Alþýðublaðið - 24.10.1975, Síða 8
nújosca
tœkn í
Cungumá
Helmingun framlags til
Félagsstofnunar stúdenta
Með snældum (kassettum) og kennslubókum getur
nemandinn af eigin rammleik náð góðu valdi á
tungumálum með 10 — 15 mínútna daglegu námi í
3 — 6 mánuði. Hann þarf ekki aðra leiðsögn en
þá sem er að finna í námsgögnunum.
Nú eru á boðstólum:
Enska án erfiðlS: kennslubók, 3 snældur og íslensk þýðing.
Þýska án erflðlS: kennslubók, 3 snældur og íslensk býðing.
Spænska án erflðlS: kennslubók, 3 snældur og íslensk
býðing.
Sænska handa ykkur: kennslubók, æfingabók, 4 snældur
og íslensk býðing.
French without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Italian without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
Russian Wlthout toil: kennslubók á ensku og 3 snældur.
A fjárlögum þessa árs var
Félagsstofnun stúdenta úthlutað
7,5 milj. kr. Og i samræmi við þá
skerðingarstefnu sem rikis-
stjórnin hyggst beita Lánasjóð
isl. námsmanna, þá hefur
fjármálaráðherra gert ráð fyrir
þvi i nýframkomnu fjár-
lagafrumvarpi að stofnunin fái
7,H millj. króna á næsta ári. Þetta
þýðir i raun að framlagið er skert
um helming, ef miðað er við gildi
krónunnar i fyrra.
Námsmenn eru að vonum
óhemju kátir yfir þessu, þvi um
leið og námslánin eru skert um
helming eða meira, þá þarf
þjónustustofnun þeirra að hækka
aílt verðlag á þeirri þjónustu sem
hún veitir.
Þá er gert ráð fyrir þvi að
framlag Alþingis til hjónagarð-
anna standi í staðfrá þvi i fyrra ef
miðað er við krónutölu, en
minnkar um helming miðað við
raungildi. Stjórn Félagsstofnunar
fór þess á leit að fá 27 milljónir en
það er sú upphæð sem þarf til að
fullgera fyrsta áfanga, en þeirri
ósk var að engu sinnt. Framlag
Alþingis til hjónagarðanna er til-
komið á þann hátt, að á sinum
tima lofaði Alþingi að gefa sem
svaraði til andvirðis 10 ibúða i
hjónagörðunum. Þvi er fyrir-
sjáanlegt að ekki mun takast að
ljúka við þennan áfanga eins og
áætlað var.
Um úthlutunarreglur
námslána
Ennfremur eru á boðstólum bréfanámskeið
í ensku, þýsku, dönsku, spænsku, frönsku og
esperanto.
HEIMANÁM SEM HENTAR ÖLLUM
BRÉFASKÓLINN
Suöurlandsbraut 32 Reykjavík sími 81255
og kjör
t sambandi við alla þá umræðu
sem undanfarið hefur átt sér stað
um lánamál námsmanna er rétt
að greina frá þvi hvernig að út-
hlutun er staðið og hverra kjara
námsmenn njóta.
Stjórn Lánasjóðs islenzkra
námsmanna fjallar sérstaklega
um hverja umsókn,
ífthlutunarreglur eru i sem
stytztu máli þannig:
Frá tekjum námsmanns er
dreginn framfærslukostnaður
þess tima sem varið er við öflun
teknanna auk námstimans, allir
styrkir og óafturkræf framlög eru
reiknuð til tekna, siðan er tekið
tillit til tekna maka ef einhverjar
eru.
Undirrituö verkalýðsfélög árna íslenskum konum heilla á kvennadaginn, 24.
október, og óska þeim góös árangurs á þeim sérstæða baráttudegi.
Við tel jum einsýnt, að hið alþjóðlega kvennaár haf i þegar vakið til almennrar
umhugsunar um núverandi stöðu karla og kvenna á öllum sviðum þjóðlífsins
og leitt til mikilsverðrar hugarfarsbreytingar með þjóðinni. Nú riður á að
virkja þá hugarfarsbreytingu í raunhæfar aðgerðir til upprætingar öllu mis-
rétti og mismunun byggðri á kynferði, á næstu árum.
Sérstaklega vonum við, að konur gerist nú virkari í baráttu verkalýðsstéttar-
innar og samtaka alþýðunnar, sem alltaf hafa haft jaf nrétti allra þjóðfélags-
þegna ofarlega á sinni stefnuskrá.
Með þvi að leiða jafnréttiskröfu kvenna til farsælla lykta á næstu árum, er
þýðingarmikið skref stigið í áttina til þess f ramtíðarþjóðfélags, sem verka-
lýðshreyfingin hefur frá upphaf i barist fyrir. Jafnréttisbaráttan er því einn
þýðingarmesti liðurinn i baráttu verkalýðsins i dag.
Því skora félögin á allar konur, að taka virkan þátt i aðgerðum þessa dags —
24. október — sem þær f ramast geta og stuðla þannig að því að gera hann að
sannnefndum sigurdegi jafnréttisbaráttunnar.
Verslunarmannafélag
Reykjavíkur
Trésmiöafélag Reykjavíkur
Félag starfsfólks á
veitingahúsum
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Flugfreyjufélag íslands
Félag bifvélavirkja
Starfsstúlknafélagiö
Sókn
Hiö íslenska
prentarafélag
ASB, fél. afgreiðslustúlkna
í brauöa og mjólkurbúðum
Verkakvennafél.
Framsókn
Félag íslenskra
hljómlistarmanna
Með þessu er reiknuð út um-
framfjárþörf námsmanns og er
miðað við framfærslukostnað
sem reiknaður er út af Hagstofu
tslands. Siðan fær námsmaður
úthlutað úr sjóðnum þegar þessi
umreiknun hefur átt sér stað.
Námsmenn á fyrstu árum
náms sins fá 80% af þesssari um-
framfjárþörf en þeir sem lengra
eru komnir fá heldurmeira, þó fá
þeirekki alltsem þarf til viðbótar
til þess að geta dregið fram lifið,
að mati Hagstofunnar.
Framfærslukostnaðarútreikn-
ingarnir eru gerðir að hausti, en
féð kemur til úthlutunar í janúar
eða febrúar. Það gefur þvi auga
leið að útreiknaður framfærslu-
kostnaður er orðinn mun hærri
þegar féð kemst loks i hendur
námsmanns, i landi þar sem
verðbólgan er 50% á ári. Við þetta
bætist að útreikningar Hagstof-
unnar þykja námsmönnum nokk-
uð knappir. Þegar hér er komið
þá er námsmaðurinn búinn að fá
80% af þvi sem hann þarf til að
geta lifað. Afganginn verður hann
að útvega sér sjálfur.
Úthlutunarkerfið er heldur ekki
réttlátt. Þeir sem reyna að leggja
hart að sér við tekjuöflun, er
beinlinis refsað fyrir það með þvi,
að þær tekjur sem til umreiknings
koma eru hærri og þarafleiðandi
fær viðkomandi lægra lán.
Hinir sem ekki þurfa að vinna
(margir af riku foreldri) fá hærri
lán vegna þess að tekjurnar eru
litlar sem til umreiknings koma,
bilið milli umreiknaðra tekna og
umframfjárþarfar er meira og
þvi fá þeir há lán.
En vikjum nú að kjörum sem
námsmenn njóta. Það skal skýrt
tekið fram að hér er um að ræða
lán sem ber að endurgreiða, en
ekki styrki.
Lánin eru vaxtalaus meðan á
námi stendur, þegar lokapróf er
tekið falla á lánin 5% vextir. End-
urgreiðslur hefjast fimm árum
eftir að námi lýkur og skal endur-
greiðslu lokiö með jöfnum greiðl-
um á 15 árum.
Þetta eru vissulega góð kjör, en
engu að siður eru forsvarsmenn
nemenda i Stúdentaráði mótfalln-
ir þeim.
Til þess liggja eftirfarandi á-
stæður. Þessi góðu kjör eru notuð
til að réttlæta það að námslán ná
ekki 100% umframfjárþarfar, en
einmitt það atriði hefur valdið þvi
að allmargir hafa á undanförnum
árum orðið að hverfa frá námi af
þeim sökum. Stúdentaráð telur
ekki réttlætanlegt að námsmenn
njóti betrikjara en aðrir þeir sem
eiga sitt undir lánastofnunum
komið.
Fyrir tveimurárum lagði Stúd-
entaráð fram tillögur til úrbóta i
lánamálunum, það er ástæða til
að rifja þær upp efnislega hér.
Gert er ráð fyrir þvi að láns-
fjárhæð nái 100% umframfjár-
þarfar. Lánin verði tengd visitölu
þannig að Lánasjóðurinn fái til
baka raungildi þess fjár sem
hann lánar á hverjum tima. Með
þvi yrðu endurgreiðslur til sjóðs-
ins mun stærri tekjustofn heldur
en nú er. Endurgreiðslur til sjóðs-
ins verði i hlutfalli við tekjur lán-
þegans að'námi loknu. Með þessu
yrði tryggt, að þeir sem hæstu
lánin fá samkvæmt þvi kerfi sem
nú gildir myndu við þessar auknu
endurgreiðslukröfur forðast að
steypa sér i stórar skuldir og þvi
yrði meira til skiptanna handa
þeim sem raunverulega þurfa á
lánum að halda.
Einnig myndi vinnast það að
endurgreiðslur til sjóðsins kæmu
mun fyrr til baka heldur en eftir
núgildandi reglum.
Ef þessar tillögur sem koma frá
lánþegum sjálfum næðu fram að
ganga, þá yrði staða sjóðsins mun
betri en nú er, eigin tekjustofnar
hans yrðu mun sterkari og árlegt
framlag rlkissjóðs yrði lægra fyr-
ir bragðið.
Það sætir undrun að stjórnvöld
hafa ekki viljað fallast á þessar
tillögur enn sem komið er, og þvi
er það undarlegra að þessar
kjararýringartillögur koma frá
námsmönnum sjálfum.
Hér með er bent á þessa leið til
þess aö létta að nokkru leyti á-
hyggjum þeirra sem fjárlagagerð
stunda
/
Ir/ W-t
Mikið úrval
sængurgjafa
Nýkomin náttföt
nr. 20-22-24-26 - kr. 590,00
Hjá okkur fáið þér góðar vörur,
með miklum afslætti
Barnaf ataverzl u ni n
Rauðhetta
lönaöarmannahúsinu/
Hallveigarstíg 1 — Sími 28480.
Alþýðublaðið
Föstudagur 24. október 1975.