Alþýðublaðið - 24.10.1975, Page 4
□ Andrea Þórðardóttir: Opið bréf til fjármálaráðherra
Á að skera niður framlög til
þeirra sem minnst mega sín ?
Hafnarfirði, 21. október 1975.
Hr. Fjármálaráðherra Matthías
Matthiesen!
Kæri Matthias.
Nú hef ég nýlega lokið við að
lesa bók þá, sem inni hefur að
halda fjárlögin fyrir árið 1976.
Fyrir margra hluta sakir var
þetta fyrir mig hin merkileg-
asta lesning, sem olli mér hin-
um mestu vonbrigðum. Sér-
staklega vil ég taka fram niður-
stöður þinar varðandi heil-
brigðismál. Þar telurðu hægt að
draga úr útgjaldaaukningu um
2000 milljónir króna frá þvi, sem
gildandi er i reglum og fram-
kvæmdir fela i sér. Það er fyrir-
sjáanlegt, að slikur niðurskurð-
ur mundi hafa ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir þá einstaklinga
þjóöfélagsins, sem minnst mega
sin og koma ekki til með að fjöl-
menna fótgangandi til fundar
við þig I Arnarhveli eins og t.d.
námsmenn gera, eða fara i
verkfall. Hvers konar fólk hefd-
ur þú, að hér sé um að ræða?
Þetta eru andfega og likamlega
fatlaðir einstaklingar, öryrkjar
og gamalmenni, fólk, sem orðið
hefur fyrir slysum, drykkju-
sjúklingar og miklu fleiri.
A undanförnum árum hefur
mér fundizt þessi mál vera að
þróast i' rétta átt, enda þótt of
rKVENNAFRÍ 24. OKTÓBER 1975 ]
F L :UNDUR Á I .ÆKJARTORGI1
Dagskráin hefst kl. 2 á Lækjartorgi. Fundarstjóri: Guðrún Erlends-
dóttir.
Lúðrasveit kvenna leikur.
Fundur settur.
Ávarp: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir verkakona.
Fjöldasöngur undir stjórn Guðrúnar Á. Símonar óperusöngvara.
Alþingismannahvatning: Sigurlaug Bjarnadóttir og Svava Jakobs-
dóttir.
Þáttur Kvenréttindafélags islands.
Ávarp: Björg Einarsdóttir verslunarmaður.
Fjöldasöngur: Hvers vegna kvennafrí? Ljóð Valborgar Bentsdóttur
i tilefni dagsins.
Ávarp: Ásthildur ólafsdóttir húsmóðir.
Kvennakróníka i þríliðu. Tekið hafa saman Anna Sigurðardóttir,
Sigríður Thorlacius og Valborg Bentsdóttir. Flytjendur: Anna
Kristín Arngrímsdóttir, Briet Héðinsdóttir, Helga Bachmann,
Sigríður Hagalín og Sigurður Karlsson. Stjórnandi: Herdís Þor-
valdsdóttir.
Baráttudagskrá rauðsokka.
Fjöldasöngur.
Fundi slitið.
* Lúðrasveitin leikur i fundarlok.
OPIÐ HÚS lí Wt
Orðiö er frjálst — Áhugafólk skemmtir — Kaffi og öl
* Norræna húsið við Hringbraut. Opið kl. 15 til 19.
* Sokkholt, heimili rauðsokka, Skólavörðustíg 12. Opið kl. 10—19.
* Félagsheimili prentara, Hverfisgötu 21. Opið kl. 10—19.
* Lindarbær, Lindargötu 9. Opið kl. 15—19.
* Hótel Saga, Súlnasalur. Opið kl. 15—19.
■k Hallveigarstaðir v/Túngötu. Opið kl. 10—19.
* Húsmæðrafélag Reykjavíkur, Baldursgötu 9. Opið kl. 15—19.
Framkvæmdanefnd um kvennafrí.
KONUR! STÖNDUM SAMAN!
¥
¥
¥
¥
¥
*
★
*
*
+
¥
¥
¥
hægt hafi þó farið. Skilningur
yfirvalda og almennings hefur
aukizt i málefnum flestra
þeirra, sem upp voru taldir. En
nú virðistmér, sem snúa eigi til
verri vegar. Það virðit ætlun
ykkar að stöðva svo til alla
framfararþróun i málefnum
þeirra, er minnst mega sin.
Ekki þarf mikið út af að bera,
svo að annað hvort okkar yrði
flokkað til einhvers þeirra hópa,
er áður voru taldir. Hefurðu t.d.
nokkurn timan komið inn á
Grensásdeild Borgarspitalans
og rætt við eða séð þá einstak-
linga, sem þar er verið að reyna
að endurhæfa til þess að koma
þeim á ný út i lifið, ef mögulegt
er? Þessi starfsemi kostar
mikla peninga, en án hennar
yrði þetta fólk eilifir þyggjendur
af tryggingakerfinu. Fleiri eru
þeirstaðir, þar sem unnið er að
endurhæfingu og enginn þeirra
má við þvi að missa svo sem
eina krónu af þvi, sem nú er
veitt til þeirra. Þvert á móti
kallar aukin þörf á meira fé, þvi
stór hluti þess fólks, sem dvelst
á þessum stöðum er ungt fólk og
hvaða þjóð má við þvi að missa
blóma sinn úr atvinnulifinu?
Sparnaður er alls ekki fólginn i
þvi að láta þetta fólk dvelja á
stofnunum lengur en þörf kref-
ur!
Ég held, að ekki verði um það
deilt, að frumskilyrði til þess, að
fólk geti lifað og verið ham-
ingjusamt sé, að þvi sé gefinn
kostur á starfi við sitt hæfi.
Margir i þeim hópum, er ég
taldi upp áðan, koma ekki til
með að geta unnið á venjulegum
vinnustöðum og fyrir þá þarf
þvi verndaða vinnustaði, en af
þeim eigum við skammarlega
fáa. Hugsum okkur t.d. 67 ára
gamlan mann með skerta
starfsorku, en gæti þó unnið á
vernduðum vinnustað hluta úr
degi, heldur en að verða dæmd-
ur til þess að sitja aðgerðarlaus
heima, sjálfum sér og þjóðfé-
laginu til óþurftar. Þessi maður
þyrfti frekar aukna aðstoð en
hitt. Þar á ég við aukið fjár-
framlag til uppbyggingar á
vernduðum vinnustöðum og
hvernig stendur t.d. á því, að
rikið hefur ekki byggt eitt
einasta eliiheimili, en skammt-
ar til þeirra 1850 krónum á dag?
Þetta þarf auðvitað að laga.
Ekki vil ég sve skilja við þig,
Matthias, i þessu bréfi minu, að
ég minnist ekki á málefni fatl-
aðra barna, en þar hefur þjóðfé-
lagið svo sannarlega ekki staðið
við lögbundnar skyldur sinar i
menntunarmálum þeirra. Ætið
virðist hafa skort fjármagn til
þess að bæta þarna úr og nú
skammtar þú t.d. aðeins
4.750.000m.kr. (fjórar milljónir,
sjöhundruð og fimmtiu þúsund)
til skóla fyrir þroskahömluð
börn. Þetta er álika upphæð og
gömul tveggja herbergja ibúð
myndi kosta hér i borg. Ja, ekki
var þaö mikið, sem gera skal!
Syndu nú af þér manndóm,
Matthias, minnkaðu frekar
framkvæmdir við Grundar-
tanga og við brúargerð i Borg-
arfjörð, fækkaður frekar i þessu
nefndafargani og stuðlaðu að
auknu eftirliti með fjáraustri i
rikiskerfinu. Nefna má t..d ferð-
ir ráðherra til útlanda. Stör-
efldu eftirlit i skattamálum og
breyttu skattalögum þannig að
þau gefi sömu, ef ekki hærri
upphæð heldur en þú hyggst
skera niður i framlögðu frum-
varpi. Endurskoðaðu afstöðu
þina varðandi þennan niður-
skurð til heilbrigðismála, með
þvi móti myndirðu stuðla að
réttlátara og manneskjulegra
þjóðfélagi, eða var það ekki ein-
mitt það, sem Kristur kenndi
okkur?
Andrea Þórðardóttir.
Brúðkaupsveislur Samkvæmi
ÞINGHOLT
Bergstaóastræti
Alþýðublaðið
Föstudagur 24. október 1975.