Alþýðublaðið - 03.06.1976, Síða 7
blaXfö1 Fimmtudagur 3. júní 1976.
Lktahátíð í Reykjavík 4. til 16. júní 1976 7
Konungur
sveiflunnar
með
7 manna
hljómsveit
Benny Goodman,
konungur sveiflunnar,
eins og hann er oft
nefndur, verður meðal
gesta á listahátið í ár.
Benny Goodman er
nú 65 ára að aldri og
hefur hann staðið i
sviðsljósinu i meir en
40 ár. Þrátt fyrir lang-
an og mikinn frægðar-
feril er ekkert lát að s já
á kappanum og er sagt
að enn leiki hann á
klarinettið sitt eins og
það hafi verið fundið
upp sérstaklega fyrir
hann.
Það er alveg sama hvar
Benny Goodman og hljómsveit
halda hljómleika, það komast
miklu færri að en vilja. Bæði er
það fastur aðdáendahópur sem
lætur sig ekki vanta og fylgir
hljómsveitinni eins og skuggi og
þótt ótrúlegt megi virðast fara
unglingar miklu fremur á
jazz-hljómleika með Benny
Goodman, heldur en popptón-
leika, jafnvel þótt heimsfrægar
hljómsveitir eigi hlut að máli.
Það er þvi ekki að undra að
marga fýsi að hlýða á konung
sveiflunnar á listahátið i vor, og
vist er að þar verður enginn
fyrir vonbrigðum.
Benny Goodman kemur með 7
manna hljómsveit hingað til
lands og eru það allt úrvals
hljóðfæraleikarar, semallir
hafa getið sér fræðgarorð hver á
sinu sviði.
Connie Kay
trommuleikari
er fæddur i Tuckahoe, New
York. Móðir hans var pianóleik-
ari og haföi mikið yndi af aliri
tónlist. Hún vakti áhuga sonar-
ins á hljóðfæraleik, þegar hún
hóf að kenna honum á pianó, og
brátt fóru hæfileikar hans að
koma i ljós.
Ekki átti þó fyrir Connie að
liggja að gerast pianóleikari,
þvi hugur hans beindist brátt að
trommuleik og i dag er hann
einn af fremstu trommuleikur-
um heims. Connie hóf að leika
með Modern Jazz Quartet árið
1955 og lék með honum fram til
1974 en fór siðan yfir i sextett
Benny Goodman.
Peter Appleyard
vibrafónleikari
hóf hljómlistarnám sitt 14 ára
gamall. Hann hefur leikið með
Benny Goodman af og til siöan
1958, og vareinnþeirrasem fóri
hljómleikaförina um Evrópu
1972. Peter Appleyard er einn
snjallasti vibrafónleikari sem
uppi hefur verið og hefur hann
leikið með öllum þekktustu
hljómlistarmönnum veraldar,
enda mjög eftirsóttur
hljómlistarmaður.
Gene Bertoriti
var aöeins 9 ára þegar hann
hóf nám i gitarleik og hæfi-
leikarnir létu ekki á sér standa
þvi hann var þegar orðinn mjög
frægur gítarleikari 16 ára
gamall.
Gene byrjaði að leika með
hljómsveit Benny Goodmans
1966og hefur leikið meðhenni af
og til siðan. Hann er talinn mjög
góður gitarleikari, eins og fyrr
sagði, og hefur hann hlotið mik-
ið lof gagnrýnenda sem og ann-
arra.
Pianóleikarinn
John Bunch
hóf fyrst að leika með jazz-
hljómsveit þegar hann var 12
ára gamall. Hann var einn
þeirra sem fór með Benny
Goodman I hljómleikaferð til
Sovétrikjanna, en hefur einnig
spilað með Woody Herman,
Buddy Rich o.fl.
Michall Morre
bassaleikari
fæddist i Cincinnati i Ohoi.
Má segja að hljómlistin hafi
verið honum i blóð borin, þvi
faðir hans var jazz-gitarleikari
og móðir hans tónlistarkennari.
Ekkileiðheldurá löngu þar til
Michael ákvað að snúa sér að
hljómlistinni og að loknu námi
hóf hann að leika bæði á
skemmtistöðum og við
hljómplötuupptökur.
Auk þess hefur Michael samið
mikið af lögum og hafa mörg
þeirra verið leikin inn á
hljómplötur.
John S. Wilson hljómlistar-
gagnrýnandi hjá New York
Timeshefur skrifað um Michael
Moore, að hann sé ,,einn af frá-
John Bunch
bærustu jazz-bassaleikurum
sem komið hafa fram i dags-
ljósið um áraraðir.”
George „Buddy” Tate
saxafónleikari
er hreinræktaður Texasbúi.
Hann hóf að leika með
hljómsveitum ungur að árum og
af þeim sem hann hefur leikið
með má nefna Andy Kirk og
Count Base Big band.
Buddy hefur jafnframt leikið
á öllum helztu jazz-hátiðum sem
haldnar hafa verið m.a. New-
port-hátiðinni sem haldin var i
Nice á Frakklandi fyrir
skömmu.
Það að auki hefur hann fariö
margar hljómleikaferðir um
þvera og endilanga Evrópu.
Buddy hóf að leika með Benny
Goodman vorið 1976.
Warren Vashe
trompetleikari
Hann hóf tónlistarnám 10 ára
að aldri og i menntaskóla var
hann hljóms veita rstj ór i
jazz-hljómsveitar á staðnum.
Sagt er að áhrifa gömlu
kempanna Lousie Armstrong,
Billy Butterfield,Bobby Hackett
og Bix Beiderbecke gætir
greinilega i hljómlist Warrens,
en þó má segja þrátt fyrir það
að hann hafi sinn ákveðna stil.
Athygli hljómlistarunnenda
og gagnrýnenda hefur i vaxandi
mæli beinzt að þessari risandi
stjörnu á frægðarhimninum.
—JSS—
BENNY GOODMAN
r
Islenzkubættir Albvðublaðsins
þess getið, að þættirnir yröu
birtir tvisvar i viku, á þriðju-
dögum og laugardögum. Nú
hefur verið ákveðið að birta
þrjá þætti i viku, á þriðjudög-
um, fimmtudögum og laugar-
dögum. Hér kemur annar
þátturinn.
f siöasta þætti var rætt um
einkvæð kvennanöfn sem eru
,,Ég ætla til
hans Örn''
A þriðjudag hófu göngu sina stundum notuð óbeygð i eignar-
hér i blaðinu islenzkuþættir falli. En svo er um fleiri orö,
Guðna Kolbeinssonar. Þá var t.a.m. er oft sagt: ég ætla til
eftir Guðna Kolbeinsson
hans örni stað: ég ætla til hans
Arnar. Einnig er oröið stundum
notað óbeygt i þágufalii: Ég var
hjá honum örn, i stað: ég var
hjá honum Erni.
Og örn er ekki eina karl-
mannsnafnið sem klæmst er á i
þágufalli. Nöfn eins og Hörður,
Börkur, Hjörtur og Njörður eru
beygð rangt. Er þá sagt: ég var
hjá þeim Hörði, Börki, Hjörti
eða Hjertiog Njörðieða Njerðii
stað: Herði, Berki, Hirti og
NirðL — 1 félagahópi er vandinn
oft leystur með þvi að nota
gælunöfn. Hef ég til að mynda
heyrt Hörð kallaðan Hödda,
Hjört Hjössa og Börk Bögga.
Þessi lausn ber vott um ámóta
uppgjöf og lýsir sér i þvi að
mikill hluti landsmanna treystir
sér ekki lengur til að nota orðin
kýr og ær — telur of erfitt að
beygja þau — og notar i þeirra
stað oröin belja og rolla. Meira
að segja þekki ég bónda sem
ætið notar orðið belja i eintölu
en kýr I fleirtölu.
Nóg um það: Sigurjón Sigur-
björnsson skrifar:
1 einu dagblaðanna var þessi
fyrirsögn þann 20. október
siðastliðinn: Læknastúdentar
skornir niður?
i minni sveit merkti þetta að-
gerð á vanmetaskepnum, sem
fundust dauðvona i haga, fé eða
hross. N ú spyr ég: Hefir
merking orðanna breyst, eða er
slik aðgerð fyrirhuguð lækna-
nemum?
Skera niðurmerkir eiginlega
að slátra skepnu án þess að
hirða blóðið ellegar aö slátra
miklum hluta fjárins, eða þvi
öliu.á tilteknum bæ eða svæöi.
— En skera niður hefur einnig
fengið óeiginlega merkingu; al-
kunn er sifelld nauðsyn þess að
skera niður fjárlög. 1 þessari
fyrirsögn blaðsins mun átt við
að margir læknanemar neyðist
til aðhætta námi ef lán til þeirra
verði skert. En ég er sammála
Sigurjóni um það að lækna-
stúdentar skornir niðurer óhæft
orðalag, þar sem það hlyti að
merkja slátrun þeirra.
í dagblaði einu var fyrir
skömmu komist svo .aö orði'
aöiarnastofninn væri fáfuglaður.
Blaðamaðurinn á að visu lof
skilið fyrir að taka ekkrsvo til
orða að arnastofninn væri fá-
mennur, en ekki er ég ánægður
með nýyrðið. Sé orðið fámennur
fyrirmynd þess, eins og ég býst
viö, ætti að verða i-hljv. á stofn-
hljóðinu eins og i fámennur og
yrði orðið þá fáfygl. Andstæðan
yröilikast til fjölfygl.Stór hópur
kinda yrði samkvæmt þvi fjöl-
ær. Ekki er hægt að segja að
merking þessara orða sé auðsæ
viö fyrstu sýn, en þá kröfu er
nauðsynlegt að gera til nýyrða
eigi þau að vera lifvænleg.
Þvi legg ég til að vilji blaða-
maðurinn ekki segja einfaldlega
að ernir séu fáir þá segi hann i
staðinn að arnastofninn sé ekki
fuglmargur, eða þá sem er ein-
faldast, að arnastofninn sé
litUl.