Alþýðublaðið - 24.10.1975, Side 7
Hvíti hreinninn
Sjónvarp i kvöld
klukkan 21.10
t sjónvarpinu i kvöld klukkan 21:10.
verður sýndurballetþáttur frá norska
sjónvarpinu, sem heitir Hviti hreinninn.
Birgit Cullberg samdi dansana, og er
stutt viðtal við hana á undan ballettn-
um. Tónlistin i Hvita hreininum er eftir
Knudaage Riisager.
Verkið fjallar um Samastúlkuna Aili,
sem er ástfangin af Nilasar, en sá bögg-
ull fylgir skammrifi, að á tungllýstum
nóttum breytist hún i hvitan hrein. En
Aili greyið gerir sér ekki grein fyrir þvi,
að með hennar hjálp ætlar seiðkarlinn,
sem að sjálfsögðu stundar þessi véla-
brögð, að fremja alls kyns ódæðisverk.
Góður leikstjóri og
ekki síðri leikarar
Sjónvarpiö á laugardagskvöld
klukkan 21.10
Biómyndin „Ship of Fools”, sem á is-
lenzku þýðir Fiflaskipið, verður á dag-
skrá sjónvarpsins á laugardagskvöld
klukkan 21:10. Mynd þessi var gerö á
árinu 1965, og er hún að sjálfsögðu
bandarisk, eins og flestar kvikmyndir
sem á íslandi eru sýndar.
Stanley Kramer leikstýrir þessari
mynd, en hann er einn af beztu leikstjór-
um heims um þessar mundir. Ekki eru
leikararnir af verra taginu heldur, en
þeir eru: Lee Marvin, Vivien Leigh,
George Segal, Jose Ferrer og Simone
Signoret. Hlýtur þessi mynd að vera
þess virði að á hana sé horft, þar sem
svo margir frábærir leikarar eru saman
komnir.
Myndin gerist árið 1933, þegar þýskt
farþegaskip er á leið til Bremerhaven. A
skipinu eru margir farþegar, en sá hóp-
ur er all sundurleitur. Að sjálfsögðu á
þar hver maður við sinn vanda að
striða, og er greint frá nokkrum þeirra i
myndinni. Þýðandi er Dóra Hafsteins-
dóttir.
Hverjar eru
óbyggðirnar?
Sjónvarp á sunnudaginn:
Hér kemur þá sjónvarpsupptaka af
smásögu úr Sjöstafakverinu eftir
Halldór Laxness. Þriggja daga orlof
Grasdals, gjaldkera, sem helgast af þvi,
að kona hans hefur nú tekið sér jafn-
langt orlof ein sin liðs eftir 25 ára bú-
skap, og nú er ákveðið, að hann fari meö
„vini” sinum i veiðiför i óbyggðir. Aðal-
hlutverkið leikur Gisli Alfreðsson, Gras-
dal gjaldkera. Um veiöiförina er bezt að
tala sem minnst á þessu stigi málsins og
„óbyggðirnar” birtast i frumlegu ljósi
grallarans Laxness. Við lok myndarinn-
ar mætti mönnum, sem ekki eru þvi
öruggari um, hverju konur sækjast eftir
i raun e.t.v. vera ljósaraenáður, hvert
hugurinn stefnir, lika á kvennaári. Hefði
sennilega verið skynsamlegt að hafa
þessa sýningu á föstudagskvöldið 24.
Ekki svo meira um það.
Útvarp
FÖSTUDAGUR
24. október
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustu-
gr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.55. Morgun-
stund barnannakl. 8.45: Björg
Arnadóttir les söguna „Bessi”
eftir Dorothy Canfield i þýð-
ingu Silju Aðalsteinsdóttur
(17). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
milli atriða. Spjallað við bænd-
ur 10.05. Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25. Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: ,,A fullri
ferð” eftir Oscar Clausen.Þor-
steinn Matthiasson les (9).
15.00 Miðdegistónleikar. Fritz
Wunderiich syngur lög eftir
Schubert, Hubert Giesen leikur
á pianó. Aaron Rosand og Sin-
fóniuhljómsveit útvarpsins i
Luxemburg leika Fiðlukonsert
nr. 3 í g-moll op. 99 eftir Jenö
Hubay, Louis de Froment
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphcirn
17.10 Tónleikar
17.30 Mannlif i mótun.Sæmundur
G. Jóhannesson ritstjóri á
Akureyri lýkur við að segja frá
uppvaxtarárum sinum i Mið-
firði.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J. Hall-
dórsson flytur þáttinn.
19.40 Þingsjá.Kári Jónasson sér
um þáttinn.
20.00 Jórunn Viðar leikur á pianó
verk eftir Debussy, Chopin og
Schumann.
20.30 Lygn streymir Laxá. Jónas
Jónasson ræðir viö Gunnlaug
Gunnarsson bónda i Kast-
hvammi.
21.20 Kórsöngur. Stúlknakór
Gagnfræðaskólans á Selfossi
syngur, Jón Ingi Sigurmunds-
son stjórnar.
21.30 Útvarpssagan: „Fóstbræð-
ur” eftir Gunnar Gunnarsson.
Þorsteinn O. Stephensen leikari
les (6).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Hvað gerðist
í dag?Fréttamennirnir Friðrik
Páll Jónsson, Kári Jónasson
o.fl. gera upp reikninginn að
kvöldi kvennafridags. (Skák-
fréttir kl. 22.35). Tónleikar.
23.30 Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
SJónvarp
Föstudagur
24. október
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 Kastijós Þáttur um innlend
málefni. Umsjónarmaður
Ólafur Ragnarsson.
21.10 Hviti hreinninn Ballett-
þáttur. Birgit Gullberg samdi
dansana, en tónlistin er eftir
Knudaage Riisager.
Samastúlkan Aili er ástfangin
af Nilasi. Seiðkarl einn býðst til
að hjálpa henni að vinna ástir
Nilasar. Á tungllýstum nóttum
breytist hún i hvitan hrein. En
hún veit ekki, að með hennar
hjálp ætlar seiðkarlinn að
fremja alls kyns ódæðisverk. Á
undan ballettinum er stutt
viðtai við höfundinn. (Nord-
vision — Norska sjónvarpið)
22.00 Skálkarnir Bre kur
sakamálamyndaflokkur. Loka-
þáttur Billy Þýðandi
Kristmann Eiðason.
Á FRlDEGI KVENNA
Um kvennaárið kvennafrfið og konuna yfirleitt
Nú er þetta margumrædda ár
1975, öðru nafni kvennaárið, brátt
á enda runnið. Þegar litið er til
baka, hvað kemur þá i ljós? Jú,
fyrst og fremst höfum við, konur,
vakið fólk til umhugsunar um
stöðu konunnar. Vissulega hefur
starfssvið konunnar i þjóðlifinu
aukizt á siðustu árum, enda ekki
vanþörf á. Fyrir örfáum ára-
tugum var almenningsálitið yfir-
leitt þannig, að það þótti varla
taka þvi fyrir stúlkur að ganga
menntaveginn, þær færu hvort
sem væri beint i hina öruggu höfn
hjónabandsins, eignuðust heimili
og börn og þar væri þeirra starf.
Vissulega er það starf, en ekki
ævistarf annars foreldris. Hvað
Kristín Árnadóttir
FRfl LANDS-
SAMBANDI
ALÞÝÐUFL0KKS-
KVENNA
Umsjón:
Kristín
Guðmundsdóttir
er það við konuna sem bendir
fremur á það, að hún eigi að
hugsa um börn og heimili en karl-
maðurinn? Ekkert, alls ekkert.
Þetta hefur bara verið hefð, sem
erfitt er að uppræta, en þetta ár
hefur bætt miklu þar um. Enn
fremur hafa breyttir timar
hjálpað nokkuð til.
Þótt eiginmenn nútimans hafi
yfirleitt ekki tekið fyrirvinnu-
metnaðinn i arf frá fyrirrennur-
unum, og „leyft” konunum að
fara út að vinna, þá er alveg
ömurlegt til þess að vita, hve
launamisréttið riður húsum. Það
er bláköld staðreynd, að konum
er boðið lægra kaup fyrir sömu
vinnu, jafnvel menntun er ekki
tekin tilgreina. Af hverju er aug-
lýst svo? „Vélritunar stúlka
óskast”, o.s.frv. Hvers vegna er
ekki ráðið i störf starfanna vegna
heldur kynferðisins vegna? A
þessu ári hefur máli þessu verið
hreyft og er það vel. Sennilega
eru kennarar eina starfsstéttin
þar sem algjört launajafnrétti
gildir, enda eru launin miðuð við
starfið sjálft, en ekki þann sem
innir það af hendi. Þannig ætti
þetta að vera á öllum sviðum.
Það er mikið fagnaðarefni að
konur skuli geta sýnt og sannað,
svo ekki verði um villzt, hvers
þær eru megnugar með kvenna-
friinu föstudaginn 24. okt. n.k. Er
afar ánægjulegt til þess að vita,
hve mikil samstaða hefur náðst
meðal kvenna og er þetta væntan-
lega upphafið að stórkostlegum
endurbótum. Með þessu frii getur
það ekki farið fram hjá neinum,
hve mikilvægar konur eru i fram-
vindu þjóðarbúsins. Væntanlega
sannast þá málshátturinn góði:
„Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur”.
Hugleiðingar á kvennaári
Kvennaári er senn að ljúka.
Margir verða eflaust fegnir,
einkum karlmennirnir. Sjálfsagt
finnst þeim ofraun að fórna heilu
ári i að vekja athygli á kjörum
kvenna. Þó að margir karlmenn
hafi lýst samstöðu sinni við bar-
áttu þeirra fyrir jafnrétti á öllum
sviðum i orði, kann svo að fara að
það verði eigi að borði og mega
konur búast við nokkurri baráttu
enn unz sigur fæst.
Hins vegar er ljóst að konur
hafa vaknað til meðvitundar um
þörf fyrir samstöðu. Það sýnir
hinn geysilegi áhugi þeirra fyrir
Sólveig Helga
Jónasdóttir
kvennafrideginum. Nú ris sú
bylgja samstöðu um sjálfsögð
réttindi alira kvenna, sem eigi
verður á móti risið og þó kvenna-
ári ljúki, hverfur eigi sú krafa
okkar allra að njóta fyllsta jafn-
réttis á vinnumarkaðinum.
Arangur kvennaárs hefur nú
þegar komið i ljós, þar sem
greinil. er að konur sjálfar hafa
vaknað til meðvitundar og
umhugsunarum það misrétti sem
margar kynsystur þeirra eru
beittar I launamálum.
Við, sem I dag leitum fyllsta
jafnréttis, hljótum að leiða
hugann til þeirra mörgu kvenna,
sem barizt hafa fyrir þeim rétt-
indum, sem viö njótum i dag og
nú finnast öllum sjálfsögð. Við
hljótum lika að lita fram á veginn
og hugleiða, hvernig við getum
komið þessum stefnumálum
okkar á kvennaári i framkvæmd.
Einungis með órofa samstöðu
mun okkur takast að ná þvi
markmiði I jafnréttismálum sem
við höfum sett okkur.
Undanfarnar vikur hefur undir-
búningur kvennafridags verið i
fullum gangi. Kvennafridagurinn
á Islandi er óneitanlega það sem
hæst ber á árinu. Þá munu konur
um land allt sýna samstöðu si'na
með þátttöku i útifundum. A
Lækjartorgi fjölmenna konur tn
að undirstrika þetta og er ég þess
fullviss að þessi fundur verður
einn sá fjölmennasti, sem þar
hefur verið haldinn.
Nú er kvennaaár - guð hjálpi okkur konum næsta ár!
Nú er margumtalað kvennaár
aö renna sitt skeið á enda, og er
það vel, vilja margir segja. Það
er e.t.v. erfitt að sjá, að neitt stór-
kostlegt hafi gerzt á þessu ári
umfram önnur ár, en hvað um
það, öll nótt er ekki úti enn.
Oft hefur mér hitnað i hamsi,
þegar ég hef orðið vör við að kona
hafi hlotið einhvern heiðurssess,
að mati karla, þá hefur alltaf
fylgt með, að það væri vel til
Svala Ivarsdóttir
fundið nú á þessu kvennaári, með
umburðarlyndum tóni, ekki eins
og hún hafi átt það skilið vegna
eigin verðleika eða manngildis.
Nei, nú er kvennaár. — Guð
hjálpi okkur konum næsta ár.
Hugsið ykkur, kona kom til tals,
er rætt var um friðarverðlaun
Nóbels i ár, móðir Theresa.
Skyldu þeir háu herrar muna eftir
henni næsta ár, við skulum vona
það, hún á það skilið hvaða ár
sem er.
Svo er kvennafri á kvennaári.
— Ég tel grinlaust, að islenzkar
konur séu að framkvæma stór-
sögulegan atburð hér á eina land-
inu i heiminum, sem framfylgir
þvi, sem upphaflega var áætlað.
Ég persónulega styð þetta fri,
ekki af þvi að ég hafi yfir svo
mörgu að kvarta á minu lifs-
hlaupi, en ég geri mér ljóst, að
aðrar konur lifa við erfið kjör, svo
sem einstæðar mæður, ekkjur og
þær konur, sem eiga heilsulausa
menn. Þessar konur verða að
vinna tvöfaldan vinnudag til að
framfleyta sér og sinum. Þær
hafa litla möguleika til að finna
sér starf, þar sem þær fá sömu
laun og karlmaður annars fengi,
jafnvel þótt þær séu færar til
starfsins.
Vinnuveitandi hefur sagt I min
eyru, að hann vildi heldur konu i
ákveðið starf, þvi að þá væri frek-
ar möguleiki til að halda launun-
um niðri. — Erþetta eins og það á
að vera, samkv. lögum? Hverjum
finnst það? — Er það rétt afstaða,
að í starf, sem einungis karlmenn
hafa verið i, komi slðan kona,
sem sett er sex launaflokkum
neðar en þeir höfðu i sama starfi.
Afhverju var þaðgert? — Jú, það
er kona. — Kona situr á milli
tveggja karla og gegnir ekki siður
mikilvægu starfi en þeir, hrein-
lega matar þá I sinu starfi, annar
karlinner i 21. lfl. hinn I 24. lfl., en
hvar skyldi hún hafa verð sett, jú,
i 16. lfl. og hefur meiri menntun
en þeir báðir til samans. — Svona
mætti lengi telja.
Ég vil, að þar sem konur geta
starfað við hlið karlmanna og
unnið eins vel, fái þær skil-
yrðislaust sömu laun og að hús-
móðurstarfið sé virt á vinnu-
Konur eru of ragar og ósjálfstæðar í atvinnulífinu
Jónfna
Gissurardóttir
Ég tel stöðu konunnar hér á
landi ágæta. Konan þarf ekki að
kvarta um misrétti á vel flestum
sviðum þjóðlifsins i dag. Aðstaða
karls og konu til menntunar er
jöfn og frjálsræði konunnar er
mikið.
Allflestar konur nú á timum
ráöa hvort þær vinna innan
veggja heimilisins eða utan
þeirra. Segja má, að fyrst og
fremst sé hægt að tala um mis-
rétti kynjanna þegar út i atvinnu-
lifið er komið. Ekki skal ég leggja
dóm á það, hverjum sé um að
kenna, en hrædd er ég um að
konan eigi þar nokkra sök.
Margar konur sækja um illa laun-
aða vinnu, þær eru ragar og
ósjálfstæðar og treysta sér ekki i
ábyrgðarstörf. Þannig fer þvi
oftast, þegar að stöðuhækkunum
kemur innan fyrirtækja, og þá að
sjálfsögðu launahækkunum, að
karlmaðurinn fær hækkunina.
Það er einnig mjög algengt að
fólki I sama eða svipuðu starfi sé
mismunað. Karlmaðurinn fær þá
eitthvert stöðuheiti, sem hækkar
hann upp um nokkra launaflokka,
eða honum er greiddur mismun-
urinn „undir borðið,” — hann
ræður sig nefnilega ekki nema
upp á „mannsæmandi laun”.
Hvað með konuna? Situr hún
bara eftir með sárt ennið og
þegir? Það gerir hún þvi miður
allt of oft. Konur kvarta of mikið
sin á milli, þar sem þær brestur
kjark til að taka málið föstum
tökum og fá leiðréttingu mála
sinna.
Aukinn skilningur ekki siður en
aukin tækifæri konunnar til
menntunar kemur til með að brúa
þetta bil misréttis, sem enn er á
milli kynjanna hvað þetta mál
varbar.
angarnir
markaði sem starfsreynsla, þar
sem það á við.
Samstaða meðal kvenna, i
þessu kvennafrii, virðist ætla að
vera meiri en björtustu vonir
leyfðu, en ég vildi óska að sam-
staðan héldist lengur en þennan
eina dag og að þær konur, sem
fara út á vinnumarkaðinn, þegar
þær eru búnar að koma upp sin-
um börnum, hætti að láta sér i
léttu rúmi liggja hvaða laun þeim
eru boðin, hreinlega láti undir-
bjóða sig, aðeins af þvi, að þær
þurfa raunverulega litið, fara
aðeins að vinna sér til afþreying-
ar og fyrir vasapeningum, frekar
en af fjárhagsþörfum. Með þvi
skaða þæraðstöðu þeirra kvenna,
sem þurfa að vinna fyrir sinu
daglega brauði.
Konur, stöndum sjálfar vörð
um hagsmuni okkar, aðrir gera
það ekki.
Niisím lif
PLASTPQKAVERKSMIOJA
SW 82A39-82455
Vatnagðifam 6
Boi 4064 - (Uykjavik
Pfpulagnir 82208
Tökum að okkur alla
pipulagningavinnu
Oddur AAöller
löggildur
pipulagningameistari
74717.
Hafnarfjaröar Apótek
Afgreiðslutimi:
Virka daga kl. 9-18.30
'Laugardaga kl. 10-12.30.
Helgidaga kl. 11-12
Eftir lokun:
Upplýsingaslmi 51600.
Birgir Thorberg
málarameistari simi 11463
önnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul húsgögn
Teppahreinsun
Hreinsum gólfteppi og húsgögn I
heimahúsuni og fyrirtækjum.
Eruin meö nýjar vélar. Góö þjón-
usta. Vanir menn.
SIGFÚS BIRGIR
82296 40491
Útvarps.og
sjónvarpsviðgerðir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aöra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERDIR
Skúlagötu 26 —
simi 11740.
Nylon-húðun
Húðun á malmum með
RILSAN-NYL0N II
Nælonhúðun h.f.
Vesturvör 26
Kópavogi — sími 43070
: ff Kaskttuiönaöur og éspilun, \\ 11 fyrir útgcfendur hljómsveitir, V 11 kóra og fl. Laitiö tilboða. I \\ Mifa-tónbönd Akurayri JJ \vPÓSttl. 631. Sími (96)22136 ZJ Dúnn í GlflEflBflE /ími 04900
i-ÞÉ TTILISTINN -------i--
-LISTINN ER Lo-
nngreyptur og '?
tolir alla veftráttu. M
r-LISTINN A:
itihurðir svalahurðir D
lijaraglugga og W
eltiglugga j==JT ^
MugsnmlOiwt L-'a_l_J