Alþýðublaðið - 18.11.1975, Síða 10
í HREINSKILNI SAGT
Flýttu þér að
tryggja!
Eitt tákn þeirra tima, sem viö lifum nú
eru tryggingar i einni eða annarri
mynd. Þetta er orðið flókið kerfi, sem
teygir anga sina um allan heim. Við get-
um verið nokkuð örugg um, að veröi tjón
hér á Islandi, sem tryggingar ná til,
muni þaðsnerta heila runu slikra félaga
og ef til vill enda, ef það endar þá ein-
hvers staðar,allt eins hjá andfætlingum
okkar i Ástraliu eða Nýja-Sjálandi.
Þetta er aðferðin við aö tryggja sjálfan
sig, vegna þess að menn hafa tryggt
aðra. Hér um að ræða alþjóðlega sam-
ábyrgð og er sannarlega ekki við þvi að
amast i annars sundruðum heimi.
Sennilega vörpum við flest öndinni
léttara þegar við höfum mannað okkur
upp, gengið á vit hinna háu herra, sem
annast tryggingarstarfsemina og mætt
einstakri elskusemi frá þeirra hálfu,
tekið við fagurlega prentuðu trygg-
ingarskjali og auðvitað borgað þetta
skitiri, sem það kostar aö tryggja sig
gegn einni eða annarri vá. En hvort við
getum nú verið alveg áhyggjulaus, að
þessu afrekuðu, er svo annað mál. Það
fer máske ekki sizt eftir þvi hvað, við
höfum lesið gaumgæfilega og gert okkur
grein fyrir þvi sem á bakhlið skirteinis-
ins stendur. Þar eru nefnilega slegnir
ýmsir varnaglar um það til hvaða þátta
tryggingin nær svo og um aðstæður sem
fyrir hendi þurfa að vera, til þess að
fjármunir séu i vasa ef óhapp ber að
höndum. Ekki ber að lasta það, að menn
þurfi að athuga sinn gang og gera sér
grein fyrir þvi hvað verið er að kaupa
þegar trygging er keypt. Það ætti að
vera metnaðarmál hvers og eins, að vita
hvaö hann eða hún eru að gera, hvað
ákvörðun i einu eða öðru máli, sem stað-
fest er með undirskrift.þýðir.
Við skulum ekkert vera að efast um
góðan vilja og allra sizt þá greiðasemi
og mannúð, sem auðvitað liggur til
grundvallar hjá þeim, sem taka trygg-
ingarnar að sér. Við skulum meira að
segja fagna þvi hve margir þeir eru,
sem eru fúsir — já alveg óðfúsir t.il að
veita okkur þessa lifsnauðsynlegu þjón-
ustu.
Fjöldi aðila, sem hafa þessa hluti með
höndum, sýnir þetta bezt. Þó við séum
litlir, er tryggingakerfið hér á landi
býsna viðamikið og fer vaxandi. Nýjasti
sproti á þeim meiði, viðlagatryggingin,
á nú að tryggja okkur gegn vá af nátt-
iJrygging
er nauðsyn”
úruhamförum, sem vel er á þessu
duttlungafulla landi. Þar meö eru nú
landsmenn i reynd samábyrgir gegn
tjónum hver annars. Hér er nauðsynja-
mál komið i framkvæmd fyrir alla,
nema þá máske sizt núverandi rikis-
stjórn, sem á þá óhægra með að
hremma til eigin eyðslu, hugsanlega
viðbót söluskattstiga, þegar þeirra er
ekki lengur þörf til að bæta tjón af nátt-
úruhamförum. En þaðer nú önnur saga.
Úr þvi verið er að minnast á þetta
mál, væri liklega ekki úr vegi að lita
snöggvastá einn þátt, sem hefur verið i
sviðsljósi undanfarið af eðlilegum
ástæðum — bilatryggingarnar. Auðvit-
að er bæði sjálfsagt og skylt, að tryggja
þessi farartæki, sem i senn geta valdið
gifurlegu tjóni og orðið fyrir fjárfreku
I
Eftir Odd A. Sigurjónsson
tjóni, ef óhöpp steðja að. Hér komum við
að þvi að gaumgæfa hugtak, sem æ fleiri
velta fyrir sér, ekki sizt vegna hinna tiðu
umferðaróhappa, er fara i vöxt. Hver er
réttur bileigenda, sem verða fyrir
umferöaróhappi, þar sem farartækið
skemmist meira eða minna? Lögreglan
er auðvitað kölluð á vettvang og hún
gefur skýrslu, sem tryggingarfélögin
þurfa að hafa i höndum, áður en tjón er
bætt — þó það nú væri. En siðan gerist
oft og einatt skrýtinn hlutur. Þegar hinn
tryggði gengur á vit tryggingarfélags
sins,tilþessaðfá tjóniðbætt, kemur æði
oft i ljós, að hann var nú eiginlega i ekki
svo litilli sök, þvertá móti þvi, sem hann
hafði grunaö! Af þessu leiðir svo, að
bætur þær sem hann fær eru stundum
lítið brot af tjóninu. Tjónið er nefnilega
hlutfallað niður milli hans og þess, sem
máske olli þvi. Hver hefur svo kveðiö
upp þann úrskurð? Nú auðvitað trygg-
ingarfélagið! Ef tjónþoli er ekki ánægð-
ur og lætur það i ljós, fær hann æði oft
þessa ágætu ráðleggingu. „Þú getur
auðvitað leitað réttar þins fyrir
dómstólunum”! ,,Þú ræður þvi hvort
þú sættir þig við þá ákvörðun eða
ekki. Málið er opið. Það getur reyndar
tekið eitt til tvö ár i stytzta lagi að reka
það fyrir dómstólum og svo veit enginn
hvernig dómur fellur! En þitt er að
velja”. Furðu margir sætta sig við slika
„úrskurði” enda vita allir hvernig fjár-
munir fara i 50% verðbólgu.
En er ekki timabært fyrir löggjafann,
að lita þó ekki væri nema hornauga á
þessa dómstóla” tryggingarfélaganna?
krataflokksins fyrir forseta-
kosningarnar i Bandarikjun-
um á næsta ári. Starfsmaður
kosningabaráttunnar segir
að þeir hafi sent Calley
þakkarbréf fyrir liðsboð
hans eins og hverjum öðrum
borgara, sem boðið hefur lið
sitt. Calley var dæmdur i 10
ára fangelsi árið 1971, en hef-
ur veriðmeira og minna laus
siðan.
Skothríö
Tveir lögregluþjónar i Köln l
Vestur-Þýzkalandi skutu og
drápu eftirlýstan mann, sem
hafði falið sig inni i fataskáp
á flótta undan vörðum lag-
anna. Þeir skutu 19 byssu-
kúlum gegn um skápinn.
Dómstóll sýknaði lögreglu-
þjónana af ákæru um hrotta-
skap og óþarfa manndráp
við handtöku, þar sem þeir
báru þvi við að þeir hafi
skotið i nauðvörn. Sá I fata-
skápnum hafi verið farinn að
svara fyrir sig með skotum á
móti.
Vilja
skilja
Rokk-stjarnan Gregg All-
man Friday hefur beðið um
skilnað við konu sina, Cher.
Þessi mynd var tekin þegar
allt lék i lyndi hjá þeim eftir-
ir átta daga hjúskap, en á ni-
unda degi varð rifrildi hjá
þeim og endaði með þvi að
þau óskuðu skilnaðar. Þau
náðu að visu saman aftur og
sættust, og hafa siðan lifað
tiltölulega friðsömu lifi i
fjóra mánuði, þar til Friday
óskaði nú eftir skilnaði frá
konu sinni, sem á sinum tima
var gift söngvaranum Sonny
Bono, og hefur siðar öðlazt
frægð sem sjálfstæð söng-
kona og hefur stjórnað sjón
varpsþætti við miklar vin-
sældir.
Sifellt hafa verið á lofti
sögusagnir um það að Sonny
og Cher hafi verið að hittast
aftur og verið með þeim
miklir kærleikar.
Blessaöur Maó
Kinverski leiðtoginn mikli,
Mao Tse Tung, sem nú er á
82. aldursári, hefur enn tekið
á móti erlendum þjóð-
höfðingja, er Ne Win, forseti
Burma var á ferð i Kina á
dögunum.
Góður liðsauki?
William Calley, sem kunnur
er fyrir það að hafa verið
ábyrgur fyrir morð á 22 sak-
lausum borgurum, þar á
meðal konum og börnum, i
My Lai i Vietnam árið 1968,
hefur nú lýst þvi yfir að hann
muni starfa fyrir George
Wallace i kosningabarátt-
unni um útnefningu demó-
FJalla-Fúsri
fc, OAU95YPdt>©
PÉ&W2. ÉGL LElöQáTTl
ST^FeoPS --PtLoPGJ
Alþýðublaöið
STJORNUBIÓ Sim.
Emmanuelle
selja, eða vanhagar um
Kostnaði að augiýsa?
- og svarar vart
Astfangnar konur
.Women in Love'
Mjög vel gerö og leikin, brezk
átakamikil kvikmynd, byggö
á einni af kunnustu skáldsög-
um hins umdeilda höfundar
S.H. Lawrence „Women in
Love”
Leikstjóri: Ken Hussell
Aöalhlutverk: Alan Hates,
Oliver Reed, Glenda Jackson,
Jennie Linden.
ÍSLENZKUR TEXTI
Bönnuö yngri en Iti ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bðóín
mmmnammmmmmmmmmmmmmamm
IÁSKÓLABÍÓ Slmi «,40
S.P.Y.S.
Einstaklega skemmtileg
brezk ádeilu- og gamanmynd
um njósnir stórþjóöanna.
Brezka háöiö hittir i mark i
þessari mynd.
Aöalhlutverk: Ponald Suther-
land, Elliott Gould.
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Slöasta sinn.
IlÝJA m s.mi 1.54»;
ÓNABÍÓ Slmi :il 1X2
lAFNARBÍÖ iimi 16444
Hörkuspennandi og fjörug ný
bandarisk litmynd um afrek
og ævintýri spæjaradrottning-
arinnar Sheba Baby sem leik-
in er af Pam (Coffy) Grier.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Bönnuö innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
■AU6ARASBÍÚ slmi~
Ævintýri
Meistara Jacobs
Sprenghlægileg ný frönsk
skopmynd meö ensku tali og
Islenskum texta. Mynd þessi
hefur allsstaöar fariö svo-
kallaöa sigurför og var sýnd
meö metaösókn bæöi i Evrópu
og Bandarikjunum sumariö
1974.
Aöalhlutverk: Luois Dc
Funes.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Ný karate-mynd i litum og
cinemascope meö
ÍSLENSKUM TEXTA
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 7 og 11.
Barnsránið
rsn
BLACh
WINDMILL
A UNIVERSAI. RELEASF
Bönnuö börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 9.
meö sama nafni eftir
Emmanuelle Arsan.
Leikstjóri’: Just Jackin.
Mynd þessi er allsstaöar sýnd
meö metaösókn um þessar
mundir i Evrópu og viöa.
AÖalhlutverk: Sylvia Kristell,
Alain Cuny, Marika Green.
Enskt tal.
ÍSLENZKUR TEXTI.
Stranglega bönnuö innan 16
ára.
Naín.skirteini.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Miöasalan opin frá kl. 3.
\YY
,ra
“'IS
ENGINN
ER ILLA SÉDUR,
SEN GEMCUR HED
ENDURSKINS
NERKI
Þá hefur Alþýðublaðið lausnina:
ÓKEYPIS SMÁAUGLÝSINGAR, sem er okkar
þjónusta við lesendur blaðsins.
Þriðjudagur 18. nóvember 1975.