Alþýðublaðið - 21.11.1975, Side 11
Flokksstarfrió
Sími
15020
Spilakvöld
Kvenfélag Alþýðuflokksins i
Kópavogi og Garðahreppi
heldur spilakvöld i samkomu-
húsinu i Garðahverfi, Garða-
hreppi, sunnudaginn 23. nóv.
kl. 8:30 siðdegis.
Verðlaun.
Kaffi. Stjórnin
Fræðsluhópar
Alþýðuflokksins
1. Ræðumennska, fundarreglur
og fundarstjórn.
2. Stjómkerfi Islands.
3. Bankakerfið, lifeyrissjóðir og
aðrar lánastofnanir.
4. Skólamál.
Upplýsingar um störf fræðslu-
hópanna fást á skrifstofu flokks-
ins, Hverfisgötu 8—10, sima
1-50-20
Lelhhúsin
^ÞJÓÐLEIKHÚSIf
Stóra sviðið
CARMEN
i kvöld kl. 20. Uppselt.
laugardag kl. 20. uppselt.
miðvikudag kl. 20.
SPORVAGNINN GIRNP
sunnudag kl. 20.
ÞJÖÐNÍÐINGUR
þriðjudag kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
Litla sviðið:
MILLI IIIMINS OG JARÐAR
sunnudag kl. 15.
IIAKARLASÓL
sunnudag kl. 20,30.
Miðasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
LEIKFÉLAG
YKJAVtKOR'
EJÖLSKYLPAN
i kvöld kl. 20,30.
Næst siðasta sinn.
SAUMASTOFAN
laugardag kl. 20,30.
SKJALPIIAMRAR
sunnudag — Uppselt.
SKJ ALPIIAMRAR
þriðjudag kl. 20,30.
SAUMASTOFAN
miðvikudag kl. 20,30.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
LEIKFÉLAG
KÓPAVOGS
;ýnir söngleikinn
BÖR BÖRSSON jr.
;unnudagskvöld kl. 20.30
sjæsta sýning fimmtudag
Vliðasala opin alla daga
d. 17-21.
fr,
Guðmundur G. Kristjáns-
son, Isafirði — minning
:lag^|
ÍKUKjS
Ein sú mesta breyting i þjóðfé-
lagi okkar, er orðið hefur i tið
einnar og sömu kynslóðar, er við-
horfið til stéttarbaráttu verka-
lýðsins.
Nú þykja stéttarfélög alls stað-
ar sjálfsögð og eru yfirleitt hvergi
litin hornauga. Það þykir nú
nauðsynlegt, og horfa til þjóðar-
heilla, að geta haft samráð við
stéttarfélög og stéttarfélagasam-
tök, ef leysa þarf erfið þjóðfélags-
vandamál t.d. i efnahagsmálum,
þegar vanda ber að höndum. Er
þetta nú orðið svo augljóst og við-
urkennt, að við stjórnarmyndanir
er kappkostað að koma þvi inn i
stjórnarsáttmála, að haft skuli
sem nánast samráð við samtök
stéttafélaga.
K þessu sést, hve mikils virði
það er einu þjóðfélagi, að til séu i
landinu öflug og heilbrigð stéttar-
félög, er stjórnað sé með hags-
muni meðlimanna fyrir augum og
þjóðarinnar i heild, án annar-
legra sjónarmiða.
Þetta þótti ekki jafn sjálfsagt
fyrirtæpum mannsaldri. Þá voru
stéttarfélög og forystumenn
þeirra lilin óhýru auga og öll bar-
átta, til að rétta hag þeirra. er
minnst máttu sin, talin allt að þvi
landráð. Formenn i verkalýðsfé-
lögum fengust ekki til þeirra
starfa úr verkalýðsstétt af ótta
við, að þeir yrðu þá útilokaðir frá
atvinnu. Varð að fá menn úr öðr-
um stéttum til að vera formenn
og forystumenn i verkalýðsfélög-
um og fyrir kom, að halda varð
leyndum nöfnum félagsmanna
sjálfra af ótta við hefndarráðstaf-
anir. Á Isafirði var póstmeistari
formaður verkalýðsfélagsins, i
Bolungarvik skósmiður, á Sauð-
árkróki kennari og svo mætti
lengi telja.
Hvers vegna er þetta rifjað upp
i minningargrein? Jú, mér er enn
ofarlega I minni atburður, sem
skeði á tsafirði skömmu eftir
1930.
Veikt verkalýðsfélag i Bolung-
arvik stóð i verkfalli til að fá litil-
lega bætt aum kjör verkamanna
þar. Þeir höfðu skósmið fyrir for-
mann, sem fékk þau laun fyrir
formennskuna, að aðeins hans
skoðanabræður létu hann njóta
viðskipta. Félagið leitaði aðstoð-
ar Verkalýðsmálanefndar Al-
þýðusambands tslands, sem aftur
leitaði aðstoðar verkalýðsfélags-
ins Baldurs, tsafirði.
Baldur bannaði þá alla útskip-
un frá tsafirði á vörum til Bol-
ungarvikur meðan verkfallið
stæði yfir. Skipa þurfti út stórum
kaffibætiskassa til Bolungarvik-
ur, en kaupmenn þar voru alveg
kaffibætislausir. t slikum orrust-
um, sem þarna stóðu yfir, varð
lika að vinna smáorrustur. Sigur i
þeim, gat orðið úrslitasigur. And-
stæðingarnir sáu sér leik á borði
að skipa kassa þessum út i mat-
artimanum, þvi þá voru fáir á
ferli. Þegar matartimi var á enda
og menn fóru að mæta til vinnu,
veittu þeir athygli mannsöfnuði'
nokkrum á bæjarbryggjunni. Þar
gaf þá á að lita embættisskrýddan
bæ.jarfógeta, sem gefið hafði út
þann úrskurð, að rótarkassa
þessum skyldi i laganna nafni
skipað út, hvað sem hver segði og
allt annað væri með öllu ólöglegt,
að viðlögðum sektum, en verkföll
voru þá, eins og kunnugt er, ólög-
leg.
Einn maður af öllum viðstödd-
um stóð þó i vegi fyrir framgangi
hins mikla úrskurðar háæruverð-
ugs yfirvalds, hafandi i huga
bann verkalýðsfélagsins. Þetta
var bæjarvinnuverkstjórinn,
Guðmundur G. Kristjánsson.
Honum tókst að vefjast fyrir fó-
getanum og tefja útskipunina þar
til hjálp barst. Rótarkassanum
var aldrei skipað út og verkfallið
vannst.
Þetta stutta ágrip úr sögu
verkalýðsbaráttunnar á þessum
tima, nægir til að gera lesandan-
um Ijóst, að Guðmundar G.
Kristjánssonar verður ekki
minnst, nema að nokkru verði
sögð saga hinnar hörðu baráttu,
er á þessum tima varð að heyja,
fyrir hina verst settu i þjóðfélag-
inu, þvi það var hugsjón hans, að
vera þar virkur þátttakandi.
Hér er hugsjónamaður i valinn
fallinn eftir langt og giftudrjúgt
ævistarf. Vettvangur hans var
Isafjörður. Þar vann hann af
hörku og dugnaði fyrir verkalýðs-
samtökin, jafnaðarstefnuna,
bindindissamtökin og bæjarfélag-
ið. Allt af sinni alkunnu trú-
mennsku, húsbóndahollustu og
þeim sannfæringarkrafti, sem
einkennir þann mann, sem telur
sig vera að styðja og styrkja rétt-
an málstað og þjóðholl stefnu-
mörk.
Þeir eru margir, sem nú að
leiðarlokum mundu vilja þrýsta
hönd þessa sómamanns og þakka
honum vel unnin störf. Þar sem
eitthvað var um að vera og góðs
liðsauka þurfti með, þar var Guð-
mundur alltaf vis. Með starfi sinu
markaði hann djúp spor i sögu
samtiðar sinnar, hvað stefnu og
árangur snertir. Og bæjarfélagi
sinu unni hann af alhug og velferð
þess var velferð hans.
Guðmundur átti þvi láni að
fagna að njóta nokkurrar mennt-
unar áður en lifsstarf hans hófst.
Hann stundaði nám i Alþýðuskól-
anum að Núpi og siðar Hvann-
eyri, 1913. Árangur námsins var
auðsær. Hann hafði prýðisgóða
rithönd, svo að af bar, var mjög
góður ræðumaður og allt, sem
hann lét frá sér fara, bar vott
menntunar hans, snyrtimennsku
og vandvirkni.
Guðmundur var fæddur að
Mýrum I Dýrafirði, 23. jan. 1893.
Eftir nokkur kennslustörf þar
fluttist hann til Isafjarðar og var
þar fyrst kennari, stundaði siðan
ýmis verzlunarstörf, regluboðun
og erindarekstur, uns hann varð
bæjarvinnuverkstjóri 1924—1936
og siðan gjaldkeri Rafveitu Isa-
fjarðar til 1966. Hann var og for-
maður stjórnar Sjúkrasamlags
isafjarðar frá stofnun þess, for-
maöur Byggingafélags verka-
manna. Atti sæti i stjórn verka-
lýðsfélagsins Baldurs um árabil
og formaður um skeið. i bæjar-
stjórn 1950—1954.
Hér er þvi miklu ævistarfi lok-
ið, mörgu þó sleppt, er • telja
mætti.
i einkalifi sinu átti Guðmundur
hamingju að fagna. Hann giftist
1915 hinni ágætustu konu, Ingu
Láru Magnúsdóttur, ættaðri frá
Sauðárkróki. Eignuðust þau 9
börn, 8 syni og eina dóttur. Tveir
sonanna eru nú látnir.
Þegar Guðmundur lét af störf-
um fyrir aldurs sakir, 1966, flutt-
ist hann til Reykjavikur og bjó að
Hátúni 4.
Siðasta sumarið hans hér var
sólarlitið, eins og kunnugt er. En
þegar hausta fór kom september-
sólin skær og björt og reyndi að
bæta úr vöntun þeirri, sem sólar-
lausu sumri fylgir, okkur öllum til
handa. Þá mátti sjá slitinn og
ferðlúinn mann, farinn að heilsu
og likamskröftum, bera stól sinn
út fyrir veggi á Hátúni 4 og fela
sig á vald þeim Guði, sem sólina
skóp, að fornum sið. Blessuð sé
minning hans. Hann Iézt hinn 4.
nóvember sl.
Jón Brynjólfssoi
bsændaþjónusta Alþýðublaðsins 0KEYPIS SMAAUGLYSINGAR
TIL SÖLU
Húsgögn
Snyrtistóll til sölu, einnig norskur
skenkur (eikar) nýlegur, upplýs-
ingar: eftir kl. 2 á daginn. Simi
: 73907.
DBS
DBS — hjól til sölu. Vel með farið.
Uppl. i sima 44137.
Til sölu
Til sölu Sunnudagsblað Timans
1 .-10. árg. — Upplýsingar I sima
34546 eftir kl. 8 siðdegis.
Ármansfell
Framh. af forsíðu
mundssonar borgarfulltrúa þegar
Ármannsfelli var úthlutað þess-
ari lóð á sinum tima, og nánast
tilviljun að Ármannsfell greiddi
milljón I byggingarsjóð þegar
lóðinni var úthlutað án auglýsing-
arí. i
Ertu 16-17 ára
Þá hefur þú tækifæri til að fara sem skipti-
nemi til U.S.A. eða Evrópu.
Hafðu samband við skrifstofuna milli kl.
4-6 e.h. /
AFS
International Scholarships
Hafnarstræti 17,
Reykjavik, simi 2-54-50.
HEIMIUSTÆKI
Þeytivinda
Óska eftir að kaupa þeytivindu
vinsamlega hringið i sima 86398
eftir kl. 6 á kvöldin.
BILAR 0G VARAHLUTIR
Snjódekk
Til sölu 4 negld snjódekk litið slit-
in Bridgestone 560-13’ á Cortinu
eða Moskovitc verð 20.000 öll.
Upplýsingar i sima 81455 eftir kl.
6 e.hd.
HÚSNÆÐI ÓSKASTl
Fyrsta fl. íbúð
Endurskoðanda vantar tveggja
til þriggja herbergja ibúð. Uppl.
gefur Axel i sima 25355 til kl. 5.00
og 11421 eða 32026, eftir kl. 5.00.
Algjör reglusemi. Er einn i heim-
ili.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Erum ung hjón aigerlega á
götunni, með tvö börn. óskum
eftir 2ja herbergja ibúð strax.
Uppl. i síma 82693 eftir kl. 5.
ATVINNA I B0DI
Trésmíði
Tek að mér viðgerðir og breyt-
ingar innanhúss. Get haft vél á
vinnustað. Vönduð vinna. Upplýs-
ingar i sima 36093.
ATVINNA 0SKAST
Atv. óskast.
20árastúdent óskareftir atvinnu.
Margt kemur til greina. Upplýs-
ingar i sima 16440.
Atvinna
Röskan, ungan og reglusaman
mann vantar vinnu strax eða sem
fyrst. Er vanur akstri, en margt
annað kemur til greina.
Upplýsingar i sima 74840 og 41295
eftir hádegi.
Aukavinna
34 ára karlmaður óskar eftir
aukavinnu á kvöldin og um
helgar. Er vanur hverskonar
skirfstofuvinnu, bókhaldi, bréfa-
skriftum o.fl. Einhverskonar
handverk kemur lika til greina.
Upplýsingar I sima 72092.
Ung stúlka
Óskar eftir vinnu hálfan eða allan
daginn. Margt kemur til greina.
Upplýsingar i sima 14103 eftir kl.
7 á kvöldin.
Vantar vinnu
16 ára stúlka (með landspróf),
óskar eftir vinnu strax. Margt
kemur til greina. Hringið i sima
17949.
barnagæsla!
Barnagæzla
Kona vill gæta barna á kvöldin.
Upplýsingar i sima 83973.
ÖKUKENNSLA
Okukennsla
Guðmundar G. Péturssonar er
ökukennsla hinna vandlátu, er
ökukennsla i fararbroddi, enda
býður hún upp á tvær ameriskar
bifreiðar, sem stuðla að betri
kennslu og öruggari akstri. Oku-
kennsla Guðmundar G.
Péturssonar, simi 13720.
TAPAD-FIINDIDÍ
Lyklakippa
Svört lyklakippa fannst i strætis-
vagni nr. 12. Fyrir um það bil
mánuði siðan. Lyklarnir eru 9
talsins. Upplýsingar eru gefnar i
sima 71465.
EINKAMAL
Halló stelpur
Fangi númer 23. Óska eftir bréfa-
sambandi við skilningsrikar
stelpur á aldrinum 17 til 29 ára.
Aðaláhugamál min eru þessi:
Poppmúsik, ferðalög, skemmtan-
ir, bréfaskipti. lestur góðra bóka
og margt fleira.
ÝMISLEGT1
Barnablað
Kaupið Barnablaðið Trompásinn.
Verð kr. 30. Áskriftasiminn er
30532. Skrifstofan er að Stóra-
gerði 1.
Fimmtudagur 20. nóvember 1975.
Alþýðublaðið
o