Alþýðublaðið - 18.11.1975, Blaðsíða 2
. $ Alþýðublaðið
AQV
^ Blaðburðarfólk
óskast til að bera
blaðið út
i eftirtaldar götur
Reykjavik: Háaleitisbraut,
Melahverfi
og Gerðin.
Hafið samband við afgreiðslu
blaðsins - Sfmi 14900
Erindreki
Stjórn Slysavarnafélags íslands hyggst
ráða mann i starf erindreka fyrir félagið.
Hann þarf helzt að hafa menntun og
reynslu, sem skipstjóri eða stýrimaður.
Umsóknir um starf þetta skulu sendast
stjórn SVFÍ fyrir 1. des. 1975.
ODYRT
Allt á gamla verðinu,
Vestis-sett á telpur st. 6—14.
Sið pils á telpur 6—14.
Telpnakjólar.
Telpnablússur.
Skipholti 5.
Okkur vantar
saumastúlkur
SOLIDO,
Bolholti 4, 4. hæö.
Starf stú I knafé lag ið
Sókn
Starfstúlknafélagið Sókn heldur almennan
félagsfund i Lindarbæ, niðri, miðviku-
daginn 19. nóv. 1975, kl. 8.30 eftir hádegi.
Fundarefni:
1. Uppsögn samninga.
2. önnur mál.
Mætið vel og stundvislega.
Stjórnin.
Ökum ekki utan vega -landvernd!
» ^
Árangursríkt þing
Alþýðuflokksins
36. þing Alþýðuf lokksins— aukaþing
— var háð í Reykjavík um siðustu helgi.
Þing þetta er í röð rismestu og ánægju-
legustu þinga, sem Alþýðuflokkurinn
hefur haldið. Þeim, sem þingið sátu,
verður það eftirminnilegt sakir þess
kraftmikla og jákvæða anda, sem ríkti
á þinginu. Þingið verður Alþýðuf lokkn-
um og jafnaðarstefnunni mikil lyfti-
stöng sakir þess árangurs, sem það náðl
og þeirrar hvatningar til framsóknar,
sem það varð Alþýðuf lokknum.
Auk þess sem þing þetta ræddi innri
mál Alþýðuflokksins og afgreiddi ný
flokkslög, sem mjög munu hvetja starf
flokksins og gera mun fleira fólk þátt-
takendur í stefnumótun á hans vegum,
þá var með eftirminnilegum hætti rætt
um bæði vandamál líðandi stundar í ís-
lenzkum þjóðmálum svo og framtíðar-
mið íslenzkrar jaf naðarstef nu. Um
vandamál líðandi stundar var fjallað í
umræðum um stjórnmálaályktun
þingsins og svo afgreidd ályktun, sem
markar að ýmsu leyti þáttaskil í ís-
lenzkum stjórnmálum þar eð í ályktun-
inni koma fram skýrar og afdráttar-
lausar tillögur um, hvernig eigi að
bregðast við ýmsum erfiðustu vanda-
málum efnahagslífsins í einstökum at-
riðum og því lýst yfir, að Alþýðuflokk-
urinn sé reiðubúinn til þess að ganga til
fylgis við slíkar aðgerðir á Alþingi. Það
er ekki oft, sem stjórnarandstöðuf lokk-
ur leggur fram svo skýr og afmörkuð
heildarstefnumið í efnahagsmálum
þjóðarinnar sem Alþýðuflokkurinn hef-
ur nú gert og eins og nú standa sakir er
hann eini stjórnmálaflokkurinn í land-
inu sem lagt hefur fyrir þjóðina
ákveðnar og skýrar tillögur um, hvern-
ig viðskuli bregðast, en eins og kunnugt
er hef ur jafnvel ríkisstjórnin enga slíka
heildarstefnu getað flutt þjóðinni.
Einkum og sér í lagi eru athyglisverðar
þær 10 tillögur þings Alþýðuflokksins
um, hvernig halda eigi á málum til þess
að skapa á ný traust á milli stjórnvalda
og verkalýðshreyf ingar, en að slíkt tak-
'ist er forsenda þess, að okkur geti orðið
eitthvað ágengt í þeim ef nahagsvanda,
sem nú er við að etja. I þessum tíu til-
lögurp er m.a. ákveðin tillaga um kerf-
isbreytingu skatta, um gagngera breyt-
ingu á niðurgreiðslukerf inu, um endur-
skoðun almannatryggingakerf isins, um
nýskipan lífeyrissjóðakerfisins þannig
að lögð verði meiri áherzla en nú er gert
á að tryggja kaupmátt lífeyris-
greiðslna, um sparnað f ríkisrekstri, um
ráðstafanir til þess að draga úr gjald-
eyriseyðslu, um breytingu á lausa-
skuldum vegna íbúðarkaupa í föst lán,
um endurkoðun verðlagsmála þar sem
sjálfvirkar verðhækkanir verði af-
numdar, um nýja vaxtapólitík og um
það, að opinberir starfsmenn fái fullan
samningsrétt og bændur semji við neyt-
endur um launakjör sín í stað hins
sjálfvirka verðákvörðunarkerfis á
landbúnaðaraf urðum.
En flokksþing Alþýðuf lokksins gerði
meira en að fjalla um vandamál líð-
andi stundar með þessum hætti. Það
fjallaði einnig um íslenzka jafnaðar-
stefnu og framtíðarmarkmið hennar.
Fyrir þinginu lá frumvarp að nýrri
grundvallarstef nuskrá fyrir Alþýðu-
flokkinn þar sem íslenzk jafnaðar-
stefna er skilgreind miðað við aðstæður
eins og þær eru í dag og flokknum
mörkuð stefna í einstökum þáttum
samfélagsmála. Þingið samþykkti
sjálfan inngang stefnuskrárinnar, sem
er nokkurs konar stjórnarskrá Alþýðu-
flokksins, og undirbjó lokaafgreiðslu
málefnastefnuskrárinnar, sem verður
svo gefin út í vetur og endanlega stað-
fest á næsta flokksþingi.
36. flokksþing Alþýðuflokksins var
því bæði starfsamt og árangursríkt þing
— eitt af jákvæðustu og beztu þingum í
sögu flokksins.
BLOÐIN
SEGJA
Eftirlitslaus verk-
taki og almenningur
borgar brúsann
Alþýöumaöurinn hefur það eftir
öruggum heimildum að verktaki
einn, sem vann hjá Orkustofnun
viö ákveðnar framkvæmdir við
Kröfluvirkjun sl. sumar, hafi ver-
ið látinn leika nokkuð lausum
hala, og hafi þvi átt nokkuð auð-
velt með að hagræða reikningum
ásamt úttekt á verkfærum og
efni, sem hann átti að leggja til
sjálfur en skrifað var á reikning
Orkustofnunar, og jafnvel bar
það við, að verktakinn endurseldi
svo öðrum aðilum. Þar sem verk-
takinn var heldur verkfæralítill
þurfti að kaupa dýr verkfæri til
verksins, allt var skrifað á Orku-
stofnun, sem verktakinn siðan
eignaði sér. Þá var það einnig al-
gengt, að allt að 500 litra bensin-
birgðir hurfu yfir eina helgi, en
það skal tekið fram, að aðeins var
ein bensinvél notuð á staðnum við
framkvæmdirnar og eyddi hún
10—12 litrum miðað við 10 klukku-
stunda vinnu. 1 matarkaupum
var ekkert til sparað og bar þá
lika við að sigarettur, gosdrykkir
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðiö verö.
Reynið viöskiptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
og jafnvel sælgæti var látið heita
matvörur á reikningum.
Þó keyrði um þverbak er allt að
10 bilaleigubilar voru i notkun i
einu og voru þeir þá ekkert siður
notaðir til einkaafnota svo sem til
skemmtiferða á kvöldin og um
helgar. Eftirlitsmaður frá Orku-
stofnun var á staðnum en er sagð-
ur ekkert hafa haft við þennan ó-
sóma að athuga og samþykkt alla
reikninga án þess að setja nokkuð
út á þá.
Þannig gekk þetta fyrir sig hjá
þessum verktaka við Kröfluvirkj-
un. Rikið greiddf reikningana, en
siðan borgar almenningur brú-
ann.
Aiþýöumaöurinn
Akureyri.
MUNIÐ að senda
HORNINU
nokkrar línur.
Utanáskrift:
HORNIÐ,
ritstjórn Alþýðublaðsins,
Síðumúla n, Reykjavik.
I ■■■ ITm *■ ■ ■ ■■ ■> ■'■ n 6
Alþyöublaðiö
á hvert heimili
!■■■■■■«.■■■■
Alþýðublaðiö
Þriðjudagur 18. nóvember 1975.