Alþýðublaðið - 21.11.1975, Page 1
226. TBL. - 1975 - 56. ARG.
Island drógst á móti
Hollendingum N-írum
og Bretum í HM í knattspymu
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER
- íþróttasíða
Ritstjórn Sföumúla II - Slmi 81866
1 HVERNIG A
1 AÐ STANDA
1 Á SKAUTUM?
= ■ - sjá íþróttasíðu bls. 9
SAMIÐ VIÐ ÞJOÐVERJA
UM 60 ÞÚSUND TONN?
Náðst hefur samkomulag milli
islenzku viðræðunefndarinnar og
þeirrar vestur-þýzku um veiði-
heimildir fyrir vestur-þýzka tog-
ara innan fiskveiðilögsögunnar.
Mun Einar Ágústsson koma með
samningsuppkast heim með sér
og leggja það fyrir Alþingi mjög
fljótlega. Ráðherrann hefur ekk-
ert viljað láta eftir sér hafa um
efni samkomulagsins.
Alþýðublaðið hefur eftir örugg-
um heimildum, að samið hafi
verið við Vestur-Þjóðverja um 60
þús. tonna ársafla á islenzkum
miðum og mun þar fyrst og
fremst vera um að ræða ufsa og
karfa. Ekki er blaðinu kunnugt
um, hver svæðaskiptingin er i
samkomulaginu, eða hversu
langt inn fyrir 200 mflna linuna á
að hlcypa Þjóðverjum, en blaðið
hefur fregnað, að verksmiðjutog-
arar vcrði útilokaðir frá veiðun-
um. Þá munu einnig vera þau á-
kvæði i samningnum, að bókun 6 I
sáttmála islands við EBE verði
látin taka gildi.
Áramótagjöf
bankanna:
Tékka-
svik úr
sogunm
Innistæðulausir tékkar eru
fyrirbæri i islenzku þjóðlífi, sem
almenningur er farinn að kannast
nokkuð vel við. Af og til gera
bankarnir einhverja könnun á
fjölda og heildarupphæð þessara
gúmmitékka, sem svo hafa verið
nefndir. Upphæðirnar eru svim-
andi háar og hafa einstakir tékk-
ar af þessu tagi farið upp i átta
miljónir. Hinn almenni borgari,
sem er að berjast i bökkum við að
greiða skatta sina, húsaleigu,
fæði og klæði, auk alls annars
rekur upp stór augu og furðar sig
á þvi að svona lagað skuli geta átt
sér stað. Margur smælinginn hef-
ur reyndar þuft að borga álitlegar
fúlgur til Seðlabankans vegna
þess að hann fór óvart yfir á
reikningnum, kannski 5—20 þús-
und krónur. En svo fréttist af
þessum stóru, sem oftast birtast
þá i nafni fyrirtækja, sem þeir
reka, og þeir komast upp með að
spila á tékkakerfið. Þessir menn
skrifa einn gúmmitékkaá einn
banka til þess að greiða með
skuld I öðrum banka, siðan er nýr
gúmmitékki gefinn út á þann
banka til að greiða þann fyrri og
svo koll af kolli þar til forretn-
ingsmaðurinn hefur fengið aur.
Er þetta hægt, spyrja menn? Eða
er þetta ómaksins vert?
Alþýðublaðið snéri sér til
Einars Pálssonar hjá Reiknistofu
bankanna og spurði hann, hvort
þetta væri tilfellið, Einar Pálsson
sagði: ,,Við erum komnir það
langt núna, að það sem kemur inn
i bankana i dag af tékkum, það er
allt lesið vélrænt inn að kvöldi,
þannig að þetta liggur allt fyrir
daginn eftir. Þetta nær reyndar
ekki enn til alliabankanna, en er
sem sagt á dyraþrepinu. Við-
skiptabankarnir hér i Reykjavik
eru komnir inn i þetta kerfi, en
einstakir bankar úti á landi ekki
enn.”
Blm.: „Þetta er þá satt, að
vissir einstaklingar hafi verið að
leika sér með tékka á milli
banka?
SJÁ BLS. 3
Eftirlitsskipið Star Aquarius á ferð innan islenzkrar fiskveiðilögsögu i gær.
Ljósm.: HH.
Reyndu að sigla á Arvakur
Nú fer að færast harka i leikinn
á miðunum. I gærdag reyndi tog-
arinn Lord Jellicoe frá Hull að
sigla á varðskipið Arvakur út af
Vestfjörðum „en auðvitað án ár-
angurs”, eins og sagði i skeyti frá
skipinu. Arvakur er mun snarari i
snúningum og vék sér undan
itrekuðum ásiglingartilraunum
togarans.
Þessi lélegi árangur togarans
hljóp i skap skipstjóra hans, enda
sagði maðurinn ljótt og reyndi
itrekað áð koma fram ætlun sinni
i hálfa klukkustund.
1 fyrrinótt var skorið aftan úr
togaranum Benella frá Hull við
litinn fögnuð skipverja. Þetta
gerðist á miðunum norður og
austur af Langanesi.
TF-Sýr var i gæzlu- og könn-
unarflugi i gærdag. Um hádegi i
gærdag voru dráttarbátarnir
Polaris, Aquarius og Sirius . á
siglingu i einni röð á norðurleið,
austur af Langanesi og stefndi
fylkingin til 10 brezkra togara,
sem voru i hnapp um 30 milum
norðar, þar sem varðskip hélt
þeim að mestu frá veiðum. Um
kl. 16 i gærdag voru 5 brezkir tog-
arar á Þistilfjarðardjúpi og voru
verndarbátarnir þá komnir þang-
að til að passa. Aðeins einn
brezku togaranna áræddi að toga
og voru þvi sjö, sem slógu skjald-
borg um veiðiþjófinn, sem von-
andi heíur litið haft upp úr krafs-
inu. Allur þessi viðbúnaður staf-
aði af þvi að eitt varðskip var á
vappi i kring.
Landhelgisgæzlan taldi 43
brezka veiðiþjófa, og voru flestir
fyrir austan og héldu sig allt frá
Hvalbak og norður úr.
Þá voru 6 á Vestfjarðarmiðum,
en þeir stefndu allir austur nema
einn, og sá verður trúlega feginn
að halda austur, þvi ekki er senni-
legt að hann fái að vera lengi i
friði.
A eftirlitsfluginu i gær varð
ekki vart við neinn v-þýzkan tog-
ara frekar en verið hefur undan-
farna daga, enda staðið yfir við-
ræður i Bonn.
Lagmetið
Lárus
fyrir
dóm
Alþýðublaðið hafði samband
við Lárus Jónsson, alþm. og
stjórnanda Sölustofnunar lag-
metisins, i sambandi við meinta
stjórnunarlega óreiðu fyrirtækis-
ins. Sagði Lárus að eftir helgina
mundi stofnunin senda frá s^r
fréttatilkynningu um málið og i
framhaldi af þvi mundi verða
boðað til fundar með fréttamönn-
um.
All mikið umtal og skrif hafa
spunnizt um þetta mál, og mun
almenningi þvi væntanlega leika
forvitni á að vita, hvað þarna hef-
ur gerst. Spurningin núna er þvi
fyrst og fremst sú, hvernig Lárus
Jónsson tekur á þessum málum.
Ætlar hann að skýra satt og rétt
frá þvi, sem máli skiptir, eða er
málið það „flókið” að honum sé
það um megn. Eitt er vist, að al-
menningur mun ekki sætta sig við
venjulegt yfirklór. Lárus Jónsson
stendur þvi frammi fyrir hinum
almenná dómstóli þjóðarinnar.
Það yrði tvimælalaust mikill á-
litsauki fyrir hina lágt skrifuðu,
en umsvifamiklu stétt stjórn-
sýslu- og embættismanna, ef Lár-
us Jónsson kemur fram i þessu
máli af fullri einurð og af dreng-
skap.
Ármannsfell fær
gult Ijós á Hæð-
argarðsíbúðirnar
Bygginganefnd Reykjavikur
hefur nú heimilað Ármannsfelli
að hefja byrjunarframkvæmdir á
lóðinni á horni Grensásvegar og
Hæðargarðs. Hins vegar var
frestað að heimila þarna bygg-
ingu þeirra 23 ibúða þar til sam-
þykki heilbrigðisráðs liggur fyrir.
Ekki er til þess vitað að nokkur
tengsl séu milli heilbrigðisráðs og
fjársöfnunarnefndar Sjálfstæðis-
hússins, en eins og allir vita núna,
þá voru engin tengsl milli Alberts
Guðmundssonar formanns fjár-
öflunarnefndar og Alberts Guð-
Framhald á 11. siðu.
„ÞJ0ÐIN EIGI ISLAND ALLT"
sagði Bragi Sigurjónsson er hann mælti fyrir tillögunni um eignarráð á landi og landgæðum
Mér finnst, að grundvallar-
setning isienzku stjórnarskrár-
innar cigi að vera þessi: is-
lenzka þjóðin öll, einn fyrir alla
og allir fyrir einn, á ísland allt,
gögn þess og gæði, og miðin um-
liverfis það.
Æðsta stofnun þjóðarinnar,
Alþingi, fari með umráðarétt á
þessari helgu eign okkar, cn
getur með sérstökum lögum og
reglum veitt einstaklingum,
fyrirtækjum og félagsheildum,
eins og t.d. sveitarfélögum, til-
tekinn rétt til þessara gæða.
Þctta er kjarni þeirrar skoðun-
ar, sem þessari tillögu er ætlað
að gera f réttarkennd þjóðarinn-
ar, og afstaðan til þessarar
grunnskoðunar sker úr um það
að minu mati, hvort maður cr
félagshyggjum aður eða sér-
hyggjumaður. Þetta sagði
Bragi Sigurjónsson, er hann
mælti fyrir tillögu Alþýðu-
flokksmanna um eignarráð á
landi, gögnum þess og gæðum, á
fundi sameinaðs Alþingis i gær.
Mjög miklar umræður urðu
um tillöguna og tóku þátt i þeim
þingmennirnir Páll Pétursson,
Pálini Jónsson, Helgi Seljan,
Stefán Jónsson og Sighvatur
Björgvinsson, auk Braga Sigur-
jónssonar. Pálmi og Páll voru
alfarið á móti tillögumii, llclgi
Seljan samþykkur meginefni
hennar og Stefán Jónsson sömu-
leiðis, þótt hann lýsti þvi yfir, að
hann myndi ekki geta greitt til-
lögunni atkvæði sitt.
Nánar verður sagt frá um-
ræðunum uin þetta mál I Al-
þýðublaðinu á morgun.