Alþýðublaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 05.03.1976, Blaðsíða 10
lO STJÓRNMÁL alþýðu' blaðið Útgefandi: Alþýöuflokkurinn. Rekstur: Reykjaprent hf. Tæknilegur fram- kvæmdastjóri: Ingólfur Steinsson. Rit- stjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnars- son. Ritstjóri: Sighvatur Björgvinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórnar er I Síðu- múla 11, simi 81866. Prentun: Blaðaprent h.f. Áskriftarverð: 800 krónur á mánuði og 40 krónur i lausasölu. Árásirnar á ASÍ Það virðist vera orðinn vani hér á landi, að allir kjarasamningar taki óhemju langan tíma. AAenn furða sig að vonum á þessu en atvinnurekendum og þeim blöðum, sem þá styðja hefur tekizt að telja mörgum trú um, að þetta sé verkalýðshreyf ingunni að kenna. Og svo eru verkalýðshreyfingin og forystumenn hennar skömmuð blóðugum skömmum. Verkalýðshreyf ingin er skömmuð fyrir skipulagsleysi. Seinagangur i viðræðum er talinn henni að kenna. Hún er skömmuð fyrir að vilja ekki af greiða hvert og eitt atriði samninga út af f yrir sig án þess að hafa hugmynd um, hvernig meginefni kjara- málanna reiðir af. Og svo byrjar söngurinn um að skerða þurf i með einum eða öðrum hætti samningsf relsi verka- lýðshreyfingarinnar og sjálfsforræði einstakra verka- lýðsfélaga í kjaramálum. Jafnvel sumir launþegar hafa lagt trú á þetta svartagallsraus og hafa það á orði að e.t.v. væri nú réttastað verkalýðshreyf ingin léti af hendi ýmis þau réttindi, sem hún hefur öðlazt í samninga- málum með harðri baráttu líkt og menn héldu, að slikt réttindaafsal verkalýðshreyf ingarinnar myndi færa þeim hærra kaupog bætt kjör bæði fyrr og betur. Að vísu eru notuð orðin ,,skipulagsbreytingar" og „bættar aðferðir við kjarasamnigna" en það sem að baki öllu þessu tali býr er einf aldlega það að skerða samningsrétt, verkfallsrétt og sjálfsákvörðunarrétt verkalýðshreyf- ingarinnar. Áður en launþegar taka undir þennan söng ættu þeir að gera sér Ijóst hverjir eru forsöngvararnir og hvað þeir eru að fá verkafólk til þess að gera með því að reyna að fá það til þess að ganga í kórinn. Forsöngvararnir í árásarsöngleiknum á verkalýðsfélögin nota nefnilega gamalkunna aðferð, sem Göbbels sálugi var meistari í meðan hann var og hét. Þeir segja nef nilega satt um þá atburði, sem allir vita hvort eð er, hvernig í pottinn eru búnir — og Ijúga svo til um hvað þeim valdi. Þannig segja þeir það satt, að kjarasamningar taka allt of langan tíma — enda er það staðreynd, sem hver einasti maður veit. Ollum er þessi seinagangur hvimleiður og mjög á móti skapi og því er tækifærið notað til þess að blanda sannleikann með þeirri stórlygi, að seinagang- urinn sé verkalýðshreyfingunni að kenna og verði ekki lagfærður nema með því að knésetja hana. Nákvæmlega svona myndi Josef heitinn Göbbels hafa farið að. Blandað sannleik um atburði, sem öllum eru kunnir, með lygi um aðila í samfélaginu — öf I, einstaklinga eða hópa, sem hann hefði viljað „lækka rostartn" í. Staðreyndin er nefnilega sú, að það er ALLS EKKI verkalýðshreyf ingunni að kenna hve seint og illa gekk að ná samningum á vinnumarkaðinum. Verkalýðshreyf- ingin mótaði kjaramálastefnu sína í desembermánuði s.l. og sendi þá kröfur sínar ríkisstjórn og atvinnurek- endum. En þessir aðilar voru ekki til viðtals vikum saman. Ríkisstjórnin hafði engan áhuga á málinu. Atvinnurekendur tóku ekki í mál svo mikið sem að ræða kjarabætur. Þessar eru orsakirnar fyrir því, að vikum saman gekk hvorki né rak í kjarasamningamálunum. Er það sök verkalýðshreyfingarinnar að viðsemjendur hennar vildu ekki við hana ræða? Loks kom að þvi að þolinmæði verkalýðshreyf ingar- innar þraut og hún greip til verkfallsvopnsins. Þá fyrst fóru öll hjól að snúast á fullu, nú voru atvinnurekendur allt í einu komnir i viðræðuskap og sáttasemjari i sátta- skap. Nú var tekið til við að vaka og vaka og samninga- gerð lokið á nokkrum sólarhringum. Auðvitað var verka- lýðshreyfingin svo skömmuð fyrir allt saman og þvi haldið f ram að hún hefði aldrei átt að grípa til verkfalls- vopnsins og sjálfsagt væri að gera henni í framtíðinni erfiðara um vik í því efni svo„betri tími gæfist til þess að leysa málin friðsamlega". Launþegar, sem láta plata sig til þess að taka undir þennan söng, ættu að gera sér eina einfalda staðreynd Ijósa. Ef búið hefði verið að takmarka rétt verkalýðs- hreyfingarinnar eins og rætt er um að gera þannig, að hún hefði ekki getað gripið til verkfallsvopnsins, þá væri ósamið enn. alþýðu- Föstudagur 5. marz 1976. b,aðid Samþykkt horgarstjornar um læknamál hötuöborgarinnar: Ríkið borgar kostnað varð- lækna en ekki borgarsjóður Fyrir skemmstu beindi borgar- stjórn þeim tilmælum til Lækna- félags Reykjavikur og Sjúkra- samlags Reykjavikur, að gerðar yrðu úrbætur á núverandi varð- læknaþjónustu að næturlagi og um helgar, þannig að læknum á þessari vakt yrði fjölgaö i tvo. Einnig að fengið yrði sérmenntað fólk til þess að annast símavörzlu varð- og neyðarþjónustunnar. Þá var þeim tilmælum beint til aðila að annar þessara lækna hafi aðsetur i Breiðholti. Þessi tillaga var samþykkt einróma i borgar- stjórn, enda er tillaga sem þessi vænleg til þess aö auka vinsældir borgarstjórnarmanna. Það kann einnig að hafa rekið á eftir,að kostnaður við þessa þjón- ustu er að langmestu leyti greidd- ur af rikinu, en ekki af Reykjavikurborg. Sjúkrasamlagið greiðir fasta- gjald til lækna fyrir vaktirnar og einnig helming af hluta sjúklings — eftir reikningum. Sjúkrasam- lagiö fær 90% af fjármagni sinu frá rikinu en borgarsjóður leggur fram 10%. Kostnaðurinn við þessa þjónustu var árið 1974 nim- ar 8 milljónir króna, en gera má ráð fyrir að kostnaöurinn á siðasta ári hafi verið u.þ.b. 20 milljónir króna. Kostnaðarliðir Læknir sem er á kvöldvakt þ.e. frá kl. 17 til ki. 00.30 fær fasta greiðslu,kr. 4000, fyrir vaktina og auk þess kr. 700 fyrir hverja vitj- un. Læknir sem er á næturvakt þ.e. frá miðnætti til kl. 8 að morgni fær kr. 8750 sem fasta greiðsiu og að auki 1100 kr. fyrir hverja vitjun. Aðrir háir kostnaðarliðir við þjónustuna eru rekstur læknabils, laun tveggja bilstjóra og laun tveggja simastúlkna, sem annast viðtöku beiðna um læknisvitjun. Verði að ráði, að bætt verði við einum lækni, má ætla að emnig þurfi að bæta við a.m.k. einum bil og tveimur bilstjórum. Samanburður við aðrar borgir Til gamans má geta þess að i Stokkhólmi eru tveir læknar sem annast þessa þjónustu, en þar er fjöldi ibúa á svæðinu ekki 100 þús. eins og hér, heldur sjöfalt fleiri. Þar ermeiri áherzla lögð á góða simaþjónustu, og er sérhæft starfslið við simavörzlu. Slik simaþjónusta hefur lengi verið talin koma til álita hér, en ekki hefur orðið úr framkvæmdum. Með þvi að betrumbæta sima- þjónustuna hefur Stokkhólmsbú- um tekizt að minnka kostnaöinn við læknisvitjanir um alltað 60%. Á þaö ber einnig að lita að Stokk- hólmsbUar njóta mikið betri þjón- ustu heimilislækna en ibúar Iteykjavikur. Þetta atriði er þess trUlega valdandi að minna álag er á næturlæknum. Þessum málum mun vera svip- að háttað i Kaupmannahöfn og i Stokkhólmi. Fljótfærni? Það er af ofansögðu Iiklegt að borgarfulltrUarnir hafi hlaupið á sig meö þvi að samþykkja þessar ábendingar og hefðu þeir átt að láta skynsemina ráða og kanna lyrst þá möguleika sem kæmu til greina til úrbóta i þessum mál- um. Ekki er undirritaður bað ill- gjarna að ætla borgarfulltrúum það, að hafa i fijótfærni sinni ætl- að að veiða atkvæði með þessari samþykkt, en óneitanlega kemur manni það i hug, þegar litið er til þess hver það er sem borgar brúsann. Eiríkur Baldursson skrifar

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.