Alþýðublaðið - 03.06.1976, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Fimmtudagur 3. júní 1976. hlalfi*1
Tækniskóli Islands
færir út kvíarnar
Skólaslit fóru fram i
12. sinn við Tækniskóla
Islands, laugard. 29.
mai s.l. í ræðu rektors,
Bjarna Kristjánssonar,
kom meðal annars
fram:
Á skólaárinu stunduðu
242 nemendur nám við
skólann. Brautskráðir
voru:
1. okt. 16 meinatæknar,
20. des. 13 bygginga-
tæknifræðingar
15. jan. 5 raftæknar
15. jan. 5 vélatæknar og
var það fyrsti hópur-
inn.
Við skólaslitin fengu 6 raf-
magnsmenn og 4 vélamenn
áfangaskirteini, en þeir eiga
fyrir höndum 2ja ára nám til
tæknifræðiprófs við danska
tækniskóla. Raungreinadeild og
undirbúningsdeild starfa einnig
á Akureyri og á Isafirði. Raun-
greinadeild luku með fullnægj-
andi árangri 21 nemandi og
undirbúningsdeild 36 nemendur.
Hæstu einkunir
Hæstu meðaleinkunnir á
vorprófi hlutu:
Byggingadeild, tækni
fræðisvið, 1. hluti Bragi
Haraldsson 8,6 2. hluti
Steingrimur Hauksson 8.0, 3.
hluti Omar örn Ingólfsson, 8.5.
Rafmagnsdeild, tækni-
fræðisvið, Kristinn Danielsson;
8.8, tæknasvið, Valgeir Kára-
son; 8.7,
Véladeild, tæknifræðisvið,
Valgeir Hallvarðsson; 8.7,
tæknasviö, Þorbjörn
Stefánsson; 8.1
Meinatæknadeild 1, Margrét
Agúscsdóttirj 8.9 Raungreina-
deild, Oddur Ingvarsson; 8.4,
Undirbúningsdeild, Björn Ei-
riksson, Friðrik Jósepsson, Jón
Eiriksson og Viðar Harðarson,
allir með 8.4.
Skólinn starfar nú i nýju rúm-
góöu húsnæöi að Höfðabakka 9.
Inngönguskilyrði
Inngönguskilyrðum hefur nú
verið breytt, og i þvi sambandi
er einna merkust sú stefna aö
hleypa inn i undirbúningsdeild-
ina mönnum, sem-orðnir eru
22ja ára 'án skilyröa um nám
umfram skólaskyldu (grunn-
skóla).
Fjölgun námsbrauta verður á
næsta skólaári. Ahugi fer vax-
andi og aðsókn viröist nú nóg aö
sérhæfða náminu i útgeröar-
deild og e.t.v. aö tæknasviöi i
byggingardeild.
Umsóknarfrestur fyrir ný-
nema er til 10. júni n.k.
Tækin úr gömlu tilraunastof-
um skólans i almennri eðlis-
fræöi og efnafræöi verða flutt i
nýju stofurnar að Höfðabakka 9
i sumar og þar með veröur allur
skólinn kominn undir eitt þak.
Aörar tilraunastofur og reikni-
stofa eru i uppbyggingu. Mikið
vantar af tækjum. Nokkuð hefur
þó verið keypt og ýmislegt hafa
velviljaðir aðilar látið af hendi
rakna án endurgjalds. 1 þvi
sambandi færði rektor eftir-
töldum fyrirtækjum sérstakar
þakkir:
Bræöurnir Ormsson h.f.
Islenska Álfélagið h.f.
Isól h.f.
Johan Rönning h.f.
Jötunn h.f.
Landsmiðjan og henni tengd
erlend fyrirtæki, De Laval og
Atlas Copco.
Bjarni Kristjánsson, rektor, flytur skólaslitaræðu.
Aageir Magnússon 1. hluta tæknifræðináms flytur ávarp.
ólafur H. Jónsson, raungreinadeildarmaður, tekur viö þýzku
verðlaunum.
Rafmagnsveita Reykjavikur
Vélsmiðjan Héöinn h.f.
Af hálfu nemenda flutti
Asgeir Magnússon fráfarandi
formaður skólafélagsins
kveðjuávarp.
Meðfylgjandi myndir eru frá
skólaslitunum.
Kvennaskólan-
um sagt upp
Dúx Kvennaskólans i
Reykjavik á þessu ári
er Kristjana G. Grims-
dóttir sem hlaut hæstu
einkunn á burtfarar-
prófi eða 9.20. Á lands-
prófi miðskóla Soffia
Arnþórsdóttir
einkunnina 9.70, sem
var hæsta einkunn yfir
skólann, en auk hennar
hlutu átta stúlkur
ágætiseinkunnir.
Meðaltal beggja
bekkjardeilda á lands-
prófi var 8.00.
Kvennaskólanum var sagt
upp laugardaginn 29. maí að
viðstöddu fjölmenni. Guðrún P.
Helgadóttir forstöðukona gerði
grein fyrir starfsemi skólans
þetta skólaár og skýrði frá
úrslitum prófa. 1 haust settust
214 námsmeyjar i skólann og
luku 18 burtfararprófi, 57 lands-
prófi og 61 unglingaprófi.
Við skólauppsögnina voru
Kvennaskólanum færðar góðar
gjafir og heillaóskir frá
fulltrúum fyrri árganga. Má
nefna, að fyrir hönd Kvenna-
skólastúlkna er brautskráðust
fyrir 50 árum talaði frú
Guðbjörg Birkis og færði skól-
anum fjárupphæð i Minningar-
sjóð frú Thóru Melsteð.
Forstöðukona þakkaði
afmælisárgöngum alla tryggö
og ræktarsemi við sinn gamla
skóla. Að þvi búnu fór fram
verðla una afhending til
nemenda er sköruðu fram úr og
að lokum þakkaði forstöðukona
skólanefnd, kennurum og stjórn
nemendasambandsins ánægju-
legt samstarf og óskaði stúlkun-
um sem brautskráðust allra
heilla á komandi árum.
—SG
Sjö nýstúdentar úr
Samvinnuskólanum
Samvinnuskólinn hefur um
hrið rekið framhaldsdeildir i
Reykjavik, þar sem stefnt er að
stúdentsprófi.
Yfirkennari skólans, Svavar
Lárusson, annast daglegan
rekstur deildanna, en samvinna
hefúr verið við menntaskólann i
Hamrahlið vegna braut-
skráningar stúdentanna, þar eö
enn skortir reglugerð frá hinu
opinbera um starfsemi
deildanna.
Skólanum var slitið þann 14.
mal af Hauki Ingibergssyni,
skólastjóra.
Hæstu einkunn á stúdents-
prófi hlaut Sigmar E. Arnórs-
son, Rvik 8,63.
LESENDUR - Sendið Hominu
línur eöa hringiö og segið
skoðun ykkar á málefnum
líðandi stundar. - Ykkar
rödd á líka að heyrastí
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi: Bretti — Hurðir — Vélarlok —
Geymslulok á Wolkswagen I allflestum litum. Skiptum á
einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið verö.
Reynið viðskíptin.
Bilasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25 Simar 19099 og 20988.