Alþýðublaðið - 21.11.1975, Side 7
ÞUSUND ÞJALA SMIÐURINN
Það er ekki gott að fá viðtal við
Árna Elfar þessa dagana. Hann
er sifellt á þönum, enda hefur
maðurinn i mörg horn að lita.
Árni var að koma af æfingu hjá
Sinfóniuhljómsveitinni, þegar við
náðum að króa hann af i gær-
morgun.
— Hvað ertu með undir hend-
inni, Árni?
Þetta er þriðja bókin hans
Flosa ólafssonar. Ég mynd-
skreytti hinar tvær, svo það varð
úr, að ég krotaði i þessa lika.
— Er það ekki algengt, að
menn skrifi þrjár bækur og siðan
ekki meira?
— Nei, Flosi er ekki sú mann-
gerð, sem skrifar aðeins þrjár
bækur. Þetta verður jólabókin i
ár, sannaðu til.
— Eigum við ekki að skutla þér
heim? Við getum talaið við þig á
leiðinni, ekki satt?
Það er ágætt, takk. Þegar ég
bjó á Baldursgötunni átti ég bil,
en siðan ég fluttist með mig og
C3
Sjálfsmynd
kar hurð-
ING ER FYRIR DLLU
ðum og lausum gluggum verður varla betur gerð, —
jjarfnast ekki sérútfærslu við framleiðsluaðferð glugg-
mina i Garðahreppinn höfum við
gengið.
Árni kemur við i prentsmiðj-
unni með frumprentun á bók
Flosa, þar næst er haldið i Garða-
hreppinn.
— Hvað á þessi bók ykkar
Flosa að heita, Arni?
— Leikið lausum hala. Já,
Leikið lausum hala. Þetta er ljóð-
rænt og músikalskt, finnst ykkur
ekki?
— Jú, jú, en við ætluðum að
tala við þig sem húsbyggjanda i
dag.
— Hvað segið þið, og enginn
ljósmyndari með i förinni? Nei,
slikt verður að ljósmynda og fyrst
verður að taka til á heimilinu. Við
skulum taka slikt fyrir næst. Ég
læt ykkur fá myndir úr bókinni
hans Flosa, það er ,,up to date”.
Maður er alla ævi að byggja hús.
Uss, nógur timi til að ræða slikt,
sussu já.
Ferðin gengur greitt suður eftir
og við beygjum inn i Móaflöt.
Árni fer út úr bilnum en lætur
okkur eftir tvær myndir áður en
hann kveður.
— Þakka þér fyrir Árni.
Við höfum það viðtal næst en
endursögn og skáldskap núna.
Þið breytið hvort eð er öllu eftir
ykkar höfði, þessir blaðasnápar.
Það var ekki hægt að toga
meira upp úr Árna i þetta sinn.
En hann kom bókinni góðu á
framfæri og léði okkur myndir.
Á öllum heimilum eru bækur i
skápum, þannig að þetta á erindi
til allra. Þó munum við i annað
sinn ná betra tali af Árna. Hann
hefur gert margt um dagana og
er mjög iðinn við smiðar og list-
sköpun. Fyrir utan áralanga setu
i Sinfóniuhljómsveit tslands, hef-
ur hann leikið i danshljómsveit-
um og jasshljómsveitum allt
fram á þennan dag, bæði hérlend-
is og utanlands. Það væri efni i
heiia Flosabók að segja frá öllu
þvi fræga listafólki, sem hann
hefur leikið með og aðstoðar.
Árni hefur mótað i leir, skorið
út, teiknað og málað. Hin siðari
ár hefur hann skreytt margar
bækur með myndum sinum. Þar
eru bækur Flosa, ljóðabók eftir
Hannes Pétursson svo eitthvað sé
nefnt.
Hann hefur auk þess byggt sitt
fallega hús i Garðahreppnum og
það var einmitt við trésmiðinn,
múrarameistarann og bygginga-
meistarann Árna Elfar, sem við
ætluðum að tala.
Næst er við sjáum hann ætlum
við að gá fyrst, hvort hann er með
eitthvað undir hendinn og hafa
ljósmyndara með i förinni.
—SHP
angarnir
PéGlER
' öAuobREvrruo
A ÞESSUM LSfc-
, VELU • U #12
G-EÍLIST ALOttS/
Otvarps.og
sjónvarpsviðgeröir
Kvöld og helg-
arþjónusta.
10% afsláttur til
öryrkja og aldr-
aöra.
SJÓNVARPS-
VIÐGERÐIR
Skúlagötu 26 —
simi 11740.
K0STAB0Ð
á kjarapöllum
KJÖT 8t FISKUR
Breiðholti
Siini 74200 — 74201
DúnA
í GlflEIIBflE
/ími 64900
T-þé ttilistinnI ’rv—|
T-LISTINN ER
imgreyptur og
þclir alla veðráttu. 1 LR;,
T LISTINN Á: úl ihurðir svalahurðir J J'
hjaraglugga og w
xeltiglugga
GluggasmiOlan Uftumúto 70 - Sim, 38770 l . .