Alþýðublaðið - 21.11.1975, Page 9
íslendingar í riðli með Belgum
Hollendingum og Norður-írum!
Undankeppni HM í knattspyrnu: Svo til sami riðill og síðast
„Ég er stóránægður með þau
lið, sem við drógumst á móti,
þótt þvi sé ekki að neita að
skemmtilegast hefði verið að fá
Englendingana,” sagði Jón Pét-
ursson, hinn eitilharði mið-
vörður Fram og bakvörður
landsliðsins, þegar við sögðum
honum frá þvi, hvaða lið Island
muni koma til með að leika i
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar. íslendingar munu
leika i 4. riðli Evrópuriðils
ásamt Hollendingum, Belgum
og Norður-lrum.
„Siðast fengum við Hollend-
inga, Belga og Noreg svo það er
ekki mikil breyting. bá lékum
við báða leikina við Belga og
Hollendinga erlendis, en mun-
um ábyggilega notfæra okkur
heimaleikina að þessu sinni.
bað er heldur ekki dónalegt að
fá Norður-íra, sem hafa innan
sinna vébanda nokkra af beztu
leikmönnum ensku knattspyrn-
unnar, eins og markvörðinn
snjalla hjá Tottenham, Pat
Jennings, Sammy Mcllroy hjá
Manchester United, Hunter hjá
Ipswich, og hver veit nema
knattspyrnusnillingurinn
George Best, sem nii hefur ný-
lega hafið knattspyrnuiðkun á
nýjan leik, komi til með að leika
með Irunum, þegar við leikum
við þá. bað er varla hægt að
vera vonsvikinn yfir þessum
drætti. Allt eru þetta meðal
beztu knattspyrnuþjóða Evrópu
og verður gaman að kljást við
leikmenn þessara landa. bá
verður einnig gaman fyrir is-
lenzka knattspyrnuáhangendur1
að sjá Cryuff og Neeskens á
Laugardalsvellinum,” sagði
Jón að lokum.
Við getum tekið undir þessi
orð Jóns, það verður gaman að
sjá silfurlið siðustu heimsmeist-
arakeppni, Holland, og hina
snjöllu leikmenn Norður-
Irlands, og Belgiu á laugardals-
vellinum á næstu árum. Annars
er riðlaskiptingin, sem hér seg-
ir:
Riðill 1. Pólland, Portúgal, Dan-
mörk og Kýpur.
Riðill 2. Italia, England, Finn-
land og Luxemborg.
Riðill 3. A-býzkaland, Austur-
riki, Tyrkland og Malta.
Riðill 4. Holland, Belgia, Norður-
írland og tsland.
Riðill 5. Búlgaria, Frakkland og
Irland.
Riðill 6. Sviþjóð, Sviss og Nor-
egur.
Riðill 7. Skotland, Tékkó-
slóvakia og Wales.
Riðill 8. Júgóslavia, Spánn og
Rúmenia.
Riðill 9. Rússland, Ungverja-
land og Grikkland.
Af öðrum riðlum keppninnar
fá Englendingar harða keppi-
nauta þar sem Italia er. Má bú-
ast við að baráttan milli þessara
landa verði geysileg i þeim riðli.
11. riðlinum verður baráttan ef-
laust milli Póllands og Portú-
gals. I 3. riðlinum er A-býzka-
land sigurstranglegast. Holland
er eflaust álitið eiga mestu
möguleika i okkar riðli. Barátt-
an i 5. riðli verður jöfn og spenn-
andi. Sviþjóð á vafalaust mikla
möguleika i 6. riðli. I 7. riðlinum
verður ábyggilega geysileg bar-
átta, og sama má segja um 8.
riðilinn. Sovétrikin og Ung-
verjaland berjast um Argen-
tinuferðina i 9. riðlinum, en
sigurvegarar i þeim riðli verða
að leika aukaleik um Argentinu-
ferð við 3. riðil Suður-Ameriku.
Jón Pétursson, hinn eitilharði
varnarmaður landsliðsins og
Fram, var ánægður með mót-
herjana, þótt hann hefði helzt
viljað Englendinga.
Að standa
á skautum
Marga Iangar til að vita,
hvort þeir séu of gamlir til að
læra á skautum og aðra, hvenær
megi láta börnin byrja námið.
Nú getum við átt von á þvi, að
Tjörnina leggi og skautatiminn
hefjist. Niræður öldungur getur
haft sömu ánægju af að hlaupa á
skautum og byrjandi, ef til vill
meiri.
bað er ekkert athugavert við
að fara með ung börn á skauta,
ef fyllstu athygli er gætt.
Ung hjón fóru i fyrra með árs-
gamlan son sinn á skauta. Að
vísu var skautaferðin sú þannig,
að þau héldu i handleggi hans og
studdu hann áfram, en aðalatr-
iðiö var, að barnið skemmti sér
hið bezta.
bað er ekki erfitt að læra á
skautum. bað er álika auðvelt
og læra að ganga.
Farið gætilega i fyrstu og
styðjið ykkur við vin eða kunn-
ingja. Réttið úr bakinu, þvi það
er mjög mikilvægt að standa
rétt á skautum.
Svo hefst skautaferðin. Réttið
út handleggina til að auka jafn-
vægið beygið ykkur i hnjánum
og ýtið skautunum áfram.
Skautarnir hreyfast. begar um
það bil hálfur metri er milli fót-
anna á að beina tánum saman
og færa fæturna hvorn að öðr-
um.
Sé þetta endurtekið þokastu
áfram á ísnum. Eftir að þú hefur
æft þig vandlega á þessari
hreyfingu skaltu færa hælana
hvorn frá öðrunt og ýta þér
aftur á bak. betta er auðveld-
asta leiðin til að læra að skauta
aftur á bak.
begar þú hefur lært að skauta
á báðunt fótum.skaltu reyna að
skauta á öðrum fæti i einu, en
þaö gerirðu með þvi að skipta si
fellt um fót. Réttu út handlegg-
ina til að halda jafnvæginu og
færðu fæturna ekki of langt
hvorn frá öðrum — stattu ekki
gleiðfættur.
Nú getið þið liðið yfir isinn,
vinstri fóturinn á að vera bog-
inn. en teygt aftur úr þeim
hægri meðan þið liðið áfram á
vinstri skautanum. bega skipt
er yfir á hægri fót, er lianu dreg-
inn að þeim vinstri, beygður og
teygt úr vinstra fæti.
Staða likamans skiptir mestu
máli, ef farið cr á skauta. bú
getur skautað beint, ef þú getur
gengið beinn. bað er hvorki
nauðsynlegt né æskilegt að haila
sér aftur á bak og belgja út
magann til að halda jafnvæginu.
bað er ekki heldur nauðsvnlegt
að halla sér fram likt og herskip
klifur öldurnar.
Eitt er það enn, sem fólk þarf
að læra — að detta. bað detta
allir á skautum, annað livort
vegna þess, að þeir eru að byrja
að læra eða vegna þcss, að þeir
eru að gera eitthvað erfiðara en
þeir hafa áður gert. Skauta-
menn meiðast sjaldan illilega
nema þeir hnipri sig saman af
skelfingu i fallinu.
iprcttir
Ekkert félagslið
státar af jafn-
góðum árangri
og Gumm-
ersbach
í kvöld kemur til lands-
ins v-þýzka handknatt-
leiksliðið V.F.L.
Gummersbach, sem leikur
á laugardaginn við ís-
iandsmeistarana, Víking, í
I. umferð Evrópukeppni
meistaraliða. Gummers-
bach er sjálfsagt óþarfi að
kynna fyrir handknatt-
leiksáhangendum, því fé-
lagið er löngu orðið frægt
um allaEvrópu. Þeir hafa
orðið f jórum sinnum sigur-
vegararí Evrópukeppninni
og í tvígang leikið i úrslit-
um.
Athyglisverðast við þennan ár-
angur liðsins er sá að félagið hef-
ur unnið þennan árangur á sið-
ustu 8 árum, svo segja má að fé-
lagið lifi ekki aðeins á fornri
frægð heldur þykja miklar likur á
þvi að félagið verði enn einu sinni
i baráttu um þennan eftirsóttasta
titil, sem handknattleikslið getur
óskað sér. Liðið hefur einu sinni
áður leikið á islenzkri grund, og
var það gegn Val, árið 1973. Þann
leik unnu V-Þjóðverjarnir með
einu marki 11:10, og var sigur-
mark þeirra gert nokkrum
sekúndum fyrir leikslok. Valur
stóð sig mjög vel i þessum leik og
var nokkuð óheppið að tapa leikn-
um. Leikinn i Þýzkalandi unnu
þeir siðan með 7 marka mun,
9:16.
Um möguleika Vikings gegn
þessum jötnum er erfitt að spá,
en eitt er vist, að ef Vikingur nær
góðum leik, eins og vitað er að fé-
lagið getur leikið, og markvarzl-
an sömuleiðis, er ekki nokkur vafi
á þvi að leikurinn getur orðið jafn
og spennandi. Vikingarnir mega
passa sig á þvi að láta Hansa
Schmidt og Co, ekki espa sig upp.
þvi þau eru ófá liðin, sem þeir
hafa náð tökum á vegna ertni og
striðni.
Leikurinn Vikingur
Gummersbach hefst á laugar-
daginn kl. 15. Forsala á leikinn
hófst i tjaldi við Útvegsbankann i
gær. 1 dag föstudag verður henni
haldið áfram milli kl. 11.30 og 14
og frá 16 til 19. Einnig verður for-
sala i Laugardalshöllinni á föstu-
dag milli kl. 17 til 19. og á laugar-
daginn, sjálfan keppnisdaginn.
hefst hun kl. 13.1 Hafnarfirði mun
Bókaverzlun Olivers Steins sjá
um forsöluna.
Dómarar i leiknum verða þeir
Odd Cooper og Terje Antonsen frá
Noregi.
Klaus Kater, markvörður
Gummersbach, cr einn bezti
markvörður, heims. Hann þvkir
mjög laginn við að verja vitaköst,
og fengu Valsmenn að kenna á þvi
árið 1973. Hvernig tekst Páli
Björgvinssyni i vitaköstunum
gcgn þessum góða markverði?
Alþýðublaðið
<
Föstudagur 21. nóvember 1975.