Alþýðublaðið - 21.11.1975, Blaðsíða 2
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir október-
mánuð 1975, hafi hann ekki verið greiddur
i siðasta lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum sölu-
skatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eft-
ir eindaga uns þau eru orðin 10% en siðan
eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með
16. degi næsta mánaðar eftir eindaga.
F jár málar áðuney tið,
20. nóvember 1975.
Danski fiðluspilarinn EVALD THOMSEN
og HARDY sonur hans flytja gamla alþýð-
- lega danstónlist i Norræna húsinu laugar-
daginn 22. nóvember kl. 16:00 og einnig
þriðjudaginn 25. nóvember kl. 20:30.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Norræna húsið. Dansk-islenzka félagið.
Fi
LAUGARDAGUR
Li.OO
22/11 kl.
Gönguferð um Geldinganes.
Fararstjóri: Guðrún Þórðar-
dóttir. Verð kr. 500,- Farmiðar
við bilinn. Brottfararstaður
Umferðarmiðstöðin (að aust-
anverðu).
Ferðafélag tslands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugard. 22/11 kl. 13
Með Elliðaánum. Fararstj.
Friðrik Danielsson. Verð 400
kr.
Sunnud. 23/11 kl. 13
Með Hólmsá. Fararstj. Þog-
lzifur Guðmundsson. Verð 500
kr. Xritt fyrir börn i fylgd með
fulltorðnum. Brottfararstaður
B.S.f. (vestanverðu).
Utivist
t
Eiginmaður minn
Einar Magnússon,
verksmiðjustjóri,
S.R. á Seyðisfirði andaðist i Landspitalanum 19. þ.m.
Jarþrúöur Karlsdóttir.
lalþýdu
rnrni
RÖDD
JAFNADARSTEFNUNNAR
Verðstöðvun í kross
Þetta verðstöðvunarhjal is-
lenzkra stjórnvalda fer nú að verða
broslegt. Svokölluð verðstöðvun
hefur verið i gildi á íslandi siðan guð
veit hvenær, en rikisstjórn Ólafs
Jóhannessonar hóf hana einhvern
tima i stjórnartið sinni og siðan hef-
ur henni ekki verið aflétt. En þrátt
fyrir það, að þjóðin hafi búið við
samfellda ,,verðstöðvun” tveggja
rikisstjórna um nokkurra ára skeið
hefur óðaverðbólgan i landinu aldrei
verið meiri, en einmitt á þeirri tið.
Nú hefur viðskiptaráðherra,
Ólafur Jóhannesson, vaðið fram á
völlinn og tilkynnt með bægslagangi
miklum, að nú skuli sett verðstöðv-
un á verðstöðvunina. Frá og með
deginum i gær rikir sem sé tvöföld
verðstöðvun i landinu. Verðstöðvun
i kross.
Sú saga er sögð, að sveitamaður
nokkur endur fyrir löngu hafi eitt
sinn i kaupstaðarferð séð vindmyllu
og haft mörg og fögur orð um þetta
veraldarinnar viðundur þegar heim
kom. Forvitið heimafólk bað karl
um nákvæma lýsingu á þessu
merkilega apparati og hljóðaði lýs-
ingin svo hjá kalli:
,,Fyrst er spýta og svo er spýta og
svo er spýta i kross/ svo er spýta og
svo er spýta og svo spýta langs/ svo
er spýta og svo er spýta og svo er
spýta þvers/ svo er spýta og svo er
spýta — og svo fer allt i gang.”
Með þessum orðum karlsins
mætti lýsa ráðstöfunum tveggja
rikistjórna i verðlagsmálum íslend-
inga: „Fyrst er verðstöðvun, svo er
verðstöðvun og svo er verðstöðvun i
kross/ svo er verðstöðvun og svo er
verðstöðvun og svo er verðstöðvun
langs/ svo er verðstöðvun og svo er
verðstöðvun langs/svo er verð-
stöðvun og svo er verðstöðvun og
svo er verðstöðvun þvers/ svo er
verðstöðvun og svo er verðstöðvun
— og samt fer allt i gang”.
Sjálfstæðið að veði
í fréttum sjónvarpsins i fyrra-
kvöld var rætt við Kjartan Jóhanns-
son, varaformann Alþýðuflokksins,
um þing Alþýðuflokksins, sem háð
var um sl. helgi. í viðtalinu ræddi
Kjartan m.a. um ábyrgðarleysi
stjórnvalda i efnahagsmálum
þjóðarbúsins, sem m.a. lýsir sér i
sifelldum skuldasöfnunum erlendis,-
en skuldir þjóðarinnar i erlendum
gjaldeyri hafa meira en tvöfaldast á
sl. fjórum árum. Hafa bæði
núverandi og fyrrverandi rikis-
stjórnir haft þann sið að slá ekki
aðeins fjárfestingarlán hjá erlend-
um bönkum, heldur eyðslulán lika
og er skuldabyrði þjóðarinnar er-
lendis nú orðin svo þung, að efna-
hagslegit sjálfstæði ei' i hættu
Kjartan Jóhannsson tók skýrt og
ljóst dæmi um, hvaða afleiðingar
þessar skuldasafnanir geti haft fyrir
sjálfstæði islenzku þjóðarinnar.
Þegar einstaklingar taka sér lán
þurfa þeir að leggja eitthvað að
veði, gjarna fasteignir, sem þeir
eiga — og hætta þá á það að missa
yfirráðaréttinn yfir eignum sinum
geti þeir ekki staðið i skilum. Þegar
ráðamenn þjóðarinnar taka erlend
lán i hennar nafni setja þeir með
sama hætti þjóðarbúið að veði. Og
eigi þeir siðan erfitt með að standa i
skilum lendir meira og meira af
efnahagslegu forræði þjóðarbúsins i
höndum erlendra bankastjóra. Þess
eru meira að segja dæmi,
að sjálfstæð þjóðriki hafi glatað sjálf
stæði sinu með þessum hætti. Og það
er einmitt áhætta af þessu tagi, sem
tvær islenzkar rikisstjórnir hafa
verið að taka með ábyrgðarlausum
skuldasöfnunum erlendis. Veðið
fyrir þessum skuldum er efnahags-
legt og pólitiskt sjálfstæði þjóðar-
innar og svo langt hefur verið seilst
að veðið — sjálfsforræði þjóðarinnar
er i hættu.
Menntaskóla
bókin
Um tíma var hann „landsins einasti skóli" og bar
lengi ægishjálm yfir aðra skóla. Hann er tengiliður
menntasetranna fornu og skólastarfs nútímans.
I fyrsta bindi Sögu Reykjavikurskóla er fjallað um nám
og námsskipan i skólanum og um nemendur hans.
Aldrei áður hefur birzt slíkt safn mynda af þekktu
fólki í þjóðlífinu.
Verð þessa bindis er kr. 5.880, en verð til áskrifenda
er aðeins kr. 4.410.
Gerizt áskrifendur að þessu einstæða verki og vitjið
þess á skrifstolu Menningarsjóðs að Skálholtsstig 7.
Sögusjóður Menntaskólans í Reykjavík
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
Alþýðublaðið
Föstudagur 21. nóvember 1975.