Alþýðublaðið - 10.10.1975, Side 1
197. TBL. - 1975 - 56. ARG.
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER
Ritstjórn Siðumúla II - Simi 81866
HLERAÐ
BAKSÍÐA
Stefnuljós
Benedikt Gröndal:
Aðkallandi að breyta
starfsháttum
Alþingis
SJÁ BLS.
Umræður um
þá sem lenda
utangarðs
í þjóðfélaginu
Sjá bls. 5
□ Álagsliðir tvíteknir í uppmælingarreikningi
UPPHÆÐIRNAR NEMA
TUGUM MILLJÓNA
Verðlagsstjóri hefur staðfest stórfrétt
Alþýðublaðsins frá þvi i gær, að verðlags-
brot hafi verið framin i sambandi við út-
reikning á uppmælingum iðnaðarmanna i
byggingariðnaði. Þessi verðlagsbrot ná
okkur ár aftur i timann og leikur enginn
vafi á þvi, að með þessum hætti hefur
stórfé verið haft af húsbyggjendum. Eng-
in leið er að segja til um, hve mikið það fé
er, sem þannig hefur verið haft af hús-
byggjendum með óheiðarlegum hætti, en
lausleg athugun Alþýðublaðsins bendir til
þess, að það skipti milljónatugum.
Eins og Alþýðublaöið skýrði frá
i frétt i gær hefur verðlagsráð að
undanförnu látið fram fara gagn-
gera rannsókn á Utreikningum á
mælingavinnu byggingariðnaðar-
manna vegna gruns um, að út-
reikningar þessir séu óleyfilega
háir. I gær sendi verðlagsskrif-
stofan frá sér fréttatilkynningu,
þar sem fram kemur, að niður-
stöður athugana verðlagsnefndar
á mælingum byggingariðnaðar-
manna hafi leitt i ljós, að mæl-
ingataxtar húsasmiða væru of há-
ir sem næmi 1,1%, og mælinga-
taxtar múrara, málara, pipu-
lagningamanna og veggfóðrara
of háir, sem nemur 4.3%. Ekki er
skýrt frá þvi i fréttatilkynningu
verðlagsstjóra, hvað þessu valdi
—hvar ólöglega sé staðið að út
reikningi á mælingunum.
Alþýðublaðið hefur hins vegar i
höndunum gögn, sem leiða þetta i
ljós og er þvi kunnugt um, hvaða
ólöglegt athæfi rannsókn verð-
lagsnefndar leiddi i ljós.,í fyrsta
lagi er i mælingaútreikningum
þeirra iðnstétta, sem lengst hafa
gengið, reiknað sérstakt álag á
grunntölu mælingar fyrir helgi-
dagavinnu 3,1% af mælingu (liður
nr. 8 i útreikningum Meistara-
sambands byggingamanna fyrir
uppmælingu múrara). Þetta er
hins vegar algerlega óheimilt að
gera, þvi þá er þegar búið að
reikna með 3% álagi vegna helgi-
daga i einingaverði grunntölu
uppmælingarinnar. Húsbyggj-
andinn er þvi látinn greiða fyrir
þennan lið tvisvar.
1 öðru lagi er við útreikning á
uppmælingaverði lagt á iðnaðar-
gjald, sem talið er vera 0,2% af
samanlagðri upphæð mælingar,
orlofs, veikinda- og helgidaga-
greiðslu (sú siðasttalda ólögleg
skv. framansögðu). Þessi kostn-
aðarliður er nr. 11 á útreikningi
Meistarasambands bygginga-
manna á samtölu uppmælingar-
verðs, sem Alþbl. hefur undir
höndum.
Þessi gjaldheimta er ólögleg
með öllu þar sem i reglugerð um
iðnaðargjald er skýrt tekið fram,
að undanþegnar siku gjaldi séu
m.a. húsbyggingar og önnur
mannvirkjagerð. Hér er þvi um
að ræða skattgjöld, sem hús-
byggjandi er krafinn um á reikn-
ingi, en iðnmeistarinn þarf ekki
að standa skil á.
1 þriðja lagi er svo i útreikning-
um uppmælingaverðsins reiknað
með 6% gjaldi i lifeyrissjóð af
samanlagðri upphæð greiðslu
fyrir mælingu, orlof, veikinda-
daga og helgidaga. (Liður nr. 5 á
útreikningi Meistarasambands
byggingamanna, sem Alþbl. hef-
ur undir höndum). Hér er gjald
þetta lagt ofan á liði, sem ekki er
heimilt að leggja það á i þessum
mæli, heldur á lifeyrisgjaldið að
reiknast 4,5% af þessum liðum i
stað 6%.
Ofan á allan þennan tvireikning
og ofreikning leggur iðnmeistar-
inn svo meistaraálag sitt og verð-
ur það þess valdandi, að húsa-
smiðameistari tekur i uppmæl-
ingu 1,1% umfram það, sem lög
leyfa og meistarar i múrverki,
málun, pipulögn og veggfóðrun
4,3% umfram það, sem þeim er
heimilt að gera.
Þá hefur Alþýðublaðið enn-
fremur aflað sér ýmissa viðbót-
arupplýsinga um ólöglega gjald-
töku I sambandi við uppmælinga-
o
Eiga húsbyggjendur endurkröfurétt á byggingameistara vegna
rangs álags? Þær bætur gætu numið tugum milljóna.
1500 hafa
grei tt at-
kvæði í
BSRB
könnuninni
„Fundarsókn á fundi BSRB
hefur yfirleitt verið góð”,
sagði Haraldur Steinþórsson
við blaðið i gær. „Þannig
mættu t.d. 83 á Selfossi, 82 á
Akranesi, yfir 30 á Patreks-
firði og 120 kennarar i Hafnar-
firði. Þátttaka i skoðana-
könnunum hefur verið mjög
almenn, þótt auðvitað spái
enginn i hver úrslitin verða.
Nú þegar hafa greitt atkvæði
um 1500 manns. Undirtektir
hafa yfirleitt verið góðar undir
aðalkröfu bandalagsins, þó
komið hafi fram raddir um hið
gagnstæða. Nú eru eftir stórir
fundir og á mánudagskvöld
verður fundur á Esju. Þangað
mega vitanlega allir koma af
félagsmönnum, sem vilja og
hafa ekki haft aðstæður til
áður. Þetta eru siðustu for-
vöð. Verkfallsréttarnefnd
mun svo telja atkvæði á
þriðjudag og hefur hún yfir-
sókn um það mál”, sagði
Haraldur Steinþórsson að
lokum. bs.
Gylfi Þ. Gislason í viðtali við Alþfðublaðið:
Stjórninni ber að leita víðtæks
samstarfs um lausn vandans
— Þegar Alþingi kemur nú saman, blasir
við geigvænlegri vandi i efnahagsmálum
þjóðarinnar, en við hefur verið að etja um
langt skeið, sagði Gylfi Þ. Gislason, formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins, i samtali við
Alþýðublaðið gær.
— Rikisstjórhin hefur mikinn þingstyrk að
baki sér. En hún hefur reynst ótrúlega veik-
burða I baráttu sinni við vandamálin.
— Sjálfsagt er að viðurkenna, að ástandið
var mjög alvarlegt, þegar stjórnin tók við
völdum, sagði Gylfi. — En i heilt ár hefur hún
engu fengið áorkað til þess að snúa þróuninni
til betri vegar. Hún hefur verið ráðvillt og
máttlaus.
— Engum getum skal hér að þvi leitt, hvað
veldur —hvortum er að ræða ósamkomulag
innan stjórnarflokkanna eða milli þeirra.
Það skiptir heldur ekki meginmáli, heldur
hitt, að ekkert heilsteypt hefur verið gert til
þess að stöðva verðbólguþróunina.
— Það, sem nú riður mest á, er að þing og
stjórn geri sér ljóst, að ekki verður ráðin bót
á svo viðtækum vanda, sem þeim, sem nú er
við að etja, nema með viðtæku samstarfi
allra þeirra afla i þjóðfélaginu, sem áhrif
geta haft á þróun mála, sagði Gylfi Þ. Gisla-
son einnig. — Þótt rfkisstjórnin hafi sterkan
þingmeirihluta á bak við sig, dugir það ekki,
ef ekki er um að ræða samslarf og samráð
við aðila vinnumarkaðarins — launþega og
vinnuveitendur. Og sé ekkert hlustað á
stjórnarandstöðuna, þótt fámenn sé, og
ekkert tillit tekið til hennar, verður mikill
vandi ekki farsællega leystur.
Nú veltur þvi á mikíu, að rikisstjórnin
reynist hyggnari, en hún hefur verið til
þessa. Hún verður að hafa forystu um tillögu-
gerð i baráttunni gegn verðbólgunni og leita
siðan samstarfs um stuðning við hana og
framkvæmd hennar. Það er þjóðarnauðsyn
að draga úr verðbólguvextinum. Óðaverð-
bólgu verður auðvitað ekki eytt að fullu i einu
vetfangi. En stefna verður i rétta átt. Þá
stefnu verður þetta þing að marka, sagði
Gylfi Þ. Gislason að lokum.
Alþýðublaðið
endurvekur
zetu-regluna
Breytingarnar, sem gerðar
hafa verið á ritreglum með
brottfellingu zetunnar.
breyttum reglum um stóran og
litinn staf o.s.frv. hafa skapað
algeran glundroða i sambandi
við ritun islenzks máls.
Reynslan hefur leitt i ljós, að
breytingar þessar voru gerðar
af skammsýni bæði hvað varðar
ritmálið sjálft svo og fjárhags-
hliðar málsins. Breytingarnar
munu t.d. kosta þjóðina
óhemjumikið fé bæði i
sambandi við endurskoðun
námsbóka og ekki siður
varðandi endurútgáfu bóka,
sem vegna breytinga á rit-
reglum verður að endursetja frá
upphafi til enda I stað þess að
hægt væri að nota mun ódýrari
og fljótvirkari aðferðir við
endurútgáfuna.
» 3. SÍÐA »