Alþýðublaðið - 16.03.1976, Page 1
HEILLAOSKI
ALÞÝÐUFLO
Alþýðuflokknum barst
fjöldi heillaóska i tilefni
60 ára afmælisins. Komu
þær viða að innanlands og
utan. Frá Stokkhólmi
barst eftirfarandi skeyti:
,,1 áratugi hefur
jafnaðarstefnan verið
áhrifamikið, knýjandi afl
á bak við sókn islendinga
til nútima velferðarþjóð-
félags. Baráttan og
árangurinn vekja
virðingu. En fyrir
umbótaflokk er framtfðin
alltaf þýðingarmeiri en
hið liðna.
Um ieið og við sendum
bræðraflokki okkar
hamingjuóskir, látum við
i ljós von um mikinn
árangur i þeirri sókn,
sem er framundan, svo og
um á f r a m h a 1 da n di
vináttu og samstarf
flokka okkar.
Jafnaðarmannaflokkur
Sviþjóðar.
Olof Palme,
Sten Andersson.”.
Siðar verða birt önnur
skeyti, er floknum bárust.
A blaðsiðu 4 og 5 er frá-
sögn og myndir af flokks-
stjórnarfundi á laugar-
dag og afmælishátið
Alþýðuflokksins á sunnu-
dag.
• •
OLL
HÚTEL
FULL
BÖKUÐ
YFIR
HÁSUMARIÐ
AUt útlit bendir til
þess að ásókn erlend-
ra ferðamanna hingað
til lands aukist fremur
en hitt isumar — og nú
þegar eru öll hótel
fullbókuð yfir hásum-
arið.
Það hefur háð okkur
við að laða hingað
ferðamenn, hve ör
verðbólga hefur verið
hér, og þvi veriö óhag-
kvæmt fyrir ferða-
menn að leggja leiö
sina hingað.
Nú hefur gistiverð
hins vegar staðið i
stað frá i fyrra, og er
nú 10 — 15% ódýrara
en á hinum Norður-
löndunum.
1 grein i opnu i blað-
inu i dag er fjallað um
þessi mál og rætt við
nokkra forráðamenn á
feröamálasviðinu.
Hin aldna baráttukona Alþýðuflokksins, Jóhanna Egilsdóttir, ávarpar gesti á hinni f jölmennu og veiheppnuðu
afmælishátið á Hótel Sögu á sunnudaginn. Myndir og frásögn á blaðsíðum 4 og 5.
RÍKISSTYRKURINN TIL DAGBLAÐA SKORINN VERULEGA NIÐUR
DABBLABIÐ M66UR
STYRK Á VIB flHHIR
BLOD AD EKIN ÚSK
Dagblaðið hefur nú
bætzt i hóp þeirra blaða,
sem njóta hins svo-
nefnda „rlkisstyrks”. 1
tillögum nefndar sem
skipuð var til þess að
skipta niður rikis-
styrknum viö blaðaút-
gáfu er gert ráð fyrir,
að 13,5 milljónir króna
skiptist á milli sex dag-
blaða og Nýrra þjóð-
mála og bætist Dag-
blaðið þar með i hóp
þeirra blaða, sem þess-
arar opinberu fyrir-
greiðslu njóta. Alþýðu-
blaðið hefur sannfrétt,
að þetta var gert sam-
kvæmt beiðni Dag
blaðsins sjálfs en þegar
nefndin hóf störf við að
skipta niður ríkis-
styrknum lá fyrir
itrekuð ósk frá Dag-
blaðinu um, að það nyti
hlunninda hans til jafns
við önnur dagblöö. Fær
nú dagblaðið á mánuöi
hverjum greitt jafn hátt
fé beint úr rikissjóði og
hvert hinna blaðanna
fyrir sig.
Upphæðin, sem kom
til ráðstöfunar að þessu
sinni nam 24.9
miljónum króna.
Nefndin, sem skipuð
var til þess að skipta
þvi, komst að þeirri
niðurstöðu, að 4,5 millj-
ónir af upphæðinni
rynnu til landsmála-
blaða stjórnmálaflokk-
anna — þ.e.a.s. þeirra
blaða, sem út koma
utan Reykjavikur. Er
þessum hluta skipt jafnt
á þingflokkana fimm
þannig að hver þeirra
fær 900 þús. kr. til ráð-
stöfunar til kjördæmis-
'málgagna eða lands-
málablaða, eins og þau
eru oft nefnd.
1 öðru lagi gerði
nefndin ráð fyrir, að
6.95 milljónir af
upphæðinni gengi til
þingflokka skv. höfða-
tölureglu til ráðstöfunar
af þeirra hálfu til
styrktar blaðaútgáfu.
Samsvararþetta þvi, að
116 þús. kr. komi á
hvern þingmann. Þessu
fé geta þingflokkarnir
ráðstafað sjálfir hvort
heldur er til dagblaða
eða landsmálablaða.
Sumir þeirra, þó ekki
allir, hafa ætlað kjör- I
dæmismálgögnum
sinum þennan styrk I
lika.
1 þriðja lagi er svo I
gert ráð fyrir, að 13,5 !
milljónir króna renni til
dagblaðanna og Nýrra
þjóðmála. Þessi upphæð ]
fer til kaupa á svo-
nefndum „rikisein-
tökum” og fá öll dag-j
blöðin jafn mikið. A s.l.
ári samsvaraðil
upphæðin til hvers blaðs j
þvi, að rikissjóður
keypti 450 eintök af
hverju blaði og voru þau j
blöö afhent rikis-
stofnunum skv. sér-
stökum lista frá fjár-
málaráöuneytinu.
Þess i upphæð lækkar nú ]
nokkuð og auk þess
bætist Dagblaðið I j
hópinn að eigin ósk og ]
verður það til þess að
rikisáskriftin hjá hverju !
blaði er skorin niöur úr
450 eintökum i 200
eintök á mánuði. Verður
þvi fjármálaráðuneytið
að taka talsvert margar
rikistofnanir út af kaúp
endalista sinum, sem
áður hafa fengið dag-
blöðin i rikisáskrift.
■
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ
•JP
VEXTIR AF ORLOFSFÉ
AAYNDA FERÐA- OG
HJÁLPARSJÓÐ
STARFSMANNANNA
— sjá baksíðu
'Jsavaé lifcliwmiiirtn II