Alþýðublaðið - 04.11.1975, Síða 9

Alþýðublaðið - 04.11.1975, Síða 9
Sumir vissu ekki hvað nóta var í september, en leika nú léttilega á rafmagnsorgel Læra að leika á orgel sér og öðrum til ánægju Eins og allir vita hefur Hljóðfæraverzlun Poul Bernburg haft umboð fyrir hin kunnu hljóðfæri frá Japan, sem bera nafnið Yamaha. Vinsældir þessara hljóðfæra hafa aukizt svo mjög á síðustu árum, og þá sérstaklega rafmagns- orgelanna, að fyrirtæki Pouls fann sig knúið til að stofna skóla, svo fólk mætti læra að meðhöndla þau. Þess vegna heimsdtti blaðið Yamahaskólann við Vitastig, en honum er stjórnað af þjóð- kunnum vinsældarmanni, ólafi Þórðarsyni, sem var driffjöður í Riotrfóinu um árabil, en lærði tónmennt i leiðinni, þ.e.a.s. út- skrifaður söng- og tónlistar- kennarifrá Tónlistarskdlanum i Reykjavik með blessun Jóns Norðdal. Við heimsóttum þennan önd- vegisskólastjóra Yamaha- skólans, ólaf, í húsakynnum skólans og skoðuðum aðeins garnir og kvarnir hans. Hann var sama Ijúfmennskan og alltaf, rétt eins og hann ætlaði að fara að „troða upp” fyrir 1000 manns. Við spyrjum: — Hefur svona skóli þýðingu fyrir hljómlistar- unnendur? — ,,Já, að_ sjálfsögðu. Okkar markmið er að kenna fólki undirstöðuatriði i nótnalestri, þannig aö það geti notfært sér hin vinsælu orgel, sem það hefur keypt sér. Okkar kennsluaðferð er þannig, að við kennum fólki i hópum. Sumirspila i timanum, þessa vikuna, aðeins laglinu, en aðrir hljómana. Siðan vixlum við hiutverkunum, og þannig er haldið áfram uns öll heildin getur samaneða séri lagi leikið hið æfða lag.” — Hefur þú trú á svona kennsluaðferðum ? ” — Já, en að vlsu er hér um brautryðjendastarf að ræða, en í nágrannalöndunum okkar, þar sem slik kennsluaðferð hefur verið notuð um árabil er sýni- legur árangur aðferðarinnar.” — „Hefur skólinn verið vel sóttur?” „Vissulega, þar eð við höfum hér um 200 nemendur. Að visu mega menn skrópa i timum. Það er þeirra mál, en með sliku verða þeir bara á eftir hinum i náminu.” — „Hvers konar fólk sækir aðallega skólann?” „Fólk á aldrinum 8 til 60 ára. Vinnandi fólk, sem hefur ánægju af þvi að spila fyrir sjálft sig og jafnvel aðra. — „A hvaða tima fer kennsla fram hér hjá ykkur?” Hún fer aðallega fram seinni hluta dags, þegar aðrir skólar hafa hugað að öðrum nemum okkar og hinir nemar okkar hafa lokið brauðstriti dagsins.” — „Ólafur, skila nemendur árangri að þinu mati?” „Já, og það glettilega góðum sumir hverjir. Hér eru sumir, sem ekki vissu hvað nóta var i september, en geta nú Ieikið léttilega.” — „Hvernig finnst þér að kenna þinum orgelnem- endum?” „Það veitir mér mikla ánægju. Ég tala nú ekki um þá áhugasömustu. Nemendur eru mjög ánægðir við nám hérna' eftir þvi sem mér virðist.” — „Ólafur, heldur þú að skólinn eigi framtið fyrir sér?” „Tvimælalaust, og vonandi á hann eftir að stækka og dafna, þannig að við getum farið að kenna á fleiri hljóðfæri og þá auðvitað frá Yamaha.” — „Er það nokkuð að lokum, sem þú myndir vilja segja ykkur til ágætis”? „Það er þá helzt að taka það fram, að hér eru 12 vikna námskeið, og nemandinn getur haldið áfram næstu náms- annir, svo lengi sem hann hefur þol til. Haldi nemandinn námi sinu hér til enda, þá er aldrei að vita, nema að hann gæti leyst einhvern organistann af i einhverri kirkjunni i sumar- frii hans. Með mér kenna hér Bjarki Sveinbjörnsson og Halldór Gunnarsson, scm ég vil að komi fram, fyrst þið fenguð mig til þessa rabbs. Og að lokum sambúðin við yfir- boðarana er hin bezta eins og aðbúnaðurinn i húsakynnum skólans.” HP Skólameistarinn ólafur (Rió-triós) Þórðarson Úr tima — Hér leika allir við hvern sinn fingur.... Hvað er í JRDPICANA ? Engum sykri er bætt [ JRDPICANA Engum rotvarnar- efnum er bætt í JROPICANA Engum bragðefn- um er bætt í JRDPICANA Engum litarefnum er bætt í JRDPICANA JRDPICANA er hreinn appelsínusafi og í hverju glasi (200 grömm) af JROPIEANA* er: A-vftamfn 400 ae Bi-vftamln (Thlamfn) 0,18 mg B2-vftamfn (Riboflavln) 0,02 — B-vftamfnlS Nlacln 0,7 — C-vftamfn 90 — Jám 0,2 — Natrfum 2 — Kalfum 373 — Calcfum 18 — Fosfór 32 — Eggjahv.efni (proteln) 1,4 g Kolvetni 22 — Orka 90 he Fékkst þú þér JRDPICANA í morgun? Alþýðublaöið Þriðjudagur 4. nóvember 1975

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.