Alþýðublaðið - 10.10.1975, Side 3
Stefnulfós
Benedikt Gröndal skrifar
o
Þankar um
þingsetningu
Alþingi kemur saman í dag og
hefst þar- með 97. löggjafaþingið
Á síðustu árum hefur Alþingi
sætt vaxandi gagnrýni og notið
minnkandi trausts þjóðarinnar.
Er því nauðsyn að íhuga vand-
lega stöðu þess og starfshætti og
leitast við að rétta hag þess. Það
er þjóðinni nauðsyn, að æðsta
stofnun lýðveldisins njóti bæði
trausts og virðingar alls þorra
landsmanna.
Þingsetning er hér mjög látlaus og fá-
brotin miðað við það, sem tiðkast hjá öðr-
um þjóðum. Þó byggist hún á gömlum
hefðum, til dæmis kirkjugöngu, setn kon-
ungur fyrirskipaði, er Alþingi var endur-
reist, og gerði hann það eftir franskri fyr-
irmynd, sem Danir höfðu tekið upp. Þessi
siður leiðir til þess, að forseti, biskup og
þingmenn ganga fylktu liði til kirkju og
frá, en lögreglan gerir honnör og gætir
þess, að enginn sletti skyri. Nú á dögum
eru sárafáir i kirkju og aðeins slæðingur
horfir á gönguna. Áður fyrr sýndi fólk
þingsetningu meiri áhuga, til dæmis 1909
og 1911, þegar troðningur var svo mikill,
að til vandræða horfði.
Jafnvel formsatriði þingsetningar eru
stundum notuð tii að láta i ljós skoðanir
eða mótmæli. Þannig mæta kommúnista-
þingmenn yfirleitt ekki við messuna til að
svna andúð á kristni og kirkju, nema þeir
séu ráðherrar. Þá koma þeir. Annað
dæmi er frá árinu 1871, en þá stóð enginn
þingmaður upp til að hylla konung i lok
þingsetningar, ekki einu sinni konungs-
kjörnu þingmennirnir. Var þetta mót-
mælaaðgerð i stjórnarskrármálinu, sem
vakti mikla athygli, enda hafði slikt aldrei
komið fyrir áður. Nú á dögum er hrópað:
,,Heiil forseta vorum og fósturjörð. ísland
lifi” — og skorast vonandi enginn undan
þvi.
Starfsaðstaða þingsins hefur batnað til
mikilla muna á siðari árum, og hefur
þingið nú til sinna þarfa'þrjú hús i næsta
nágrenni við þinghúsið. Að visu eru mikil
þrengsli i sjálfum þingsalnum, en það
hefur lika sina kosti, og eitthvað mega
þeir segja i breska þinginu, þar sem ekki
eru nógu mörg sæti, ef allir þingmenn
mættu á fundi samtimis. Fyrir utan þetta
er aðstaða þingmanna vel viðunanleg og
að sumu leyti ágæt á okkar mælikvarða.
Sumt af hinu fámenna starfsliði þingsins
býr þó við slaka aðstöðu og á stundum
mikið álag.
Starfshættir Alþingis eru i meg-indrátt
um ákveðnir i stjórnarskránni, en i veiga-
miklum atriðum einnig i lögum um þing-
sköp. Þeim lögum hefur öðru hverju verið
breytt og þar með ýmsum vinnubrögðum
og reglum, og hefur það undatekningarlit-
ið verið til bóta.
Eina stórfellda brevtingu vil ég gera á
skipan þingsins en það er afnám deilda-
skiptingarinnar. Sextiu manna hópur
þingmanna skiptir sér i tvo hópa. 20 i öðr-
um og 40 i hinum, og verða svo til öll lög
aö fara i gegnum þrjár umferðir i báðum.
Deildirnar hafa hvor sitt nefndakerfi, svo
að þingmenn geta verið i fjölmörgum
nefndum, en hlutverk hverrar nefndar
verður takmarkað og þær verða ekki eins
veigamiklar stofnanir og þær gætu verið.
til dæmis ef Alþingi gerði meira af þvi að
fylgjast með störfum framkvæmdavalds-
ins, rannsaka mál. er koma upp, kalla
menn fyrir og vera þannig i lifandi sam-
bandi við atburðarás þjóðfélagsins, Þann-
,ig mætti stórauka aðhald að þvi embættis-
og sérfræðingakerfi. sem hefur farið vax-
andi að völdum og áhrifum á kostnað
þingsins. Þannig gæti þingið betur haldið
á þvi valdi, sem þjóðin hefur kjörið það til
að fara með.
Ég hef flutt frumvarp um afnám deilda-
skiptingarinnar, en það verður ekki gert
nema með brevtingu á stjórnarskrá, sem
verður að samþykkja á tveim þingum
með kosningum á milli. Þetta frumvarp
var kurteislega svæft, en þó tel ég, að
mikið fylgi sé við hugmyndina — ef ein-
hvern tima gefst timi til að sinna stjórn-
arskrármálum fyrir ofurþunga dægur-
vandamálanna.
Afnám deildaskiptingar, sem er úreltur
arfur frá löngu liðinni kóngatið, mundi
opna Alþingi leið til nýrra og betri starfs-
hátta og gefa þinginu tækifæri til að gegna
betur þvi hlutverki, sem þjóðin ætlar þvi
nú á dögum.
Að lokum þarf að hugsa til þess að flytja
Alþingi úr fjórum húsum i eitt, það er,
reisa nýtt þinghús. Það kann að þykja á-
byrgðarleysi að tala um slikt i þeim efna-
hagsvoða, sem nú steðjar að. En verði
byrjað af alvöru að undirbúa þetta mál
nú, getur ný þinghúsbygging risið eftir 10-
20 ár.
o
frettabráðurinn
Dagsími til kl. 20: 81866
Kvöldsími 81976
Zetan________________
endurvakin |
t ljósi þessara staðreynda og j
fjölmargra annara gerðist svoj
það, að stórhópur ýmissa helztu |
andans manna þjóðarinnarl
ritaði undir áskorun um , aðl
horfið yrði frá hinum umdeildu J
breytingum á ritreglum. Á sl. J
vetri fluttu svo þingmenn undir J
forystu Gylfa Þ. Gislasonar j
frumvarp á Alþingi um, að |
„gamla” stafsetningin yrði lög-1
leidd, og þegar ekki tókst að |
afgreiða málið vegna tima- I
skorts ritaði röskur helmingur I
alþingismanna, þ.á.m. allir j
þingmenn Alþýðuflokksins, J
undir áskorun, sem felur i ser J
stuðning við efni frumvarpsins. ■
Má þvi ganga út frá því, sem j
gefnu, að á Alþingi i vetur verði |
stafsetningunni breytt til fyrra |
horfs.
Alþýðublaðið hefur haft þann I
háttinn á, að zeta hefur ekki I
verið rituð i almennum fréttum J
blaðsins, en hins vegar hefur J
blaðið ekki tekið upp aðrar j
breytingar á ritreglum, sem j
gerðarhafa verið. Alþýðublaðið |
hefur nú ákveðið að taka zetuna j
upp aftur i ölluni almennum I
skrifum i blaðinu og fara nú I
fyllilega eftir þeirri staf- ®
setningu, sem fastlega má ætla, J
að lögbundin verði á þingi þvi, J
sem sett er i dag. Velur Alþýðu- |
blaðið einmitt þennan dag til j
þess að tilkynna þessa ákvörðun |
sina til þess að lýsa stuðningi j
við það álit meirihluta alþingis- I
manna i stafsetningarmálinu, I
sem fram kom i viljayfirlýsingu J
þeirra á s.l. vetri.
mm mm mm mm mm mm mm mm mm ^m ^m mm mm mm mm mm
íkveikja í
Mávahlíðinni?
Slökkviliðið i Reykjavik var
kvatt út um klukkan 15.30 vegna
elds i kjallaragangi húss nr.
15—17 við Mávahliðina. Er
slökkviliðið kom á staðinn var þar
fyrir mikill reykur, en eldsupptök
virtust vera i svampdýnu einni,
er þarna var i kjallaraganginum.
Slökkviliðinu tókst fljótt að
slökkva eldinn, en skemmdir
urðu töluverðar. "
Ekki er ljóst, hvað olli eldsupp-
tökum, en sterkur grunur leikur
á, að þarna hafi verið um Ikveikju
að ræða. Málið er i rannsókn.
Fellur öll
kennsla niður?
Ennþá situr allt við það sama i
deilu fjármálaráðuneytisins og
framhalds- og menntadeildar-
kennara fjölbrautarskólans við
Flensborg i Hafnarfirði. Kennar-
ar eru ennþá i verkfalli vegna
þess að þeir fá ekki greidd sömu
laun og aðrir menntaskólakenn-
arar. Deilan virðist hafa harðnað
frekar en hitt, og hafa kennarar
lýst þvi yfir að þeir muni ekki
snúa aftur til kennslu fyrr en full
leiðrétting þeirra launamála hef-
ur fengist. Kennarar gagnfræða-
deildanna i Flensborg hafa nú
samþykkt að fara einnig i verk-
fall frá og með deginum i dag, ef
samningar hafa ekki náðst fyrir
þann tima. Þá hefur stjórn Félags
menntaskólakennara samþykkt,
að ef ekki verði gengið að kröfum
verkfallsmanna, (framhalds- og
menntadeildarkennarar fjöl-
brautarskólanna eru aðilar að
F.M.) þá muni félagið hyggja á
aðgerðir. '
Framhalds- og menntadeildar-
kennarar i Flensborg héldu fund i
gær og var þar samþykkt að
leggja eftirfarandi bráðabirgða-
lausn fram:
., Allir kennarar er starfa við
fjölbrautarskólastigið fái laun
greidd samkvæmt samningi Fé-
lags Menntaskólakennara (F.M.
við fjármálaráðherra, allt til þess
tima er nýir samningar milli
F.M. og fjármálaráðherra taka
gildi.
Þessar bráðabirgðagreiðslur
verði óafturkræfar. Við gerð
nýrra samninga verði F.M.
samningsaðili fyrir kennara á
fjölbrautarskólastigi.
Ennfremur er samþykkt að áð-
ur bcðuðum verkfallsaðgerðum
kennara verði fram haldið, þar til
viðunandi lausn mála hefur feng-
ist.”
Alþýðublaðið hafði samband
við tvo verkfallsmenn, þá Hjálm-
ar Árnason og Einar Bollason, og
spurðist nánar fyrir um gang
mála i deilunni. „Litið hefur mið-
að i samkomulagsátt. 1 gær átti
Kristján Bersi Ólafsson fund með
fjármálaráðherra um þessi mál,
en þar fékkst engin niðurstaða.
Þá má geta þess, að á fundi
B.S.R.B. f gærkvöldi með kennur-
um i Hafnarfirði þar sem einmitt
var verið að ræða um verkfalls-
rétt opinberra starfsmanna var
eindregin aðstaða tekin með að-
- gerðum okkar og okkur heitið
fullum stuðningi, ef þessi mál
yrðu ekki til lykta leidd mjög
fljótlega. Þá hafa ýmis lands-
sambönd kennara gefið okkur yf-
irlýsingar um að þeir muni styðja
okkur fram i rauðan dauðann, og
hefja stuðningsaðgerðir.”
„Við vonum að sjálfsögðu að
þetta mál leysist sem fljótast, en
ekkert verður eftir gefið af okkar
hálfu. Menntamálaráðuneytið
hafði gengist inn á kröfur okkar,
en það er fjármálaráðuneytið
sem stöðvar þetta réttindamál
okkar. Við viljum láta þess getið
að við metum stórlega þær stuðn-
ingsyfirlýsingar, sem við höfum
fengið frá landssamböndum
kennara og einstaklingum, þar
sem okkur er heitið öflugum
stuöning, ef málið leysist ekki inn
an tiðar. Það er þvi fullljóst að við
stöndum ekki einir i þessari bar-
áttu cg hættum ekki fyrr en
markmiðinu er náð”, sögðu þeir
Einar Bollasonog Hjálmar Arna-
son,kennarari'Flensborg, að lok-
um.
Ólafur Sigur-
jónsson látinn
ólafur Sigurjónsson, hrepps-
stjóri Njarðvikurhrepps andaðist
nú i vikunni af vöidum meiðsia,
sem liann lilaut i bifreiðaslysi á
Reykjanesbraut við samkomu-
Inisið Stapa, en hann var fram-
kvæmdastjóri Stapa.
ólafur var aðeins 54 ára gam-
all, ókvæntur og barnlaus.
Oddviti Njarðvikurhrepps var
Ólafur Sigurjónsson um 12 ára
skeið, en hafði setið sem fulltrúi
Alþý ðuflokksins i hreppsnefnd
allt frá árinu 1953, og var hrepps-
stjóri um áratuga skeið.
Hann hefur ekkert
tslendingar færa efnahagslög-
sögu sina út i 200 milur þann 15.
okt. nk. eins og alþjóð veit.
Blaðinu höfðu borist spurnir af
þvi að Landhelgisgæzlan væri
þegar farin að búa sig undir
daginn til að mæta breyttum
aðstæðum.sem þá munu skapast.
Okkur lék þvi forvitni á að inna
forstjóra Landhelgisgæzlunnar
Pétur Sigurðsson eftir þvi til
hvaða aðgerða verður gripið. Fer
samtalið hér á eftir.
Blaðamaður: Er Pétur
Sigurðsson við?
Simastúlka: Ég skal athuga það.
Hver biður um hann.
(Blm. segir til nafns.)
Forstjórinn Pétur Sigurðsson:
Já.
Blm. Þetta er á Alþýðublaðinu.
Okkur langar til að vita hvort
varðskipin eru lögð úr höfn til
þeirra staða, sem þau munu
verða á, þegar útfærsludagurinn
rennur upp?
P.S. Ég ræði aldrei um ferðir
varðskipanna. Ég hef ekkert um
það að segja.
Blm. Verður tekið hart á brotum
fyrst i stað?
P.S. Ég hef ekkert um það að
segja
Blm. Verður tekin á leigu þyrla i
stað þeirrar, sem fórst um
daginn?
P.S. Ég hef ekkert um það að
segja.
Leiðrétting
Ranghermt var i kynningu á
örnólfi Thorlacius, menntaskóla-
kennara i blaðinu i gær, að faðir
hans hafi verið skólastjóri við
Vörðuskólann, eða Gagnfræða-
skóla Austurbæjar, heldur var
hann skólastjóri Austurbæjar-
skólans.
Leiðrétting
1 fréttaþræði blaðsins nýverið var
mishermt að Geirharður Þor-
steinsson hefði teiknað löngu
blokkina, svonefndu við Norður-
fell i Breiðholti. Geirharður ann-
aðist skipulagningu svæðisins, en
þeir sem teiknuðu blokkirnar á
þvi voru þeir Björn Ölafs og Ólaf-
ur Sigurðsson. Hlutaðeigendur
eru beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
um það að segja
Samtalið varð ekki lengra þvi
augljóst var að forstjóri Land-
helgisgæslunnar vildi ekkert
segja um þetta mál.
Málið í athugun
í ráðuneytinu
Alþýðublaðið liafði sambaud
við samgönguráðune.vtið út af er-
indi og ásökunum starfsmanna
Landssimans og fékk þær upplýs-
ingar hjá Halldóri S. Kristjáns-
syni deildarstjóra að ráðuneytið
mundi ekkert segja um máiið að
svo stöddu, enda hefði bréfið bor-
ist ráðherra fyrirstuttu. Halldór
taldi liklegt að ráðuneytið myndi
senda út fréttatilkynningu eftir að
ráðherra hefði kannað niálavexti.
Um það, hvort ráðuneytinu
hefði verið kunnugt um óánægju
simamanna eða hvort ráðuneyt-
inu hefði borizt kvartanir frá
þeim áður uin þau efni, sem um
getur i álvktuninni, vildi deildar-
stjórinn ekki tjá sig.
Alþýðublaðinu tókst ekki að ná
tali af póst- og simamálastjóra i
gær til þess að heyra álit hans á
málinu.
Alþýðublaóið
Fös+udagur 10. október 1975.