Alþýðublaðið - 05.03.1976, Síða 5
biaöíð iFöstudagur 5. marz 1976.
Góðanótt
Þaö er aetíð óvarlegt aö geyma peninga eöa aðra fjármuni í misjafnlega traust-
um geymslum, - hvort sem þaer eru i heimahúsum eöa á vinnustað.
Meö næturhólfum veitir Landsbankinn yður þjónustu, sem er algjörlega óháð
afgreiðslutíma bankans. Þjónusta þessi hentar bæði fyrirtækjum og einstakling-
um; gerir yður mögulegt að annast bankaviöskipti á þeim tíma sólarhringsins,
sem yður hentar best; sparar yður fyrirhöfn; tryggir yður trausta og örugga
geymslu á fé og fjármunum.
Kynnið yður þjónustu Landsbankans.
Árbæjarhverfi
Æskulýðsráð boðar til almenns fundar i
Árbæjarhverfi, föstudaginn 6. marz.
Fundurinn verður i samkomusal Árbæjar-
skóla og hefst kl. 20,30.
FUNDAREFNI: i
Félagsmiðstöð i Árbæjarhverfi. Kynning
og umræður.
ÍÆskulýðsráð
Reykjavíkur
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila
á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. marz 1960,'
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir október, nóvember og desem-
ber 1975, og nýálagðan söluskatt frá fyrri
tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir
sem vilja komast hjá stöðvun, verða að
gera full skil nú þegar til tollstjóraskrif-
stofunnar við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik,
2. mars 1976
Sigurjón Sigurðsson
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —
Geymsluloká Wolkswagen i ailflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verð.
Reynið viðskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.
OTLðND 5
Djöfullinn kemur,
sem öskrandi Ijón
■ Mannfórnir fljótlega,
en fingrum fórnað núna
— Djöflatrúin er geigvænleg.
Ég held, að nú séu um tuttugu
söfnuðir djöfladýrkenda i
Noregi, enn fleiri í Sviþjóð og i
Englandi er allt morandi af
þeim. Sumir óttast, að mann-
fórnir verði hafnar i Skandin-
aviu á næstu mánuðum. — Þetta
sagði sira Jón Dalbú Hróbjarts-
son, skólaprestur, meðal annars
i viðtali, sem Kirkjuritið átti við
hann, Gisla Jónasson guðfræði-
nema og síra Arngrim Jónsson,
um kristilega stúdentamótið,
sem haldið var hér á landi
siðastliðið sumar.
Margt forvitnilegt kemur
fram i þessu viðtali. Við drepum
á það helzta.
■ Talaði tungum, sem
hann skildi ekki sjálfur
1 viðtalinu kemur fram, að
talað hafi verið tungum á einni
samkomunni i Laugardalshöll,
en þar fór mestur hluti mótsins
fram. Segir Jón Dalbú svo frá,
að norskur prestur, Garcia de
Presno hafi stigið i stól og tekið
að tala tungum.
Jón Dalbú skýrir frá þvi, að
þessi norski prestur hafi full-
komna stjárn á þessari náðar-
gáfu sinni, þ.e. hann getur talað
tungum, þegar hann vill. Hann
er þess þó ekki umkominn, að
túlka það, sem hann segir. Hins
vegar vissi Presno, að á sam-
komunni í Laugardalshöll var
stúlka sem gat túlkað það sem
hann sagði.
Segir Jón, að Presno hafi
talað drjúga stund, ætlað að
segja meira, en skort djörfung
til þess. Síðan hafi fyrrnefnd
stúlka ásamt pilti einum, stigið
fram og túlkað orð Presno fyrir
viðstöddum. Reyndar gerði hún
meira en það, samkvæmt
skoðun Presno, þvi hún sagði
einnig það sem hann átti ósagt.
Þessi stúlka væri nefnilega
gædd spádómsgáfu.
Síra Arngrimur Jónsson segir
i þessu viðtali, að tungumálið
sjálft sem Presno talaði, hefði
haft dálitið einkennileg áhrif á
sig. Hann hafi hugsað um það,
hvort þetta væri einhver
rómönsk tunga, sem Presno
talaði.
■ Tungutal ekki
utangarðs fyrirbrigði
1 viðtalinu segir einnig, að hin
svokallaða „karismatiska”
hreyfing hefði nokkuð gætt að
undanförnu á Norðurlöndum og
reyndar lika hér á landi. Þessi
hreyfing leggur áherzlu á að
kynna sér allt varðandi
náðargáfurnar, þ.e. tungutals
Og lækningagáfurnar.
Þessi karismatisku áhrif
hefðu sums staðar orðið mjög
sterk. Segir Jón Dalbú, að til-
finningahitinn hafi orðið svo
mikill, að nálgaðist ofhrif eða
leiðslu. Beita þyrfti hálfgerðri
hörku, til þess að kveða þessar
öfgar niður. Með rökum Guðs
hefði hins vegar tekizt að koma
á þvi jafnvægi, að þessi áhrif fá
að lifa þvi lifi, sem eðlilegt má
telja.
Að sögn Jóns Dalbú, var þvi
ekki óeðlilegt, að tungutals
gætti á stúdentamótinu, og á
margan hátt jákvætt, að það
gerðist þarna, þvi að tungutal
væri fyrirbrigði sem ætti heima
i kristnum söfnuði.
■ lllir andar tala
líka tungum
I viðtalinu ,kemur fram, að
mikil hætta væri samfara
tungutakinu, ef áhuginn á
fyrirbrigðinu yrði óeðlilegur og
ofsafenginn.
Segir Jón eftir fyrrnefndum
Presno, að illir andar töluðu
stundum tungum og formæltu
þá Guði og öllu þvi, sem Guðs
væri. Hefði það komið fyrir á
kristnum samkomum.
■ lllir andar raunveru*
legir og áþreifanlegir
f viðtalinu i Kirkjuritinu
segir, að hrollvekjandi sé til
þess að vita, hve illir andar séu
orðnir áþreifanlegir á Vestur-
löndum. Það væri ekki undar-
legt að heyra frá Afriku um
menn haldna illum öndum, en i
nágrannalöndunum gegndi öðru
máli.
Þá er frá þvi sagt, að Presno,
norski presturinn tittnefndi,
hafi minnsta kosti þrivegis
rekið út illa anda i Noregi. Það
léki enginn vafi á, hvort um
væri að ræða illa anda eða geð-
veiki, þvi þessir andar töluðu og
streittust á móti. Þeir reyndu að
blekkja og gerðu allt, sem þeir
gætu til bess að lama þann, sem
reynir að reka þá út.
Hinir illu andar töluðu reip-
rennandi frönsku, ensku og -
þýzku, án þess að sá kunni sem
haldinn er. Jafnvel segja hinir
illu andar, að þeir hafi komizt
inn við sprautun og þvi séu þeir i
öllum likamanum. Það sé þvi
tilgangslaust að reyna útrekstur
— þeir séu fastir i likamanum.
Langoftast tekst þó að hrekja
hina illu anda á brott, þegar
nafn Jesú Krists er nefnt.
■ Andaglas er kukl
Jón Dalbú skólaprestur segir
loks i þessu viðtali, að jafnvel
andaglas, sem mörgum hér
heima finnst saklaust, megi lita
á, sem kukl. „Andaverur vonzk-
unnar i himingeimnum” hafa
einmitt komizt inn i ungt fólk
eftir farvegi dultrúarinnar, en
andaglas telst til hennar.
„Hvernig eru kristnir menn
viðbúnir slikri innrás djöfuls-
ins? ,,Hér kemur hann, sem
öskrandi ljón, ,.segir Jón Dalbú
i þessu viðtali Kirkjuritsiiis.
—GAS