Alþýðublaðið - 16.03.1976, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 16.03.1976, Qupperneq 11
biaðid Þriðjudagur 16. marz 1976 ÚTLÖND 11 MASIANARN- IR OG ÖR- LÖG ÞEIRRA Athygli manna hefur mjög beinzt að þeirri hungursneyð og þurrki, sem rikir i héruðunum næst Sahara. Aftur á móti er minna vitað um riki eins og t.d. Kenya og Tansaniu þar sem regntiminn hefur brugðist a.m.k. 3 sið- astliðin ár. En sú afturför sem átt hefur sér staö i jaröyrkju og kvikfjár- rækt, stafar ekki einungis af regnskorti, heldur og þeim að- feröum sem notaðar eru á þeim sviðum. Tökum sem dæmi Masainana. Þeir eru hirðingjaþjóð, sem ferðast með hjarðir sinar land- svæða á milli, eftir þvi hvar beitin er bezt. Kýrnar ásamt fáeinum geit- um er sá bústofn, sem lifað er af. Hefðbundin fæða Masainans er kúablóð og mjólk, sem hrært er saman. Frumstæð þjóð Masainarnir eru afar frum- stæðir. Þeir hafa hvorki getað né viljað tileinka sér vestræna menningu. Til dæmis hefur reynst ómögulegt að koma þeim iskóla eða fá þá tilaðsetjast að á ákveðnum stöðum. Með tilkomu evrópsku bænd- anna hafa umráðasvæði þeirra hins vegar minnkað til muna, og þau svæði sem voru grasi gróin allt fram til seinni heimsstyrj- aldar, eru nú uppurin. Af þvi leiðir að Masaianarnir, sem lifa svo fábreyttu lifi á okk- ar mælikvarða, eru raunveru- lega að tapa lifsbjörginni i slik- um mæli að það verður ekki bætt næstu áratugina. Þjóðgarðarnir vinsælir öll lönd Austur-Afriku hafa lagt stór landsvæði undir þjóð- garðgarða eða nk. dýragarða. Slikir garðar einkennast oft af einhverri ákveðinni dýrateg- und. í Ngorongoro i Tanzaniu virð- ast t.d. allar antilópur Afriku vera samankomnar og i Mikumi má sjá stóra flokka fila og Það skýturskökku við að.sjá þetta hótel þarna i miðri auðninni. Það er byggt eins og stækkaður masainakofi, og þar er vitanlega að finna öli hugsanleg þægindi. Þeir forðast vestræna menningu eins og heitan eld böffla. Skrautfjöður Amboseli, sem liggurá landamærum Kenya og Tanzaniu, eru Masainarnir'. Þjóðgarðar sem þessir eru sannkölluð paradis ljósmynd- ara og kvikmyndagerðar- manna. En það fyrsta sem þeir koma auga á i Amboseli. er skilti eitt mikið, sem segir að bannað sé að ljósmynda Masa- inana. En þetta gerir ekkert til, þvi Masainarnir vilja ólmir láta mynda sig — iyrir borgun. Þannig liða fyrstu sex árin i lifi krókodilanna. Otal mörg dýr i kös á botni steinþróar og nægilega mikið vatn til þess þau geti hreyft sig á eðlilegan máta. Hitinn er u.þb. 35 gráður i skugganum. Karen Joo er starfandi við Tan Moh Hong dýragarðinn. Hún sér m.a. um að krókodilarnir fái reglulega nýjan fisk að éta. Ef þér finnast veski, vasabækur, belti og aðrar vörur úr krókó- dilaskinni dýrar, þá á það sér sinar eðlilegu út- skýringar. Það þarf nefnilega að ala krók- ódil i sex ár áður en skinnið verður markaðshæf vara. t Singapore er fjöldi verziana sem hafa á boðstólnum vörurúr krókódilaskinni, en aðeins á einum stað á eyjunni finnast lifandi krókódilar. Það er i Tan Moh lfong dýragarðinum. Þar eru samankomnir u.þ.b. 500 krókódilar, alligatorar og pyhtonslöngur. Krókódilarnir eru aldir, margir saman. istórum steinkerjuiyi.með háum börmum. Um allt svæðið eru varúðarskilti með áletruninni ,,Gætið að höndunum”. Mestan hluta dagsins liggja krókódilarnireinsog steinrunnir i hitamollunni. öðru hvoru hreyfir eitthvert dyrið sig og ytir við þeim sem næst liggja,— svo veröur allt kyrrt á ný. Til Singapore koma krokó- dilarnir svo t il nýfæddir, frá Indó- nesiu. Fyrst i stað eru þeir aldir á kræklingi og rækjum. en þegar þeir eru orðnir um 1, 2 metri á lengd eru þeir fluttir i steinkerin til fullorðnu dyranna og fá þá fisk að éta. Þar liggja þeir siðan ár eftir ár og biða þess e ins að verða slátrað. Krókódilar eru aldir vegna skinnana. Þau eru þvegin. skafin hert og þurrkuð áður en þau teljast markaðshæf. Hluti fram- leiðslunnár ef jafnan seldur til Japans og Evrópu. En kjötið er einnig nýtilegt. Soðið krókódilakjöt bragðast. að þvi sagt er. eins og kjúklingur. Einnig mun kjötið hafa eitthvert lækningagildi. Ef menn hafa áhuga á skriö- dýrum. þá er Tan Moh Hong garðurinn draumastaður. Þar vinna nú um þaö bil 20 manns. KRÖKODfLAR RÆKTAÐIR RAUNIN VEGNA SKINNSINS EINS

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.