Alþýðublaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 12
12 Auglýsing frá Menntamálaráði íslands um styrki árið 1976 Kvikmyndagerð Til islenskrar kvikmyndageröar veröur veitt 1.000.000., einum aöilja eöa skipt milli tveggja samkvæmt ákvöröun Menntamálaráös. Tónverkaútgáfa Til útgáfu islenskra tónverka, einkum á hljómplötum, veröur veitt kr. 500.000. Dvalarstyrkir Veittir verða 8 styrkir eöa þvi sem næst, kr. 150.000., hver. Þeir eru ætlaðir listamönnum, sem hyggjast dveljast er- lendis um a.m.k. tveggja mánaöa skeiö og vinna þar aö listgrein sinni. Þeir sem ekki hafa hlotiö styrk frá menntamálaráði und- anfarin fimm ár, ganga fyrir aö ööru jöfnu. Styrkir til fræðimanna og til náttúrufræði- rannsókna Til ráöstöfunar eru kr. 800.000., sem skipt verður sam- kvæmt ákvörðun Menntamálaráös. Umsóknir um alla framan greinda styrkiskulu hafa borist Menntamálaráöi, Skálholtsstig 7 f Reykjavfk, fyrir 31. mars n.k. Hverri umsókn skal fylgja greinargerö um fyrirhugaöa ráöstöfun þess styrks, sem um er sótt. Nauösynlegt er, aö nafnnúmer umsækjanda fyfgi umsókn- inni. Umsóknareyöublöö fyrir alla styrkina liggja frammi á skrifstofu Menntamáiaráös aöSkálholtsstfg 7 IReykjavfk. Menningar- og l'ræöslusanihand alþyöu Fræðsluhópar MFA F jórir fræðsluhópar taka til starfa i marz. Hópur I: Leikhúskynnin g: Fjallaö veröur um ýmsa þætti leiklistar og leikhúss. Meöal annars veröur fariö á leiksýningar og rætt viö leikara, leikstjóra, höfunda o.fl. Umsjón: Þorsteinn Marelsson. Fyrsti fundur mánudaginn 15. marz. Hópur II: Ræöuflutningur og fundarstörf I. (Byrjendanámskeið). Fariö veröur I nokkur undirstööuatriöi ræöugeröar og ræöuflutnings á- samt fundarreglum, auk þess sem framsögn veröur æfö. Leiðbeinendur: Tryggvi Þór Aðalsteinsson og Baldvin Halldórs- son. Fyrsti fundur þriöjudaginn 23. marz. Hópur III: Ræöuflutningur og fundarstörf II. (Framhaldsnámskeiö, eink- um ætlaö þeim sem sótthafa byrjendanámskeiö eöa hafa nokkra þjálfun iræðuflutningi og fundarstörfum). Starfiö er m.a. fólgiö i sjálfstæðum verkefnum og hópstarfi. Leiðbeinandi: Baldur Óskarsson. Fyrsti fundur fimmtudaginn 25. marz. Hópur IV: Saga verkalýðshreyfingarinnar. Fjallað veröur um einstök timabil og atburöi úr sögu verkalýðshreyfingarinnar. Leiðbeinandi: ólafur R. Einarsson. Fyrsti fundur miövikudaginn 24. marz. Hóparnir starfa á timabilinu marz—mai, og koma saman á kvöldin, einu sinni I viku.Starfið fer fram i fræöslusal MFA að Laugavegi 18 VI. hæðog hefsthvertkvöldkl, 20.30. Þátttakendur innriti sig á skrifstofu MFA Laugavegi 18 VI. hæð, simar 26425 og 26562, sem allra fyrst. Innritunargjald er 500,00 krónur. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni. Menningar- og fræðslusamband alþýðu. ------------------------------------- $ Lagermaður Sambandið vill ráða mann til lager- starfa, meirapróf æskilegt. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri i sima 28200. Starfsmannahald ^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Föstudagur 5. marz 1976. blaSíid1’ ERFIÐIR SAMNINGAR Verkföllum er nú aflétt, og efalaust hefur margur einnig varpað öndinni léttara, þegar sá dagur rannupp, að hjól atvinnulifsins tóku að snúast á ný. Timinn, sem fór i þessa samningagerð, er hinsvegar svo langur, að það hlýtur að leiða hugi manna að, hvort við séum ekki komin út á algerar villi- götur. Ekki dettur mér i hug að bera það fram, að menn hafi dregið af sér við samningana. En staðreyndin blasir við, að öll orkan og timinn, sem i það fór, er hvorttveggja of dýrt, til að svona megi lengur til ganga. Auðvitað er lafhægt að segja^ að það sé annað um að tala eða i að komast. En ég get ekki gert mér i hugarlund, að neinn sé ánægður, alveg burt séð frá þeim árangri sem endanlega náðist. Þjóðarkakan Það er mikil tizka nú, að tala sifellt um „þjóðarkökuna” og skiptingu hennar milli landsins barna. I sjálfu sér er það vist naglaskapur, að amast við þvi orðalagi, þótt engan veginn sé það geðfellt að minum dómi. En nóg um það. Vissulega skiptir miklu máli, hvernig þessari blessaðri „köku” er skipt milli þegnanna. En allt um það mætti maður halda, að hún væri ekki sérlega auðskorin, miðað við allt erfið- ið, sem skiptingunni er sam- fara. Sérkröfur Mér kemur það svo fyrir sjónir, að einn alvarlegasti Þrándur i Götu fyrir greiðum samningum, séu hinar svo- kölluðu sérkröfur, sem sifellt virðist vera að fjölga og raunar að verða umfangsmeiri með hverjum samningum. Það skal játað, að þarfir laun- þega óg aðstaða er talsvert mis- munandi. Samt sem áður er það trúa min, að ailur þessí sér- kröfufans sé kominn út i hreinar öfgar. Vel má vera, að mér skjátlist i einhverju i þvi áliti, en ég tel, aö þessi ófögnuður eigi aðallega rætur sinar að rekja til skæruhernaðarins svo- kallaða laust eftir 1940, þegar rikisstjórn Hermanns Jónas- sonar þvingaði fram bráða- birðgalögin um gerðardóm i kaupdeilum. Verkalýðshreyfingin var þá sett i þá aðstöðu, að verða að brjóta lög, til þess að ná fram kjarabótum, sem henni var vissulega full þörf á. Niður- staðan af þessari herfilegu lagasetningu var, að frá þeim tima hófust undirborðs- greiðslur, sem sannarlega er ekki uppörvandi ástand i kaup- gjaldsmálum. Uddur A. Sigurjónsson IHREIN- SKILNI SAGT Kjara- samn- ingar laun- þega Visitölugaldurinn Bezt er að gera sér ljóst, að viðhorf stjórnvalda var, þó merkilegt megi telja, þessu háttalagi ekki með öllu fjand- samlegt. Þetta þýddi nefnilega, að undirborðsgreiðslurnar komu ekki inn i visitöluna, og á þann hátt varð visitalan auðvitað stórlega fölsk. Það hélt svo niðri launum annarra laun- þega, sem ekki urðu aðnjótandi neinna sérgreiðslna. Þeir áttu þvi ekki annars kost en að feta i sömu slóðina hver eftirsinni getu. Þessi feluleikur, sem i alla staði er niðurlægjandi fyrir launþegann, þó nauðvörn mætti teljast á sinum tima, hefur örugglega blásið að kolum margháttaðs, ég vil segja sið- leysis, i launa og fjármálum. Vitanlega hlýtur það að vera eðlilegt fyrir launþegann, að ekkert pukur sé i sambandi við verkalaun hans. Og það er mála sannast, að i kjölfarið fer fleira en auðvelt er að sjá fyrir. Svo er nú komið, að það er beinlinis æfintýralegt að virða fyrir sér reikninga sumra stétta, einkum ef um upp- mælingaaðalinn er rætt. Þar rekur hver ábótin aðra, sumar máski ekki svo stórar, en safnast þegar saman kemur. Það er hreint ekki dæmalaust, að inn i reikninga blandist „veikindadagar”. Það þýðir, að vinnu- eða verktaki geri verk- kaupa reikning fyrir hugsan- legum veikindum starfsmanna sinna, og verkkaupi skal borga þann brúsa, hvort sem nokkur veikindi hrjá hópinn eða ekki! Að minu viti er verkalýðs- hreyfing, sem elur slikan snák við barm sér, komin á hættulega braut. Það er viðs fjarri mér að telja, að heilsulitið fólk þurfi ekki aðstoð, til þess að lifa. En það kemur vitanlega i rangan stað niður, þegar eiiistak- lingum, sem af tilviljun áttu að njóta verka viðkomandi i það og það sinnið, er gert að greiða kaup fyrir veikindi i stað verks. Heildarsamningar Engum vafa er undirorpið, áð unntþarf að vera að gera samn- inga fyrir sem stærstan hóp launþega. En þvi er ekki að neita, að það er nokkuð fjar- stætt, að þá sé á eftir greidd at- kvæði um gildi þeirra i jafn- mörgu lagi og félögin eru mörg. Dæmi þess sjáum við nú i sjómannasamningunum. önnur eins útkoma er örugglega engum til hagsbóta. Hér á verkalýðshreyfingin mikið verk að vinna i skipu- lagningu, sem traustari er en nú er raun á.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.