Alþýðublaðið - 10.10.1975, Qupperneq 10
í HREINSKILNI SAGT
Gestsauga
Rasmussens
B.A. prófiö er þannig orðið gersamlega
þarflaust sem kennarapróf fyrir gagn-
fræðaskóla. Samt mun það koma i ljós i
reyndinni, þvi miður, að það mun enn
lifa góðu lifi, ef háskólinn eða mennta-
málaráðuneytið taka ekki á sig rögg
einn góðan veðurdag og aflifa það. Það
er alls ónógt sem menntun fyrir
menntaskólakennslu að ekki sé nú talað
um B.A. menntunina sem visindalega.
Sá siður hefur lengi viðgengist, vegna
þess, hve óljós er staða B.A. prófsins i
mörgum greinum, að láta nemendur
læra ágrip af visindalegum vinnubrögð-
um utanað, en vanrækja algjörlega
rannsóknaræfingar, sem eru algjör
undirstaða. Með þessu háttalagi er ger-
samlega komið i veg fyrir að nemandinn
komist nokkru sinni til botns i að nota
kunnáttu til að endurnýja, eða vinna að
greininni á þann hátt þau ca 40 ár, sem
hann kann að starfa við hana sem kenn-
ari. Arangurinn af starfi sliks kennara
liggur svo ljóslega fyrir i kunnáttu
stúdentanna, sem innritast árlega i
háskólann. Hvað sem góðum vilja llður
er þess enginn kostur á svo skömmum
tima, sem náminu er ætlaður, að ná
lengra i gagnrýnni afstöðu en venjuleg-
ur nýútskrifaður stúdent frá Dan-
mörku. En auðvitað hafa Islendingar
sloppið blessunarlega við stúdenta-
óeirðir! Hér við bætist, að aukið hefur
verið við i B.A. náminu þó nokkrum
greinum, sem ekki eru kenndar i gagn-
fræðaskólunum. Að mestu leyti eru það
greinar, sem krefja teoriska kunnáttu
s.s. bókmenntasaga, heimspeki, sál-
fræði og almenn málvisindi. Það hlýtur
að hafa verið erfitt verk og á engan hátt
öfundsvert, aðskera svo niður greinarn-
ar, sem taka 6 ára nám i Danmörku, að
þær gætu hæft i Prokrustesarrúm B.A.
námsins með 3x1/2 ár til stefnu. Og þeg-
ar allt kemur til alls. Er tslandi ekki
meiri þörf menntaskólakennara, en
heimspekinga, o.s.frv ? Að minu mati
sezt Háskóli tslands milli sætanna i
ákvörðunum sinum um námsaðferðir,
hvort sem valið er samsull náms fyrir
iðnfræðistig að mennta endurskoðend-
ur, eða gagnfræðaskólakennara á þrem
árum og gleymir þvi miður ekki að hér
ræðirum háskóla, þar sem fræðingarnir
eru úttútnaðir af yfirliti á visinda-
reglum greinanna, i stað þess að vera
raunveruiegur háskóli. Þessi
Atján barna
faðir í álf-
heimum? II.
„fræðingastefna”, þar sem allt er skorið
inn i bein i fræðunum, setur skólann á
einskonar millistig. Vilji háskólinn
starfa sem háskóli, verður hann að gera
sér Ijóst að það kostar sitt i fleiri kenn-
urum i hverri grein en nú tiðkast. Hann
verður að draga við sig að taka inn nýj-
ar greinar, unz þær sem fyrir eru, eru
komnar á réttan rekspöl. Vilji hann
hinsvegar vera á „fræðingastiginu”,
þarf hann af skyndingu að skoða afstöðu
sina til slikra skóla, sem hér eru fyrir.
Siðan liggur fyrir athugun á þvi, að ts-
lendingar fái háskólamenntun i öðrum
löndum, meðal annars með samningum
við erlenda háskóla, og hvað þeir myndu
taka gilt af undirbúningsnámi, sem
Eftir Odd A. Sigurjónsson
fram gæti farið i Háskóla íslands. Mitt
mat er, að hér verði að vinda bráðan
bug að þvi að taka grundvaliarákvörðun
i þessu efni og ræða það vandlega. Von
min er, að þetta málæði mitt, verði til að
koma umræðum af stað. Þó ég hafi
bundið mig við Danmörku og danskar
aðstæður, vegna þess að ég álit þessi
mál betur rekin þar, breytir það ekki
um að betri lausnir kunni ekki að finn-
ast.
Svo mörg eru þau orð. Sjálfsagt er að
viðurkenna, að hér er um að ræða laus-
lega þýðingu á ádrepu Danans. En hvað
sem þvi líður, mun aðalefnið koma
sæmil. til skila þótt stytt sé. Brennandi
spurning er. Hvað er hæft i öllu þessu?
Er þetta alger sleggjudómur, eöa hvað?
Háskólinn hefur iöngum verið talinn
óskabarn þjóðarinnar og á að vera það.
Er hann einnig orðinn sýktur af yfir-
borðsmennskunni, sem nú er mest met-
in i áformum ráðamanna menntamál-
anna? Slikt má aldrei gerast. Menn,
sem vilja menntamálunum vel, hafa
nógar áhyggjur af framvindunni neðar I
menntakerfinu, þótt þetta bætist ekki
við. Ef önnur eins flatneskja og hér
hefur verið lýst, er ráðandi á æðstu
menntastigum hér, verður skammt til
ófaranna. Timi til að stinga við fótum,
kann að vera skemmri en hófi gegnir.
Þar má háskólinn ekki skerast úr leik.
Hann verður beinlinis að taka merkið,
sem nú er að falla i gras i höndum mis-
viturra sullum bullara og- krefja um
haldbæra undirbúningsmenntun þeira,
sem óska að koma inn fyrir hans
vébönd. Það gæti máske opnað augu
ráðandi manna öðru fremur, sé þess
annars kostur.
fclk
Sá svarti
senuþjófur
Muhammed Ali, er
þekktur fyrir annað en að
þegja yfir þvi sem honum
býr i brjósti. Hann er
þekktur fyrir kokhreysti og
allskonar fiflalæti i garð
þeirra sem hann keppir við i
hringnum.
En hann talar og gefur
yfirlýsingar um fleira en box
eða annað sem þvi fylgir.
Nýlega rákumst við á
klausu, þar sem Ali fór á
kostum og sagði m.a.:
Svartur maður, sem er i
tigjum við hvita konu, ætti
skilið að missa lifið. Og
hvern þann mann, sem leyfir
sér að eiga við eða áreita
konu af múhammedstrú, ætti
að drepa.
Ali var spurður að þvi,
hvað ætti að gera, ef dæminu
yrði snúið við. Múhammeðs-
trúarkona leitar eftir
samneyti við svartan eða
hvitan mann, hvað á þá að
gera? Húnhefur einnig fyrir-
gert lifi sinu, svaraði Ali um
hæl.
f viðtali við timaritið
Playboy, sem nýlega birtist,
sagði Ali meðal annars: Sá
sem misnotar, nauðgar eða
forsmáir konu sem er
muhammeðstrúar ætti að
týna lifinu og þetta á ekki
aðeins við hvita menn, einnig
svarta.
Barnavinurinn
Jerry Lewis
Þá hefur Jerry Lewis
loksins tekist að slá Danny
Kaye rækilega við. En ekki á
hvita tjaldinu, þvi þó Jerry
sé góður, þá geta áreiðan-
lega flestir verið smamála
um það, að Danny sé betri.
Hvað um það. Jerry sló
honum sem sé við i gjafmildi
og dugnaði við fjáröflun
handa sveltandi börnum i
Eþiópiu. Á nokkrum dögum
safnaði hann um þrem
milljörðum króna fyrir
börnin. Fyrir þetta framlag
sitt hefur Jerry áunnið sér
margar viðurkenningar og
var meðal annars útnefndur
„vinur barnanna” fyrir
stuttu.
Raggi rólegi
RöA.e/íi oix
&& J EIT ‘
ER fiÉR-
Fjalla-Fúsi
Bíójn
IÁSKÓLABÍÓ
Myndin, sem beðið hef-
ur verið eftir:
Skytfurnar fjórar
Ný frönsk-amerisk litmynd.
Framhald af hinni heims-
frægu mynd um skytturnar
þrjár, sem sýnd var á s.l. ári,
og byggðar á hinni frægu sögu
eftir Alexander Dumas.
Aðalhetjurnar eru leiknar af
snillingunum: Oliver Reed,
Richard Chamberlain, Micha-
el York og Frank Finley.
Auk þess leika i myndinni:
Christopher Lee, Geraldine
Chaplin og Charlton Heston,
sem leikur Richilio kardinála.
tSLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
.AUGARÁSBÍÓ
Dráparinn
Simi :I2075
Spennandi ný frönsk saka-
málamynd i litum er sýnir elt-
ingaleik lögreglu við morð-
ingja. Mynd þessi hlaut mjög
góða gagnrýni erlendis, og er
með islenzkum texta.
Aðalhlutverk: Jean Cabin og
Fabio Testi.
Sýnd kl. 5, 7 og 11.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
iafharbio s..„i .nr
Hammersmith er laus
Blzabeth Taylor, Richard Burton
Peter Ustinov, Beau Bridges in
HAMMERSM1TH /SÚVT
Spennandi og sérstæð, ný
bandarisk litmynd um afar
hættulegan afbrotamann, sem
svifst einskis til að ná tak-
marki sinu.
Leikstjóri: Petcr Ustinov.
4
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11,15.
Simi 311X2
Sérstaklega vel gerö og leikin,
bandarisk kvikmynd.
Leikstjóri: John Schlesinger.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Endursýnd kl. 5, 7 og 19.15.
Bönnuð börnum yngri en 16
ára.
Sugarland
atburðurinn.
Mynd þessi skýrir frá sönnum
atburði er átti sér stað i
Bandarikjunum 1969.
Leikstjóri; Steven Spieeberg
Aðalhlutverk: Goldie llawn,
Ben Johnson, Michael Sa'cks,
William Atherton.
Sýnd kl. 9.
Bönnuö innan 16 ára.
'STJÖRNUBÍO fi'ni -
Hver er
morðinginn
iSLENZKCR TEXTI
Ofsaápennandi ný itölsk-ame-
risk sakamálamynd sem likt
er við myndir Hitchcocks, tek-
in i litum og Cinema Scope.
Leikstjóri: Dario Argento.
Aöalhlutverk: T<»»y Musante,
Suzy Kendall, Enrico Maria
Salerno, Eva Renzi.
Bönnuð börnum.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
NÝJA B.ÍÚ Simi "54°
T® IQIj* A
ClJÖWfJ
R*iejsedBy20™CENTURY-F0X HLMS fW]
COLOR BY DELUXE “ L£vJ
Óvenjuleg og spennandi ný
bandarisk litmynd um ung
hjón sem flýja ys stórborgar-
innar i þeirri von að finna frið
á einangraöri eyju.
Aðalhlutverk: Alan Alda.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
VIPPU - BÍtSKÖRSHURÐÍN
Lagerstærðir miðað við múrop:
I Jæð; 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar starðir. smíðaðar eftir beiðni.
GLUGGAS MIDJAN
SidumCla
l»^H8-18600
hefur opið
pláss fyrir
hvern sem er
HORNIO
sími 81866
- eða sendið greinar á ritstjórn
Alþýðublaðsins,
Síðumúla 11,
Reykjavik
Hringið í
Föstudagur 10. október 1975.