Alþýðublaðið - 05.06.1976, Síða 2

Alþýðublaðið - 05.06.1976, Síða 2
2 FRÉTTIR Laugardagur 5. júní 1976. ýðu- bláöíð Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Itekstur: Heykjaprent hf. Kitstjóri t o}> ábyrgðarmaður: Arni Gunnars- son.. Kitstjóri: Siglivatur Björgvins- son. Kréttastjóri: Kjarni Sigtryggs- son. Aðsetur ritstjórnar er i Siðu- múla 11, slmi 81866. Auglýsingar: 14906. Áskriftarslmi 14900. Prentun: Biaöaprent h.f. Askriftarverð: 1000 krónur á mánuði og 50 krónur i lausasölu. alþýóu- blaöiö Hinir ríku ríkari og hinir fátæku fátækari Erlendur Einarsson, forstjóri SIS, flutti athyglis- verða ræðu á aðalfundi samtakanna. Hann vék að verðbólguvandanum, og kvað viðsjárverða tíma framundan í efnahagsmálum. Hann sagði, að allir væru sammála um, að undirrót efnahagsvandans væri óhófleg verðbólga, en ekki hafi reynzt unnt að •sameina þjóðina um leiðir, til að halda henni í skef jum. Erlendur benti rétti- lega á, að launastéttirnar þyrf tu að gera sér glögga grein fyrir því, að i verð- bólgu á borð við þá, sem hér hefði ríkt, ætti sér stað gífurleg eignartil- færsla í þjóðfélaginu. Þetta ástand skapaði þá miklu hættu, að þeir ríku, sem ættu miklar fast- eignir, yrðu ríkari, en þeir fátæku, sem ættu litlar eða engar fast- eignir, yrðu fátækari. Segja mætti, að verðbólgan væri mark- visst að grafa undan vel- ferðarþjóðfélagi okkar. Erlendur lagði áherzlu á, að þeir sem stjórnuðu efnahagsmálunum mættu ekki gef ast upp við að f inna leiðir, til að hafa hemil á verðbólgunni. Hætta væri á, að menn sigldu værukærir ofan á verðbólgus jónum og ráðstafanir í efnahags- málum miðuðust við það, að þjóðfélagið laðaði sig að mikilli verðbólgu í stað þess að draga úr henni. Erlendur Einarsson stjórnar fyrirtæki, sem á síðasta ári velti liðlega 22 milljörðum króna. Hann veit því gjörla um hvað hann talar og þekking hans á þessum málum verður ekki dregin í efa. Orð hans eru því alvarleg viðvörun til þeirra, sem efnahagsmálum stjórna. Þessi ummæli forstjóra SíS eru ólíkt raunsærri en súskoðun, sem fram kom í ræðu eins þingmanns Framsóknarf lokksins á fundi fyrir skömmu, er hann lofaði Guð fyrir verðbólguna: hún hefði gert honum og fleirum kleift að byggja. Alþýðuf lokkurinn hefur ítrekað bent á þá gífurlegu verðbólgu- hættu, sem birtizt í þeirri mynd, að hinir ríku verða stöðugt ríkari, en hinir fátæku fátækari. Verð- bólgunni fylgir efnahags- leg spilling og siðleysi og gildismat á fjármunum ruglast og verður að engu. Alþýðublaðið vill þess vegna vekja sér- staka athygli á ummæl- um Erlends Einarssonar, sem segja meira en langar greinargerðir um vandann í efnahags- málunum. Hvítasunnuhelgin Hvítasunnuhelgin er nú framundan. Þetta hefur venjulea veriðein mesta ferðahelgi sumarsins, og nú munu margir leggja land undir fót í góða veðrinu. Með aukinni umferð á þjóðvegum landsins eykst slysahættan, og einkum nú, þegar ætla má að langt sé siðan að flestir ökumenn, a.m.k. í Reykjavík, hafa farið út á malarvegi. Mikillar aðgæzlu er því þörf. Annað ber að hafa í huga. Gróður er enn viðkvæmur eftir langan og umhleypingasaman vetur. Ferðamenn ættu því að reyna að hlífa gróðri og náttúru landsins með góðri umgengni. Einnig að ganga snyrtilega um og fara frá hverjum stað eins og þeir vildu hafa komið að honum. — Alþýðublaðið óskar öllum góðrar ferðar og heimkomu. Hrinedans um afstöðuna til „Stofnunarinnar”: KAFLASKIL ( SJÓNARSPILl Eins og skýrt er frá á forsiðu var samþykkt að ráða tvo stjórnarþingmenn sem for- stjóra Framkvæmdastofnunar rikisins — og greiða þeim bankastjóralaun, ýmiskonar sérstakar aukagreiðslur, og að auki hafa þeir áfram þing- fararkaup. Aðeins fulltrúi Alþýðuflokks- ins i stjórn stofnunarinnar greiddi atkvæði gegn þessari ráðstöfun, en fulltrúi Alþýðu- bandalagsins sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Samkvæmt hinum nýju lögum á rikisstjórn að skipa for- stjorana samkvæmt tillögu stjórnar Framkvæmda- stofnunar, svo að samþykkt stjórnarinnar er endanleg. Furðulegt sjónarspil Með þessu er lokið kafla I einhverju furðulegasta sjónar- spili, sem fram hefur farið i islenzkri pólitík á siðari árum. Framkvæmdastofnun rikisins var sett á stofn og mynduð úr tveim eldri stofnunum i tið vinstristjórnar ólafs Jóhannes- sonar. Þá snerust Sjálfstæðis- menn, sem voru i stjórnarand- stöðu, gegn þvi af mikilli heift, að settir voru þrir, pólitiskir „kommissarar” i fram- kvæmdaráð stofnunarinnar, einn frá hverjum stjórnarflokk. Alþýðuflokkurinn studdi frum- varpið um stofnunina að undan- teknum ákvæðunum um hina pólitisku yfirstjórn, og taldi að þar ættu ekki að vera menn, sem eru starfandi stjórnmála- menn. Eftir að núverandi rikisstjórn var mynduð, breyttist hljóðið I Sjálfstæðisflokknum. Hann bætti sinum „kommissar” i Stofnunina og fékk formann stjórnarinnar, og hefur við það setið I tæplega tvö ár. Loks birtist frumvarp, sem átti að betrumbæta fyrirtækið, og var þar gert ráð fyrir að breyta framkvæmdarráðsmönnum i forstjóra, og skyldu stjórn stofnunarinnar ráða fjölda þeirra. Kórónan á verkið var svo samþykkt tveggja stjórnar- þingmanna, sem raunar eru báðir úr sama kjördæmi, sem ■ orst jórar Framkvæmda- stofnunar rikisins. Ný deild stofnuð Nýju lögin gera ráð fyrir, að stofna megi nýja deild, Byggðadeild, við Fram- kvæmdastofnunina. Hefur þvi máli verið frestað fram eftir ári. Þá var frá þvi skýrt, að Bjarni Bragi Jónsson væri á förum frá stofnuninni til að verða hag- fræöingur Seðlabankans. Samþykkti var einróma að ráða Guðmund ólafsson fram- kvæmdastjóra yfir Lánadeild Framkvæmdastofnunar, og að setja Bjarna Braga fram- kvæmdastjóra Áætlunardeildar unz hann hverfur til Seðlabank- ans. Formaður stjórnar Fram- kvæmdastofnunar er Ingólfur Jónsson alþingismaður. Auk hans mættu á stjórnarfundinum i gær þessir stjórnarsinnar: Ingvar Gislason, Þórarinn Sig- urjónsson Jón G. Sólnes og Jón Arnason. Aðalfulltrúi Alþýðu- bandalagsins i stjórninni, Ragn- ar Arnalds, var fjarverandi og varamaður hans mættur. II Gróður viðkvæmur og því bannað að tjalda - framhald af forsfðufrétt og sum þeirra raunar alveg ónot- hæf, sem tjaldstaðir. Þá sagði sr. Eirikur að stund- um hefði veriö gripið til þeirra ráða að setja tjaldbönn á þau svæði sem sýnt væri að myndu eyðileggjast ef mikilli umferð og hefðu slik bönn staðið fram i miðjan júni. Hefði þó ekki verið gripið til neinna ráðstafana nú, i og með vegna þess, að þangað kæmi fjölskyldufólk, og það gengi yfirleitt svo vel um að ekki þætti ástæða til að meina þvi að tjalda. Hitt væri öllu verra þegar stórir hópar settu sig niöur á svæðin, eins og ástand þeirra væri nú, þvi þá væru fyrirsjáanlegar skemmdir á þeim. Bannað að tjalda á Laugarvatni Að sögn G. Birkis Þorkelssonar hefir verið ákveðiö að tjaldstæðin á Laugarvatni verið ekki opnuð fyrr en eftir Hvitasun u. Vanalega hafa þau verið opnuð um mánaðarmótin mai-júni, en i þetta sinn þótti ekki ástæða til að leyfa fólki aðgang að þeim svo snemma. Sagði Birkir ennfremur að þetta gilti ekki aðeins um tjöld, heldur einnig um hjólhýsi. Laug- vetningum væri afskaplega annt um þessi svæði, og vildu ekki opna þau fyrr en tryggt væri aö þau yrðu ekki fyrir skemmdum. —JSS— Benzínmenguð steinolía Ariðandi tilkynning frá Olíufélaginu Skeljungi h.f. Oliufélagið Skeljungur h.f. hefur um langt skeið selt stein- oliu i tveggja litra brúsum. Rök- studdur grunur hefur komið fram um, að i maimánuði hafi nokkurt magn brúsa með benzinmengaðri steinoliu farið i dreifingu til útsöluaðila félags- ins. Tekizt hefur að innkalla meg- inn hluta þessa magns nú þegar, en þar sem ekki er enn fullsann- að hvort einhverjir brúsar með sliku bensinmenguðu innihaldi hafi verið seldir og komizt þannig i umferð, vill félagið, að höfðu samráði við Brunamála- stofnun rikisins, koma þeirri áriöandi aðvörun á framfæri við alla þá sem hafa undir höndum steinoliubrúsa merkta félaginu að skila þeim á mæsta útsölu- stað félagsins. Tekið skal fram, að leiki minnsti vafi á um innihald brúsa eru aðilar eindregið hvattir til að skila þeim inn en treysta ekki á að lyktarskyn «:lrpri iir nm innihalri hf*irra II MÆTIÐ A KAPPR 2. HVÍTASUNNUD

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.