Alþýðublaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 7
bSattð* Föstudag ur 5. marz 1976. ÍÞRðTTIR RlLAR ÚTILlF 7 Æ ■ Omar Ragnarsson telur það meira virði að eiga fjóra af- burðamenn en 25 sæmilega íþrótta- menn ■ Hvar er nú trimmhugsjónin? íþróttahreyfingin er samt févana svo ríkið yrði að hlaupa undir bagga ■ En hvert er ykkar álitj'þróttafólk og aðrir lesendur? Er ísland tilbúið að gera iþróttaafreks- menn að atvinnumönn- um, er spurning sem mikið hefur verið taiað um á siðustu árum. Hjá frændum vorum á hin- um Norðurlöndunum hefur það farið æ meir i vöxt að einhvers konar hlunnindi eru veitt þeim iþróttamönnum, sem álitnir eru standa framarlega. 1 Finnlandi t.d. styð- ur rikið beinlinis það frjálsiþróttafólk sem möguleika á á að hreppa verðlaunasæti á Olympiuleikum með beinhörðum peningum. Það að eiga slika af- reksmenn þykir mikil auglýsing fyrir við- komandi land, og þvi gerist það i rikari mæli að fjármagn sé beint eða óbeint látið af hendi til iþróttafólks i sifellt fleiri löndum. Það er orðið eins mikið kappsmál vissra þjóða að ná langt á iþrótta- sviðinu, eins og fyrr á ROÐIN KOMIN AO ATVINNU- MENNSKU? öldum, að hrifsa til sin nýlendur. Island er að visu litið land, en samt er ekki laust við að tiðar umræður séu innan hóps iþróttaunnenda og annarra um að við þurfum að koma okkur upp visi að atvinnumennsku, þó ekki væri nema til að borga at- vinnutap okkar beztu manna. Alþýðublaðinu lék forvitni á að vita svör manna við þessari spurningu. Fyrstur til að svara var Ómar Ragnarsson hjá Sjón- varpinu, og hafði hann eftirfar- andi að segja um þetta mál. Tel það nauðsyn „Ég tel alveg skilyrðislaust, að við eigum að veita þvi iþróttafólki sem stendur upp lír meðalmennskunni, oghefur alla möguleika til að ná langt i sinni iþróttagrein, þá beztu aðstöðu sem völ er á. Vegna smæðar landsins getum við samt ekki gert mikið af þessu, aðeins fyrir örfáa einstaklinga, og þvi koma flokkaiþróttir varla til greina, i þessu sambandi.” ,,Ég hef alveg ákveðnar skoð- anir á þessum hlutum, og er ófeiminn við að segja þær. Hingað til hafa verið sendir hóp- ar á Olympiuleika, þar sem nær flest allir hafa aðeins náð tak- mörkuðum árangri, (að Vilhjálmi Einarssyni undan- skildum), og hefur aðeins verið að uppfylla Olympiuhugsjónina hverju sinni. Þvi tel ég það vera nánast skyldu Í.S.I., eða frekar rikis- ins, að kappkosta að styrkja ungt og efnilegt iþróttafólk. Það er t.d. alveg tilvalið nú að rikið hreinlega haldi hinu unga og efnilega skiðafólki, Steinunni Sæmundsdóttur og Sigurði Jónssyni úti i æfingabúðum mikinn hluta ársins. Þau eru einmitt á rétta aldrinum, og þvi er nú gullið tækifæri til að eign- ast afreksfólk á heimsmæli- kvarða.” Betra að eiga fjóra góða en 25 slaka ,,Ég álit að það sé mun meiri akkur í þvi fyrir okkur að eign- ast 4 m jög góða iþróttamenn, en 25 sem litið kveður að. Það er hreint og beint auglýsingar- atriði fyrir landið, og vekur enn meira þjóðarstolt, sem aldrei er of mikið af. Hvað haldið þið t.d. að lang- hlauparinn frægi Keip Keinio sé búinn að gera mikið fyrir Kenýa með sinum afrekum á hlaupa- brautinni. Við höfum nú eignazt tvo atvinnuskákmenn, og annar þeirra er styrktur af rikinu. Égtelaðt.d. frjálsíþróttafólk, eða skiðafólk, sé ekki minni auglýsing fyrir okkur, en árangur Friðriks og Guðmund- ar á skáksviðinu, þvi þó sá árangur sé að vissu leyti mjög góður, þá er meira fylgzt með iþróttum.” Hingað til tveir hópar „Hingað til hafa aðeins verið til tveir hópar af iþróttafólki á Islandi. í fyrsta lagi Olympíu- farar og i öðru lagi venjulegir iþróttaiðkendur. Nú ættum við að bæta þriðja hópnum við, sem yrðu þá toppmenn. Mér er alveg sama ef við styrktum aðeins einn slikan, hann gerir meira gagn en margir slakir.” „Megin ástæðan fyrir þessum skoðunum minum eru leifar frá siðustu Olympiuleikum i Miinchen árið 1972. Þá fylgdist ég með Bjarna Stefánssyni, hin- um kunna spretthlaupara, í kennni við beztu menn heims. Min skoðun var sú, að hann væri sizt lakari hlaupari frá náttúr- unnar hendi en hinir, mismun- urinn lá aðeins i þvi, að hinir höfðu fengið enn betri æfingar- aðstöðu og tima. Um þetta er ég alveg viss”, sagði Ómar Ragn- arsson að lokum. Gísli Halldórsson forseti ISI: EKKI A MOTI EN ÞAÐ SKORTIR PENINGA „Ég er i sjálfu sér ekki á móti þvi, að við komum upp visi að atvinnumennsku i einhvers kon- ar mynd, en það er bara ekki framkvæmanlegt af hálfu ÍSl, þvi til þess vantar okkur algjör- lega fjármagn. Ég er samt alveg á móti þvi að menn geri iþróttir algjörlega að atvinnu sinni, en t.d. hálf atvinnu- mennska þar sem vinnutap er greitl t.d. 3 til 6 mánuði á árinu fyndist mér allt i lagi að reyna. T.d. ef rikið styddi við bakið á þeim tslendingum, sem mögu- leika eiga á frama i iþróttum, þá hef ég ekkert annað en gott um það að segja.” , ,Ég tel það hins vegar alveg fráleitt að menn geri iþróttir að sinni aðalatvinnugrein. Ég hef lesið um menn sem t.d. hafa gert knattspyrnu að atvinnu, og við þvi vildi ég hlifa íslending- um. Það eru ekki nema einstaka sterkir persónuleikar sem standastþað álag sem oft fylgir þessu. Opinbert leyndarmál að þeir beztu eru atvinnumenn „Það vita það allir, að þeir sem t.d. unnutil verðlauna á ný- afstöðnum Olympiuleikum i Innsbruck, voru nær allir hrein- ir atvinnumenn. En það þýðir samt ekki að við þurfum endi- lega að fylgja þvi fordæmi. Olympiuhugsjónin er nægileg til að ísland sendi þátttakendur, þótt vitað sé að þeir muni ekki vinna til verðlauna. Það er sama hvað menn eru góðir: það verður alltaf einhver að verða siðastur.” Ahugamannareglunum hefur veriðbreytt dálitið á undanförn- um árum, þannig að nú er iþróttafólki heimilt að þiggja laun fyrir vinnutap i allt að þrjá mán. á ári. Ef einhvern timann færi svo að við hjá ÍSI, eða sér- samböndin gætum veitt okkar fólki þessa aðstöðu þá væri það sjálfsagt.”sagðiGisli aðlokum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.