur borizt það til eyrna, að ef til vill sé
ekki allt með felldu um byggingu hinnar
glæsilegu hallar flokksins, og þess, sem
fyrir byggingunni stendur.
Ungi maðurinn vill ekki sætta sig við
annað, en að öll þessi mál þoli dagsins
ljós. Hann hefur grun um, að tiltekið
fyrirtæki hafi lagt stórfé i bygginguna,
og að það sama fyrirtæki siðar hlotið ó-
venjulega fyrirgreiðslu um lóðaúthlut-
un. Er samband þarna á milli? spyr
hann. Enn i dag veit almenningur ekki,
hver svör ungi maðurinn fær, en litlar
likur benda til, að þau hafi talizt full-
nægjandi. Og nú slær felmtri á fundar-
menn. Það undarlega skeður, að þegar
frásögn af þessu birtist, eru viðbrögðin
helzt þau, að spyrja hálf-ráðþrota. Hver
.sagði frá? Hver lak? Og höfuðin drúpa i
þögn.
En það er ekki hægt að skýla sér bak-
við þögnina til eilifðarnóns. Ráðandi
flokkur getur ekki haft á sér snið pöru-
pilta, sem þegja ákveðið af sér allar á-
sakanir. Um það sameinast allur fjöldi
flokksmanna, sem vilja leiða hið sanna i
ljós. Og nú samþykkir borgarráð, að
skipa skuli rannsóknarráð innan borg-
arstjórnar i málinu. En á þvi er bara sá
hængur, að þar vill meirihlutinn hafa
tögl og hagldir. Af hverju? spyrja menn.
Tilgangslitið er að skjóta sér bakvið,
að slikar nefndir eigi að skipa á venju-
Hvaða spil?
Hvernig lögð?
legan hátt! Þetta er ekkert venjulegt
mál, hamingjunni sé lof! Ekkert hættu-
legt fordæmi væri skapað, nema...
En nú lætur „Eyjólfur sem hann
hressist”! Og i hverju birtist það? Jú, i
þvi, að hverfa frá fyrri samþykkt og
snúa sér til saksóknara! Það heitir ,,að
leggja spilin á borðið”! En hvaða spil,
og á hvaða borð, og hvernig? Er ekki
lika hægt að leggja spil á grúfu á borð?
Hvaða atriði getur saksóknari rann-
sakað? Trúlega getur hann yfirheyrt
aðila i þeim tilgangi að leiða fram likur
fyrirsaknæmu atferli, eða ekki. Eru lik-
ur til, að það yrði játað, þó fyrir hendi
væri? Býst nokkur við þvi?
Af þessum orsökum ætti siðferðisvott-
Eftir Odd A. Sigurjónsson
orð, að vera auðfengið hjá saksóknara
og án þess að nokkuð óeðlilegt væri við.
Og máske væri það réttmætt. Um það
skal ekki fullyrt hér til eða frá. Alvar-
legasta spurningin, sem flokkurinn
stendur frammi fyrir er þó enn eftir og
fyrr en henni er svarað, að fullu, hefur
málið ekki fengið lausn.
Sannfærast allir Þorsteinar Thoraren-
senar flokksins um að væntanlegt sið-
ferðisvottorð saksóknara hafi hreinsað
loftið að fullu? Verða öll spilin raun-
verulega sýnd, eða verða einhverjir
„pokerar” máske alla tið á grúfu?
Munu „ósýnilegu snörurnar” falla sjálf-
krafa niður úr loftunum, vegna þess að
þær hafi þar ekkert raunverulegt hald?
Þetta allt hugleiðir almenningur i
fullri alvöru, meðan enn er verið að
„sminka leikarana” og færa þá i
„dressin”! Trúlegt er, að flestir þykist
sjá nú þegar gang og lok næsta þáttar,
og hann útleiðist á svip. lund og hér
hefur verið drepið á. Um lokaþáttinn er
meira á reiki og erfiðara að spá um
hann. Hinu verðiir tæplega neitað, að
varla verður mikið um klapp eða blóm-
vendi, nema almenningur sannfærist
um, að öll spil hafi verið lögð uppiloft á
borðið. Um það mega trúlega fæstir
vera i vafa, ef vel á að fara. Þar verður
enginn hálfsannleikur haldbær.
fl IK
Skötuhjú
Þó að aumingja Jacque-
line Onassis sé nýbúin að
lýsa þvi yfir, að hennar heit-
asta ósk sé að fá að lifa i friði
eins og venjuleg manneskja,
þá verður henni ekki að ósk
sinni.
Og kannski er það bara
henni sjálfri að kenna. Hún
getur tæpast ætlast til þess
að næturklúbbarölt hennar
með ekki ófrægari manni en
Frank Sinatra veki enga at-
hygli.
Sögur herma, að frúin sé
með Frank i hljómleika-
ferðalagi hans um Evrópu,
sem senn fer að ljúka og að
þau noti timann sem gefst
utan hljómleikanna til að
dansa saman langt fram á
morgun og hananú.
Elektrónískur
dyravörður
Eigendur klúbbs nokkurs,
sem staðsettur er i sænska
smábænum Hesselholm,
hafa nú loksins dottið niður á
pottþéttan dyravörð. Sá er af
elektróniskri gerð, svipaður
og notaðir eru fyrir dyr
kjarnorkuvera. Þetta eru
lásar, þannig gerðir að með
þvi að stinga vissum kortum
inni rafmagnsheila, sem
tengdur er lásnum, opnast
dyrnar og viðkomandi getur
gengið inn.
Forráðamenn klúbbsins-
láta afburðavel af þessum
nýja dyrabúnaði og nú
komast engir inn, nema þeir
sem hafa kort og þau fá að
sjálfsögðu aðeins meðlimir
klúbbsins.
Ekki fylgdi sögunni hvaða
aðferðir þeir nota til að
komast út aftur, en það er
svo aftur annað mál.
Raggi rólegi
FJalla-Fúsi
•■W». \ yit/ &Í&
JORtJty \ty-P
roi 4W
UÐ
st »0 t
Alþýðublaðið
Bíóin
HÁSKÓLABÍÓ srm. 22.40’
iiiiin'i'i riwn ■■■«■111111 lll'^
Myndin, sem beðiö hef-
ur verið eftir:
Skytturnar fjórar
Ný frönsk-amerlsk litmynd.
Framhald af hinni heims-
frægu mynd um skytturnar
þrjár, sem sýnd var á s.l. ári,
og byggðar á hinni frægu sögu
eftir Alexander Dumas.
Aðalhetjurnar eru leiknar af
snillingunum: Oliver Reed,
Richard Chamberlain, Micha-
el York og Frank Finley.
Auk þess leika i myndinni:
Christopher Lee, Geraldine
Chaplin og Charlton Heston,
sem leikur Richilio kardinála.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5 og 9.
Karlakór Reykjavikur
kl. 7
KÝJA BÍÖ Simi 11540
Menn og ótemjur
Allsérstæð og vel gerð ný
bandarisk litmynd. Fram-
leiðandi og leikstjóri: Stuart
Millar.
Aðalhlutverk: Richard Wid-
mark, Frederic Forrest.
Sýnd kl; 5, 7 og 9.
Sugarland
atburðurinn.
Mynd þessi skýrir frá sönnum
atburði er átti sér stað i
Bandarikjunum 1969.
Leikstjóri: Steven Spieeberg
Aðalhlutverk: Goldie Hawn,
Ben Johnson, Michael Sacks,
William Atherton.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11,15.
Bönnuð innan 16 ára.
STJðRNUBÍÓ s,i,m
Vandamál lifsins
•‘INEVER
SANGFOR
tSLENZKUR TEXTl.
Frábær og vel leikin ný
amerisk úrvalskvikmynd i lit-
um.
Leikstjóri: Gilbert Cates.
Aöalhlutverk: Gene Hack-
man, Dorothy Stickney,
Melvin Oouglas.
Mynd þessi hefur alls staðar
fengið frábæra dóma.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
KÓPAVOESBÍÓ »it,K5
IBióinu lokaö um óákveðinn
tima.
TRÚLOFUNARHRINGAR
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu
GUÐM. ÞORSTEINSSON
gullsmiöur, Bankastr. 12
Leihhúsin
SÞJÓÐLEIKHÚSIf
STÓRA SVIÐIÐ
ÞJÓÐNÍÐINGUR
laugardag kl. 20.
KAROEMOMMUBÆRINN
sunnudag kl. 15.
FIALKA flokkurinn
Tékkneskur gestaleikur.
Frumsýning þriðjudag kl. 20.
2. sýnfng miðvikud. kl. 20.
3. sýning fimmtud. kl. 20.
Ath.: Fastir frumsýningar-
gestir njóta ekki forkaupsrétt-
ar á aðgöngumiðum.
LITLA SVIÐIÐ
RINGULREII)
fimmtudag kl. 20.30.
Miðasala 13.15-20.
Simi 1-1200.
^ÍLÉIKFELAG^
Ö^EYKJAVIKD^S
FJÖLSKYLDAN
fimmtudag kl. 20.30.
SKJ ALDIIAMRAR
föstudag. — Uppselt.
SKJ ALDHAMRAR
laugardag. Uppselt.
FJÖLSKYLDAN
sunnudag kl. 20.30.
SKJ ALDH AMRAR
þriðjudag kl. 20.30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14.
Simi 16620.
HAFNARBÍÖ >imi 16144
'ÓNABÍÓ sími :u 182
Maöur Laganna
„Lawman"
Nýr, bandarlskur „vestri”
með BURT Lancasteri aðal-
hlutverki. Burt Lancaster
leikur einstrengislegan lög-
reglumann, sem kemur til
borgar einnar til þess að
handtaka marga af æðstu
mönnum bæjarins og leiða
þá fyrir rétt vegna hlut-
deildar i morði.
Framleiðandi og leikstjóri:
Michael Winner
önnur aðalhlutverk: Robert
Cobb og Sht-ree North.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum yngri en 16
ára
Gleymid okkur
einu suim -
og þiÖ gleymib
því alarei i
AAiðvikudagur 1. október 1975