Alþýðublaðið - 21.11.1975, Page 12
Veðrið
Enn er búizt viB að
hlýni i veðri, og mun hiti á
morgun komast i 4—5
stig. Samhliða þvi má bú-
ast viðaukinni úrkomu og
verða skúrir með stuttu
millibili. Áttin verður
austlæg 4—5 vindstig.
Gátan
f-t-UCr f-tL.f4Cr
sm 'i v£*zl Smfí F/SKUR. yoprv FlR/V E/N UR££j /Ntv
1 ií
WiÐn b
6usr_ BfíL/ /
il
FRlÐ S öm 5
GR£IR !R HRP/.fí BfíK TfíL/R
5 POL
bim RÐ vtv Btírrd k/mtte 7 3
F/SK UR m'fíLFR SKST 1 £/H5
i V
KRYDD iflFrtN
ptgefandi: Blaö hf. Framkvæmda-
stjóri: Ingóifur P. Steinsson. Rit-
stjóri: Sighvatur Björgvinsson.
Kitstjórnarfulltrói: Bjarni
Sigtryggsson. Auglýsingar og af-
greiðsla: Hverfisgötu 10 — simar
14900 og 14906. Prentun: Blaða-
prent hf. Áskriftarverð kr. 800.- á
mánuði. Verð i lausasölu kr. 40.-.
LYKIt nPto- SKfíF0FMN/M&U0
KOPAVOGS APOTEK
(Opiö öll kvöld til kl. 7
í Laugardaga til kl. 12
SBNDIBILAStODIN Hf
MEGUM
VIÐ KYNNA
Sigurður
Ingimundarson,
forstjóri Tryggingastofnunar
rikisins, erfæddur i Reykjavik 10.
júli, árið 1913. Foreldrar Sigurðar
eru Ingimundur Einarsson og
Jóhanna Egilsdóttir. Eftir gagn-
fræðapróf, fór Sigurður i Mennta-
skóia Reykjavikur, þar sem hann
lauk stúdentsprófi árið 1934. Að
loknu þvi prófi fór Sigurður i
Háskólann i Þrándheimi, þar sem
hann lagði stund á efnaverkfræði.
Er heim kom vann hann við ýmis
störf. Meðal annars starfaði hann
við sildarverksmiðjuna á Siglu-
firði, við efnaverkfræðistörf, og
var hann þar i þrjú ár. Við
kennslustörf, var Sigurður meira
og minna. Var hann fastráðinn
kennari við Verzlunarskóla
Islands, en einnig kenndi hann við
aðra skóla. Sigurður hafði starfað
fyrir Alþýðuflokkinn i mörg ár, og
spurðum við hann nánar um störf
hans i pólitikinni.
,,Ég var kosinn á þing fyrir
Alþýðuflokkinn árið 1959, og sat
ég á þingi allt til ársins 1971. Árið
1970, varð ég forstjóri Trygginga-
stofnunar rikisins, og hef ég verið
það siðan”.
Um áhuga og tómstundastörf
sin sagði Sigurður. „Ég hef lengi
starfað við félagsmál, og var ég
formaður BSRB, frá 1956 til 1960.
Hér áður fyrr stundaði ég iþróttir
af kappi, og var ég þá aðallega i
handbolta. Bækur hef ég alltaf
haldið upp á, og les ég allt á miili
himins og jarðar. Ég hef einnig
mikinn áhuga á ferðalögum, en
þóhef ég stundað þau alltof litið.”
Sigurður er kvæntur Karitas
Guðmundsdóttir, og eiga þau
hjónin tvenna tvibura saman.
Eldri tviburarnir eru 33 ára giftar
húsmæður, og heita þær Anna
Maria og Jóhanna. Yngri
tviburarnir eru 25 ára, og heita
þau Gunnar, sem er háskólanemi,
og Hildigunnur, sem er flug-
freyja.
OKKAR Á MILLI SAGT
Enn verður ekki séð á störfum Alþingis, að miklir efnahagserfiðleik-
ar hrjái þjóðarbúið. 1 fyrradag varð þannig fundarfall i efri deild Al-
þingis vegna þess, að öll mál deildarinnar voru upp urin. Þannig er Al-
þingi látið sitja aðgerðarlaust hjá á meðan vandamálin hrannast upp.
Skýrt var frá þvi i blöðunum i gær, að rikisstjórn Islands hafi tekið
2300milljónir til láns af Arabagulli. Viða eru nú ráðamenn þjóðarinnar
farnir að leita fanga i slættinum. Skyldi lánstraust íslands vera þrotið
hjá þeim vestrænu bönkum, sem landið hefur helzt skipt við til þessa?
Þótt Ármannsfellsmálinu virðist endanlega lokið á opinberum vett-
vangi með niðurstöðum saksóknara, sem eru á þá lund, að hann telji
ekki ástæðu til málshöfðunar, þá er þó enn verið að ganga frá ýmsum
lausum endum málsins i Sjálfstæðisflokknum. Talsvert hart uppgjör
hefur átt sér stað milli hinna ýmsu málsaðila i flokknum með þeim af-
leiðingum m.a., að AlbertGuðmundssonhefur sagt sig úr fjármálaráði
flokksins vegna þess, að honum likaði ekki alls kostar félagsskapurinn.
Um þessar mundir er stödd hér i Reykjavik verzlunarsendinefnd frá
Kúpu, sem m.a. ræðir við íslendinga um möguleika á fisksölu til Kúbu.
Fundur var haldinn um málið i gær og verður annar fundur haldinn i
dag. Ætli fari þá að sjást aftur i búðum Havanavindlar, eins og þeir,
sem jafnan skreyta munnvik Castros á ljósmyndum af honum?
Nefnd, sem skipuð var á sinum tima til þess að f jalla um nám i f jöl-
miðlun við Háskóla íslands og gera drög að námsskrá i þeim fræðum
hefur nú lokið störfum og sent frá sér itarlega greinargerð. Gamal-
reyndir blaðamenn, sem lesið hafa niðurstöður nefndarinnar, hafa haft
á orði, að þeir, sem nema myndu eftir þeim drögum að námsskrá, sem
þar er gerð tillaga um, myndu hljóta góða og viðtæka menntun i öllu —
nema blaðamennsku.
Stöðugt hafa menn verið að lengja árlegan skólatima á skyldunáms-
stigi. Nú hafa sumir við orð, að lengja þurfi hann ennþá meira — og
stytta sumarleyfi nemenda að sama marki — i þvi skyni að fá ráðrúm
til þess að taka starfrænt nám inn á námsskrár skólanna — þ.e.a.s. það,
sem i mæltu máli kallast vinna og flestir nemendur fengu áður nasa-
sjón af úti á vinnumarkaðinum i leyfum sinum.
Talsverð átök virðast vera i aðsigi milli 1S1 og UMFÍ um skiptingu
fjárveitinga til iþróttamála á fjárlögum. Telur UMFÍ sig hlunnfarið i
þeim viðskiptum og bendir á, að innan þess sambands séu iþróttafélög
dreifbýlisins, þar sem hins vegar ISl sé samband iþróttafélaga þétt-
býlisstaðanna.
ÖRVAR HEFUR 0RDIÐ M
Josef Göbbels, áróðurs-
málaráðherra nazista i
Þýzkalandi, bjó sér til þá
kenningu, að lygi gæti
orðið sannleikur i vitund
fólks væri þess aðeins
gætt að endurtaka hana
nógu oft. Væri nógu oft og
nógu lengi hamrað á ó-
sannindunum færi fólk að
trúa þeim hversu fjarri
sannleikanum, sem lygin
væri. Ýmsir áróðurspost-
ular hafa gert þessar
kenningar Göbbels að
bibliu sinni og starfað i
anda þeirra. Til Göbbels-
úrræðanna hafa þeir t.d,
iðulega gripið, sem skrifa
Þjóðviljann.
Fyrir mörgum árum
flutti Gylfi Þ. Gislason
ræðu á opinberum vett-
vangi. Ræðu sina hóf
hann með þvi að vitna i
alkunn ummæli brezka
stjórnmálamannsins
Winstons Churchills um,
að bezta ráðið til þess að
varðveita sjálfstæði þjóð-
ar væri að fórna þvi. öll
ræða Gylfa gekk siðan út
á það að afsanna þessa
röksemdafærslu Chur-
chills.
Þjóðviljinn greip þetta
mál á lofti og sneri þvi
þannig að leggja hin til-
vitnuðu orð Churchills i
munn Gylfa Þ. Gisla-
sonar og gera þau að hans
skoðun. Æ ofan i æ voru
þessi ósannindi endurtek-
in i Þjóðviljanum og
hvergi hirt um að koma
leiðréttingum á framfæri
þótt skriffinnar Þjóðvilj-
ans vissu mæta vel
hversu fjarri þau voru
sannleikanum. Með
reglubundnum hætti hef-
ur Þjóðviljinn svo rifjað
upp lygi sina og lagt út af
hennj Gylfa Þ. Gislasyni
og Alþýðuflokknum til
hnjóðs. Sjálfsagt eru
meðal lesenda Þjóðvilj-
ans einhverjir, sem farnir
eru að trúa þvi, að lygin
sé sannleikur. Jósef heit-
inn Göbbels gæti fyrir það
verið afturgenginn á rit-
stjórn Þjóðviljans.
Nú ætlar Þjóðviljinn að
leika sama leikinn gagn-
vart ritstjóra Alþýðu-
blaðsins. Nú á að ljúga
þvi upp, að hann hafi
krafizt þess, að einum
mætasta og virtasta skip-
herra Landhelgisgæzl-
unnar, Guðmundi
Kjærnested verði vikið úr
starfi. Það breytir engu
fyrir Þjóðviljann i þessu
sambandi þótt ræða Sig-
hvats Björgvinssonar,
þar sem Þjóðviljinn segir
að þessi ummæli hafi
komið fram, sé prentuð i
þingtiðindum og þar
komi glögglega i ljós, að
hér er um hreinan upp-
spuna Þjóðviljans að
ræða. Það breytir heldur
engu þótt Sighvatur
Björgvinsson hafi kvatt
sér hljóðs á Alþingi til
þess að bera þessar lyga-
fréttir Þjóðviljans til
baka og fordæma þær —
og að enginn þingmaður
Alþýðubandalagsins hafi
við það tækifæri séð sér
færtað verja Þjóðviljann.
Ritstjórar Þjóðviljans
hafa einfaldlega ákveðið
að þeir skuli ljúga óhróðr-
inum upp á pólitískan
andstæðing sinn hvað
sem hver segir — og i þvi
skyni nota þeir aðferðir
Göbbels i aukinni og end-
urbættri útgáfu Þjóð-
viljamanna.
FIMM á förnum vegi
Hefur umferðarmenningin batnað?
Laufey Sigurðardóttir, tækni-
teiknari: Mér finnst umferðin
ekkert hafa batnað. Hraðinn
hefur aukizt allt of mikið, og
hafa slysin aukizt verulega
vegna hins mikla hraða.
Sigurlaug Jónsdóttir, af-
greiðsiukona: Nei, siður en svo,
hún hefur stórversnað. Siðast
þegar ég fór i bilinn minn, lenti
ég i árekstri, og allt fór i klessu.
Jóhannes Astvaidsson, sölu-
stjóri: Með tilliti til aukins
fjölda bifreiða, þá finnst mér
hún hafa stórbatnað. Það er þvi
enginn mælikvarði á fjölda
dauðsfalla, ef tekið er mið af
aukningu bifreiða.
Þór Jóhannsson, hjá Blikk-
smiðjunni h.f.: Siður en svo, bíl-
stjórar hafa aldrei verið ókurt-
eisari en einmitt nú, og ætti að
auka eftirlit með ökumönnum
til muna.
Björn Karlsson, nemi:Umferð-
in hefur aldrei verið hættulegri
en um þessar mundir, og er það
sjálfsagt hinn aukni hraði, sem
gerir það að verkum.