Alþýðublaðið - 16.03.1976, Side 16
FÁTT ER SVO MED OLLU ILLT
«0 EKKI BOBI NOKKUO BOn
Umhleypingasöm veðrátta, - en hlýindin spara
okkur stórfé
Likast til eru flestir Reykvikingar orðnir leiðir á
þvi umhleypingasama veðurfari sem hrjáð hefir
okkur hér sunnanlands það sem af er þessu ári.
Stöðug sunnanátt og óvenjumikil úrkoma eru höfuð-
einkenni veðurfarsins.
Við höfðum samband við Pál Bergþórsson,
veðurfræðing, til þess að leita að skýringum á
þessum „ófögnuði”.
,,Það má segja að svona
umhleypingasöm veðrátta sé oft
einkenni á mildum vetri”, sagði
Páll, ,,og miklir snjóar og frost
eru lika leiðigjörn”.
Ástæðan
Páll sagði að það væri leið
lægðanna er þær færu yfir landið
sem réði vindáttinni, og þar sem
hæðasvæði yfir Grænlandi og haf-
inu norðurundan hafa verið
óvenulitil miðað við árstima heföi
braut lægðanna legið norðar en
venjulega. Afleiðingin er sú að
rakamettað loft sunnan úr hafi
hefir lagt leið sina hingað og gert
okkur lifið leitt.
Gott fyrir norðan
Þó að veðurguðirnir geri
Sunnlendingum gramt'i geði
verður ekki annað sagt en að þeir
hossi norðanmönnum. A leið sinni
yfir hálendið losnar sunnanáttin
sig við rakann, og þegar hún
kemur niður i dalina norðan heiða
er hún hlý og tiltölulega þurr.
,,Likn með þraut”
„Okkur er þó lögð likn með
þraut”, sagði Páll, „þvi þetta
hlýja loft sparar okkur mikið i
hitunarkostnaði og snjómokstri.”
Það er þvi ef til vill ekki ástæða til
að lita lifið of svörtum augum,
heldur reyna að koma auga á
björtu hliðarnar á tilverunni.-ES.
„Það er eftil vill ekki eins svart og það sýnist”, segir Páll Berg-
þórsson um veðurfariö. Telpan á myndinni hér til hliðar virðist
þó ekki sjá nema döpru hliðina á veðurfarinu ...
Vextir af orlofsfé
ferða- og hjálpar-
sjóð starfsmanna
mynda
Vilja síður að Póst-
gíróstofan hirði
vexti af orlofsfé
þeirra
Æ fleiri óánægjuraddir heyr-
ast nú úr röðum iaunþega vegna
þess að Póstgiróstofan hirðir
vexti af orlofsfé landsmanna.
Það færist nú mjög i vöxt að
fyrirtæki úti á landi leggi orlofs-
fé reglulega inn á bók, i stað
þess aö hlaupa með það inn á
næsta pósthús.
Með þessu vinnst það að féð er
lengur heima í héraði og ber auk
þess vexti sem siðan eru notaðir
i þágu starfsfólksins.
Nú nýveriö var staddur hér I
borginni hópur starfsmanna
fyrirtækis eins úti á landi.
Blaðið náði tali af einum
starfs mannanna og spurðist
fyrir um feröalag hópsins.
Hann sagði okkur að
fyrirtækið legði vikulega inn á
bók, siðan væru vextirnir látnir
mynda sérstakan sjóð i eigu
starfsmanna fyrirtækisins.
Þessi sjóður er ætlaður til
þess að greiða kostnað af
menningarferðum starfs-
manna, einnig heföi nokkuð ver-
ið gert af þvi að minnast stóraf-
mæla vinnufélaga ef fólkið telur
vera ástæöu til þess.
Þá er einnig heimild fyrir þvi
að nota megi fé úr sjóðnum til
þess að hjálpa einstökum
starfsmönnum ef þeir lenda i
erfiðleikum einsog t.d. veikind-
um.
Talsmaðurinn sagði að sl. tvö
ár hefði verið safnað i sjóðinn til
þessarar ferðar sem nú er ný-
lokið.
Sjóðurinn hefði greitt fargjald
fyrirstarfsmenn, hótelherbergi,
sameiginlegt boröhald á
skemmtistað og miða i leikhús.
Afturámóti hefðu þátttak-
endur úr hópi starfsmannanna
sjálfir greitt kostnaðinn fyrir
maka sina, svo og fæðiskostnað.
EB.
ÞRIÐJUDAGUR
16. MARZ
alþýðu
blaðið
TEKIÐ EFTIR: Að á afmæli
Alþýðuflokksins bárust
flokknum m.a. árnaðaróskir
frá pólitiskum flokkúm og
fjöldahreyfingum innanlands,
en þó hvergi nærri öllum.
Þannig bárust flokknum
árnaðaróskir frá Alþýðusam-
bandinu og Sambandi
ielenzkra samvinnufélaga —
en ekki BSRB, og frá
Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna og Sjálfstæðis-
flokknum — en hvorki Alþýðu-
bandalaginu né Framsóknar-
flokknum.
HEYRT: Að i nýsamþykktri
endurskoðaðri fjárhagsáætlun
stórs kaupstaðar úti á landi sé
gert ráð fyrir 10 þús. kr. á
skólabarn vegna kostnaðar
við skólatannlækningar.
HEYRT: Að einn af þeim, sem
standa að útgáfu „ÓKINDAR-
INNAR” — hins nýja háðblaðs
— og sá, sem eigi hvað mest af
efni i fyrsta blaðinu, sé Jökull
Jakobsson, rithöfundur.
HEYRT: Að Ferðafélag
íslands hafi tekið það heldur
óstinnt upp, að einn af starfs-
mönnum þess, Jón Gestsson,
skálavörður i Landmanna-
laugum, hafi upplýst veiði-
þjófnað Orkustofnunarmanna
og annarra i Kirkjufellsvatni
og Kilingavötnum I haust.
Hafa menn jafnvel haft við
orð, að svo kunni að fara, að
Jón verði látinn hætta
störfum.
FRÉTT: Að hið svokallaða
punktakerfi i starfsmati opin-
berra starfsmanna til ákvörð-
unar um laun séu að umbylta
ýmsu i fræðslukerfinu. Nú
skiptir það nefnilega miklu
máli I sambandi við launa-
ákvarðanir hvernig nám og
einstakir námshlutar eru
metnir og er þvi haldið fram,
að launaleg hagsmunamál
ákveðinna hópa séu farin að
hafa talsverð áhrif á fyrir-
komulag og skipulag þeirrar
menntunar, sem þessir hópar
njóta.
FRÉTT: Að ekkert lát sé á
Kröflunefnd varðandi áfram-
hald á framkvæmdum við
Kröflu. Nú sé t.d. verkfræð-
ingur einn i Japan á vegum
nefndarinnar til þess að kynna
sér eitthvað frekar um
jarðgufuvirkjanir.
• •
FRÉTT: 1 beinu framhaldi af
þessu, að ekki séu allir ráð-
herrar I rikisstjórninni jafn
ánægðir með tilburði Kröflu-
nefndar og orkumála-
ráðherra. Hafi ýmsir aðrir
ráðherrár fullan hug á að fara
varlegar i sakirnar.